Tíminn - 21.01.1982, Page 1
Prófkjörið: Viðtöl bls. 9. Upplýsingar bls. 3,5,19
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ!
Fimmtudagur 21. janúar 1982
14. tölublað — 66. árg.
Enn ekkert samkomulag um efnahagsráðstafanir:
DEILT UM SKATTA OG
fjArlaganiðurskurd
,,Hriktir svolítið V\ segir Tómas Árnason - ,,Strandar á óeiningu
í Framsóknarflokknum”, segir Ólafur Ragnar Grímsson
■ Enn hefur ekki náöst sam-
komulag um efnahagsráöstaf-
anir rikisstjórnarinnar. Það
sem deilt er um, samkvæmt á-
reiðanlegum heimildum
Timans, er aö framsóknarmenn
leggja mjög mikla áherslu á aö
fá lækkun á launaskatti og aö-
stöðugjaldi á iðnaði, en alþýðu-
bandalagsmenn eru þvi mót-
fallnir. Um þetta atriði stendur
styrr á milli þessara tveggja
stjórnarflokka. Auk þessa eru
menn enn aö deila um niöur-
skurö á fjárlögum.
Tómas Arnason viöskiptaráð-
herra hefur talið að það væri
meira svigrúm til niðurskurðar
á fjárlögunum, heldur en
Ragnar Arnalds, fjármálaráð-
herra, vill vera láta. Það mál
er nú til athugunar hjá báðum
flokkum.
Þaö kom fram i viðtali
Timans við nokkra þingmenn i
gær, að stjórnarliða greinir
talsvert á um hvernig miði i
efnahagsráðstöfunum rikis-
stjórnarinnar. Tómas Árnason,
viðskiptaráðherra sagði t.d.
„Menn takast dálitið á um þessi
mál. Það hriktir kannski svolit-
ið i,” þegar hann var spurður
um stjórnarsamstarfið og Ólaf-
ur Ragnar Grimsson, formaður
þingflokks Alþýðubandalagsins
sagði: „Mér skilst að það
strandi á óeiningu i Fram-
sóknarflokknum... Tómas
Arnason er með ýmsar sérskoð-
anir varðandi efnahagsað-
gerðir. Að þvi er mér skilst, þá
vill Tómas byggja þessar að-
gerðir á þvi sem hann kallar
„loftið i fjárlögunum”. Mér
finnst sú afstaöa ekki mjög á-
byrgðarfull.”'
—AB
Sjá nánar bls. 4-5.
Gúmmí-
tékkar:
Gróði
bankanna
bls. 6
SJOMENN
SOMDU
■ Bátasjómenn og sjómenn á
minni skuttogurun i Reykjavik
samþykktu á fundi siðari hluta
dags i gær nýjan kjarasamning,
þannig að verkfalli sjómanna á
þessum skipum var þar með af-
lýst. Atkvæðagreiðsla fór
þannig að 45 samþykktu, 21 var
á móti og 2 atkvæði voru ógild.
Fundur þessi hefur þvi verið allt
að helmingi fjölmennari en sá
er felldi samningana s.l. sunnu-
dag.
Guðmundur Hallvarðsson,
formaður Sjómannafélags
Reykjavikur var spuröur hvað
bæst hafi við samning þann sem
sjómenn i Reykjavik felldu á
fundi s.l. sunnudag. „Það varð
samkomulag um fyrirkomu-
lagsbreytingu á löndun hér i
Reykjavik, þannig að nú fá sjó-
menn á skuttogurum fri bæði
um jól og nýár, en slikt var að-
eins um jól áður,” Spurður
hvort sjómönnum hafi ekki þótt
þetta harla litil viöbót sagði
Guðmundur: „Vandamálið var
það, að við stóðum eftir
einangraðir eftir ákaflega ein-
kennilegar atkvæðagreiðslur
hér og þar um landsbyggðina,
þar sem jafnvel 2 samþykktu en
20 menn sátu hjá.”
— En hvað þá með sjómenn-
ina á stóru togurunum?
— Það er engin lausn sjáanleg
i þvi máli sem stendur. Þó var
ég að gera mér vonir um að
þessi niðurstaða hafi áhrif á
gang þess máls og flýti fyrir
lausn þess.
Guðmundur sagði hins vegar
mikinn stuðning við þá, hafa
komið fram á fundinum i gær.
M .a. hafi þeir sem búnir voru að
sækja um verkfallsstyrk,
samþykkt að falla frá þeim um-
sóknum, þannig að hægt væri að
nota verkfallssjóð til að styrkja
betur þá sem enn eiga i verk-
falli. —HEl
NÚ ER AÐ ÞREYJA ÞORRANN...
■ Þorrinn byrjar á morgun og þeir i Kjötbúð Tómasar eru tilbúnir með allt
sem til þarf. Timamynd: GE
Lampa-
skermar
bls. 12
_______
bls. 2
Exi Hoff-
manns
— bls. 10-11