Fréttablaðið - 06.08.2008, Qupperneq 8
6. ágúst 2008 MIÐVIKUDAGUR
Volkswagen kynnir
nýjar leiðir til að spara
umtalsverðar fjárhæðir.
Volkswagen Passat Volkswagen Polo
Verð áður
3.570.000 kr.
Verð nú
3.355.000 kr.
Verð áður
1.990.000 kr.
Verð nú
1.875.000 kr.
*Sjálfskiptur Passat Comfortline Plus 2.0 FSI
kostar nú aðeins 44.750 kr. á mán. í 84 mán. m.v.
100% myntkörfulán með 20% útborgun. Árleg
hlutfallstala kostnaðar 11,5%.
*Beinskiptur Polo Comfortline 1,4 kostar nú
aðeins 24.950 kr. á mán. í 84 mán. m.v. 100%
myntkörfulán með 20% útborgun. Árleg
hlutfallstala kostnaðar 11,78%.
Þú færð Passat fyrir aðeins
44.750 kr á mánuði*
Þú færð Polo fyrir aðeins
24.950 kr. á mánuði*
Das Auto.
Þeir sem hafa hraðar hendur geta sparað umtalsverðar
fjárhæðir með kaupum á nýjum Polo eða Passat. Við
bjóðum takmarkað magn af þessum sparneytnu bílum á
mögnuðum kjörum. Komdu núna. Við tökum vel á móti þér
og gamla bílnum þínum líka!
80% lán í að fullu í erlendri mynt
A
ukahlutir á m
ynd: Á
lfelgur.
RV
U
n
iq
u
e
0
80
80
2
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
RV Unique örtrefja-ræstikerfið
- hagkvæmt, vistvænt og mannvænt
Á tilb
oði í
ágús
t 200
8
UniF
lex ræ
stiva
gna
r
með
fylg
ihlut
um.
Start
pakk
i
20%
afs
láttu
r
− all you need ...
for cleaning
UniFlex Maxi Fiber RV 72015
- fyrir skóla, sjúkrahús og stærri fyrirtæki
UniFlex Mini Fiber RV 72017
- fyrir leikskóla og minni fyrirtæki
UniFlex II H Fiber RV 72095
- fyrir heilbrigðisstofnanir og stærri fyrirtæki
FÉLAGSMÁL Tekið verður á skerð-
ingum á greiðslum í almenna
tryggingakerfinu í kjölfar allsherj-
ar úttektar á kerfinu, sem ljúka á
fyrir áramót, segir Jóhanna Sig-
urðardóttir félagsmálaráðherra.
Í Fréttablaðinu í gær var greint
frá því að aðeins um þriðjungur
standi eftir af 300 þúsund króna
uppbót til aldraðra sem ekki hafa
greiðslur úr lífeyrissjóði. Þriðj-
ungur uppbótarinnar fer í skatta.
Þá veldur uppbótin skerðingum á
öðrum greiðslum sem nemur
þriðjungi til viðbótar.
Fjölmargar ábendingar bárust
blaðinu í kjölfarið um álíka skerð-
ingar á bótum og greiðslum í
tryggingakerfinu. Í einu tilviki
lækkuðu heildargreiðslur eftir að
smávægilegar tekjur bættust við.
„Þessar skerðingar eru óviðun-
andi. Þetta er stóra viðfangsefnið
í endurskoðun og einföldun á
almannatryggingalögunum sem
verið er að vinna að,“ segir
Jóhanna Sigurðardóttir.
Hún segir skerðingarnar sem
uppbótin olli ekki hafa komið á
óvart, en lífeyrisþegar búi við
kerfi þar sem tekjur skerði
almennar bætur. Til dæmis skerði
greiðslur úr lífeyrissjóði almenn-
ar greiðslur frá Trygginga-
stofnun, og almennu greiðslurnar
geti skert greiðslur úr lífeyris-
sjóði.
„Þetta er það sem lífeyrisþegar
hafa þurft að búa við, í allt of langan
tíma, og við erum að byrja að vinna
okkur út úr,“ segir Jóhanna.
Þegar er búið að auka frítekju-
mark vegna atvinnutekna, og bætt
við frítekjumarki fyrir öryrkja
vegna greiðslna úr lífeyrissjóðum.
Þá er komið inn frítekjumark vegna
fjármagnstekna til að koma til móts
við þá sem hafa lítilsháttar fjár-
magnstekjur, að sögn Jóhönnu. - bj
Skerðing á 300 þúsund króna uppbót til aldraðra:
Ráðherra segir skerðingar
óviðunandi og verði skoðaðar
FLÓKIÐ Verið er að vinda ofan af flóknu kerfi skerðinga segir Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
BANDARÍKIN, AP Demókratinn Bar-
ack Obama og repúblikaninn John
McCain, sem keppa um forseta-
embættið vestra, lýstu í gær ólík-
um hugmyndum sínum um það
hvernig gera megi Bandaríkin
sjálfum sér nóg um orku, enda
hækkandi eldsneytisverð eitt
mesta áhyggjuefni kjósenda.
McCain, sem hefur mælt með
því að byggja allt að 45 ný kjarn-
orkuver fram til ársins 2030, heim-
sótti kjarnorkuver í Michigan, ríki
þar sem hvorugur frambjóðend-
anna hefur afgerandi forskot.
Obama lýsti á kosningafundum í
Ohio nýlegum áformum sínum um
að gera Bandaríkin óháð inn-
flutningi olíu frá Mið-Austurlönd-
um og Venesúela á næstu tíu árum.
Ohio er einnig ríki þar sem hvor-
ugur frambjóðandi hefur skýrt
forskot.
Efnahagslægðin er skiljanlega
mesta áhyggjuefni kjósenda. Hún
er enda uppspretta margvíslegra
skota frambjóðendanna hvors á
annan. „Því miður hefur McCain
lagt til orkumálastefnu sem er ekk-
ert annað en fjögur ár enn af því
sama,“ sagði Obama í gærkvöldi.
„Mótherji minn vill ekki bora
(eftir olíu á landgrunni Bandaríkj-
anna). Hann vill ekki kjarnorku.
Hann vill að þið aukið loftþrýsting-
inn í hjólbörðunum,“ sagði McCain
í Suður-Dakóta, en með þessum
orðum vísaði hann til þess að
Obama hafði mælt með því að öku-
menn ykju loftþrýsting í dekkjum
ökutækja sinna í því skyni að spara
eldsneyti. - aa
Á FERÐINNI Barack Obama hefur verið á
stanslausu ferðalagi undanfarnar vikur.
Orku- og efnahagsmál í brennidepli kosningabaráttunnar vestra:
Ólík sýn á orkumálaframtíð