Fréttablaðið - 18.04.2008, Page 58
10 • FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008
útlit
smáatriðin skipta öllu máli
BIOTHERM er komið með magnað undrakrem á markað sem á að vinna vel á bless-
aðri appelsínuhúðinni. Celluli Laser vinnur gegn hörðum kollagenþráðum og er grennandi í
þokkabót. Er hægt að biðja um eitthvað meira? Á aðeins 10 dögum vinnur kremið á app-
elsínuhúðinni og sléttir úr henni og gerir hana dúnmjúka. Æskilegt er að bera kremið á
sig kvölds og morgna, nudda kreminu vel inn í líkamann frá ökkla að mitti og áður
en þið vitið af verðið þið orðnar eins og Britney áður en hún byrjaði í ruglinu.
„Sumarlína Haute Couture Vertige blæs ferskum straumum í íslenska
hártísku. Hárið verður léttara og náttúrulegra þar sem mikið er
lagt upp úr því að hægt sé að leika sér með hárið að vild,“ segir
Sigmundur Sigurðsson, betur þekktur sem Simbi, hárgreiðslumaður
og eigandi Salon Veh á Íslandi. „Stytturnar í síðu hári lengjast en það
þykkir hárið og gerir það náttúrulegra. Liðir verða sömuleiðis áber-
andi og koma skemmtilegri hreyfingu á hárið,“ segir Simbi og bætir
því við að sléttujárnið verði þarfaþing hverrar konu í sumar. „Sléttu-
járnið verður notað til að fá liði í hárið og því notað með öðru sniði en
hefur tíðkast hingað til. Það verður þó líka notað til að slétta einhvern
hluta af hárinu eins og til dæmis toppinn.“ En Simba finnst þungir
toppar fara afar vel með síðu línunni og koma sterkir inn í íslenska
sumarið. „Mér finnst mjög gaman að blanda saman línunum fyrir síða
hárið og stutta hárið en í stuttu línunni eru þungir og þverir toppar al-
gjörlega málið. Annars eru stytturnar mjög áberandi í stuttu línunni
en eru þó mjög jafnar,“ segir Simbi en það er ekkert ósvipað áhersl-
unum í herralínunni, þar sem þungir toppar, jafnar og miklar styttur
verða áberandi. „Hárlitirnir verða náttúrulegri og dempaðri þar sem
fallegur rauður blær og koparlitir verða í aðalhlutverki. Strípurn-
ar eru ekki á undanhaldi en verða í svipuðum tón og liturinn þannig
að hárið öðlast meira líf og hreyfingu án þess þó að vera röndótt.“
bergthora@365.is
Simbi er hrifinn af þungum toppum fyrir sumarið.
Náttúrulegt,
létt &
líðandi hár
Lengri stytt-
ur í síðu hári
þykkja hárið
og gefa því
náttúrulegra
yfirbragð.
Jafnar styttur og þver-
ir toppar eru einkennandi
fyrir stuttu hárlínuna fyrir
sumarið.
Þungir toppar verða allsráðandi í
herralínunni. Simbi hárgreiðslumaður.
REYKJAVIK STORE
LAUGAVEGUR 86-94, S: 511-2007
Opið
föstudag 11-18.30
laugardag 11-17