Fréttablaðið - 23.04.2008, Side 21
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
„Við ákváðum að gera þetta svo-
lítið veglega til að kynna okkur
enda nýbúin að hleypa af stokk-
unum sameinuðu fyrirtæki með
nýju nafni,“ segir Eyjólfur Árni
Rafnsson, forstjóri Mannvits,
stærstu verkfræðistofu lands-
ins, en fyrirtækið var með stór-
an bás á sýningunni Verk og
vit sem nýafstaðin er í Laugar-
dalshöll. Mannvit varð til fyrr
í þessum mánuði við samruna
verkfræðistofanna VGK-Hönn-
unar og Rafhönnunar. Hjá sam-
einuðu fyrirtæki starfa um 360
manns.
Auk Eyjólfs Árna stýra fyrir-
tækinu aðstoðarforstjórarnir
Skapti Valsson, sem er yfir inn-
lendri starfsemi, en hann var
áður framkvæmdastjóri Raf-
hönnunar, og svo Runólfur
Maack, sem er yfir erlendri
starfsemi, líkt og hann var áður
hjá VGK-Hönnun.
„Á sýningunni Verk og vit
2008 lögðum við upp með að
kynna nafnið, sameininguna
og starfsemina sem við erum
með innan fyrirtækisins,“ segir
hann og kveður viðtökurnar
hafa verið mjög góðar í Höll-
inni.
Með sameiningu fyrirtækj-
anna segir Eyjólfur Árni náð
fram miklum samlegðaráhrif-
um, sér í lagi vegna þess hve
sérfræðiþekking stofanna hafi
lítið skarast. Þá hjálpi aukin
stærð fyrirtækinu að keppa við
erlend félög sem hingað sæki
verkefni í útboðum á Evrópska
efnahagssvæðinu. Þá geri
aukin stærð verkfræðistofunni
kleift að keppa við erlend fyrir-
tæki á þeirra heimavelli, en
ytra segir hann helstu sóknar-
færi á sviði jarðvarma, í vatns-
orku og áliðnaði.
„Við erum í sameinuðu félagi
betur í stakk búin til að takast
á við margvísleg verkefni þar
sem við höfum komið okkur
fyrir utan landsteinanna. Til
dæmis í jarðhitageiranum, svo
sem í Ungverjalandi og Þýska-
landi. Meiri breidd og styrkur
skiptir máli í þessum alþjóða-
slag,“ segir Eyjólfur, en áréttar
um leið að útrás Mannvits hafi
ekki áhrif á önnur útrásarverk-
efni sem þegar hafi verið lagt
upp með, svo sem í gegnum
HRV Engineering, sem félögin
á bak við Mannvit stofnuðu til
með Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen (VST). „Þar er um
afmarkaðri verkefni að ræða
og heldur allt áfram á fullu eins
og áður,“ segir hann.
HRV býr yfir sérhæfðri
tækniþekkingu og reynslu
í uppbyggingu álvera, en að
auki á Mannvit hlut í Geysi
Green Energy, Vatnaskilum,
Loftmyndum og Skipaskoðun
Íslands, sem starfa í tengdri
starfsemi. Starfsemi Mann-
vits er hins vegar skipt upp
í sex svið: iðnað; orku; bygg-
ingar, framkvæmdir og rann-
sóknir; umhverfi; samgöngur
og veitur; og upplýsingatækni.
Unnið er að breytingum og
stækkun höfuðstöðva Mann-
vits að Grensásvegi 1 í Reykja-
vík, en þær á að taka í notkun
haustið 2009. Fram að þeim
tíma verður fyrirtækið einnig
til húsa að Laugavegi 178 og
í Ármúla 42. Að auki rekur
Mannvit níu starfsstöðvar utan
höfuðborgar svæðisins og er
með skrifstofur á meginlandi
Evrópu.
Í FORSVARI FYRIR MANNVIT Skapti Valsson, annar tveggja aðstoðarforstjóra
Mannvits, og Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri fyrirtækisins. MARKAÐURINN/ANTON
Taka til hendinni í
orkuiðnaði Evrópu
Mannvit, stærsta verkfræðistofa landsins með um 360
starfsmenn, horfir til spennandi tækifæra í orkuiðnaði
á meginlandi Evrópu, svo sem í Ungverjalandi og
Þýskalandi. Fyrirtækið varð til í mánuðinum við sam-
runa Rafhönnunar og VGK-Hönnunar.
Um átján þúsund manns sóttu heim stórsýning-
una Verk og vit 2008 sem stóð yfir í Laugardalshöll
í Reykjavík dagana 17. til 20. apríl. Góður rómur
var gerður að sýningunni, sem þótti hin veglegasta,
og eru aðstandendur ánægðir með aðsóknina. Alls
kynntu um 100 fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög
vörur sínar og þjónustu í Höllinni.
„Ánægjulegt var að sjá hversu vel sýnendur stóðu
sig í að gera Verk og vit 2008 áhugaverða og spenn-
andi, því sýning á borð við þessa verður aldrei betri
en það sem sýnendurnir sjálfir leggja til,“ segir
Margit Elva Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Verks
og vits, á vef sýningarinnar. Hún kveðst jafnframt
ánægð með þann fjölda sem lagði leið sína á sýning-
una, en um 1.000 fleiri mættu nú en á síðustu Verk
og vit-sýningu, sem haldin var árið 2006. „Aukning
gesta sýnir að mikill áhugi er meðal fagaðila og al-
mennings á að skoða það sem fyrirtæki og stofnanir
í þessum greinum hafa fram að færa,“ segir hún.
Samhliða aðalsýningunni fóru fram margvíslegir
viðburðir, svo sem Íslandsmót iðngreina sem
haldið var 18. og 19. apríl í anddyri gömlu Laugar-
dalshallarinnar, en þar öttu kappi iðnnemar og
nýútskrifaðir iðnaðarmenn í ellefu greinum. Þá
var fimmtudaginn 17. apríl haldin ráðstefna undir
yfir skriftinni „Skipulag eða stjórnleysi?“ þar sem
fjallað var um skipulagsmál, fjármögnun og nýjar
framkvæmdir.
Mikið þótti lagt í sýningarsvæði og voru fyr-
irtæki dugleg að kynna þjónustu sína og dreifðu
ötul lega margvíslegum bæklingum, pennum og
fleiru smálegu auk þess sem víða var boðið upp
á veitingar. Aðstandendur sýningarinnar, en það
eru AP-sýningar í samstarfi við iðnaðarráðuneyti,
Reykjavíkurborg, Samtök iðnaðarins, Landsbank-
ann og Ístak, völdu athyglisverðustu sýningar rýmin
og var sú niðurstaða kynnt um helgina. Línuhönnun
bar þar sigur úr býtum, með rými þar sem „stíl-
hreint útlit og einfaldleiki spiluðu lista vel saman,“
svo notað sér orðalag dómnefndar. Í öðru sæti var
svo BM Vallá, Áltak í þriðja sæti og Borg fékk sér-
stök aukaverðlaun.
Dómnefndina skipuðu Erlendur Örn Fjeldsted
byggingatæknifræðingur, Guðmundur Oddur
Magnússon, prófessor í grafískri hönnun, Lárus
Halldórsson, framkvæmdastjóri hjá Mat englanna
og stjórnarmaður í Ímark, Sólveig Ólafsdóttir, arki-
tekt hjá Studio Striki, og Elsa Giljan Kristjánsdóttir,
sýningarstjóri Verks og vits 2008. - óká
STÓRSÝNINGIN OPNUÐ Kristján L. Möller samgönguráðherra
klippti á borðann til að opna Verk og vit 2008 fyrir helgina. Ólafur
F. Magnússon borgarstjóri fylgist með. MARKAÐURINN/STEFÁN
Góður rómur gerður
að Verki og viti 2008
Fjölmargir sóttu heim stórsýningu um byggingariðnað, skipulagsmál og
mannvirkjagerð í Laugardalshöll.
Í HÖLLINNI Mikið var lagt í sýningarrými fyrirtækjanna sem kynntu afurðir sínar í Laugardalshöll á sýningunni Verki og viti 2008.
MARKAÐURINN/STEFÁN
13MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008MARKAÐURINN
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
„Þetta er eitthvað misjafnt eftir vöru-
flokkum, en ég ímynda mér að hækkunin
hjá okkur nemi um 5 til 15 prósentum,“
segir Hlynur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Fríhafnarinnar.
Fríhöfnin er rekin innan vébanda FLE
ohf. sem er hlutafélag í eigu ríkisins.
Hlynur bendir á að gengi krónunnar hafi
lækkað verulega frá áramótum. „Síðan
hafa sumir vöruflokkar, eins og sælgæti,
hækkað í verði vegna verðhækkana á hrá-
efni,“ segir Hlynur og bætir því við að þótt
verð hafi hækkað hafi óhagstæðri þróun
ekki verið að fullu veitt út í verðlag.
Aðra sögu er að segja af annarri ríkis-
verslun, Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins.
„Verð hjá okkur hefur að meðaltali
hækkað um þrjú prósent frá áramótum, en
það hækkaði um innan við prósent um síð-
ustu mánaðamót,“ segir Sigrún Ósk Sig-
urðardóttir aðstoðarforstjóri. Hún bendir
á að Áfengis- og tóbaksverslunin fái í raun
litlu ráðið um verðþróun. „Við erum með
fasta álagningu, sem er ellefu prósent að
jafnaði, en höfum engin áhrif á innkaups-
verð frá birgjum.“ - ikh
Vöruverð hækkar líka hjá ríkinu
D Æ M I U M V E R Ð Þ R Ó U N H J Á Á T V R
Vöruheiti Tegund áfengis Verð 1. apríl 2007 Verð 31. mars 2008 Verð 1. apríl 2008
Víking Bjór, 500 ml dós 229 237 237
Drostdy-Hof Cape Red (Box) Rauðvín, 3.000 ml 3.490 3.490 3.490
Montecillo Crianza Rauðvín, 750 ml 1.190 1.260 1.260
Moselland Riesling Kabinett (Box) Hvítvín, 3.000 ml 2.790 2.990 2.990
Rosemount GTR Hvítvín, 750 ml 1.090 1.090 1.090
Smirnoff Sterkt vín, 1.000 ml 4.350 4.350 4.350