Fréttablaðið - 18.04.2008, Síða 44

Fréttablaðið - 18.04.2008, Síða 44
 18. APRÍL 2008 FÖSTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● námskeið Metnaðarfull námskeið fyrir eldri borg- ara fara fram í fagurri náttúruumgjörð Borgarfjarðar í maí, en þar verður boðið upp á námskeið í Snorrasögu, leikrænni tjáningu og jóga. „Ég ákvað að bjóða upp á þessa nýjung því þótt úrval námskeiða fyrir eldri borgara sé bæði fjölbreytt og skemmtilegt finnst sumum að fræðileg námskeið þar sem farið er djúpt ofan í hlutina hafi skort,“ segir Helga Dís Sig- urðardóttir, MA í uppeldis- og menntunar- fræðum frá Háskóla Íslands, en fyrirtæki hennar, Hugleiðir, býður eldri borgurum upp á yfirgripsmikil og metnaðarfull námskeið í Reykholti í Borgarfirði vikuna 19. til 23. maí. Þátttakendur velja sér eitt þriggja nám- skeiða og innifalið er fullt fæði og gisting á Fosshóteli, auk tveggja kvöldvaka. „Í bókinni „Árin eftir sextugt“ talar Þórir Guðbergsson meðal annars um mennta- garða, sem kunnir eru og vinsælir í ná- grannalöndunum. Þá fer fólk í eins konar heimavistarskóla þar sem lagt er upp úr metnaðarfullu námsefni sem kennt er af há- skólakennurum, og með námskeiðunum í Reykholti er ég dálítið að fara eftir sömu hugmyndafræði og fæ til liðs við mig mjög færa kennara,“ segir Helga Dís sem hefur mikla reynslu af kennslu í Námsflokkum Reykjavíkur, Símenntun Mímis og hefur sinnt kennslu félagsliða sem starfa með eldri borgurum. „Í samvinnu við Snorrastofu verður nám- skeið um Snorra Sturluson, þar sem farið verður ítarlega í sögu hans í tengslum við Reykholt, sagt frá rannsóknum, gengið um svæðið og fleira. Námskeiðið verður í umsjá Óskars Guðmundssonar, sagnfræð- ings og rithöfundar, og aðrir fyrirlesarar verða séra Geir Waage, Bergur Þorgeirs- son, forstöðumaður Snorrastofu, og Evy Beate Tveter verkefnastjóri. Þá verður nám- skeið í leikrænni tjáningu í umsjá Margrét- ar Ákadóttur, leikkonu og MA í leiklistar- meðferð. Byggt verður á sagnahefð Íslend- inga og endað á leiksýningu. Síðast en ekki síst verður Aanika Chopra með námskeið í jóga og þar verður farið í fræði jógaiðkun- ar, mataræði, lífsstíl og kenndar ýmsar æf- ingar,“ segir Helga Dís sem hefur að mark- miði að bjóða upp á spennandi námskeið fyrir eldri borgara einu sinni í mánuði yfir vetrartímann. „Viðtökurnar eru góðar og ég vonast til að þetta sé rétt svo byrjunin því ég hef margar hugmyndir sem falla vel að áhugasviði eldri borgara, og sem gaman væri að rættust í framtíðinni. Það er dásamlegt að umgang- ast eldra fólk því það er að upplagi jákvætt, hresst og tilbúið að takast á við ný og spenn- andi verkefni. Kynslóðabil finnst því bara í hugum fólks.“ Nánari upplýsingar og skráning er í síma 562 5575, á www.hugleidir.is eða á netfang- inu hugleidir@simnet.is. - þlg Leikið og lært í yl borgfiskrar náttúru Helga Dís Sigurðardóttir, MA í uppeldis- og menntunarfræðum, stendur fyrir yfirgripsmiklum og metn- aðarfullum námskeiðum fyrir eldri borgara í Reykholti í Borgarfirði í enda maí. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Maður lifandi stendur fyrir ýmiss konar námskeiðum þar sem almenningur er fræddur um mikilvægi hollrar næringar og innihald matvöru og bætiefna. Í samstarfi við sérfræðinga á þessu sviði verður í boði fjölbreytt fræðsla fyrir þá sem vilja tileinka sér heilsusamlegt líferni og auka lífsgæði sín. Fram undan eru námskeið eins og Heilsukostur – kökur og eftirrétt- ir, haldið hinn 22. apríl, Heilsukostur – matreiðslunámskeið, 29. apríl, og Hvað á ég að gefa litla barninu mínu að borða?, 30. apríl. Hægt er að afla sér nánari upp- lýsinga á vefsíðunni www.madurlifandi.is eða í síma 58 58700. Aukin lífsgæði Maður lifandi býður upp á námskeið tengd hollum mat og heilsusamlegum lífsstíl. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA OPIÐ HÚS laugard. 19.4. kl.14 - 17 Hringbraut 121 • 107 Reykjavík sími 5511990 www.myndlistaskolinn.is Á leið í listaháskóla ? UNDIRBÚNINGSNÁM Tveggja ára nám á háskólastigi Umsóknarfrestur til 28.maí 2008 Leir og tengd efniMÓTUN MYNDLISTA- OG HÖNNUNARSVIÐ Umsóknarfrestur til 26. maí 2008 Inntökupróf 31.maí 2008
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.