Fréttablaðið - 16.06.2008, Blaðsíða 6
6 16. júní 2008 MÁNUDAGUR
LÍFFRÆÐI Skipverjar á Kristínu GK fengu
stórlax á línu djúpt suðvestur af Reykjanesi
hinn 25. maí síðastliðinn, sem gefur mikil-
vægar upplýsingar um hegðunarmynstur
hans. Laxinn rataði til „fóstra“ síns sem
örmerkti hann sem seiði í seiðaeldisstöð á
Laxamýri og sleppti síðar í samstarfi við
Veiðiþjónustuna Strengi og Veiðifélag
Breiðdælinga í Breiðdalsá á Austurlandi.
Jóhannes Sturlaugsson, hjá rannsóknafyrir-
tækinu Laxfiskum, fékk upplýsingar um
laxinn frá Enok Sigurgeiri Klemenssyni
vélstjóra, en Jóhannes hefur um árabil safnað
gögnum um laxa sem koma í veiðarfæri
sjómanna við hefðbundnar veiðar. Að hans
sögn voru fyrstu fréttir strax fróðlegar, bæði
hvað varðar veiðistað laxins, veiðarfæri og
stærð fisksins. „Það er ljóst að laxinn gefur
mikilsverðar viðbótarupplýsingar um ferðir
laxins í sjó hér við land. Örmerkti laxinn sýnir
að laxar af austanverðu landinu nýta að
einhverju marki ætisslóð laxins suðvestur af
landinu.“
Litlu munaði að saga stórfisksins yrði aldrei
sögð. Jóhannes sá af myndum að veiðiuggi
fisksins hafði verið klipptur og vissi þess
vegna að hann var örmerktur. Búið var að
snæða laxinn og örmerkið hafði fylgt haus
laxins í ruslið. Ingólfur Magnús Ingvason
háseti, sem hafði gert sér laxinn að góðu, lagði
þó á sig að grafa hausinn upp úr ruslatunn-
unni og í ljós kom að Jóhannes hafði örmerkt
fiskinn á sínum tíma. - shá
Línuveiddur lax varpar nýju ljósi á ferðir og ætisvenjur þessa konungs fiskanna:
Stórlax segir merkilega sögu um líf sitt
■ Febrúar 2006 dvaldi laxinn í seiðaeldisstöð-
inni Norðurlaxi á Laxamýri.
■ Vetraraðlögun í sleppitjörn við Breiðdalsá í
febrúar 2006.
Gekk til hafs sumarið 2006.
■ Fyrstu merktu laxarnir úr sleppingunum skil-
uðu sér sumarið 2007 sem smálax.
■ Stórlaxinn veiðist á línu í Skerjadýpi í maí
2008, þá 14 pund að þyngd og 86 sentímetr-
ar.
■ Línan var lögð á um 580 m dýpi við veiðar á
keilu og blálöngu.
FORSAGA STÓRLAXINS
DANMÖRK Skemmtiferð í Sommer-
land Syd í Danmörku breyttist í
spítalaferð þegar miðaldra kona
hryggbrotnaði í rússibana þar um
helgina.
„Þetta var hræðileg reynsla, en
ég er fegin að þetta kom ekki
fyrir son minn,“ hefur frétta-
vefur Jótlandspóstsins eftir
konunni.
Konan sagði farþega rússiban-
ans of lausa í sætunum en því
mótmælti Hans Jörgen Rysgaard,
forstjóri skemmtigarðsins, sem
sagði búnað hans samþykktan af
lögreglu og tæknieftirlitinu. Eftir
slysið yfirfór lögreglan öryggi
rússibanans og sá ekki ástæðu til
annars en að samþykkja hann. - ges
Kona slasast í skemmtigarði:
Hryggbrotnaði
í rússibanaferð
RÚSSIBANI Rússibaninn sem slysið varð
í stóðst öryggisvottun.
Horfðir þú á Grímuna?
Já 17,4%
Nei 82,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á lögreglan að fá að koma upp
hreyfanlegri lögreglustöð á
Lækjartorgi í sumar?
Segðu þína skoðun á visir.is
„KOMINN Á LAND“
Ingólfur Magnús Ingva-
son með stórlaxinn
merkilega en ljósmynd-
arinn kom upplýsingum
um laxinn á framfæri.
M
YN
D
/EN
O
K SIG
U
R
G
EIR
K
LEM
EN
SSO
N
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur í hálfs árs skilorðs bundið
fangelsi fyrir að leita ítrekað á
fjölda ungra stúlkna í sundlaug í
Keflavík og fróa sér fyrir framan
þær. Manninum, sem er erlendur
og á miðjum aldri, er jafnframt
gert að greiða stúlkunum samtals
900 þúsund krónur í miskabætur.
Brotin áttu sér stað í janúar og
febrúar síðastliðnum. Stúlkurnar
sögðu manninn hafa elt sig á milli
lauga, synt á sömu brautum og
þær þótt margar aðrar væru
auðar, strokið yfir rass þeirra og
kynfæri utanklæða og fróað sér á
meðan hann horfði á þær.
Þær lýstu manninum sem
feitum og ófrýnilegum, mjög
rauðum í framan, freknóttum á
bakinu, loðnum á líkama og í
framan og íklæddum agnarsmárri
sundskýlu. Hann var handtekinn í
lauginni eftir að starfsmenn köll-
uðu til lögreglu.
Maðurinn var ákærður fyrir
brot gegn tíu stúlkum en dæmdur
fyrir brot gegn átta þeirra. Sýnt
þykir að hinar tvær hafi verið
áreittar en þar sem þær þekktu
manninn ekki aftur við sakbend-
ingu þótti ekki komin fram sönn-
un á því að um sama mann hefði
verið að ræða.
Sex stúlknanna eru dæmdar
hundrað þúsund króna bætur frá
manninum og tveimur 150 þúsund
krónur. Dómurinn féll í Héraðs-
dómi Reykjaness á fimmtudag.
- sh
Karl á miðjum aldri dæmdur fyrir að leita á átta ungar stúlkur í sundlaug:
Leitaði ítrekað á fjölda stúlkna
HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS Maður-
inn var sýknaður af að hafa áreitt tvær
stúlknanna þar sem þær þekktu hann
ekki aftur við sakbendingu.
EFNAHAGSMÁL Jón Steindór Valdi-
marsson, framkvæmdastjóri Sam-
taka iðnaðarins, SI, segir að veru-
lega þungt sé undir fæti hjá
mörgum fyrirtækjum svo ekki sé
sterkar að orði kveðið. „Fram-
kvæmdir eru víða að stöðvast og
fyrirgreiðsla mjög takmörkuð
þannig að ástandið er að verða
býsna alvarlegt,“ segir hann.
„Fyrirtæki eru ekki farin að loka
en við verðum vör við að þau eru að
hugleiða og byrja að segja upp
fólki. Margir erlendir starfsmenn
eru að fara úr landi, til dæmis hefur
fækkað um 400 starfsmenn hjá
starfsmannaleigunum frá ára-
mótum, þannig að menn eru að
draga saman seglin. Verktakar
reyna að koma húsum á fokhelt stig
þannig að þau þoli veður og vind.
Mikið er til af óseldu húsnæði og
fólk fær ekki fyrirgreiðslu til
kaupa. Vítahringur er kominn í
gang,“ segir hann.
Jón Steindór telur að úthaldið sé
búið hjá mörgum fyrirtækjum en
önnur eigi stutt eftir. Margir litlir
og millistórir verktakar bindi mikið
fé í framkvæmdum. Ef þeir geti
ekki selt íbúðir þá standi þeir ekki
undir lánum. Af stað fari „býsna
mikil keðjuverkun því að þá gefast
menn upp, fara á hausinn eða hætta
starfsemi, þeir verða að segja upp
fólkinu sínu, fólk verður atvinnu-
laust og getur ekki staðið í skil-
um.“
Jón Steindór hefur áhyggjur af
andvaraleysi gagnvart skriðunni
sem hann óttast að fari af stað og
verði erfið að stöðva. Grípa þurfi til
aðgerða og örva markaðinn áður en
skriðan fari af stað. Skynsamlegt
sé að beita Íbúðalánasjóði og greiða
fyrir því að hann geti veitt lán, létta
gjöldum af fasteignaviðskiptum, til
dæmis stimpilgjaldi af öllum íbúða-
kaupum, og aflétta vörugjöldum af
byggingarefnum.
„Ég hef áhyggjur af því að við
séum að sigla inn í alvarlegt ástand.
Maður verður var við að ótti eða
hræðsla er komin í fólk og þá fara
allir að halda að sér höndum. Það er
heldur ekki gott ef menn verða
mjög verkfælnir og hræddir við að
fara í verk,“ segir Jón Steindór.
Fjármagnsskorturinn er alvar-
legur fyrir atvinnulífið. Fjár magnið
er eins og smurning á tannhjól. „Nú
er farið að braka hressilega í tann-
hjólunum og á endanum ryðga þau
föst,“ segir Jón Steindór.
Þorbjörn Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Samiðnar, tekur
undir þetta. „Við finnum mjög fyrir
samdrætti í bygginga- og mann-
virkjadeyfð. Það er gríðarleg deyfð
og mörg fyrirtæki í biðstöðu,“
segir hann. ghs@frettabladid.is
Úthald fyrirtækja
minna og ótti í fólki
Þungt er undir fæti í byggingariðnaði og framkvæmdir víða að stöðvast. Fyrir-
tæki huga að uppsögnum og erlendir starfsmenn yfirgefa landið. Ótti er í fólki,
að mati framkvæmdastjóra SI. Tannhjól atvinnulífsins eru við það að ryðga föst.
ÖRVA ÞARF MARKAÐINN Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI, telur að
grípa þurfi til aðgerða og örva markaðinn áður en það verði of seint. Skynsamlegt sé
að beita Íbúðalánasjóði í því. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nú er farið að braka
hressilega í tannhjólun-
um og á endanum ryðga þau föst.
JÓN STEINDÓR VALDIMARSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI SI
Fundu vatn á Eiríksstöðum
Neysluvatn fannst á Eiríksstöðum í
Dalabyggð í síðustu viku. Nýverið hóf
Dalabyggð framkvæmdir við borun
eftir vatni. Komið var niður á vatnsæð
á 162 metra dýpi og er það um einn
sekúndulítri.
VESTURLAND
SAMGÖNGUR Skert þjónusta Strætó
bs. á sumrin er vegna aukins
rekstrarkostnaðar á veturna, en
núna fara vagnarnir aðeins á
hálftíma fresti.
Þegar skólum lýkur á vorin
fækkar farþegum um helming og
segir Einar Kristjánsson,
sviðsstjóri Strætó, að því sé
sumartíminn nýttur til þess að
spara þá upphæð sem aukinn
kostnaður á veturna útheimtir. Í
vetur þurfti að fjölga vögnum og
ferðum þar sem farþegum hefur
fjölgað um milljón frá því á
síðasta ári. „Til þess að halda
sömu þjónustu yfir sumartímann
yrðu sveitarfélögin að láta af
hendi hátt í níutíu milljónir í
viðbót til reksturs fyrirtækisins,“
segir hann. - hþj
Skert þjónusta Strætó bs.:
Borga niður
vetraráætlun
HÁLFTÍMA BIÐ Farþegum fækkar um
helming þegar skólum lýkur á vorin.
SAMFÉLAGSMÁL SAMAN-hópurinn
stendur fyrir ljósmyndasam-
keppni sem ætlað er að vekja
athygli á mikilvægi samveru-
stunda með fjölskyldunni.
„Tíminn líður svo hratt og fólk
tekur oft vinnu og annað fram yfir
þessar mikilvægu stundir,“ segir
Bergþóra Valsdóttir í SAMAN-
hópnum. Hún vonast til þess að
verkefnið hvetji fólk til þess að
hugsa málið. „Við verðum að eyða
tíma saman, ekki á morgun,
heldur núna,“ sagði Bergþóra.
Katrín Jakobsdóttir þingmaður
ýtti keppninni úr vör og opnaði um
leið nýja heimasíðu SAMAN-
hópsins. - ges
Ljósmyndasamkeppni:
Hvatt til sam-
veru fjölskyldna
HEILBRIGÐISMÁL Biðlistar vegna
augasteinsaðgerða geta styst
vegna samnings sem Heilbrigðis-
ráðuneytið hefur gert við
augnlæknastofurnar Sjónlag hf.
og LaserSjón ehf., án aukinna
útgjalda sjúklinga. Nú komast
sjúklingar að innan nokkura
vikna.
„Samningarnir hafa í för með
sér að nú eiga sjúklingar mögu-
leika á að komast í aðgerð mun
fyrr en áður,“ segir Óskar
Jónsson augnlæknir hjá Sjónlagi.
„Sjúklingar, sem flestir eru
komnir á efri ár, geta yfirleitt
farið heim innan við klukkustund
eftir að aðgerðin hefur verið
framkvæmd.“ - hþj
Augnaðgerðir niðurgreiddar:
Styttri biðlistar
í augnaðgerðir
SJÓNAÐGERÐARSTOFAN SJÓNLAG
Fyrstu niðurgreiddu augnaðgerðirnar á
einkastofu voru framkvæmdar hjá þeim
Jóhannesi Kára Kristinssyni, Óskari Jóns-
syni og Jens Þórissyni á augnlæknastofu
þeirra Sjónlagi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
LONDON, AP Um 2.500 manns tóku í
gær þátt í háværum mótmæla-
fundi við þinghúsið í Lundúnum, er
Gordon Brown forsætisráðherra
settist að snæðingi með George W.
Bush Bandaríkjaforseta þar
skammt frá.
Mótmælendur báru spjöld þar
sem „stríð gegn hryðjuverkum“
var fordæmt og Bush lýstur
„mesti hryðjuverkamaður heims“.
„Þetta eru líka skilaboð til
eftirmanns Bush um að íbúar
þessa lands eru alfarið á móti
þessu ólöglega stríði og niðurrifi
borgaralegra réttinda,“ sagði einn
mótmælendanna, 71 árs kennari á
eftirlaunum. - aa
Bush að ljúka Evrópuför:
Hávær mót-
mæli í London
KJÖRKASSINN