Fréttablaðið - 23.04.2008, Qupperneq 24
8,5% 40% 118fyrirhugaður hlutur Ólafs Jóhanns Ólafssonar og Goldman Sachs í Geysi Green Energy, sem nú er óvist um. lækkun skuldatryggingaálags bankanna frá því að það náði hámarki í mars. Bandaríkjadalir, verð fyrir tunnu af olíu á mörkuðum í gær.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Óhætt er að segja að erfiðir tímar
séu nú hjá mörgum sem fyrir
stuttu síðan flugu með himin-
skautum hinnar íslensku útrás-
ar eins og aldrei kæmi morg-
undagurinn. Glöggir sjá merki
þessa á fasteignamarkaði, þar
sem eignir bjóðast nú sem aldrei
sáust áður, t.d. einbýli í Fossvogi
eða bústaðir við Þingvallavatn.
Og í smáauglýsingum blaðanna
er nú mikið í boði af Range Rover
og Landcruiser, lítið keyrðum og
með mikið áhvílandi...
Erfiðir tímar...
Forvitnilegt verður að rýna í
ársfjórðungsuppgjör helstu
félaga í kauphöllinni, en þau
munu detta inn í hrönnum næstu
daga. Einkum er litið til fjármála-
fyrirtækjanna og hversu dugleg
þau verði að taka til á afskriftar-
reikningum sínum og segja sög-
una eins og hún er, eins og mætti
orða það. Líklegt má telja að
vænn gengishagnaður undir lok
marsmánaðar og þar með fjórð-
ungsins hvetji fyrirtækin til að
gera upp líkleg töp í leiðinni,
því enginn vill vera með lík í
lestinni. Á hinn bóginn er ljóst
að sagan, eins og hún er, kann að
reynast mörgum á markaði æði
sársaukafull...
Lík í lestinni?
En það er ekki aðeins, að eignir
komi nú í sölu sem ekki
sáust í fasteignasölu áður.
Fjölmargir verktakar
sitja nú uppi með fjölda
óseldra tilbúinna íbúða
eða berjast af veikum
mætti við að ljúka bygg-
ingu nýrra fjölbýlishúsa
í þröngri stöðu svimandi
hárra stýrivaxta.
Fullyrt er að ýmsir
í hópi verktaka þoli
ekki lengi við í slíku
ástandi, einkum ef
spá Seðlabankans
um stórfellda lækk-
un húsnæðisverðs
gengur eftir ofan á
umtalsverð gengis-
töp byggingaraðila
vegna erlendra
lána. Aðrir bera
sig betur og leita
leiða til að blása
lífi í kólnandi
húsnæðismark-
að, meðal annars
með aukinni lána-
starfsemi á eigin
vegum, nú þegar
nánast vonlaust er
fyrir almenning
og fyrirtæki að
sækja lánsfé til
íslenskra banka.
Kreppir að
Hvers vegna PwC?
Öflugt ráðgjafarfyrirtæki í fremstu röð á Íslandi.
Hluti af tengsla- og þekkingarneti PwC International um heim allan.
Endurskoðun Fyrirtækjaráðgjöf Skatta- og lögfræðiráðgjöf
Þjónustustöðvar: Reykjavík - Akureyri - Húsavík - Selfoss - Keflavík
*connectedthinking
Við höfum liðsinnt fjölda kröfuharðra fyrirtækja
við tímafreka innheimtu viðskiptakrafna með góðum árangri.
Komdu með þitt tímaleysi - síminn er 440 7770.
Meiri tíma?