Fréttablaðið - 18.04.2008, Síða 62
díana mist
bland
í gær og á morgun ...
HELGIN 18.-20. APRÍL
Bergur Ebbi Benediktsson
lögfræðingur og tónlistarmaður
„Kötturinn hefur fært sig upp á skaftið að undanförnu.
Hann heimtar að fá nafnið sitt á póstkassann. Ég sam-
þykki það ekki. Hann er ekki persóna heldur hlutur. Ég
get ekki beðið eftir að fá mér morgunkaffi með kettinum
og lesa Fréttablaðið þar sem mun standa svart á hvítu að
hann sé hlutur. En þó er hann hlutur sem ég get ekki
verið án.“
„Ég nota rímorðabókina mína meira en flest-
ar aðrar bækur. Ég skammast mín ekkert.
Springsteen notar svona. Samt tókst honum einu
sinni að ríma „foreign land“ við „yellow man“ sem
er nokkuð vel af sér vikið.“
„Ég hef notað þennan trefil síðan ég
fæddist. Frænka mín prjónaði hann
á mig þegar ég var í móðurkviði
og ég hef notað hann síðan. Sam-
tals hefur þessi bleðill legið um háls
minn í meira en 3.000 daga myndi
ég giska. Ég er oft með þetta innan
undir þar sem enginn sér. Lúmskur.“
„Frænka mín benti mér á að svona
mubla kallist legubekkur og að
dívan sé eitthvað allt annað. Mér er
alveg sama og kalla þetta dívan eins
og að drekka vatn. Ég get ekki verið
án dívansins míns.“
„Svitabönd fyrir putta. Þetta var aðal
tísku-itemið í París veturinn 2004-
2005. Ég hef aldrei séð neinn með
svona hér heima. Þetta eru að vísu
ekki svitabönd heldur bara skraut.
Þetta er kúl.“
„Píanóið er til að virka kúl. Ég get vel lifað án píanós-
ins. Ég spila ekki oft á það og get bara glamrað eins og
sauðdrukkinn útfararstjóri. Þetta er samt töff item og
ég keypti það af Varnarliðinu en það hafði staðið í sam-
komuhúsi gyðinga á Vellinum.“
„Pabbi er læknir og hefur verið
háður svona klossum síðan hann
var kandidat á Borgarspítalan-
um 1977. Ég smitaðist af þessu
þegar ég var svona tólf ára. Pabbi
er klossadílerinn minn. Hann reddar
mér góðum læknaklossum í gegn-
um heildsölu á sérstökum lækna-
prís. Þetta er mjög ávanabindandi
og ég er alltaf í klossum þegar ég
er heima nema þegar ég sef eða er í
sturtu. Annars alltaf.“
„Kylfur eins og þessi eru nauðsynlegar ef einhver
ætlar sér að stela öllum fínu hlutunum mínum eins
og sjálfstýrandi gólfmoppunni. Ég geymi hana við
rúmstokkinn og get ekki beðið eftir að fá innbrots-
þjóf í heimsókn til að geta lamið hann í spað. Mig
dreymir það oft á nóttunni og það eru sko ekki mar-
traðir!“
„Sjálfstýrandi gólfmoppa. Ég man
ekki hvað þessi drulla hét. Robom-
op X-treme 3000 eða eitthvað svo-
leiðis. Ég fékk þetta að gjöf frá
Georgi og Ragnari vinum mínum.
Þetta er að sjálfsögðu handónýtt
drasl og maður þyrfti að fara inn á
geðdeild ef maður gæti ekki lifað án
svona græju.“
„Smá plebbajátning. Ég verð að eiga
tómatsósu. Ég er eins og illa upp
alinn hjólhýsagæi því ég nota tó-
matsósu á allt. Ég las einu sinni að
tómatsósa væri það sem kæmist
næst því að líkjast mannsblóði. Ekki
bara í útliti heldur líka á bragðið. Ég
held það sé rétt. Ekki getur maður
lifað án blóðs.“
FÖSTUDAGUR: Tískusýning útskriftarnema í fata-
hönnun við Listaháskóla Íslands verður haldin kl.
20.00 í Gömlu kexverksmiðjunni Frón, Skúlagötu
28. • Miðnæturtónleikar hljómsveitarinnar Jagúar á
skemmtistaðnum Organ í Hafnarstræti, aðeins 1.000
kr. inn. Fullkomin byrjun á helginni.
LAUGARDAGUR: Útskriftarsýning Listaháskóla
Íslands verður opnuð á Kjarvalsstöðum kl. 14.
Síðustu ár hefur verið sérstaklega mikil gróska í
Listaháskólanum og ættu allar listaspírur lands-
ins að láta sjá sig á sýningunni. Hlutirnir gerast
varla miklu ferskari en á þessari sýningu.
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL
Ég var alveg staðráðin í því að vera
mjög stabíl um helgina, hugsa um
heilsuna, útlitið og reyna að taka mig
saman í andlitinu eftir síðustu vikur.
En eftir „break-up“ vikunnar ákvað ég
þó að fagna því að vera ekki lengur
með pakkalausa manninum. Á föstu-
dagskvöldinu hitti ég vinkonur mínar
á Boston til að fara yfir stöðuna. Ein-
hvern veginn hélt ég að við værum
bara að fara að drekka kaffi en um leið
og ég kom labbandi upp tröppurn-
ar sá ég í hvaða fíling þær voru og því
varð ekki aftur snúið. Boston-mublurn-
ar, Baggalúturinn Kalli Sig og leikarinn
Björn Hlynur, sátu við barinn en ann-
ars var staðurinn fullur af fólki sem ég
hafði aldrei séð áður. Við vinkonurnar
vorum komnar í svo mikið stuð að við
hlupum yfir á b5. Það var enginn kom-
inn á bak á hestinum en stemningin
var þó í magnaðara lagi. Arkitektinn,
Freyr Frostason, var með myndavélina
á lofti og stóðst ekki mátið að smella
mynd af tvíförum aldarinnar, Geir
Ólafs og Orra Haukssyni. Áslaug
Snorradóttir sötraði kampavín á
meðan Hulda og Hanna Stína
arkitekt voru í góðri sveiflu á
dansgólfinu. Eftir allt stuðið á
b5 kíktum við á Ölstofuna sem
var þéttsetin að vanda. Ásdís
Olsen og Kolfinna Baldvins
drukku öl, ræddu heims-
málin og
veltu
karlamarkaðnum fyrir sér en þetta var
eiginlega í fyrsta skipti sem Ásdís fer á
bar eftir skilnaðinn við Spaugstofu-Karl.
Þar var líka Katla Jónasdóttir, Andri
Ottesen, Jón Ársæll Þórðarson og frú.
LAUGARDAGUR 12. APRÍL
Fagnaði fyrsta einhleypa laugardags-
morgninum mínum í langan tíma, fór í
Mál og menningu, las slúðurblöðin og
sötraði latte, þar var söngkonan Mar-
grét Eir með huggulegum manni. Ljóst
er að ástin svífur yfir vötnum því bær-
inn virtist vera fullur af pakkafólki sem
leiddist og brosti. Mér ofbauð og þakk-
aði fyrir að vera kona einsömul. Ein-
hleypu hátíðarhöldin héldu áfram en ég
bauð vinkonum mínum í mat á laugar-
dagskvöldinu. Eftir passlega mikið át
og alltof marga drykki héldum við út á
galeiðuna enda ekki með nein sófadýr
í eftirdragi. Skelltum okkur á tónleika
hljómsveitarinnar Sometime á Organ,
þar var rífandi stemning og fullt af
skemmtilegu fólki. Þar var Anna Kristín
í KronKron, stílistarnir Anna Clausen og
Agnieszka og Ási og Eygló fatahönn-
uðir. Við vinkonurnar nutum okkur
vel í trylltum dansinum og döns-
uðum frá okkur ráð og rænu.
Lét öll eftirpartí og rugl eiga
sig þar sem „einhleypu“ há-
tíðarhöld helgarinnar
höfðu tekið sinn toll.
TOPP
10
F
Ö
S
T
U
D
A
G
U
R
/A
R
N
Þ
Ó
R
14 • FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008