Fréttablaðið - 18.04.2008, Blaðsíða 94
54 18. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. steypuefni 6. 49 8. samræði 9.
hlaup 11. nafnorð 12. fjárhirðir 14.
rósemd 16. pot 17. sigti 18. af 20.
tvíhljóði 21. hnappur.
LÓÐRÉTT
1. reigingslegur gangur 3. óhreinindi
4. fornt ríki 5. sjáðu 7. limlesta 10.
þunnur vökvi 13. prjónavarningur 15.
strengur 16. margsinnis 19. málmur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gifs, 6. il, 8. mök, 9. gel,
11. no, 12. smali, 14. spekt, 16. ot, 17.
sía, 18. frá, 20. au, 21. tala.
LÓÐRÉTT: 1. rigs, 3. im, 4. fönikía, 5.
sko, 7. lemstra, 10. lap, 13. les, 15.
taug, 16. oft, 19. ál.
„Án útvarps er ómögulegt að
vera í vinnunni. Ef ég er ein er
það gamla gufan, en ég vinn
með tveimur um þrítugt og
þegar þau fá að ráða er það
Bylgjan. Málamiðlunin er svo
Rás 2. Við hlustum á þetta
þrennt til skiptis.“
Dýrfinna Torfadóttir, gullsmiður.
„Heimasíðan verður tilbúin eftir
tvær vikur. Þá geta menn keypt
gelið í gegnum netið. Ég er búinn
að skoða þetta aðeins og það er
ódýrara að gera þetta svona,“ segir
handknattleiksskappinn Logi
Geirsson. Eins og komið hefur
fram í fjölmiðlum undanfarin ár
framleiðir Logi sitt eigið hárgel
undir nafninu L&I Hárgel sem
vakið hefur mikla athygli. Kunnug-
ir segja að þetta sé eitt besta hár-
gel sem þeir hafi komist í tæri við
og Logi fær ófáar fyrirspurnir dag-
lega um hvar hægt sé að nálgast
það. Nú er sú bið á enda og hárgels-
þyrstir Íslendingar og útlendingar
geta náð sér í eina eða tvær dollur í
gegnum heimasíðuna. „Ég ætla að
vera með allt á hreinu þegar versl-
unin opnar en þetta gerist samt allt
í rólegheitunum,“ segir Logi, sem
var að vonum spenntur enda lang-
þráður draumur loks að verða að
veruleika.
Að sögn Loga er heimasíða gels-
ins tilbúin og eingöngu eftir að
uppfæra hana. Þar geta áhugasamir
nálgast myndir og fróðleik um upp-
runa gelsins. Og Logi er með meira
í bígerð sem enn á eftir að líta
dagsins ljós. „Ég held stórt partý í
sumar þar sem leyndarmálið mikla
verður uppljóstrað,“ segir lands-
liðsmaðurinn dulur og bætir því
við að menn geti ekki setið með
hendur í skauti í atvinnumennsk-
unni þar sem nóg er af frítíma. Þeir
verði að hafa eitthvað fyrir stafni.
En það er ekki bara gel sem á
hug Loga allan um þessar mundir
því nú hillir undir lok biðarinnar
eftir Ferrari-bifreiðinni. Eins og
Fréttablaðið greindi frá fyrir
skemmstu festi Logi kaup á Ferr-
ari F355 Spider bifreið og hefur
hann beðið í ofvæni í nokkrar vikur
eftir gripnum. Logi hefur sett inn
myndir af fyrstu ökuferðinni sinni
í tryllitækinu og má sjá herlegheit-
in á heimasíðunni hans, logi-geirs-
son.de. „Bíllinn er nú í tolli, hann
er með svissnesk númer og ég get
vart beðið eftir að leysa hann út
þegar tollagjöldin hafa verið
greidd,“ segir Logi, sem telur þó að
hann geti ekki boðið nýjum liðs-
félaga sínum hjá Lemgo, Vigni
Svavarssyni, í bíltúr á Ferrari.
„Nei, hann er alltof stór, ef ég væri
sjálfur fimm sentimetrum stærri
gæti ég ekki einu sinni keyrt bílinn
og tveggja metra maður eins og
Vignir kemst því ekki fyrir. Hann
verður bara að horfa á,“ segir Logi.
freyrgigja@frettabladid.is
LOGI GEIRSSON: LANGÞRÁÐUR DRAUMUR VERÐUR AÐ VERULEIKA
Handboltamaður selur
heimagert hárgel á netinu
STÓRTÆKUR Logi Geirsson ætlar að selja gelið sitt á netinu og hefst sala á herlegheitunum eftir hálfan mánuð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Bubbi Morthens hefur samið lagið
Hjartað þitt sem hann ætlar að gefa
sigurvegara þáttarins Bandið hans
Bubba. Úrslitaþátturinn verður
sýndur í beinni útsendingu í kvöld á
Stöð 2 þar sem þeir Eyþór Ingi
Gunnlaugsson og Arnar Már Friðriks-
son munu flytja þrjú lög hvor.
Að sögn Bubba fjallar lagið um það
hvernig öll hjörtu slá sama takt.
„Þennan texta gerði ég og söng fyrir
litla strákinn minn fyrir einhverjum
árum og síðan lá þetta bara einhvers
staðar til hliðar. Svo kom þessi
hugmynd upp og þá fór ég í gang að
vinna þetta lag upp á nýtt,“ segir
Bubbi. „Þetta lag hentaði báðum
röddunum en krefst samt meiri
túlkunar en bara að þenja röddina.
Annars er þetta lítið og sætt popp-
rokklag og það hefur ris eins og allir
strákar eiga að hafa sem syngja popp
eða rokk.“
Bubbi er vitaskuld spenntur fyrir
úrslitaþættinum. „Ég held að það sé
óhikað hægt að segja að það hafi
hlaupið á snærið hjá unnendum
íslenskrar tónlistar með þessum
strákum,“ segir Bubbi, sem telur
bæði Eyþór og Arnar verðuga
sigurvegara. „Hvor um sig gæti
haldið bandinu fyrir aftan sig og átt
framlínuna án þess að bandið væri
hækja fyrir viðkomandi.“ - fb
Samdi lag fyrir sigurvegarann
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Magnús Kjartanssson og
Gaua Magnúsdóttir.
2 Grund.
3 Harare.
Draupnir Rúnar Draupnisson er í aðalhlutverki
í nýju myndbandi við Eurovision-lagið This Is
My Life, sem var frumflutt á netinu í gær. Þar
dansar hans og syngur eins og hann eigi lífið að
leysa en fær að lokum góða hjálp frá sjálfu
Eurobandinu með Friðrik Ómar og Regínu Ósk í
fararbroddi.
„Þetta var ótrúlega gaman og mikið fjör. Ég
fékk smá kjánahroll eftir á en ég hafði mjög
gaman af þessu,“ segir Draupnir Rúnar, sem er
mjög góður vinur Friðriks Ómars. „Í lok febrúar
var farið að ræða um að gera myndband og þá
bar Friðrik Ómar þessa hugmynd undir mig.
Mér leist vel á hana og hélt að hann væri að
spyrja mig álits sem vinur. Svo sagði hann að ég
væri strákurinn í myndbandinu og ég fékk
algjört sjokk. Svo hugsaði ég mig aðeins um og
sagði við sjálfan mig: „Af hverju ekki að lifa
lífinu lifandi og hafa húmor fyrir sjálfum sér og
taka þátt?“,“ segir Draupnir, sem hélt fyrst að
hann yrði minna áberandi í myndbandinu en
raunin varð.
Draupnir, sem er frá Neskaupstað, starfar
sem flugþjónn hjá Icelandair og útskrifast
jafnframt sem kennari í vor með leiklist sem
aukafag. Hann hefur leikið aðalhlutverkið í
tveimur leikritum fyrir austan en er annars
óreyndur úr skemmtanabransanum. Hann er
sannfærður um að framlag Íslands til Euro-
vision-keppninnar eigi eftir að ná langt. „Lagið
er frábært og þetta eru fagmenn fram í
fingur góma. Ég hef fulla trú á að þau eigi eftir
að standa sig vel, annars hefði ég aldrei tekið
þátt í þessu,“ segir Draupnir, sem verður að
sjálfsögðu á meðal áhorfenda í Belgrad í maí. - fb
Kennaranemi slær í gegn með Eurobandinu
Góður rómur var gerður að fyrir-
lestri sem Þórhallur Gunnarsson
hélt á hádegisverðar-
fundi ÍMARK samtaka
markaðsfólks 2. apríl
slíðastliðinn. Reifaði
Þórhallur þar viðhorf
sín gagnvart
kostun á
sjónvarpsefni
og sagðist meðal annars ekki
geta samþykkt óbeinar auglýsingar
í Sjónvarpinu með þeim hætti að
markaðstjórar fyrirtækja kæmu inn
í þætti og afhentu verðlaun. Þeir
sem tóku vel eftir orðum Þórhalls
ráku því upp stór augu þegar tíu
dögum síðar var fulltrúi frá Sam-
tökum sparisjóða mættur í beina
útsendingu hjá Sjónvarpinu til að
afhenda verðlaun í Söngvakeppni
framhaldsskólanema sem fram
fór á Akureyri um síðustu helgi.
En sumum leyfist það sem annar
ekki má.
Þeir fjölmörgu skjól-
stæðingar Jónínu
Benediktsdóttur
sem farið hafa
með henni til
Gdansk í Póllandi
í detoxmeðferð
geta glaðst því
hingað til lands
er komin dr.
Agneska Lemanczyk læknir en
hún hefur annast hundruð Íslend-
inga. Agneska mun halda fyrirlestur
í Háskólabíó 25. apríl og fljótlega
uppúr því, eða um miðjan næsta
mánuð lofar Jónína svo að fljúga
aftur með hópa til Póllands í detox-
meðferðir.
Ofurhugarnir Hans Stephensen
og Kristinn Einarsson, sem
starfa fyrir Ístak á Grænlandi, náðu
frábærum árangri í erfiðustu skíða-
göngukeppni heims sem var haldin
þar í landi á dögunum. Kristinn
endaði í þriðja sæti og Hans í því
fimmta í þeim flokki sem gekk 100
km á þremur dögum en einnig var
hægt að ganga 160 km. Eins og
kom fram í Fréttablaðinu í byrjun
mánaðarins voru Hans og Kristinn
fyrstu Íslendingarnir sem tóku þátt
í keppninni og miðað við
glæstan árangur þeirra
eigum við fullt erindi í
þessa miklu þrekraun í
framtíðinni.
-jbg/fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
BUBBI
MORTHENS
Bubbi hefur
samið lag
fyrir sigur-
vegara þátt-
arins Bandið
hans Bubba.
DRAUPNIR RÚNAR DRAUPNISSON Draupnir fer með
aðalhlutverkið í nýju myndbandi við Eurovision-lagið
This Is My Life.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA