Tíminn - 05.01.1982, Side 17
Þriöjudagur 5. janúar 1982
17
íþróttir
■ Simon Ólafsson átti mjög góðan leik með islenska liðinu gegn Portugal i gærkvöldi
yiðóðumí
marktækifærum’
— sagdi Sævar Jónsson, sem lék sinn
fyrsta leik með Cercle Brugge
■ ,,Ég lék sem tengiliður vinstra
megin og það gekk bara nokkuð
vel”, sagði Sævar Jónsson knatt-
spyrnumaður sem lék sinn fyrsta
leik með Cercle Brugge á sunnu-
daginn gegn FC Lerse i bikar-
keppninni og mátti Brugge þola
1-2 tap og þar meö slegið úr
keppninni.
„Þetta var alveg furðulegur
leikur, við óðum svoleiðis i mark-
tækifærum að maður hefur sjald-
an verið vitni að öðru eins.”
Viö áttum skot i slá og einnig i
stöng en inn vildi boltinn ekki.
Fyrir stuttu siðan lékum við
æfingaleik og þá lét þjálfarinn
mig leika vinstra megin á miðj-
unni, við unnum þennan leik 2-1
og ég skoraði sigurmarkið.
Fyrir þennan leik sagði þjálfar-
inn að hann vildi reyna mig aftur i
þessari stöðu og eftir leikinn
sagði hann mér að ég hefði skilað
þessu hlutverki vel. Þrátt fyrir að
við töpuðum þessum leik þá var
þetta talinn besti leikur Brugge á
keppnistimabilinu.
Það munar lika miklu að til
liðsins er kominn hollenskur láns-
maður frá AZ AAlkmar hann er
framherji og gerði hann mikinn
usla i vörn andstæðinganna og
það er vænst mikils af honum”.
röp-.
„Byrjun-
in hjá
okkur
var slök”
— sagði Einar Bolla-
son, eftir að ísland
hafði tapað 67-73
fyrir Portúgal í
landsleik í körfu
í gærkvöldi
■ //Byrjunin í leiknum hjá
okkur var slök.
Portúgalarnir komust í
12-2 í byrjun og ég held að
þessi byrjunarkafli hafi
skipt sköpum f leiknum",
sagði Einar Bollason þjálf-
ari íslenska landsliðsins i
körfuknattleik í samtali
við Tímann i gærkvöldi.
Portúgal sigraði Island
73-67 er þjóðirnar mættust i
iþróttahúsinu í Njarðvík i
sinum fyrsta landsleik af
þremur, staðan í hálfleik
var 47-41 fyrir Portúgal.
,/Portúga larnir voru
ávallt með forystuna i
fyrri hálfleik en við náðum
okkur á strik i þeim síðari
og það munaöi aldrei nema
1-2 stigum á iiðunum.
Þegar staðan var 63-60 fyrir
Portugal og aðeins 3 min. eftir
mistókst hjá okkur sókn, Simon
Ólafsson fékk sina 5. villu og rétt
á eftir fékk Jón Sigurösson einnig
sina 5. villu og þurftu þeir báðir
að yfirgefa völlinn. Við þetta var
eins og islenska liöiö brotnaði
niður og Portugal skoraði siðan
næstu átta stig.
Við náðum okkur þó á strik
aftur skoruðum 5 stig i röö en þaö
dugði ekki.
Það er ekkert vafamál að
strákarnir geta meira en þeir
sýndu i þessum leik. Samt er ég
ekkert óánægður með þennan
leik. Við lékum vel i seinni hálf-
leik, sem endar 25-25, og léku
strákarnir þá mjög góðan leik.
Portugalarnir eru sterkir við
vissum það fyrirfram, þeir lentu i
3. sæti i siðustu C-keppni unnu þá
bæði Finna og Búlgara. En ég er
bjartsýnn við eigum vel að geta
unnið þetta lið.
Þeir Simon Ólafsson og Jón
Sigurðsson voru bestu menn is-
lenska liðsins. Simon var stiga-
hæstur með 18 stig Valur skoraði
12 stig Torfi 11 stig Jón Sigurös-
son 10 og Jón Steingrimsson og
Rikharður Hrafnkelsson skoruðu
8 stig hvor.
Lisboe Santos var islenska lið-
inu erfiður viðureignar litið fer
fyrir honum hvað hæð snertir en
kappinn hefur gifurlegan stökk-
kraft. Santos skoraði flest stig
Portugalanna 35. t Tyrklandi i
siðustu B-keppni var hann kosinn
besti maður mótsins og þá
skoraði hann 48 stig á móti
Búlgariu.
ísland og Portugal leika á ný i
kvöld og verður sá leikur i
Borgarnesi og hefst hann kl. 20.
röp-.
Reykjavíkurmótið í knattspyrnu:
Valsmenn
meistarar
— sigrudu Víking eftir
framlengdan leik
■ Ingi Björn Albertsson tryggði
Valsmönnum Reykjavikurmeist-
aratitilinn i knattspyrnu innan-
húss er hann skoraði sigurmark
Vals úr vitaspyrnu eftir fram-
lengdan leik gegn Vikingi i
Laugardalshöllinni i gærkvöldi.
Valur og Vikingur léku til úr-
slita i mótinu og að venjulegum
leiktíma loknum var staðan jöfn
5-5. Það var siöan Ingi Björn sem
skoraði sigurmarkið eins og áður
sagði.
Sjö félög tóku þátt i mótinu og
var þeim raðaö i tvo riðla, i
A-riðli léku Valur Þróttur KR og
Fram en i B-riöli léku Vikingur
Armann og Fylkir.
1 A-riðli sigraði KR Fram 6-4
Valur vann Þrótt 5-4 KR vann
Þrótt 13-3 Valur vann KR 8-3 og
Þróttur vann Fram 7-5.
1 B-riðli vann Fylkir Armann
4- 2 Vi'kingur vann Fylki 7-2 og Ar
mann og Vikingur gerðu jafntefli
5- 5.
Þróttur sigraði Armann 6-4 i
keppni um 5-6 sætið, Fylkir
sigraöi KR 3-2 um 3-4 sætið
Vikingur varö i öðru sæti og Valur
i fyrsta sæti.
Fram lenti i siðasta sæti, sjö-
unda,en geta huggað sig við það
að þeir voru eina félagið sem Val-
ur sigraði ekki( jafntefli varð 5-5.
röp-.
■ Valsmenn urðu Reykjavikurmeistarar i knattspyrnu. Hér á myndinni sést Ingi Björn i kröppum
dansi gegn Fram sem varð i neðsta sæti, en gerði þó jafntefli við meistarana.
Tímamynd Róbert.