Fréttablaðið - 23.04.2008, Page 1
Danskar kaupsýslukonur
streyma nú til Noregs til að taka
þar sæti í stjórnum fyrirtækja.
Er nú svo komið að fleiri dansk-
ar konur sitja í stjórnum norskra
fyrirtækja en danskra.
Hallur Magnússon ráðgjafi
segir að Íbúðalánasjóður hefði
getað skilað lægri útlánavöxtum
en raunin varð. Vextir sjóðsins
lækkuðu í kjölfar útboðs íbúða-
bréfa og eru nú 5,2 prósent og 5,7
prósent.
Leikfangafyrirtækið Mattel,
sem er stærsti leikfangaframleið-
andi í Bandaríkjunum, tilkynnti að
sala á Barbie-dúkkum hefði dreg-
ist saman um tólf prósent í Banda-
ríkjunum á fyrsta fjórðungi ársins
2008. Sala á dúkkunum á alþjóða-
markaði stóð hins vegar í stað.
Þór Sigfússon hefur verið kjör-
inn formaður Samtaka atvinnu-
lífsins og tekur við af Ingimundi
Sigurpálssyni.
Þinglýstir kaupsamningar um
íbúðarhúsnæði á höfuðborgar-
svæðinu frá 11. apríl til og með 17.
apríl 2008 voru 75. Á sama tíma í
fyrra voru þinglýstir kaupsamn-
ingar 179. Velta þinglýstra samn-
inga hefur dregist saman um tæp
sextíu prósent milli ára.
1412
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 23. apríl 2008 – 17. tölublað – 4. árgangur
6
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
Fyrir aðalfundi Landsbank-
ans í dag liggur tillaga um að
gefa út jöfnunarhlutabréf og af-
henda hluthöfum. Um 300 millj-
ónir króna er að ræða að nafn-
virði. Ef miðað er við gengið 30 á
Landsbankanum jafngildir þessi
aðgerð því að hluthöfum séu af-
hentir níu milljarðar króna.
Samhliða þessu er hluta af eigin
bréfum Landsbankans ráðstaf-
að til lækkunar á hlutafé bank-
ans um sömu upphæð. Gunnar
Viðar, forstöðumaður lögfræði-
ráðgjafar Landsbankans, segir
að samkvæmt tillögunni sé til-
gangur hlutafjárlækkunarinnar
að minnka hlut Landsbankans í
eigin bréfum.
Aðferðin er ígildi arðgreiðslna
og hefur ekki áður verið farin
hér. Við núverandi aðstæður á
fjármálamarkaði eru peningar
verðmætir og því vilja stjórnend-
ur félaga frekar afhenda hluthöf-
um arð í formi hlutabréfa. Aðferð
bankans er frábrugðin öðrum að
því leyti að útgáfa jöfnunarhluta
leiðir ekki til skattskyldu fyrir
hluthafa og ber bankanum því
ekki að halda eftir staðgreiðslu
skatts á fjármagnstekjur. Selji
hluthafar bréfin ber þeim hins
vegar að greiða skatt af hagnaði
sem myndast miðað við að þeir
greiddu ekkert fyrir bréfin. - bg
Greiða ígíldi níu milljarða í arð
Tíma - og verkskráning
Flotastýring og eftirlit
www.trackwell.com
V i s t væ n
prentsmiðja
Sími 511 1234 • www.gudjono.is
Forstjóri Kauphallarinnar
Mikilvægt skref
fram á við að
lána verðbréf
Konur skyggnast
inn í framtíðina
Horft til
Evrópu
Loðfeldir svínvirka
Minkurinn
er vinsæll
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Bjarni Ármannsson fjárfestir og Norðmaðurinn
Frank Ove Reite hafa gengið til liðs við einkafram-
takssjóðinn (e. private equity) Paine & Partners í
Bandaríkjunum, að því er sjóðurinn tilkynnir í dag.
Frank Reite var áður framkvæmdastjóri hjá Glitni
þar sem Bjarni var forstjóri. Hlutverk Bjarna og
Franks innan sjóðsins verður að stýra fjárfesting-
um í Norður-Evrópu með sérstaka áherslu á sjávar-
útveg, orkuiðnað og fjármálaþjónustu.
Í viðtali við Markaðinn í dag kveðst Bjarni
um skeið hafa haft það á bak við eyrað að hefja
samstarf um fjárfestingar við fjárfestingarbanka
eða einkaframtakssjóð. W. Dexter Paine, stofn-
andi Paine & Partners, segist í tilkynningu himin-
lifandi að fá þá Frank og Bjarna til liðs við sjóð-
inn. „Mörg okkar hafa verið þeirrar ánægju aðnjót-
andi að vinna náið með þeim,“ segir hann og rekur
kynnin við þá um áratug aftur í tímann þegar þeir
voru báðir starfandi hjá Glitni.
Paine & Partners var stofnaður árið 1997 og er
með aðsetur í San Francisco og New York. Bjarni
segir sjóðinn afar öflugan, en frá stofnun hefur
hann fjárfest fyrir tæplega sex og hálfan milljarð
Bandaríkjadala í félögum í ýmsum atvinnugrein-
um. „Ávöxtun á það eigið fé sem í þeim fjárfest-
ingum hefur verið bundið hefur að jafnaði verið 33
prósent á ári,“ segir hann. Paine & Partners fjár-
festir nú úr sjóði sem nefnist Paine & Partners III
og er um 1.200 milljónir dala að stærð, en það er
pottur upp á tæpa níutíu milljarða íslenskra króna.
Bjarni segir ekki loku fyrir það skotið að sam-
starfið verði ákveðinn farvegur fyrir aukna er-
lenda fjárfestingu hér á landi. „En hvar okkur ber
nákvæmlega niður verður auðvitað bara að koma í
ljós,“ segir hann.
Auk þess að ræða samstarfið við Paine & Partn-
ers fer Bjarni yfir horfur í efnahagsmálum í við-
talinu í miðopnu blaðsins. Hann segir ljóst að krón-
an hafi glatað trausti bæði innanlands og utan og
brýnir stjórnvöld til aðgerða í efnahagsmálum til
að efla traust erlendra greiningaraðila og fjár-
festa. Hann segir ríða á að gjaldeyrisforðinn verði
efldur og að þjóðinni verði mörkuð stefna til far-
sællar framtíðar. Hann segir þar sjálfsagt fleiri en
eina leið færa, en ljóst sé að hraða þurfi mjög þeirri
vinnu. „Maður sér að sjálfsögðu hvernig umræðan
um Evrópusambandið er að taka á sig nýja mynd;
margir sjá það sem lausnarfarveg núna og það má
vel vera.“ Sjá síðu 8 og 9
Bjarni til liðs við
fjárfesta í Ameríku
Bjarni Ármannsson og Frank O. Reite hafa báðir gengið til
liðs við bandaríska fjárfestingarsjóðinn Paine & Partners.
„Fari hins vegar svo, að einhver
[bankanna] lenti í vandræðum
og þyrfti að auka eigið fé, er
umhugsunarvert hvort fjárfest-
ingarfélög, sem eru stærstu eig-
endur þeirra, og hafa bæði veð-
sett eignir sínar vegna fjárfest-
inga, og fengið mikið lánað hjá
þeim, geti tekið þátt í því,“ segir
Eiríkur Guðnason Seðlabanka-
stjóri. Hann bætir því við að
bankarnir eigi nægt eigið fé.
Danska viðskiptablaðið Børsen
birtir viðtal við Eirík þar sem
hann tekur sterkar til orða.
Fjárfestingarfélagið Exista er
stærsti hluthafinn í Kaupþingi
og FL Group stærsti hluthafinn í
Glitni. - ikh / Sjá síðu 4
Fjárfestingarfélög
umhugsunarverð
EIRÍKUR GUÐNASON Seðlabankastjóri
ræðir um stöðu bankanna og helstu hlut-
hafa.