Tíminn - 12.01.1982, Síða 7
Þriðjudagur 12. janúar 1982 '
7
erlent yfirlit
erlendar fréttir
■ RÉTT fyrir jólin myndaöi Wil-
fried Martens rikisstjórn i Belgiu
eftir stjórnarmyndunarþóf, sem
hafði staðið hátt á annan mánuð.
Þetta er fimmta rikisstjórnin,
sem Martens hefur myndað á
þremur árum. Meðalaldur hinna
fjögurra stjórna hans var sjö
mánuðir.
Martens er einn af þremur leið-
togum Kristilega flokksins, sem
hafa skipzt á um að fara með
stjórnarforustu allmörg undan-
farin ár. Hinir eru Leo Tindeman
og Mark Eyskens. Sumir telja
Martens minnstan skörung
þeirra. Hann þykir hins vegar
laginn samningamaður og sam-
starfsflokkarnir virðast sætta sig
betur við forustu hans en þeirra
Tindemans og Eyskens.
Þingkosningar fóru fram I
Belgiu snemma i nóvember. Þá
fór með völd samsteypustjórn
kristilegra og jafnaðarmanna
undir forustu Eyskens. Hún
sprakk vegna þess, að ekki náöist
samkomulag um stuöning við
stáliðnaðinn i Valloniu. Þess
vegna var efnt til kosninga. Orslit
þeirra urðu þau, að Kristilegi
flokkurinn beið mikinn ósigur.
Frjálslyndi flokkurinn, sem er
hægriflokkurlandsins, vann mik-
ið á. Jafnaðarmenn bættu nokkuð
stöðu sina. Sama gilti um þjóð-
ernissinnaða smáflokka i
Valloniu og Flandern.
Hin nýja rikisstjórn Martens er
samsteypustjórn Kristilega
■ Wilfried Martens
Vísitölukerfið
NATO-rfkin
vara Sovét-
ríkin vid
■ Aðildarriki Atlantshafs-
bandalagsins vöruðu i gær
Sovétrikin við og sögðust
reiðubúin að gripa til þving-
unaraðgerða i efnahags-
málum, sem á öðrum sviðum,
ef ástandið i Póllandi fer ekki
batnandi.
Þetta kom fram i yfirlýs-
ingu sem send var út i Brússel
i gær, eftir sérstakan fund
utanrikisráðherra NATO rikj-
anna. Þar sagði jafnframt að
Sovétrikin hefðu engan rétt til
þess að vera með afskipti af
stjórnmálalegri eða þjóðhags-
legri þróun i Póllandi. t yfir-
lýsingunni segir að ráðherr-
arnir hafi timasett hvernig
þvingunaraðgerðum i efna-
hagsmálum verður háttað. 1
yfirlýsingunni sagði einnig að
sérhver rikisstjórn aðildar-
rikja NATO myndi einnig taka
til athugunar hvort takmarka
bæri umsvif sovéskra diplo-
mata á Vesturlöndum, t.d.
með þvi að skera niður
visindalega og tæknilega sam-
vinnu við Sovétrikin.
Voru þrjú skilyrði tilgreind i
yfirlýsingunni, fyrir þvi að
NATO rikin tækju upp eölileg
samskipti við Póiland á nýjan
leik. Bundinn verði endir á
gildi hernaðarlaga i Póllandi.
Föngum, sem verið hafa i
fangelsi siðan lögin tóku gildi,
verði sleppt úr haldi, og við-
ræður á milli rikisins, kirkj-
unnar og verkalýðshreyf-
inganna verði hafnar á nýjan
leik.
1 niðurlagi yfirlýsingarinnar
kom fram að NATO rikin for-
dæma harðlega að mann-
réttindi séu fótum troðin i
stórum stil i Póllandi og einnig
niðurskurð borgaralegra rétt-
inda i Póllandi.
Utanrikisráðherrar Pól-
lands og Sovétrikjanna
funduðu i Moskvu i gær og for-
dæmdu þeir það sem þeir köll-
uðu afskipti vestrænna rikja
af innanrikismálum Póllands.
Fordæming þeirra var gerð
opinber, áður en fundi utan-
rikisráðherra NATO rikjanna
i Brussel lauk i gær.
Sovéska fréttastoían Tass,
sagði i gær að afskipti vest-
rænna rikja af innanrikis-
málum Póllands, væru gróft
brot á sáttmála Sameinuðu
þjóðanna, svo og Helsinkisátt-
málanum.
ógnar Belgíu
Tekst Martens að ráða við það?
■ Uppdráttur, sem sýnir fylkin f Belgiu
flokksins og Frjálslynda flokks-
ins. Hún styöst við 113 þingmenn,
en alls eru þingmenn 212.
Jafnaðarmenn eru i stjórnarand-
stöðu. Ottazt er að það geti aukið
þjóðernisdeiluna i landinu.
Jafnaðarmenn eiga aðalfylgi sitt i
Valloniu.
ÞAÐ er efst á verkefnalista
hinnar nýju rikisstjórnar að gera
ráðstafanir vegna efnahagsvand-
ans, sem hvergi er meiri i Vest-
ur-Evrópu. Atvinnuleysi er gifur-
legt og erlendar skuldir hlutfalls-
lega meiri en viðast annars staö-
ar. Framundan blasir við enn
aukið atvinnuleysi og greiðslu-
þrot i erlendum viöskiptum.
Þaö ræður mestu um efnahags-
erfiðleikana i Belgiu að laun
hækka þar sjálfkrafa samkvæmt
framfærsluvisitölu, llkt og hér.
Belgia mun eina rikið á megin-
landi Evrópu, sem enn býr við
slikt fyrirkomulag i launamálum.
Af þessum ástæðum eru þar há
laun, en þau hafa dregið úr sam-
keppnishæfni atvinnuveganna og
leitt til hins mikla atvinnuleysis.
Fjárhagshruni hefur verið afstýrt
með skuldasöfnun erlendis.
Þessi leið er ekki fær lengur.
þess vegna hyggst hin nýja rikis-
stjórn að gripa til róttækra úr-
ræða. Hin helztu eru þessi:
1. Útgjöld rikisins verða lækk-
uð. Gert hafði veriö ráö fyrir
tekjuhalla á fjárlögunum 1982,
sem næmi 328 milljöröum
belgískra franka. Ráðgert er að
lækka hallann i 200 milljarða með
niðurskurði á útgjöldum. Skattar
veröa ekki hækkaðir.
2. Atvinnufyrirtækjum verður
veitt aukin fyrirgreiðsla meö
nokkurri lækkun á sköttum eða úr
48% i 45%, leyfilegar afskriftir
verða auknar og skattafrádráttur
aukinn vegna fjárfestingar.
3. Sambandið milli launa og
framfærsluvisitölunnar veröur
ekki rofiö, eins og fyrirhugað var
i fyrstu, en hins vegar sett þaö
mark, að slikar launahækkanir
veröi ekki meiri en 3% hverju
sinni.
Búizt er viö þvi, að þessar fyrir-
ætlanir sæti harðri andspyrnu
jafnaðarmanna.
BELGISKU stjórnmála-
flokkarnir hugðust leysa þjóð-
ernisdeiluna fyrir nokkrum
misserum meö þvi að veita
Flandern og Valloniu verulega
heimastjórn. Jafnframt var kom-
ið upp sérstjórn fyrir höfuðborg-
ina, sem ella heföi fylgt Flandern,
en þvi mótmæltu Vallónar.
Þótt ótrúlegt kunni að þykja,
rekja mörkin, sem nú eru viður-
kennd milli Vallonlu og Fland-
erns, sögu sina til valdatima
Rómverja á þessum slóðum. Sókn
þeirra stöðvaöist á sinum tima
nálægt þessum landamærum.
Siðan hafa Vallónar talað
frönsku, en Ibúar Flanderns hol-
lenzku eöa skylt mál.
A siöustu öld og á fyrri hluta
þessarar aldar urðu framfarir
öllu meiri i Valloniu en i Flandern
og lifskjör heldur betri. Nú hefur
þetta snúizt við. Atvinnuleysi er
t.d. mun meira i Valloniu en I
Flandern.
Veruleg hætta er talin á þvi, aö
hinar fyrirhuguöu efnahagsaö-
gerðir reynist þungbærari i
Valloniu en i Flandern. Vafalitið
er álitiö, að þaö geti oröiö vatn á
myllu jafnaðarmanna. Hitt þykir
þó alvarlegra, ef það verður þjóð-
ernissinnum til stuönings og gef-
ur skilnaðarhreyfingu byr I segl-
in, en sú skoðun virðist vera að
vinna fylgi i Valloniu, að skásti
kosturinn muni vera að slita al-
veg böndin milli Valloniu og
Flandern.
Þriðja vandamál blöur svo úr-
lausnar, sem getur reynzt stjórn
Martens erfitt. Það er staösetning
eldflauganna, sem eiga að vera i
Belgiu samkvæmt áætlun At-
lantshafsbandalagsins frá 1979.
Samkvæmt henni eiga 48 banda-
riskar eldflaugar að vera stað-
settar i Belgiu. Sennilega mætir
staösetning þeirra enn meiri mót-
spyrnu i Valloniu en i Flandern.
Þetta getur orðið illleysanlegt
vandamál.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
Enn gífurlegir
kuldar í Evrópu
ogUSA
■ Hið mikla kuldakast i
Evrópu og Norður-Ameriku
heldur áfram að orsaka mikia
örðugleika. Flóð og ishröngl
hafa þegar valdið miklu tjóni i
Póllandi og óttast er um
margar stiflur þar i landi.
I Suður-Wales á Bretlands-
eyjum hafa björgunarsveitir
verið að störfum við að kom-
ast i samband viö fólk, sem
hefur verið einangrað lrá um-
heiminum frá þvi sl. föstudag,
vegna fannfergis. Stór svæði i
Frakklandi eru nú á kafi i
snjó. Vegna gifurlegra loft-
kulda og stillu, hefur loft-
mengun aukist mikið að
undanförnu yfir tyrknesku
höfuðborginni Ankara, og hafa
yfirvöld þar I borg, nú skipaö
börnum og eldra fólki að halda
sig innandyra. 1 mörgum
borgum Bandarikjanna hefur
kuldinn aldrei mælst svo mik-
ill, sem siðustu daga og þessir
--
mikiu kuldar hafa orðið tii
þess að skammta heíur þurft
orku til þúsunda Bandarikja-
manna.
Utanríkisráð-
herra Malasíu
fannst á llfi
, ■ Utanrikisráðherra
Malasiu, sem var talinn hafa
látið lifið i fyrradag, þegar
flugvél hans hrapaði i frum-
skóga norður af höfuðborginni,
fannst á lífi i gær. Það var
leitarflokkur sem fann hann
ekki fjarri þeim stað þar sem
vélin hrapaði. Ráðherrann
var sá eini sem komst lifs af,
en flugmaðurinn og lifvörður
hans létu lifið. Ráöherrann
hlaut aðeins litilsháttarmeiðsli
á handlegg og brjóst og var
svo heill heilsu, þegar hann
fannst, að hann gat lýst björg-
un sinni fyrir fréttamönnum.
Sagði hann að flugvélin heföi
verið i u.þ.b. 3000 feta hæð,
þegar hún rakst á trjátoppa
utan i hlið. Honumjókst að
stökkva út úr vélinni, áöur en
hún skall á jörðinni, en leitar-
flokkurinn fann félaga hans
látna i flugvélarflakinu.
tsrael: Deilurnar á milli rikisstjórnar tsrael og landnemanna á
Sínaiskaga, sem eiga að flytjast þaðan á brott, áður en ísrael af-
hendir Egyptum skagann standa enn. Stjórnin bauð hinum 5000
ísraelsmönnum, sem verða aö yfirgefa Sianaiskágann i april,
auknar bætur, en fulltrúar þeirra sem á skaganum búa hafa
hafnað þessu tilboði.
ítalia: Lögreglan I Róm greindi frá þvi i gær að henni hefði tekist
aðafla sér þýðingarmikilla upplýsinga um Rauðu herdeildirnar,
hryðjuverkamennina á Italiu, i fyrradag, þegar 12 manns voru
handteknir i Róm. Handtökur þessar fóru fram vegna leitar lög-
reglunnar að bandariska hershöfðingjanum sem herdeildirnar
rændu fyrir allnokkru, en enn hefur leitin ekki borið árangur.