Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.04.2008, Qupperneq 82

Fréttablaðið - 18.04.2008, Qupperneq 82
42 18. apríl 2008 FÖSTUDAGUR tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Það hefur verið vinsælt undanfarin ár að endurútgefa klassískar poppplötur í viðhafnarútgáfum. Oft er mikið lagt í þær; aukadiskar með fágætu efni eru látnir fylgja með og umbúðir eru vandaðar. Í sumum tilfellum eru skrifaðar heilu ritgerðirnar um verkin, tilurð þeirra rakin og þau sett í sögulegt samhengi. Nýlega komu út tvær sérstaklega flottar viðhafnar- útgáfur; Odelay með Beck og Moon Safari með Air. Frábærar plötur sem höfðu mikil áhrif og settu sterkan svip á samtímann. Odelay kom út árið 1996, tveimur árum á eftir Mellow Gold og smellnum Loser. Hún er enn í dag talin besta Beck-platan enda var strákur ótrúlega frjór á þessum tíma. Platan var gerð með pródúseratvíeykinu Dust Brothers og inniheldur fullt af flottum lögum, þ.á m. Devil’s Haircut, Where It’s At, Hotwax, Sissyneck, Jack- Ass, The New Pollution... Á Odelay tókst Beck það sem sjaldan tekst almennilega: Að gera plötu sem er bæði poppuð og grípandi og tilrauna- kennd. Á þessari nýju tvöföldu útgáfu eru 19 aukalög, þ.á m. fágætar hljóðritanir, remix (mjög flott) og b-hliðarlög af smáskífum. Texti í plötubæklingnum er eftir Thurston Moore. Moon Safari kom út í ársbyrjun 1998 og hafði gríðarleg áhrif. Þetta meistaraverk þeirra Jean-Benoit Dunckel og Nicolas Godin kom með alveg nýja stemningu inn í danstónlistar- og poppheiminn og í kjölfarið spruttu upp fjölmargar hermisveitir. Moon Safari stendur enn fyllilega fyrir sínu. Með nýju útgáfunni, sem er í bókarbroti, fylgja tveir auka- diskar; hljómdiskur með tíu remixum, tónleikaefni og fágætum upptök- um og mynddiskur með heimildarmyndinni Eating, Sleeping, Waiting & Playing, myndböndum o.fl. Moon Safari og Odelay eru báðar höfuðverk listamannanna sem gerðu þær. Persónulega finnst mér frábært að fá stórvirki poppsögunnar í hátíðarbúningi. En hvenær skyldi koma að Bítlunum? EMI tilkynnti í fyrra um fjörutíu ára spariútgáfu af Sgt. Peppers, en af henni varð ekki, enda plötur Bítlanna svo heilagar að það má ekkert hrófla við þeim. Þess vegna sitjum við uppi með illa hljóðblandaðar gamlar CD-útgáfur af flestum Bítlaplötunum sem er auðvitað synd. Tvær góðar í hátíðarbúningi FRÁBÆR PLATA Odelay með Beck er nýkomin út í viðhafnarútgáfu. > Plata vikunnar Lightspeed Champion - Falling off the Lavender Bridge ★★★ „Fyrrverandi meðlimur hinnar háværu Test Icicles skellir sér í sveitatónlistargalla, leitar á slóðir Bright Eyes og endar með prýðilegan grip um raunveruleikann í draumunum sínum.“ SHA Eftir áralanga bið ætlar hin virta sveit Portishead að senda frá sér nýja plötu. Hljómsveitin hefur verið í hléi frá 1999 en greinilega ekki setið auðum höndum eins og Steinþór Helgi Arnsteinsson komst að. Hljómsveitin Portishead var stofnuð í samnefndum úthverfabæ Bristol-borgar árið 1991. Aðalfólkið á bak við Portishead voru þau Geoff Barrow forritari og Beth Gibbons söngkona. Með þeim í liði var einnig gítarleikarinn Adrian Utley. Hljómsveitin var gríðarlega virt á sínum tíma og þótti aðgengileg triphop-tónlist sveitarinnar algjört eyrnakonfekt, sem hún vissulega er. Sveitin sendi frá sér tvær plötur, Dummy árið 1994 og Portishead árið 1997 auk einnar tónleikaplötu en frá 1999 hafði sveitin nær algjörlega haldið sig til hlés eða allt til í fyrra. Ímynd sem virkaði Mikil dulúð hefur alltaf ríkt í kringum Portishead. Meðlimir sveitarinnar virðast hata alla athygli og viðtöl við sveitina heyra til algerra undantekninga. Með sanni má segja að þessi dulúðarþokki sveitar- innar hafi á margan hátt komið henni á framfæri. Sveitinni tókst að selja 150 þúsund eintök af Dummy í Bandaríkjunum án þess að spila á einum einustu tónleikum þar. Auðvitað komu þessar vinsældir á óvart enda efnið þungt og drungalegt. En allt í kringum listræna ímynd sveitarinnar svínvirkaði. Þrátt fyrir að halda sig svona mikið utan sviðs- ljóssins hafa vinsældir Portishead ætíð endurnýjað sig. Tónlist sveitarinnar hefur lifað góðu lífi og er ekki nærri eins úr sér gengin og margt af því sem til dæmis Tricky og Massive Attack voru að gera á svipuðum tíma. „Sú þriðja“ verður að veruleika En eins og áður segir var þögnin rofin í fyrra. Barrow gaf það út að ný plata væri nær fullbúin en hann hafði fyrst talað um það fyrir alvöru í byrjun árs 2006 að þriðja breiðskífa Portishead gæti allt eins orðið að veruleika. Það var svo í desember síðastliðnum að Portis- head kom fram á sínum fyrstu alvöru tónleikum í áratug. Þar tók sveitin nokkur lög af væntanlegri skífu og fólk heillaðist. Sveitin hafði loks stigið fram úr myrkrinu og framundan er tónleikaferð um allan heim. Hugrökk en þung Platan, sem fékk einfaldlega nafnið Third, lak fyrir löngu inn á netið og því hafa skoðanamyndanir átt sér stað víða um heima netsins. Erfitt er að hlusta á plötuna í fyrsta skiptið því erfitt er að útiloka allan samanburð við fyrri skífur og opna hugann fyrir hinni nýju Portishead. Third er þyngra verk en fyrirrennararnir, og tilraunakenndari. Þannig á platan vafalaust eftir að heilla marga plötugagnrýnendur upp úr skónum fyrir hugrekkið. Það sem hún á jafnframt eftir að gera er að hryggja nokkra aðdáendur. Það liggur einfaldlega í hlutarins eðli að plata sem þessi eigi eftir að valda einhverjum vonbrigðum. Fullt hús hjá Uncut Þeir dómar sem birst hafa um nýju plötuna eru þó ekkert til að skammast sín fyrir. Q er helst með einhvern fýlusvip og gefur plötunni þrjár stjörnur af fimm. Í Uncut fær platan hins vegar fullt hús stiga og í Mojo er platan eingöngu einni stjörnu frá því að leika þar sama leik. Fyrst og fremst er biðin samt á enda. Portishead er mætt aftur til leiks og er enn jafn unaðslega skapandi og fyrir nær fimmtán árum. Sköpunin heldur áfram PORTISHEAD Sendir frá sér sína þriðju breiðskífu í lok mán- aðarins. Platan ber heitir Third og verður sú fyrsta úr ranni sveitarinnar í áratug. Rokksveitin Vicky Pollard heldur styrktartónleika á Dillon í kvöld vegna tónleikaferðalags hennar til Kína í byrjun maí. Sveitin mun spila á Midi- hátíðinni í Peking ásamt Hellvar en ekkert verður af fyrirhuguðum tónleikum í Shanghai. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu var ferðalagið í óvissu vegna hvatningarorða Bjarkar Guðmundsdóttur til Tíbeta á tónleikum í Kína en nú hafa íslensku sveitirnar fengið grænt ljós á tónleika sína í Peking. „Það voru settar hömlur á erlenda listamenn og þeir gátu ekki staðið undir því í Sjanghai. Við förum bara til Peking og styttum þá ferðina,“ segir Eygló Scheving Sigurðardóttir, söngkona Vicky Pollard. „Þetta er búið að vera vesen. Við höfum ekki getað pantað flugið því við höfum ekki vitað hvað við verðum lengi. En við erum búin að fá öll leyfi og allt það og nú á bara eftir að klára að kaupa ferðina.“ Að sögn Eyglóar er ferðalagið til Kína mjög dýrt og vonast hún til að styrktartónleikarnir eigi eftir að brúa bilið. „Við erum búin að föndra boli sem er hægt að kaupa og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta er svolítið dýrt flug. Við fáum aðeins borgað fyrir að spila þarna en það er voðalega takmarkað. Við reyndum að fá einhverja styrki en það tókst ekki,“ segir hún. Tónleikarnir á Dillon hefjast klukkan 21.30 og kostar 500 krónur inn. Auk Vicky Pollard koma fram hljómsveit- irnar Jan Mayen og We Made God. - fb Kínaferð stytt vegna Bjarkar Hljómsveitin Sprengjuhöllin er á leiðinni í tveggja vikna tónleikaferðalag um Kanada í maí. Að sögn hljómborðsleikarans Atla Bollasonar kom tónleikaferðin upp fyrir til- viljun. „Okkur var boðið að spila á þremur ólíkum hátíðum í Kanada í maí og júní en komumst ekki á eina hátíðina. Við ákváðum að nýta tímann á milli hátíða, fórum á stúf- ana og reyndum að stilla upp eins mörgum tónleikum og við gátum, þannig að úr er orðinn „mini-túr“ um Kanada,“ segir Atli. „Við erum allir mjög skotnir í Kanada. Þarna er miklu afslappaðra en í Bandaríkj- unum en samt hafa þeir allt góða „stöffið“ frá Bandaríkjunum eins og háu húsin og skrýtnu gosdrykkina. Við hlökkum mikið til og vonandi verður þetta fyrsta skrefið hjá okkur í átt að frekari landvinningum.“ Sprengjuhöllin spilaði í Danmörku í mars, það var frumraun hennar utan landsteinanna. „Það var mjög gaman en þarna voru 248 Íslendingar og tveir Danir eins og gengur og gerist. Núna verður þetta örugglega betra, svona níu hundruð Vestur-Íslending- ar og tíu Kanadamenn,“ segir Atli. - fb Keyra yfir Kanada SPRENGJUHÖLLIN Hljómsveitin Sprengjuhöllin er á leiðinni til Kanada í tónleikaferð. > Í SPILARANUM Steintryggur - Trappa Deus - Vantage Point Colin Meloy - Colin Meloy Sings Live! Guillemots - Red Madonna - Hard Candy STEINTRYGGURMADONNA VICKY POLLARD Hljómsveitin Vicky Pollard heldur styrktar- tónleika á Dillon í kvöld. BJÖRK GUÐ- MUNDSDÓTTIR Söngkonan hvatti Tíbetbúa til að lýsa yfir sjálfstæði á tónleikum í Kína. LENDIR 17. APRÍL V in n in g a r ve rð a a fh e n d ir h já B T S m á ra lin d . K ó p av o g i. M e ð þ v í a ð t a k a þ á tt e rt u k o m in n í S M S k lú b b . 1 4 9 k r/ sk e yt ið . SENDU BTC VBM Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! VINNINGAR ERU DVD MYNDIR, VARNINGUR TENGDUR MYNDINNI OG MARGT FLEIRA! ÚR SMIÐJU JERRY SEINFIELD KEMUR...
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.