Fréttablaðið - 18.04.2008, Síða 57
greidd sanngjörn mánaðarlaun
sem voru langt frá því að vera
himinhá. Ég er þakklát fyrir að
hafa fengið að upplifa það sem
sigurinn fól í sér og sé alls ekki
eftir að hafa farið út í þetta. Ef
það er eitthvað sem ég sé eftir er
það kannski að hafa ekki farið ári
fyrr í keppnina hérna heima svo
að móðuramma mín heitin, sem
hvatti mig einna mest til þátt-
töku, hefði getað gengið með mér
í gegnum þetta. En þá er auðvitað
alls ekki víst að farið hefði eins
og fór.“
Fegurðarsamkeppnir hafa
ávallt verið mjög umdeildar, en
eins og flest annað virðast þær
geta haft bæði góðar og slæm-
ar afleiðingar í för með sér. „Að
sigra í svona keppni er stökk-
pallur út af fyrir sig og það er á
ábyrgð hverrar og einnar að vinna
úr því tækifæri. Maður verður að
standa með þeim ákvörðunum
sem maður tekur og sú ákvörðun
að taka þátt var í mínu tilfelli rétt.
Ég var líka orðin það gömul að ég
hafði vissan þroska til að takast
á við þá pressu sem fylgdi titlin-
um, annað en margar stelpur sem
fara í keppnina of ungar og missa
tökin og þar af leiðandi jarðteng-
inguna. En þetta er auðvitað mjög
einstaklingsbundið og engan veg-
inn hægt að alhæfa um afleiðingar
þátttöku í svona keppni.“
Föstudagskvöld með Bubba
Unnur Birna virðist standa sig
vel í öllu sem hún tekur sér fyrir
hendur og þar er starf hennar
sem kynnir í Bandinu hans Bubba
engin undantekning.
Eftir símtal frá forsvarsmönn-
um Stöðvar 2 síðastliðið haust var
ráðist í þáttagerðina og í kvöld er
úrslitaþátturinn í beinni útsend-
ingu. Unnur Birna segir vinnuna
á bakvið tjöldin mun meiri en fólk
heima í stofu gerir sér grein fyrir.
Það er að mörgu að huga við gerð
sjónvarpsþátta og þá sérstaklega
þegar þeir eru í beinni útsend-
ingu.
„Ég er enn að venjast því að
fá skipanir í eyrað og heyra sam-
töl tæknimannanna á meðan ég
er kannski sjálf að tala í mynda-
vélarnar. Það er allt fyrirfram
ákveðið, í hvaða myndavél ég á að
horfa og hvenær og við hvern ég
tala hverju sinni. Mér líður vel í
kynnahlutverkinu, þetta er krefj-
andi starf og ef eitthvað óvænt
kemur upp á er það undir mér
komið að bjarga málunum. Við
Bubbi erum líka mestu mátar,
mér finnst hann alveg frábær og
ég kann að meta að hann kemur
til dyranna nákvæmlega eins og
hann er klæddur.
Dómnefndin er líka skemmti-
lega samsett því Bubbi, Villi nagl-
bítur og Björn Jörundur eru allir
stórir karakterar og ég á oft erf-
itt með að halda andliti þegar þeir
komast á flug. Bjössi er náttúr-
lega með orðheppnari mönnum á
Íslandi og fer gjörsamlega á kost-
um í þáttunum. Mér finnst líka
sterkur leikur hjá Bubba að leyfa
aðeins íslenska tónlist því við
sjáum svo mikið af sjónvarpsefni
þar sem erlend tónlist er í fyrir-
rúmi. Ég hef sjálf verið að upp-
götva íslenskar perlur í gegnum
þættina og þátttakendurnir hafa
svo sannarlega þurft að sökkva
sér ofan í gamla og góða íslenska
tónlist. Þeir Eyþór og Arnar sem
eftir standa eru báðir ótrúlega
efnilegir söngvarar og ég get
ómögulega sagt til um hvor mun
sigra í kvöld. Mér finnst persónu-
lega, þótt ég sé nú ábyggilega
pínu hlutdræg, að þeir og Thelma,
sem datt út í síðasta þætti, beri af
þeim íslensku stjörnum sem hafa
fæðst í sambærilegum tónlistar-
þáttum hingað til og það hefur
sýnt sig og sannað að þau eru
bæði frábærir söngvarar og ekki
síður góðir lagahöfundar. Fólk er
því að missa af miklu ef það miss-
ir af þættinum í kvöld, því get ég
lofað.“
Í fjármálageiranum í sumar
Unnur Birna hefur mjög víð-
tæka starfsreynslu. Sumarið
eftir að hún var kjörin Ungfrú Ís-
land starfaði hún hjá lögreglunni,
hún hefur kennt dans til margra
ára og sem Ungfrú heimur fólst
starf hennar í að vekja athygli á
málefnum bágstaddra barna og
ferðalögum tengdum því um allan
heim. Í vetur hefur hún verið
fastur gestur heima í stofu hjá
áhorfendum Stöðvar 2 sem kynn-
ir í Bandinu hans Bubba, en hvað
tekur svo við? „Í sumar er ég að
fara að starfa á nýjum vettvangi
þar sem ég mun vinna hin ýmsu
störf sem tengjast innheimtunni
hjá Glitni. Þetta starf leggst mjög
vel í mig og verður mikilvæg
reynsla fyrir áframhaldandi lög-
fræðinám. Það verður líka gott að
vinna átta til fjögur-vinnu til til-
breytingar því ég er vön að vera
í hinum ýmsu verkefnum sem eru
oft mjög óregluleg,“ segir Unnur
Birna. Spurð um framtíðarplön
segist hún ekki vera búin að gera
upp við sig á hvaða vettvangi hún
vilji starfa. „Ég á náttúrlega nóg
eftir af náminu mínu, svo ég sit
allavega á skólabekk í nokkur ár
í viðbót en sjónvarpsvinnan heill-
ar mig líka og ég myndi gjarnan
vilja starfa meira á því sviði í nán-
ustu framtíð. Það er aldrei að vita
nema fólk muni sjá mig aftur á
skjánum.“
Hamingjusöm
Á meðan lánið virðist leika við
Unni Birnu jafnt í námi og starfi
leikur forvitni á að vita hvort hún
sé hamingjusöm. „Já, stórt er
spurt. Ég hef nú heldur betur farið
fjallabaksleiðina í leit minni að
mannsefni síðastliðin ár, en nú er
þetta komið, held ég,“ segir Unnur
og brosir sínu breiðasta. „Ég er í
sambúð í Garðabænum með kær-
astanum mínum, Reynaldi Hin-
rikssyni, en á reyndar enn þá her-
bergi heima hjá mömmu líka þar
sem ég tími ekki að flytja form-
lega að heiman alveg strax. Reyn-
ald er að klára atvinnuflugmann-
inn núna í vor svo við erum bæði
í fullu námi, en með góðu skipu-
lagi finnum við alltaf tíma fyrir
hvort annað. Mér finnst ég loks-
ins vera búin að finna mig í alvöru
sambandi sem verður bara betra
og betra með hverjum deginum.
Þannig að ég mundi segja já, ég er
mjög hamingjusöm – upptekin og
hamingjusöm.“
18. APRÍL 2008 FÖSTUDAGUR • 9