Fréttablaðið - 14.09.2008, Síða 4
4 14. september 2008 SUNNUDAGUR
BANDARÍKIN Fellibylurinn Ike hélt
áfram leið sinni yfir Texas og
Louisiana í gærdag og olli miklu
tjóni. Þegar Fréttablaðið fór í
prentun var vitað um þrjú dauðs-
föll sem rekja mátti til fellibyls-
ins. Fjórar milljónir manna í borg-
inni Houston og nágrenni búa nú
við rafmagnsleysi, og telja yfir-
völd að tekið gæti tvær til þrjár
vikur að koma rafmagni á að
nýju.
Nokkuð dró úr vindhraða Ikes á
leið hans yfir Texas. Hann olli þó
töluverðu eignatjóni, sérstaklega
á strandlengjunni þar sem mikinn
sjó gekk á land. Einnig fylgdi mikil
úrkoma fellibylnum og er strand-
borgin Galveston, sem varð fyrir
miklu mannfalli vegna fellibyls
árið 1900, nánast öll á floti. Einnig
varð töluvert tjón í Houston, þar
sem raflínur slitnuðu, tré rifnuðu
upp með rótum og þök fuku af
húsum. CNN greindi frá því að
nánast allar rúðurnar í hæstu
byggingu borgarinnar, hinni 75
hæða háu JPMorgan Chase-bygg-
ingu, hefðu brotnað í fellibylnum.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti lýsti yfir neyðarástandi í 29
sýslum í Texas í gær.
Samkvæmt CNN má rekja þrjú
dauðsföll til fellibylsins. Tíu ára
drengur lést er tré féll á hann í
Houston, nítján ára maður drukkn-
aði úti fyrir Corpus Christi og
eldri maður lést þegar flytja átti
hann frá heimili sínu í Brazoria-
sýslu.
Öll vinna stöðvaðist í þrettán
olíuvinnslustöðvum í Texas og alls
var skrúfað fyrir fimmtung af
olíuvinnslu Bandaríkjamanna
vegna veðursins. Bush forseti
hefur heitið því að ekki muni koma
til verulegra verðhækkana á olíu í
kjölfar fellibylsins.
Ike var talinn annars stigs felli-
bylur þegar hann skall á ströndum
Texas í fyrrinótt, en var talinn
fyrsta stigs fellibylur um miðjan
dag í gær. Hann hélt norður eftir
Texas í gær og talið var að hann
myndi ná til Arkansas í gærkvöldi.
Gefnar hafa verið út viðvaranir
um mikla úrkomu í Arkansas,
Oklahoma, Missouri, Indiana og
Michigan.
kjartan@frettabladid.is
Metveiði í Skógá
Í gær voru 1.140 laxar komnir á land í
Skógá undir Eyjafjöllum. Aðstandendur
árinnar segja að það séu mörg hundr-
uð löxum fleiri en áður hafi veiðst á
einu sumri. Á votnogveidi.is er þetta
sagt til marks um velgengni áa sem
byggja á hafbeitarlaxi.
STANGVEIÐI
SVEITARSTJÓRNIR Bæjaryfirvöld á
Akranesi hafa óskað eftir því að
Hallur Símonarson, innri
endurskoðandi Reykjavíkurborg-
ar, mæti á fund bæjarstjórnar
Akraness á þriðjudag og útskýri
stjórnsýsluúttekt sem gerð var á
Orkuveitu Reykjavíkur.
Akranes á fimm prósent í OR
og einn fulltrúa í aðalstjórn
fyrirtækisins.
Akurnesingarnir voru ósáttir
við þá ákvörðun meirihluta
stjórnarinnar að fela endurskoð-
endum Reykjavíkurborgar að
gera úttektina á OR. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins mun
Akurnesingum finnast einkenni-
legt að ekki sé vikið einu orði að
málefnum REI í úttektinni. - gar
Stjórnsýsluúttekt á OR:
Undrast að REI
sé hvergi getið
RÆTT UM REI Ekki er minnst á REI í
stjórnsýsluúttekt.
HOLLUSTUMÁL Rannsókn á salti,
nítríti og nítrati í kjötvörum
hefur leitt í ljós að í 30 prósent-
um af saltkjöti er nítrítmagni
umfram leyfileg mörk.
Nítrít er efni sem verður til er
nítrat, öðru nafni saltpétur, er
sett í saltpækil með kjöti. Nítröt
varðveita lit, hindra þránun og
koma í veg fyrir vöxt baktería og
auka þannig geymsluþol.
Í sambærilegri könnun
Matvælastofnunar og heilbrigð-
iseftirlits sveitarfélaga fyrir
fjórum árum reyndust 60
prósent af saltkjöti með nítrít
yfir mörkum.
- gar
Rannsókn á kjötvörum:
Of mikið nítrít í
saltkjötssýnum
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
15°
15°
16°
14°
15°
18°
18°
18°
12°
17°
26°
28°
13°
17°
24°
30°
33°
23°
12
Á MORGUN
Víða 5-10 m/s.
ÞRIÐJUDAGUR
8-13 m/s vestan til,
annars hægari.
11
13
14
15
15
11
12
11
12
7
8
6
6
8
9
7
6
10
13
10
12
11
10
13
14
12 1011
10
12
11
MILT Í VEÐRI
Það verður væta á
landinu sunnan- og
vestanverðu næstu
daga en þurrt að
kalla og bjart fyrir
norðan og austan.
Milt veður víðast
hvar og líklega hið
fínasta útivistarveð-
ur. Á miðvikudag
má þó búast við
vonskuveðri þegar
kröpp lægð nálgast
landið.
Elísabet
Margeirsdóttir
Veður-
fréttamaður
Ike olli miklu tjóni í Texas
Fellibylurinn Ike reið yfir Texas og Louisiana í gær. Hann olli miklu tjóni og má rekja þrjú dauðsföll til
ofsaveðursins. Fjórar milljónir búa við rafmagnsleysi. Viðvaranir gefnar út í fimm öðrum fylkjum.
„Íbúar hér í Houston eru öllu vanir
þegar kemur að ofsaveðri. En margir
eru niðurbrotnir af hræðslu við að
mikið eignatjón hafi orðið,“ segir
Guðmundur Sigþórsson, sem vinnur
við smásölu í Houston. Guðmundur
hefur búið í borginni í tvo áratugi
ásamt eiginkonu sinni, Eileen, sem er
fædd og uppalin í borginni.
Heimili Guðmundar og Eileen er
í norðvesturhluta borgarinnar, um
hundrað kílómetrum frá strandborg-
inni Galveston, sem er talin hafa farið
verst út úr fellibylnum Ike. „Við eigum
vini og fjölskyldu sem búa í Galvest-
on. Þegar Eileen heyrði af fellibylnum
skipaði hún þeim öllum að koma til
okkar og vera hér þar til verstu veðrin
hefðu gengið yfir. Hérna er því fullt
hús af fólki og gæludýrum eins og er.
Þau verða hér í hið minnsta fram á
mánudag,“ segir Guðmundur. Hann
segir fellibylinn hafa gert minni usla
en margir óttuðust í fyrstu. „Mörgum
er því létt þrátt fyrir hörmungarnar.“
„Fyrir mér er þetta bara eins og hver
annar stormur. Ég er vön þessu,“
bætir Eileen við.
ÍBÚAR HOUSTON ERU ÖLLU VANIR
VATNSELGUR Mikið úrkoma var í Hous-
ton og nágrenni í gær, eins og sést á
þessari mynd. GETTY IMAGES/AFP
OFSAVEÐUR Nánast allar rúðurnar í hinni 75 hæða háu JPMorgan Chase-byggingu í miðborg Houston brotnuðu í óveðrinu
sem fylgi fellibylnum Ike. Hér virðir björgunarsterfsmaður fyrir sér eyðilegginguna. GETTY IMAGES/AFP
STJÓRNMÁL „Stærsta verkefni okkar
nú um stundir er að ná verðbólgunni
niður og að því marki verðum við
öll að keppa,“ sagði Geir H. Haarde,
forsætisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins, á opnum
fundi í Valhöll í gær.
Geir sagði ekki rétt að tala um
kreppuástand hér á landi og benti á
að nýjar tölur Hagstofunnar um
hagvöxt sýndu að samdráttur í
efnahagslífinu væri minni en spáð
hefði verið. „Verðbólgan er aðal-
vandamálið hjá okkur núna og hún
er sá skaðvaldur sem fjölskyldurn-
ar í landinu finna fyrir í hverjum
mánuði þegar afborganir berast og
í hverri viku þegar fyllt er á bílinn
eða verslað inn fyrir heimilið,“
sagði Geir. Hann sagði mikilvægt
fyrir alla að keppa að því að ná
verðbólgunni niður og búast mætti
við mótvindi í efnahagslífinu
áfram.
Þá gerði Geir hernaðarátök
Rússa að umtalsefni. Sagði hann
ljóst að enn stafaði Evrópu ógn af
Rússum og þörf væri á samstarfi
Evrópuþjóða um varnarmál þrátt
fyrir efasemdaraddir margra.
Hann sagði að íslensk stjórnvöld
myndu fylgjast grannt með umsvif-
um Rússa á Norður-Atlantshafi á
næstu misserum og gera viðeig-
andi ráðstafanir ef stigmögnun yrði
á hernaðaruppbyggingu þeirra. - þo
Geir H. Haarde ræddi efnahagsástandið og ágang Rússa á fundi í Valhöll:
Búast má við mótvindi áfram
GEIR H. HAARDE Geir sagði alþjóðlegar
skilgreiningar á kreppu ekki eiga við um
ástandið nú. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Krefjast afsagnar Mbeki
Þrýst er á Thabo Mbeki, forseta
Suður-Afríku, að segja af sér í kjölfar
þess að dómari hefur vísað frá spill-
ingarmáli sem höfðað var gegn Jacob
Zuma, helsta keppinaut Mbeki.
SUÐUR-AFRÍKA
GENGIÐ 12.09.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
168,4152
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
90,42 90,86
160,10 160,88
127,52 128,24
17,107 17,207
15,713 15,805
13,399 13,477
0,8418 0,8468
139,32 140,16
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR