Fréttablaðið - 18.04.2008, Síða 90

Fréttablaðið - 18.04.2008, Síða 90
50 18. apríl 2008 FÖSTUDAGUR Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Þróttar verður haldinn þriðjudaginn 29.apríl kl 21.00 í Félagsheimili Þróttar Venjubundin aðalfundarstörf. Stjórnin KÖRFUBOLTI Einni mest spennandi deildarkeppni NBA-deildinnar frá upphafi lauk í fyrrakvöld og úrslitakeppnin hefst á morgun. Að þessu sinni eru bestu lið deildanna stórveldin Boston Celtics og Los Angeles Lakers sem saman hafa unnið 30 NBA-titla (Boston 16, Lakers 14) og háðu ógleymanleg einvígi á níunda áratugnum. Það er því óhætt að halda því fram að velgengi liðanna í vetur kveiki upp nostalgíu meðal þeira áhuga- manna um NBA-deildina þar sem „glímur“ Magics Johnson og Larrys Bird eru enn í fersku minni. Spennan í Vesturdeildinni var rosaleg og á endanum skildu aðeins tveir sigrar efstu sex liðin að og níunda liðið, Golden State Warr iors, varð það lið í sögunni frá því núverandi fyrirkomulag var tekið upp 1984 sem hefur besta sigurhlutfallið án þess að komast í úrslitakeppnina. Golden State vann 48 leiki í vetur, fleiri leiki en sex af átta liðum sem komust í úrslitakeppnina austanmegin. Meistaravonir Los Angeles Lakers kviknuðu fyrir alvöru þegar liðið fékk til sín Pau Gasol í vetur. Liðið vann 22 af 27 leikjum sem hann spilaði og tryggði sér besta árangurinn í Vesturdeildinni á lokasprettinum. Lakers mætir Denver í fyrstu umferð úrslita- keppninnar. Spútniklið deildarinnar er New Orleans Hornets sem undir stjórn hins einstaka Chris Paul náði að tryggja sér annað sæti í vestrinu. Paul var efstur í deildinni í bæði stoðsendingum (11,6) og í stolnum boltum (2,7) og varð fyrsti leik- maðurinn í fimmtán ár til þess að skora yfir 20 stig og gefa yfir 10 stoðsendingar (síðan Tim Hard- away 1992-93). Paul og félagar mæta Dallas í fyrstu umferð en það hefur gengið á ýmsu í Dallas síðan liðið fékk Jason Kidd í skipt- um við New Jersey Nets. NBA-meistarnir í San Antonio Spurs fá að glíma við Phoenix Suns en það eru fáir búnir að gleyma því í Phoenix hvernig Spurs-menn slógu þá út í fyrra þar sem Amare Stoudemire var settur í leikbann í fimmta leiknum sem átti eftir að snúa seríunni. Suns teflir nú fram Shaquille O’Neal og það verður fróðlegt að sjá hvort þau skipti eru nóg til að gera meistaralið úr Steve Nash og félögum. Síðasta einvígið er síðan á milli Houston Rockets og Utah Jazz. Austurdeildin er ávallt álitin vera sú lakari af þessum tveimur en engu að síður spila þar tvö bestu lið deildarinnar ef litið er á árangurinn í vetur, Boston Celtics og Detroit Pistons. Bæði þessi lið munu því vera með heimavallar- rétt í lokaúrslitunum komist þau þangað. Boston Celtics fékk til sín Kevin Garnett og Ray Allen og setti met með því að sigra 42 sinnum oftar en liðið gerði í fyrra. San Antonio Spurs átti metið frá 1997-98 þegar liðið fékk til sín Tim Duncan og bætti sig um 36 sigurleiki. Boston mætir Atlanta Hawks í fyrstu umferð. Detroit Pistons hefur ekki sagt sitt síðasta og liðið sýndi mikinn styrk með því að vinna 59 leiki og ná öðrum besta árangrinum í deildinni í vetur. Liðið mætir spútnikliði austursins, Phila- delphia 76ers, í fyrstu umferð. Orlando Magic með „Súper- manninn“ Dwight Howard í farar- broddi náði þriðja sætinu og mætir Toronto Raptors en síðasta einvíg- ið er síðan á milli Cleveland og Washington. Liðin mætast nú þriðja árið í röð. Sálfræðistríðið er komið á fullt og mesta athygli vöktu ummæli DeShawns Steven- son hjá Washingon sem talaði um að LeBron James væri ofmetinn en fáir eru búnir að gleyma því hvernig hann nánast einsamall kom Cleveland-liðinu í úrslitin í fyrra. Úrslitakeppnin hefst eins og áður sagði á morgun. Boston Celt- ics, Los Angeles Lakers, Detroit Pistons, San Antonio Spurs og Phoenix Suns er spáð bestu gengi en ef miða má við spennuna sem var í deildinni í vetur er von á jafnri og spennandi úrslitakeppni þar sem örugglega verður eitt- hvað af óvæntum úrslitum en það væri skemmtilegt að rifja upp rimmurnar frá níunda áratugnum með því að fá Boston og Lakers enn á ný í lokaúrslitin. ooj@frettabladid.is Mætast Boston og Lakers? Deildarkeppni NBA lauk í fyrrakvöld og framundan er æsispenanndi úrslita- keppni, ekki síst á vesturströndinni þar sem aðeins tveir sigrar skildu að liðin í sex efstu sætunum og lið með 48 sigra komst ekki inn. NÍUNDI ÁRATUGURINN Larry Bird, Magic Johnson og meistarabikarinn. NORDICPHOTOS/GETTY LYKILMENN Kobe Bryant hjá Lakers sækir að Kevin Garnett hjá Boston í leik liðanna í vetur. NORDICPHOTOS/GETTY ÚRSLITAKEPPNIN 2008 Vesturdeildin 1. LA Lakers (57 sigrar - 25 töp) - 8. Denver Nuggets (50-32) 2. New Orleans Hornets (56-26) - 7. Dallas Mavericks (51-31) 3. San Antonio Spurs (56-26) - 6. Phoenix Suns (55-27) 4. Utah Jazz (54-28) - 5. Houston Rockets (55-27) Austurdeildin 1. Boston Celtics (66-16) - 8. Atlanta Hawks (37-45) 2. Detroit Pistons (59-23) - 7. Philadelphia 76ers (40-42) 3. Orlando Magic (52-30) - 6. Toronto Raptors (41-41) 4. Cleveland Cavaliers (45-37) - 5. Washington Wizards (43-39) Hæsta framlag í leikjum 1 og 2: Nate Brown, ÍR 26,0 Bobby Walker, Keflavík 21,5 Tahirou Sani, ÍR 17,0 Anthony Susnjara, Keflavík 16,5 Ómar Sævarsson, ÍR 16,0 Arnar Freyr Jónsson, Keflavík 14,5 Hreggviður Magnússon, ÍR 14,0 Sveinbjörn Claessen, ÍR 13,5 Steinar Arason, ÍR 11,5 Eiríkur Önundarson, ÍR 10,0 Hæsta framlag í leikjum 3 til 5: Nate Brown, ÍR 25,0 Bobby Walker, Keflavík 24,7 Tommy Johnson, Keflavík 18,3 Jón Norðdal Hafsteinss., Keflavík 17,7 Þröstur Jóhannsson, Keflavík 16,7 Tahirou Sani, ÍR 14,7 Gunnar Einarsson, Keflavík 14,3 Arnar Freyr Jónsson, Keflavík 14,3 Sveinbjörn Claessen, ÍR 11,7 Sigurður Gunnar Þorsteinss., Kef. 11,3 Þessir hækkuðu sig mest í framlagi: Þröstur Jóhannsson, Keflavík +19,7 Jón Norðdal Hafsteinss., Keflav. +12,2 Gunnar Einarsson, Keflavík +10,3 Tommy Johnson, Keflavík +9,3 Bobby Walker, Keflavík +3,2 Þessir lækkuðu sig mest í framlagi: Hreggviður Magnússon, ÍR -6,7 Ómar Sævarsson, ÍR -10,7 Steinar Arason, ÍR -11,5 Anthony Susnjara, Keflavík -14,8 UMSKIPTIN KÖRFUBOLTI Keflvíkingar sneru undanúrslitaeinvígi sínu gegn ÍR á sögulegan hátt og unnu þrjá +18 stiga sigra í röð. Þegar tölfræðin úr leikjunum er borin saman kemur það greini- lega fram að það voru íslensku leikmennirnir hjá Keflavík sem breyttu seríunni á sama tíma og framlag landa þeirra í ÍR-liðinu féll úr öllu verði. ÍR-ingurinn Nate Brown endaði með hæsta framlag allra leik- manna í einvíginu. Bobby Walker hjá Keflavík var næstur honum og þeir voru í efstu sætunum í bæði tveimur sigurleikjum ÍR-inga sem og í þremur sigurleikjum Kefla- víkur. Þegar upp var staðið skáru þeir félagar sig nokkuð úr frá öðrum leikmönnum enda sýndu þeir báðir stöðugan leik í öllum fimm leikjum liðanna. Arnar Freyr Jónsson var eini íslenski leikmaður Keflavíkur- liðsins sem var meðal tíu hæstu manna í fyrstu tveimur leikjun- um en þeir voru orðnir fimm í leikjum þrjú til fimm. ÍR-ingar áttu fimm íslenska leikmenn meðal tíu hæstu í framlagi í fyrstu tveimur leikjunum en aðeins Sveinbjörn Claessen var á topp tíu listanum í leikjum þrjú til fimm. Keflvíkingarnir Þröstur Leó Jóhannsson, Jón Norðdal Haf- steinsson og Gunnar Einarsson hækkuðu sig mest allra leik- manna, þar af Þröstur langmest eða um 19,7 framlagsstig. Þröstur var með 11,7 stig og 4,7 fráköst að meðaltali á 14,7 mínút- um í síðustu þremur leikjunum og framlag upp á 45,5 stig á hverj- ar 40 spilaðar mínútur. Þröstur setti meðal annars niður 76,5 pró- sent skota sinna. Jón Norðdal Hafsteinsson hækk- aði sig um 12,2 framlagsstig þrátt fyrir að vera látinn koma inn af bekkinn eftir leik tvö. Hann var með 11,3 stig og 5,3 fráköst að með- altali í leikjum 3 til 5 þar sem hann nýtti 75,0 prósent skota sinna. Gunnar Einarsson hækkaði sig um 10,3 framlagsstig en hann kom inn í byrjunarliðið í leik 3 og byrj- aði alla leiki eftir það. Gunnar var með 12,7 stig að meðaltali í leikj- unum þremur en í tölfræðinni koma hvergi fram áhrif hans á varnarleikinn eða frammistöðu Hreggviðs Magnússonar sem lækkaði sig um 7,7 stig og um 26,1 prósent í skotnýtingu frá því í fyrstu tveimur leikjunum. Hreggviður var þó ekki sá leik- maður sem lækkaði sig mest í framlagi því félagar hans Ómars Sævarsson (-10,7) og Steinar Ara- son (-11,5) fóru frá því að skora 22,5 stig og nýta 51,7 prósent skota sinna í leikjum eitt og tvö í það að skora aðeins saman 4,7 stig á 34,7 minútum og nýta aðeins 15,0 pró- sent skota sinna í leikjum þrjú til fimm. - óój Fréttablaðið skoðar frammistöðu leikmanna í fimm leikja undanúrslitaeinvígi Keflvíkinga og ÍR-inga: Þröstur, Jón og Gunnar hækkuðu sig mest +10,3 Gunnar Einarsson, Keflavík. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN +12,2 Jón Norðdal Hafsteinsson, Kefla- vík. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN +19,7 Þröstur Leó Jóhannsson, Keflavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.