Fréttablaðið - 05.05.2008, Blaðsíða 30
5. MAÍ 2008 MÁNUDAGUR10 ● fréttablaðið ● híbýli - bað
Tónlistarkonan Margrét Kristín
Sigurðardóttir, betur þekkt sem
Fabúla, hefur komist að því síð-
ustu daga hversu nauðsynlegt það
er að vera með góða ruslafötu í
baðherberginu.
„Ég keypti
mér litla, sæta
silfraða rusla-
fötu í ónefndri
stórverslun
um daginn og
stóð hún sig vel
í nokkra daga.
Síðan tók hún upp
á því að læsast og
næ ég lokinu ekki
með nokkru móti
upp.“
Margrét seg-
ist hafa reynt
að nálgast föt-
una með blíðu og
hörku og hefur hún beitt hinum
ýmsu verkfærum. „Ég er bæði
búin að reyna skrúfjárn og spor-
járn en hún er engu að síður harð-
læst og líður heimilislífið fyrir,“
segir Margrét og er að
hugsa um að fjárfesta
í nýrri fötu.
„Ég hef bara ekki
getað gert það upp
við mig hvar ég get
fundið fötu sem hægt
er að stóla á, án þess
að fara út í meiri hátt-
ar fjárfestingar. Mig
langar helst að eyða
peningunum mínum
í eitthvað annað.“ - ve
Heimilislífið úr skorðum
Margrét Kristín Sigurðardóttir hefur beitt hinum ýmsu meðulum til að fá nýju rusla-
fötuna til að virka en ekkert gengur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Margrét leitar nú
logandi ljósi að nýrri
fötu sem hún vill þó
ekki þurfa að eyða
aleigunni í.
Fátt er dásamlegra en að þvo sér með sápu en það hefur maðurinn gert öldum saman. Fyrsta upp-
skriftin að þessu undraefni sem vitað er um er letruð á leirtöflu frá Babýlon sem er talin vera frá því
um 2.800 fyrir Krist. Þá var sápa gerð úr fitu, lút og vatni og er uppistaðan að miklu leyti sú sama í
dag. Lengi hefur þó tíðkast að bæta í hana alls kyns ilmandi efnum sem gefur ómetanlega fersk-
leikatilfinningu sem fáir standast. -ve
Ómótstæðilegar og frískandi
Fátt er eins afslappandi og gott og að þvo sér með ilmandi sápu við kertaljós.
NORDICPHOTOS/GETTY
Sápuþvottur er gott tilefni til að sýna
ungviðinu ást og hlýju.
Græn aloe vera-sápa þykir heilnæm
og góð fyrir húðina
Lítil löðrandi sápuönd
með sítrónuilmi.
Sápur og ilmkerti fara
vel saman og skapa ljúfa
stemningu í baðherberginu.
Járnsmiðja Óðins
Persónuleg þjónusta og fagleg ráðgjöfjsó