Fréttablaðið - 18.04.2008, Side 88
48 18. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Hinn gamalreyndi Eiríkur Önundarson, sem verður 34 ára í
haust, var mikilvægur hlekkur í spútnikliði ÍR sem sló Íslands-
meistara KR út úr úrslitakeppni Iceland Express-deildarinnar
í körfubolta og datt svo úr keppni gegn deildarmeisturum
Keflavíkur í oddaleik í fyrrakvöld. ÍR komst í 2-0 í einvíginu
en tapaði í framhaldinu þremur leikjum í röð og datt úr
leik.
„Það var óneitanlega svekkjandi að fá þrjá möguleika
til þess að klára þetta einvígi og komast í úrslitarimm-
una gegn Snæfelli en við vorum vitanlega að spila
gegn mjög sterku Keflavíkurliði og maður tekur hatt-
inn ofan fyrir þeim að koma svona sterkir til baka,“
sagði Eiríkur, sem er stoltur af framgöngu ÍR-inga
í úrslitakeppninni.
„Eftir brokkgengt tímabil náðum við
að þjappa okkur saman og komum
sterkir til leiks í úrslitakeppninni
og það er nokkuð sem við getum
verið mjög stoltir af. Við spiluðum
góðan bolta í fimm af þessum átta leikjum sem við spiluðum í
úrslitakeppninni en völdum okkur ef til vill ekki léttustu leiðina
með því að mæta Íslandsmeisturunum frá því í fyrra og svo
deildarmeisturunum í ár,“ sagði Eiríkur, sem tilkynnti í leikslok
í fyrrakvöld að hann hefði líklega spilað sinn síðasta leik á
ferlinum.
„Þetta tímabil er búið að vera svolítið erfitt fyrir mig
þar sem ég hef átt í meiðslum en það er tiltölulega
nýtt fyrir mér að standa í svoleiðis og það er spurn-
ing hvort skrokkurinn sé eitthvað að gefa eftir. Ég
sagði því í fyrrakvöld að þetta hefði líklega verið
síðasti leikurinn minn en það er aldrei að vita
með það og ég sé til hvort fiðringurinn kemur aftur
næsta haust,“ sagði Eiríkur, sem hefur trú á því að
ÍR-liðið komi sterkt til leiks næsta haust.
„Ég hef trú á því að liðið haldist óbreytt. Það hefur
verið mikill uppgangur og vakning í kringum þessa
velgengni hjá liðinu og það verður að byggja á því,“ sagði
Eiríkur að lokum.
EIRÍKUR ÖNUNDARSON, ÍR: ÍHUGAR AÐ HÆTTA EN HEFUR ÞÓ EKKI TEKIÐ ENDANLEGA ÁKVÖRÐUN Í ÞEIM EFNUM
Sjáum til hvort fiðringurinn komi aftur í haust
HANDBOLTI Óheppnasti handbolta-
maður Íslandssögunnar, Stjörnu-
maðurinn Vilhjálmur Halldórs-
son, er enn eina ferðina kominn á
meiðslalista og styðst við hækjur
þessa dagana.
Vilhjálmur hafði verið slæmur í
hnénu í nokkurn tíma og er hann
leitaði læknis kom í ljós mikil
brjóskmyndun í hnénu.
„Brjóskið var hreinlega að
skera í sundur sinina. Ef það
hefði gerst væri ég í talsvert
verri málum,“ sagði Vilhjálmur
en á sama tíma komu í ljós smá
skemmdir á liðþófa sem einnig
voru lagaðar.
„Það var fínt að kýla bara á
þetta núna þar sem það er ekki
lengur að neinu að keppa. Ég verð
svo vonandi orðinn góður í lok
maí og mæti svo sterkur til leiks
næsta vetur,“ sagði Vilhjálmur
jákvæður sem fyrr. - hbg
Vilhjálmur Halldórsson:
Kominn á
hækjur
VILHJÁLMUR HALLDÓRSSON Seinhepp-
inn með eindæmum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
> Átta liða úrslit Lengjubikars karla í kvöld
Fyrri tveir leikirnir í átta liða úrslitum Lengjubikars karla
fara fram í kvöld þegar Íslandsmeistarar Vals taka á
móti Keflavík í Egilshöll kl. 19.00 og nágrannarnir HK
og Breiðablik mætast í Kórnum kl. 19.30. Sigurvegarinn
úr leik Vals og Keflavíkur mætir annað
hvort KR eða ÍA sem eigast við á
morgun í Kórnum kl. 14.00.
Sigurvegarinn úr Kópa-
vogsslagnum mætir svo
annað hvort Fram eða
FH en liðin mætast
á Framvellinum á
morgun kl. 14.00.
FÓTBOLTI Chelsea lét jafnteflið
gegn Wigan á dögunum ekki buga
sig í gær þegar liðið landaði ákaf-
lega mikilvægum sigri gegn
Everton, 1-0.
Það var Michael Essien sem
skoraði markið en hann skoraði
einnig gegn Wigan og óttuðust
margir stuðningsmenn Chelsea í
gær að sá leikur myndi endurtaka
sig.
Vörn Chelsea hélt aftur á móti
og þrjú gríðarlega mikilvæg stig í
húsi hjá Lundúnaliðinu. Chelsea
er þar af leiðandi aðeins tveim
stigum á eftir toppliði Man. Utd en
hefur leikið einum leik meira.
Liðin eiga aftur á móti eftir að
mætast á Stamford Bridge hinn
26. apríl. - hbg
Enska úrvalsdeildin:
Chelsea neitar
að gefast upp
JOHN TERRY Fagnaði sigrinum mikilvæga
vel í leikslok. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Valskonur fóru illa með
meistarakandídata Fram í Safa-
mýrinni í gærkvöldi og færðu
hugsanlega Stjörnukonum Íslands-
meistaratitilinn á silfurfati.
Valsliðið spilaði frábæra vörn
og fyrir aftan varði Berglind Íris
Hansdóttir 28 bolta í markinu.
Valsliðið var með frumkvæðið
allan leikinn en náði fyrst góðum
tökum á leiknum þegar það skor-
aði þrjú síðustu mörk fyrri hálf-
leiks og tvö þau fyrstu í seinni
hálfleik og náði með því sex marka
forustu. Framkonur komu munin-
um niður í fjögur mörk en nær
komust þær ekki og Valur vann
öruggan og sannfærandi sex
marka sigur, 22-16.
Stjarnan varð að treysta á að
Fram tapaði leik til þess að eiga
möguleika á titlinum en eftir leik-
inn í gær hafa liðin skipt um hlut-
verk og nú þurfa Framkonur að
treysta á að Íslandsmeistararnir
úr Garðabæ misstígi sig í þeim
þremur leikjum sem þeir eiga
eftir.
Alveg ömurlegt
„Þetta var alveg ömurlegt. Við
ætluðum að fara langleiðina með
að klára titilinn í dag en við
vorum bara langt frá því að vera
nálægt því,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, eftir leik.
En voru stelpurnar hans yfir-
spenntar? „Þetta eru ungar stelp-
ur og ungur hópur en besti sóknar-
leikmaðurinn minn í dag er yngsti
leikmaðurinn í liðinu, fædd 1990,
svo að ég veit ekki hverjar eiga að
vera yfirspenntar ef hún er eina
manneskjan sem gerir eitthvað
sóknarlega,“ sagði Einar og átti þá
við Karenu Knútsdóttir sem skor-
aði fjögur flott mörk í gær.
Valsliðið tók Anett Köbli úr
umferð frá fyrstu sekúndu leiks-
ins og það virtist slá Framsóknina
út af laginu. Fyrir vikið var það
hvað eftir annað á herðum Stellu
Sigurðardóttur að taka af skarið
en hún fann ekki fjölina sína.
„Ég átti svo sem alveg von á ein-
hverju nýju frá Gústa þannig að
þetta kom mér ekki á óvart,“ sagði
Einar en hann sagði Berglindi Íris
Hansdóttur hafa reynst þeim afar
erfið.
Valur farið illa með okkur
„Valsliðið hefur farið illa með
okkur í stóru leikjunum í vetur en
þar er kannski munurinn á
reynslumiklu liði og Framliðinu
sem er ungt og efnilegt. Ég hélt
samt að þetta væri að koma og við
gætum farið að vera eins og full-
orðnar konur inn á vellinum,“
sagði Einar en nú þurfa hann og
stelpurnar að treysta á úrslit úr
öðrum leikjum.
„Það er ömurlegt að þurfa að
bíða og sjá hvað gerist. Við eigum
eftir að spila á móti FH og verðum
að vinna þann leik. Við megum
samt ekki gleyma því að við erum
ennþá efstar en Stjarnan þarf
náttúr lega bara að vinna sína leiki.
Ég er sannfærður um það að ef
Valur er svona eins og þær spiluðu
í dag, þá bara vinna þær Stjörn-
una. Stjarnan er komin í bílstjóra-
sætið og við þurfum bara að vona
það besta, sem er hundleiðinlegt,“
sagði Einar að lokum.
„Þær voru að spila fanta vörn og
náðu hraðaupphlaupum í kjölfarið.
Þær komu okkur svolítið á óvart
með því að taka Anett úr umferð
en við eigum alveg að geta leyst
þetta,“ sagði Ásta Birna Gunnars-
dóttir, fyrirliði Fram, eftir leik.
„Nú verður þetta miklu erfiðara,
að þurfa að horfa upp á önnur lið
spila um þetta. Við erum ennþá
með í baráttunni og vonandi verða
Valsstúlkur svona góðar á móti
Stjörnunni í lokaumferðinni. Við
verðum að vinna FH en svo höld-
um við bara með þeim í lokaum-
ferðinni,“ sagði Ásta Birna að
lokum. ooj@frettabladid.is
Vonandi verða Valsstúlkur
svona góðar á móti Stjörnunni
Valsstúlkur spilltu meistaravonum Fram með því að vinna öruggan sigur í Safamýri í gær. Íslandsmeist-
arar Stjörnunnar geta nú varið titilinn vinni þær þá leiki sem þær eiga eftir. Hið unga lið Fram brotnaði
hreinlega á Berglindi Írisi Hansdóttur og geysiöflugri Valsvörn sem hélt Framliðinu í sextán mörkum.
SIGURDANS Nora Valovics fagnar glæsilegum sigri á Fram með því að dansa léttan sigurdans við mikla kátínu Ágústu Eddu
Björnsdóttur. Karen Knútsdóttir Framara er ekki eins kát á minni myndinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Valsstúlkur fögnuðu
vel sigrinum á móti Fram í gær en
þar spiluðu þær eins og Íslands-
meistarar.
„Við erum með besta liðið en
höfum klikkað þegar það hefur
skipt máli,“ sagði Hafrún Kristj-
ánsdóttir, fyrirliði Vals og sál-
fræðingur, en hún og félagar henn-
ar í Valsliðinu hafa farið illa með
Fram á úrslitastundum í vetur.
„Við erum búnar að taka alla
titla af Fram í vetur, við slógum
þær út úr bikar, unnum þær í
deildarbikar og ég held að við
séum komnar hálfa leið með að
taka Íslandsmeistarabikarinn af
þeim,“ sagði Hafrún og fannst það
greinilega ekki leiðinlegt.
„Við spiluðum geðveika vörn og
það vorum við sem vorum yfir-
vegaðar í þessum leik. Ég held að
Einar (þjálfari hjá Fram) hafi
heldur betur skotið sig í fótinn
með því að koma með fáránleg-
asta komment sem ég hef séð
síðan ég byrjaði í handbolta fyrir
fjórtán árum síðan. Hann var að
tala um að það yrðum við sem
yrðum stressaðar og öll pressan
væri á okkur. Ég hef aldrei vitað
þvílíka fimm aura sálfræði því
þær voru algjörlega yfirspenntar
í þessum leik. Hann ætti að ein-
beita sér að sínu liði,“ sagði
Hafrún harðorð.
„Við eigum ennþá séns ef Fram-
stelpurnar skíta í buxurnar á móti
FH en ég hef enga trú á því að
þær geri það því það væri skand-
all ársins. Við reynum að vinna
það sem eftir er og munum bara
reyna að hafa gaman af þessu,“
sagði Hafrún að lokum. - óój
Hafrún Kristjánsdóttir, fyrirliði Vals og sálfræðingur, um að pressan hafi verið á Valsliðinu í leiknum í gær:
Þetta var fimm aura sálfræði hjá Einari
Mörk Fram (skot): Karen Knútsdóttir 4 (7/1),
Stella Sigurðardóttir 3 (14), Anett Köbli 3/3
(6/3), Pavla Nevarilova 2 (5), 2, Þórey Rósa
Stefánsdóttir 1 (5), Ásta Birna Gunnarsdóttir 1
(2), Sigurbjörn Jóhannsdóttir 1 (5), Sara Sigurð
ardóttir 1 (7).
Varin skot: Kristina Matuzeviciute10 (af 32/2,
31%).
Hraðaupphl.: 4 (Karen 2, Stella 2).
Fiskuð víti: 4 (Stella, Pavla, Sara, Karen).
Mörk Vals (skot): Kristín Guðmundsdótir 4 (11),
Hafrún Kristjánsdótir 4/1 (6/1), Eva Barna 4 (7),
Dagný Skúladóttir 3 (6), Ágústa Edda Björnsdótt
ir 3/1 (3/1), Íris Ásta Pétursdótir 2 (2), Katrín
Andrésdóttir 1 (2), Nora Valovics 1 (1).
Varin skot. Berglind Íris Hansdóttir 28/1 (af
44/4, 56%) .
Hraðaupphl:: 10 (Eva 4, Dagný 3, Íris Ásta 2,
Ágústa Edda).
Fiskuð víti: 2 (Dagný, Hafrún).
FRAM-VALUR 16-22