Fréttablaðið - 18.04.2008, Qupperneq 80
18. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
Tríó Reykjavíkur efnir til
sérstakra afmælistónleika
á sunnudagskvöld. Tón-
leikarnir verða jafnframt
síðustu tónleikar vetrar-
ins í tónleikaröð tríósins í
samstarfi við Hafnarborg,
menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar.
Tríó Reykjavíkur var stofnað árið
1988 af Halldóri Haraldssyni
píanóleikara, Guðnýju Guðmunds-
dóttur fiðluleikara og Gunnari
Kvaran sellóleikara og fagnar því
tuttugu ára afmæli sínu í ár. Árið
1996 tók Peter Máté píanóleikari
við af Halldóri og hefur leikið með
tríóinu síðan. Frá árinu 1990 hefur
tríóið haft tónleikaaðsetur í
Hafnar borg og leikið þar í það
minnsta á fjórum tónleikum á ári.
Gunnar segir samstarfið við
stofnun ina hafa verið afar far-
sælt. „Það hefur verið okkur alger-
lega ómetanlegt að fá inni hjá
Hafnarborg. Á átján árum höfum
við haldið fleiri tugi tónleika þar,
frumflutt fjölda nýrra verka og
fengið til okkar góða gesti, þannig
að húsnæðið hefur reynst okkur
afskaplega vel. Að auki er
skemmtilegt að flytja tónlist innan
um fallegar myndlistarsýningarn-
ar og finna hvernig þær hafa áhrif
á stemninguna á tónleikunum.“
Þó svo að tríóið hafi átt sinn
heimavöll í Hafnarborg hefur það
jafnframt komið víða við á ferli
sínum og haldið tónleika á mörg-
um stöðum hérlendis og erlendis.
Gunnar segir þó engan tiltekin
viðburð standa upp úr þegar litið
er um öxl. „Ætli það sem skipti
okkur mestu máli sé ekki að hafa
fengið að upplifa hvernig tónlistar-
hópur fær tækifæri til að vaxa og
þroskast ef hann heldur saman í
svona langan tíma. En svo er
einnig alveg yndislegt að sjá sömu
andlitin aftur og aftur á tónleikum
og finna þann stuðning sem fylgir
því að eiga sér fastan tónleika-
gestahóp.“
Efnisskrá afmælistónleikanna
er hæfilega fjölbreytt og endur-
speglar þannig að nokkru leyti
fjölbreyttan og litríkan feril tríós-
ins. Tónleikarnir hefjast á verki
eftir Þorkel Sigurbjörnsson sem
nefnist Hafnarborgarkvartettinn.
Verkið samdi Þorkell fyrir fyrstu
tónleikana sem tríóið lék á í Hafnar-
borg í september árið 1990. Kvart-
ettinn er fyrir tvær fiðlur og tvö
selló og munu því systurnar Pálína
og Margrét Árnadætur koma fram
með fyrrverandi kennurum sínum,
Guðnýju og Gunnari.
Næst flytur tríóið verk sem
Hafliði Hallgrímsson tónskáld
samdi sérstaklega í tilefni
afmælis ins. Verkið heitir Mem-
orabilia og er tileinkað Tríói
Reykjavíkur. Á síðari hluta tón-
leikanna verður svo á dagskrá
eitt glæsilegasta píanótríó allra
tíma, sem er eftir rússneska tón-
jöfurinn Pjotr Ilitsj Tsjaikovskí.
Verkið samdi Tsjaikovskí til
minningar um góðan vin sinn,
píanistann Nikolai Rubinstein, og
er harmur tónskáldsins vegna
vinamissisins nánast áþreifanleg-
ur í tónum þess.
En þó að það sé ótvírætt við
hæfi að líta yfir farinn veg á tíma-
mótum sem þessum er ekki úr
vegi að forvitnast jafnframt um
hvað framtíðin ber í skauti sér
fyrir Tríó Reykjavíkur. „Við stefn-
um á að halda áfram með tónleika-
raðir í Hafnarborg á meðan vilji
til þess er fyrir hendi af allra
hálfu. Svo gerðum við nýverið
samning við Reykjavíkurborg til
þriggja ára um tónleikahald,
þannig að við höldum ótrauð
áfram,“ segir Gunnar með bjart-
sýnistón í röddu.
vigdis@frettabladid.is
Tríó Reykjavíkur
fagnar tuttugu árum
TRÍÓ Á TÍMAMÓTUM Tríóið fagnar tuttugu ára farsælu samstarfi um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Menningarmiðstöðin Gerðuberg • Gerðubergi 3-5, 111 Reykjavík
sími 575 7700 • gerduberg@reykjavik.is • www.gerduberg.is
Þar sem sögueyjan rís...
Einar Kárason á Ritþingi Gerðubergs
laugardaginn 19. apríl kl. 13.30-16.00
Stjórnandi: Halldór Guðmundsson
Spyrlar: Sjón og Gerður Kristný
Fram koma Karl Guðmundsson leikari, KK,
Tómas R. Einarsson og hljómsveit
17 - 18 - 24 - 30. apríl
kl 20.00 alla daga
ÞRJÁR SÍÐUSTU
SÝNINGAR Á ÁST
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL KL. 20
VORVÍSUR SÖNGSYSTRA.
KVENNAKÓR KÓPAVOGS.
LAUGARDAGUR 19. APRÍL KL. 16
SÖNGTÓNLEIKAR TÓNÓ RVÍK.
RANNVEIG KÁRADÓTTIR SÓPRAN.
LAUG. 19. APRÍL KL. 21.
HVERS VIRÐI ER ÉG? NÝR
GAMANLEIKUR ÚR SMIÐJU
BJARNA HAUKS ÞÓRSSONAR.
UPPSELT Á FYRSTU FJÓRAR
SÝNINGAR. LAUSIR MIÐAR
SUNNUDAGUR 20. APRÍL KL. 16
TÓNSMÍÐATÓNLEIKAR LHÍ
ÓTTAR SÆMUNDSSEN
OG VALENTINA KAY.
MÁNUDAGUR 21. APRÍL KL. 20
SELLÓTÓNLEIKAR LHÍ
ÞORGERÐUR EDDA HALL.
MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL KL. 20
TÓNSNILLINGAR MORGUNDAGSINS
HELGA ÞÓRA BJÖRGVINSD. OG
KRISTINN ÖRN KRISTINSSON.
Hárbeitt verk í
hrárri sýningu
Engisprettur e. Biljana Srbljanovic
sýn. fös. 18/4 uppselt
Vígaguðinn
e. Yasminu Reza
sýn. lau. 20/4 örfá sæti laus
Baðstofan e. Hugleik Dagsson
sýn. fös. 18/4 örfá sæti laus síðasta sýning
Sá ljóti
e. Marius von Mayenburg
sýn. lau. 19/4 örfá sæti laus
Sólarferð e. Guðmund Steinsson
tvær sýningar lau.19/4.
sýn. sun. 20/4 örfá sæti laus
„Þau eru frábær, öll fjögur…
Þetta er hörkugóð sýning...!“
Silja Aðalsteinsdóttir, tmm.is
Einstök leikhúsupplifun
PBB FBL , 29/3
„Þetta er vel unnin
sýning, skemmtileg og
óvenju skýrt hugsuð.”
MA, MBL 8/4
Bráðfyndið og
ágengt gamanleikrit
Þjóðleikhúsið
Á öllum sviðum lífsins
Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00
mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00.
Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga.
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Minnum á seiðandi
síðdegissýningar
Leikhús
tilboð
vor á m
inni
sviðunu
m
Leikhús
tilboð
vor á m
inni
sviðunu
m
Leikhús
tilboð
vor á m
inni
sviðunu
m