Fréttablaðið - 05.05.2008, Síða 6
6 5. maí 2008 MÁNUDAGUR
Á alla viðburði Kópavogsdaga er ókeypis nema annað sé tekið fram.
Nánari dagskrá á www.kopavogur.is eða í síma 570 1500.
Allir Kópavogsbúar og aðrir
gestir hjartanlega velkomnir!
Grunnskólar Kópavogs
„Mjög er tungan málaóð“
Leikrit um líf og ljóð Bólu-Hjálmars. Stoppleikhópurinn
brunar í gegnum Bólu-Hjálmar í grunnskólum Kópavogs
á 50 mínútum.
Leikskólar Kópavogs
Óskin
Barnaleikrit fyrir yngstu áhorfendurna. Skemmtilegt ævintýri með
söngvum í flutningi Einleikhússins.
10:00
Náttúrufræðistofa & Bókasafn Kóp.
Valur hvalur
Ævintýri fyrir börn á leikskólaaldri í umsjón starfsfólks
Náttúrufræðistofu og Bókasafns. Fjörugt fræðsluerindi
í máli og myndum. Panta þarf tíma í síma 570 0450.
18:00
Salurinn
Vortónleikar Fjölmenntar
Hljómsveitin Plútó og Hraðakstur bannaður, söngsveitin
Prins Póló, Tónakórinn, Hrynsveitin o.fl. hljómsveitir
spila og syngja.
Dagskráin í dag 5. maí
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið
EFNAHAGSMÁL Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, ESB, hefur
nú tekið upp á þeirri nýlundu að
birta einnig hagspár fyrir EFTA-
ríkin Ísland, Noreg og Sviss í
tengslum við hagspá sína fyrir
ESB-ríkin 27 sem stofnunin birtir
á hálfs árs fresti. Í nýjustu skýrsl-
unni sem kom út nú um mánaða-
mótin er því spáð að hagvöxtur á
Íslandi verði rúmt prósent á þessu
ári en skreppi enn frekar saman á
árinu 2009 og stefni þá jafnvel í að
verða neikvæður.
„Frekari samdráttarhættur sem
er að rekja til óvissunnar af völd-
um lánsfjárkreppunnar, gengis-
falls krónunnar og vaxandi
atvinnuleysis gætu leitt til nei-
kvæðs hagvaxtar á árinu 2009,“
segir í kaflanum um Ísland.
Sagt er líklegt að atvinnuleysi
allt að því tvöfaldist á næsta ári.
Hins vegar er því spáð að það
hægi á verðbólgu, „að hluta til
vegna aðgerða stjórnvalda til að
lækka matvælaverð,“ og að hratt
muni ganga á viðskiptahallann
vegna minni eftirspurnar eftir
innfluttum vörum og bættrar
stöðu útflutningsatvinnugrein-
anna. - aa
SPÁ FRÁ BRUSSEL Framkvæmdastjórn
ESB tekur Ísland nú með í hagspá sína.
Ný hagspá framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins:
Samdrætti spáð á Íslandi
KÚBA Heimilistölvur fóru í fyrsta
skipti á löglega sölu í Havana,
höfuðborg Kúbu, í síðustu viku.
Að því er fram kemur á
fréttavef breska ríkisútvarpsins
BBC hefur Raúl Castro slakað á
ýmsum reglum varðandi innflutn-
ing á neysluvörum síðan hann tók
við embætti forseta í febrúar og
er tölvusalan ein af afleiðingum
þess. Fjöldi fólks safnaðist
saman í Carlos III verlsunarmið-
stöðinni í Havana þegar fyrstu
tölvurnar birtust í búðunum, en
flestir voru þó aðeins að skoða
þær en tölvurnar kosta að jafnaði
um fertugföld mánaðarlaun
kúbversks launþega. - vþ
Kúba fetar inn í 21. öldina:
Einkatölvur
loks leyfilegar
BÚRMA, AP Minnst 350 manns hafa
farist í Búrma (Myanmar) af völd-
um fellibyls sem gekk á land þar
um helgina. Rafmagn fór af í gömlu
höfuðborginni Rangún (Yangon) og
þúsundir heimila eyðilögðust, að
því er ríkisfjölmiðlar í landinu
greindu frá.
Á Myaddy-sjónvarpsstöðinni,
sem rekin er af Búrmaher, var sagt
að fimm sýslur hefðu verið lýstar
hamfarasvæði. Vindhraði í felli-
bylnum, sem gefið var nafnið Nar-
gis, fór allt upp í 190 km/klst. eða
50 metra á sekúndu.
Minnst 351 maður voru sagðir
hafa látið lífið í veðurofsanum, þar
af voru 162 íbúar Haing Gyi-eyju
undan suðvesturströnd landsins.
Þar voru 90.000 manns sagðir hafa
misst heimili sín. Flestir hinna sem
fórust bjuggu á láglendi við ósa
Irrawaddy-fljóts. Þrjú af hverjum
fjórum húsum í bænum Labutta,
sem þar er, voru sögð hafa hrunið.
Veðurstofa Búrma hafði spáð því
að sjávarborð við ströndina þar
sem fellibylurinn gekk yfir gæti
hækkað um allt að 3,7 metra yfir
venjulegt stórstraumsflóð. Erfitt
var að fá staðfestingu á því í gær
hver sjávarhæðin hefði í raun
orðið.
Mannúðarhjálp Sameinuðu þjóð-
anna reyndi að senda fulltrúa á
vettvang til að leggja mat á ástand-
ið í gær, en rofnar samgöngur og
fjarskipti gerðu þeim erfitt fyrir.
Vitni í Rangún sögðu þökin hafa
svipst af hundruðum húsa og raf-
magn hefði farið af í allri borginni.
Alþjóðaflugvöllurinn var lokaður
og innanlandsflugumferð var beint
til Mandalay, 560 kílómetrum norð-
ar.
Talsmenn lýðræðissinnuðu
stjórnarandstöðunnar í Búrma og
andófsmenn herforingjastjórnar-
innar í útlegð hvöttu alþjóðasamfé-
lagið til að veita alla þá neyðarað-
stoð sem unnt væri og skoruðu á
herforingjastjórnina að hindra
ekki hjálparstofnanir í að athafna
sig í landinu. audunn@frettabladid.is
MIKIÐ TJÓN Vegfarendur í Rangún ganga hjá föllnum trjám og rafmagnslínum á götu í borginni. NORDICPHOTOS/AFP
Hamfarir í Búrma
Hundruð manna fórust í fellibyl í Búrma. Rangún varð rafmagnslaus og þúsund-
ir manna misstu heimili sín. Skorað á alþjóðasamfélagið að veita neyðaraðstoð.
Ert þú fylgjandi framboði Ís-
lands til öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna?
Já 24,1%
Nei 75,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Sækir þú listasöfn?
Segðu skoðun þína á vísir.is
VINNUMARKAÐUR „Ef ríkisstjórninni er einhver alvara
um að gengið verði frá kjarasamningum hið fyrsta þá
er það minnsta sem hún getur gert að sýna eitthvert
lífsmark,“ segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB.
Ögmundur sendi í gær formlegt bréf til forsætis-,
utanríkis-, fjármála- og félagsmálaráðherra þar sem
áréttaðar eru óskir BSRB um fund með ráðherrunum.
Segir hann stjórn BSRB hafa átt fund með samninga-
nefnd ríkisins á föstudaginn sem ítrekað hefði fyrri
kröfur um að gerður yrði samningur til langs tíma.
„Við á hinn bóginn höfum óskað eftir skammtíma-
samningi og viljum nú fá fund með ríkisstjórninni til
þess að fá hana til að skýra hvernig það gangi upp að
lofa umtalsverðum kjarabótum til umönnunarstétta
og ýmissa hópa innan almannaþjónustunnar annars
vegar og hins vegar að leggja fram tilboð um
langtímasamning út kjörtímabilið þar sem hvergi
bólar á efndum slíkra loforða.“
Segir Ögmundur bréfið sent til að ítreka þessar
óskir vegna þess að þeim finnist liggja á að fá upp á
borðið hver viðhorf ríkisstjórnarinnar eru. „En við
höfum engin viðbrögð fengið frá ríkisstjórninni.“ - ovd
Formaður BSRB sendi ráðherrum ítrekunarbréf um fund vegna kjarasamninga:
Vill að ríkisstjórnin sýni lífsmark
ÖGMUNDUR JÓNASSON Formanni BSRB finnst liggja á að fá
svar frá ríkisstjórninni.
KJÖRKASSINN