Fréttablaðið - 21.04.2008, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 21.04.2008, Blaðsíða 21
fasteignir 21. APRÍL 2008 Fasteignasalan Ás er með til sölu íbúðir í nýju glæsilegu fjölbýli í Hafnarfirði. Íbúðirnar verða afhentar í október 2008. N orðurbakki 17 er fjögurra hæða lyftuhús með 8 íbúðum en tvær íbúðir eru á hverri hæð. Innangengt er í bílageymsluhús með 106 stæðum sem eru í sameiginlegu bílageymsluhúsi Norðurbakka 15, 17, 19 og 21. Eitt eða tvö sér bíla- stæði fylgja öllum íbúðum. Steyptir útveggir eru einangraðir og klæddir að utan með álklæðningu og harðviðarklæðningu að hluta. Íbúðunum er skilað fullbúnum með parketi á gólfum, flísalögðum baðherbergjum og flísalögð- um þvottahúsgólfum. Gólfhiti er í öllum íbúðum og lofthæðin er um 2,7 metrar. Allir gluggar ná niður í gólf og gefa mikla birtu. Tvennar svalir eru á flest- um íbúðum. Sameign og lóð eru fullfrágengin með snjóbrædd- um bílageymslurampi og hellulögðum göngustígum. Á þaki bílageymsluhúss er sameiginlegur garður með leiksvæði, garðbekkjum og púttvelli. Sér þvottahús er í hverri íbúð en auk þess fylgja hverri íbúð rúmgóðar geymslur í kjallara. Nánari upplýsingar veitir fasteignasalan Ás. Garður með leiksvæði Íbúðirnar verða afhentar í október. Brúarlán Netbankans er þægileg leið til að brúa bilið frá kaupum á nýrri íbúð til sölu á þeirri gömlu. Farðu á www.nb.is og kynntu þér málið eða fáðu nánari upplýsingar í síma 550 1800. Fr u m Glæsilegt og vandað skrifstofu- og iðnaðarhúsnæði á besta stað við Hafnarfjarðarhöfn Til sölu eru glæsilegt vandað skrifstofu- og iðnaðarhúsnæði á besta stað við suðurhöfnina í Hafnarfirði, næst miðbæ. Húsnæðið stendur við Cuxhavengötu 1. Góð tenging er við allar akstursbrautir/Reykjanesbraut. Til sölu 155 fm fullbúin vönduð skrifstofuhæð á annari hæð í skrifstofubyggingu ásamt hlutdeild í sameign. Er í útleigu hjá góðu fyrirtæki (leigusamningur til staðar). Sameign er frágengin með flísum á gólfum. Auk hlutdeildar í sameiginlegum bílastæðum fylgja 4 einkabílastæði sem tilheyra skrifstofu. Sér rafmagn og hiti. Hitalögn er í plani í kringum skrifstofubyggingu. Einnig er til sölu eða leigu vönduð iðnaðar- og skrifstofurými í iðnaðarbyggingu. Stærðir frá 125 - 200 fm, ásamt hlutdeild í sameign. Sterk vélslípuð iðnaðargólf með hitalögn. Stærð iðnaðarhurða er 4 m x 4,2 m. Rafmótorar eru á hurðum. Öllum iðnaðarrýmum fylgja góðar velskipulagðar skrifstofur fyrir ofan rými (sér eldhólf). Stærstu iðnaðarbilin eru 9,5m x 15,1 meter að innanmáli. Minni bilin eru um 6,4 m x 15,1 m að innanmáli. Sameiginleg tæknirými eru nálægt bilum. Möguleiki á rafmagni á sérnotasvæðum. Sér hiti og rafmagn fylgir öllum rýmum. Hitalögn er í plani við iðnaðarhurðir og gönguhurðir. Öllum rýmum fylgja sérnotasvæði við iðnaðarhurðir og við girðingu. Sameign er frágengin með flísum á gólfum. Verð frá 26 m.kr. Bilin eru til afhendingar fljótlega. Upplýsingar í síma 897 6054
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.