Tíminn - 05.01.1982, Page 24
VARAHLUTIR
Sendum um land allt
Kaupum nýlega
bíla til niðurnfs
Sími (91) 7- 75-51, <91) 7- 80-30.
Skemmuvegi 20
Kópavogi
HEDD HF.
Mikiö úrval
Opið virka daga
919 * Laugar
daga 10-16
HEDD HF.
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
labnel
HÖGGDEYFAR
QJvarahlutir
Armiila 24
Simi 36510
NÚ MÁ SEGJfl AÐ
GENGID SE KOLFALUD”
— rabbað við Inga Hrafn Hauksson, myndlistarmann
■ „Nú má segja aö gengiö sé
kolfallið”, sagði Ingi HrafnHauks-
son, myndlistamaður þegar hann
leit á verk sitt, Fallandi gengi,
þar sem það lá á hliðinni á flötinni
fyrir ofan blokkirnar i Árbæjar-
hverfinu eftir að starfsmenn
borgarinnar höfðu misst þaö nið-
ur úr stroffu þegar verið var að
hifa það upp á stöpul sem er 4,70
metrar á hæð.
,,l>að er sorglegt að sjá verk
sem maður heíur lagt svona
mikla vinnu i liggja svona á hlið-
inni en mér er það sárabót að ég
veit aö það stendur til að koma
þvi i hús til viðgerðar á næstu
dögum, þvi i fallinu brotnaði aö-
eins uppúr verkinu.”
— Er langt siðan þú laukst við
verkið?
,,Já þaö var áriö 1974, en þá var
ég lengi búinn að ganga með hug-
myndina að þvi i kollinum og var
raunar búinn að gera af þvi módel
þegar ég loks fékk aðstöðu til að
ráðast i smiðina i húsnæði fyrir-
tækis sem kallaö var Verk h/f
meðan það var og hét. En fyrir-
tækið smiðaði húseiningar alla-
vega. Svo kom ég verkinu fyrir i
garöinum hjá mér fyrir utan
Stúdió 5 við Skólastræti og þaðan
fór það fljótlega á ú tisýningu sem
haidin var á Lækjartorgi og þar
komu menn frá borginni auga á
verkið og það endaði með þvi aö
hún key.pti það. Árið 1977 var þvi
siðan i.omiö fyrir hér á flötinni.
En vegna þess að gengið er alltaf
að siga stakk ég upp á þvi við
Hafliða garðyrkjustjóra, að þvi
yrðikomið fyrir á háum stalli. Og
hann féllst á það, en þegar loks
átti að koma þvi upp tókst ekki
betur til en raun ber vitni.”
—• Hvernig datt þér i hug að
kalla verkið Fallandi gengi?
„Mér fannst það liggja beint
við, þvi svo lengi sem ég man hef-
ur gengið verið annaðhvort að
siga eða falla á íslandi.”
— Þú fæst við fleira en að gera
„skúlptúra”?
„Já, ég vinn við ýmislegt,
skúlplúra, vatnslitamyndir og
lágmyndir. Ég mála i skamm-
deginu og geri skúlptúra á sumr-
in.”
— Þú ert með sýningu núna?
„Já, ég er að halda sýningu i
tilefni af fertugsafmæli minu 30.
des. Hún er i Stúdió 5 við Skóla-
stræti en þar hef ég bæði vinnu-
stofu og galleri.”
-Sjó
■ 'íí~
■ „Nú má segja aö gengið sé kolfallið”, sagði listamaöurinn Ingi Hrafn Hauksson þegar hann sá verk
sitt, Failandi gengi liggja á hliðinni uppi i Arbæjarhverfi. A innfelldu myndinni, sem tekin var fyrir
nokkrum árum, stendur Ingi Hrafn uppi á verkinu.
" rnm
Þriðjudagur 5. janúar 1982
fréttir
Nord-
lensk
Trygg
hættir
® Norðlensk trygging
eina tryggingarfélag-
ið sem rekið hefur
verið utan Reykja-
vikur, ákvað á aðal-
fundi nú rétt fyrir ára-
mótin að slita félaginu
og hætta starfsemi
sinni. Norðlensk
trygging hefur verið
rekið sem alhliða
tryggingafélag frá ár-
inu 1971.
í frétt frá félaginu
segir að vegna stór-
aukinna krafna um
eigið fé slikra félaga
hafi þess verið freist-
að að auka hlutafé
félagsins á árinu 1981,
en það hafi ekki tekist
i nægilegum mæli og
þvi hafi ekki verið hjá
þvi komist að taka
fyrrgreinda ákvörðun.
Norðlensk trygging
h.f. hefur haft umboð
fyrir Tryggingu h.f. I
Reykjavik vegna bif-
reiðatrygginga. Það
félag taki nú að sér
réttindi og skyldur
Norðlenskrar
tryggingar h.f. við
tryggingartaka og
yfirtaki eignir og
skuldir félagsins.
Staðfest var af for-
stööumanni
Tryggingaeftirlits
rikisins að svipað væri
ástatt um fjárhaginn
hjá fleiri trygginga -
félögum, þótt þau
komist kannski hjá
rekstrarstöðvun með
söfnun aukins hluta-
fjár. Ekki vildi hann
gefa upp um hvaða
tryggingarfélög væri
þar að ræða.
—HEI
Af tónlistar-
gagnrýni
■ Skelegg tónlistargagn-
rýni birtist i Alþýðublað-
inu fyrir sköminu undir
fyrirsögninni „And-
styggilegir tónleikar” og
fjallaði um tónleika Mus-
ica Nova aö Kjarvals-
stöðum i siðasta mánuði.
Við birtum hér niðurlag
umræddrar gagnrýni:
„En ég hélt aö þaö væri
komiö úr tisku að spila sig
vitlausari en maður er.
Þaö fer nefnilega ekki á
inilli mála að siikir vit-
leysingar eru helmingi
vitlausari þegar þeir eru
ekki að spila sig vitlaus-
ari en þeir eru”.
Og hananú!
Dýr áramót
hjá Helgar-
pósti
■ Helgarpósturinn upp-
lýsti okkur um það fyrir
helgina, að um áramótin
myndu lslendingar trú-
lega skjóta upp rakettum
fyrir fimmtiu til sextiu
milljónir króna. Eitthvað
hefur reikningskúnstin
brugðist þeim á Helgar-
póstinum aö þessu sinni
þvi viötrcystum okkur til
að fullyröa, að flugeldum
fyrir á milli fimm og sex
gamalla milljarða hefur
ekki verið skotiö upp á
gamlárskvöld, nema þvf
aöcins að til hafi komið
iánveiting Ur Byggða-
sjóði. Upphæðin á flug-
eldareikningi Helgar-
póstsins dygöi nefnilega
til að kaupa þó nokkuð
marga skuttogara af
þeirri gerð sem tsbjörn-
inn keypti um daginn.
Þessir
Danir...
■ t leiðara danska mán-
aðarritsins „Alt om
sport” var fyrir skömmu
fjallað um aðsókn að
knattspyrnulandsleikjum
i Kaupmannahöfn, og
stungiö upp á þvi að að-
gangseyrinn verði látinn
ráðast af þvi við hverja er
leikiö hverju sinni. Siðan
segir:
„Enginn gæti haft neitt
á móti þvi að borga 120
krónur fyrir sæti i stúku
þegar lcikið er gegn
Júgóslavíu, jafnvel þótt
saina sæti kostaði bara 80
krónur þegar leikið er
gegn til dæmis tslandi.
Viö erum jú vön þvi að
gæði vörunnar ákvarði
verðið.”
Ef þessi regla yrði tekin
upp hér á landi þyrfti trú-
Iega að hafa ókéypis að-
gang þegar danska hand-
knattleiksiandsliðið kem-
ur i heimsókn, — jafnvel
ekki út i hött að gefa
væntanlegum áhorfend-
um poppkorn við inn-
ganginn.
Krummi ...
er að velta þvi fyrir sér
hvenær seinni hlutanum
af áramótaávarpi for-
sætisráðherra . veröur
sjónvarpað...