Fréttablaðið - 14.09.2008, Side 6
6 14. september 2008 SUNNUDAGUR
SVÍÞJÓÐ Skráarskiptavefsíðan Pirate Bay liggur nú
undir miklu ámæli í Svíþjóð fyrir að neita að
fjarlægja ljósmyndir af tveimur myrtum börnum af
vefnum. Faðir barnanna hefur eindregið biðlað til
stjórnenda síðunnar að fjarlægja myndirnar, en þeir
segjast ekki vera í aðstöðu til að dæma um hvað sé
æskilegt að birtist á veraldarvefnum og hvað ekki.
Forsaga málsins er sú að í mars voru tvö börn,
tveggja og fjögurra ára, barin til dauða með hamri í
smábænum Arboga í Svíþjóð, vestur af Stokkhólmi.
Móðir barnanna hlaut einnig alvarlega áverka í
árásinni. Foreldrar barnanna höfðu slitið samvistir,
en fyrrverandi unnusta föðurins var handtekin í
Þýskalandi skömmu síðar, grunuð um verknaðinn.
Réttarhöld yfir henni standa nú yfir.
Gögnum úr rannsókn lögreglu, þar á meðal téðum
ljósmyndum sem teknar voru af börnunum myrtum,
var lekið á netið og birtust á skráaskiptavefnum
Pirate Bay. Faðir barnanna, Niklas Jangestig, segist
í samtali við dagblaðið Tidningarnas Telegrambyrå
hafa beðið stjórnendur síðunnar um að fjarlægja
ljósmyndirnar, en fengið til baka í tölvupósti svarið:
„Þetta er bölvað tuð. Nei, nei og aftur nei!“
„Það er hvorki í okkar verkahring að dæma um
hvað sé siðlaust og hvað ekki, né heldur hvað aðrir
vilja setja á netið,“ sagði Peter Sunde, talsmaður
Pirate Bay, í samtali við sjónvarpsstöðina TV4 í
Svíþjóð. - kg
Faðir tveggja myrtra barna í Svíþjóð biðlar til stjórnenda skráarskiptavefsíðu:
Neita að fjarlægja myndir af
myrtum börnum af netinu
SORG Morðið á börnunum tveimur vakti mikinn óhug í Svíþjóð
og víðar. Hér sjást nágrannar kveikja á kertum til minningar
um látnu börnin. NORDICPHOTOS/AFP
FÉLAGSMÁL Reykjavíkurborg yfir-
tekur rekstur áfangaheimilis Líkn-
arfélagsins Rissins á Snorrabraut.
Risið hefur um árabil að hluta
verið rekið með styrk frá Reykja-
víkurborg. Velferðarsvið borgar-
innar mun nú hins vegar taka að
sér reksturinn og ráða sérstakan
umsjónarmann auk þess sem veitt
verður önnur fagleg þjónusta
með öðru sniði en nú er. Í Risinu
dveljast þeir sem berjast við
áfengis- og vímuefnasýki og eru
að aðlagast samfélaginu. Þar er
aðstaða til að vista nítján manns í
einu en plássunum verður fækk-
að niður í þrettán með breyting-
um á húsnæðinu.
Að því er fram kom á fundi vel-
ferðarráðs, þar sem yfirtaka
rekstursins var samþykkt, nema
greiðslur borgarinnar til Rissins á
ársgrunni tæpum 8,2 milljónum
króna á þessu ári. Rekstrarkostn-
aðurinn er hins vegar áætlaður
nærri 11,2 milljónir á ári eftir
yfirtökuna. Sjálfir munu vistmenn
greiða 43.795 krónur á mánuði
fyrir húsaleigu, morgunmat og
kvöldmat.
„Skilyrði fyrir búsetu á áfanga-
staðnum er að hafa hætt áfengis-
og vímuefnaneyslu,“ segir um
skilmála heimilisins í tillögunni
sem velferðarsvið hefur sam-
þykkt. - gar
Líknarfélagið Risið hættir rekstri heimilis fyrir vímuefnasjúklinga á Snorrabraut:
Borgin yfirtekur áfangaheimilið Risið
RISIÐ Líknarfélagið Risið rak áður
áfangaheimili í Stakkholti en hefur verið
á Snorrabraut frá 1999.
SLÖKKVILIÐ Slökkvilið var kallað
út á tvo staði á höfuðborgarsvæð-
inu í fyrrinótt.
Eldur kom upp í forstofu
íbúðar á neðri hæð húss við
Garðaveg í Hafnarfirði um
klukkan fjögur. Slökkvilið sendi
þrjá bíla á staðinn. Tveir íbúar
voru í húsinu, og gekk slökkvi-
starf vel. Reykskemmdir urðu
talsverðar en engum varð meint
af.
Þá kviknaði í potti á eldavélar-
hellu í húsi við Giljaland í
Fossvogi um miðnætti. Tvær
konur voru fluttar á slysadeild
með vott af reykeitrun, og voru
reykskemmdir miklar. - kg
Eldur á höfuðborgarsvæðinu:
Eldur kom upp
í tveim húsum
Með fíkniefni á Akureyri
Tveir menn voru gómaðir með lítið
magn fíkniefna á sér á veitingastað
á Akureyri í fyrrinótt. Efnið var að
líkindum til einkanota. Þá stöðvaði
lögreglan á Akureyri ökumann þessa
sömu nótt sem grunaður er um að
hafa ekið undir áhrifum fíkniefna.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Skemmdi tvo bíla
Maður var handtekinn á Akureyri í
fyrrinótt þegar hann lét skap sitt bitna
á tveimur bifreiðum sem lagt hafði
verið við Oddagötu. Skemmdi maður-
inn spegla og gekk yfir aðra bifreiðina
svo á henni sá. Hann var látinn gista í
fangageymslu lögreglu.
Tveir létust í sprengjuárás
Maður og kona létust og níu aðrir
særðust þegar tvær sprengjur
sprungu í bæ á Mjanmar á fimmtu-
dagskvöld. Ekki er vitað hverjir þarna
voru að verki en fyrr um daginn
höfðu þrír slasast þegar sprengja
sprakk í strætisvagni í borginni
Rangún.
MYANMAR
BERLÍN, AP Umdeild vaxmynd af
Adolf Hitler er nú aftur komin á
vaxmyndasafn Madame Tussaud í
Berlín.
Safnið í Berlín var opnað í
sumar og vakti vaxmyndin af
foringjanum vakt sterk viðbrögð.
Svo sterk reyndar að einn
safngestanna tók sig til og og hjó
höfuðið af styttunni.
Vaxmyndin var send í viðgerð
sem tók nokkrar vikur. Nú hefur
henni verið skilað heilli aftur í
safnið. Vaxmyndinni er stillt upp
í eftirlíkingu af byrgi Hitlers þar
sem hann svipti sig lífi árið 1945.
Hefur öryggisgæslan verið hert
og geta gestir safnsins ekki
lengur gengið inn í byrgið.
Höfuð foringjans ætti því að
vera öruggt í bili. - þo
Vaxmynd send í viðgerð:
Hitler kominn
til Berlínar á ný
VAXMYND EFTIR VIÐGERÐ Adolf Hitler
hefur aftur verið komið fyrir í eftirlíkingu
af neðanjarðarbyrginu þar sem hann
svipti sig lífi.
STJÓRNMÁL „Við erum bjartsýn, en
jarðbundin,“ segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir utanríkisráð-
herra um
framboð
Íslands til setu í
Öryggisráði
Sameinuðu
þjóðanna sem
fram fer í
október. Ísland,
Austurríki og
Tyrkland
keppast um tvö
sæti í ráðinu.
„Þetta er
lokaspretturinn
núna og við drögum ekkert af
okkur. En við áttum okkur á því
að þetta getur farið á hvern
veginn sem er.“
Ingibjörg Sólrún segir að ekki
hafi dregið úr stuðningi við
framboð Íslendinga, nema síður
sé. - ss
Framboð í Öryggisráð SÞ:
Undirbúningur
gengur vel
INDLAND Að minnsta kosti 18
létust og 80 slösuðust þegar fimm
sprengjur sprungu í Nýju-Delí í
gær. Sprengjurnar sprungu með
stuttu millibili á fjölmennum
götumörkuðum í borginni.
Að því er fram kemur á
fréttavef BBC fundust tvær
sprengjur til viðbótar sem
sérfræðingar aftengdu.
Sprengjuárásir hafa verið tíðar
á Indlandi undanfarið og eru
herskáir íslamistar taldir standa
á bak við þær. Meira en 400
manns hafa látist í sprengjuárás-
um í indverskum borgum síðan í
október 2005. - þo
Sprengjuárás í Nýju-Delí:
Að minnsta
kosti 18 látnir
VETTVANGUR SLYSSINS Slökkviliðsmenn
og björgunarlið unnu að björgun við
erfiðar aðstæður.
INGIBJÖRG SÓL-
RÚN GÍSLADÓTTIR
Á að auka eftirlit með hælisleit-
endum á Íslandi?
Já 90,6%
Nei 9,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Gætir þú hugsað þér að starfa
sem lögreglumaður?
Segðu þína skoðun á Vísir.is.
LOS ANGELES, AP Að minnsta kosti
18 manns létust og 135 slösuðust
þegar tvær lestir skullu saman í
Los Angeles á föstudagskvöld.
Björgunarsveitir unnu að því í
allan gærdag að bjarga fólki úr
lestunum og ólíklegt þykir að
einhver finnist á lífi úr þessu.
Verið er að rannsaka tildrög
slyssins en lestirnar tvær,
farþegalest annars vegar og
flutningalest hins vegar, voru
einhverra hluta vegna á sama
spori. Slysið er mannskæðasta
lestarslys í Bandaríkjunum í
fimmtán ár. - þo
Járnbrautarlestir skullu saman:
Átján létu lífið
LÖGREGLUMÁL Stöðugt fleiri útlend-
ingar gista fangageymslur lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Erlendir ríkisborgarar voru innan
við einn af hverjum tíu sem komu
við í fangageymslum í ársbyrjun
2007 en í júlí í sumar var einn af
hverjum fjórum af þeim sem voru
vistaðir í fangageymslum með
erlent ríkisfang.
Þegar tölur yfir þá sem eru
handteknir og látnir gista í fanga-
geymslum eru skoðaðar kemur í
ljós að útlendingum hefur fjölgað
verulega sem hlutfall af heildar-
fjölda þeirra sem gista fanga-
geymslur. Í ársbyrjun í fyrra var
hlutfallið lítið, eða aðeins 6,2 pró-
sent, en fór alveg upp í tæp 20
prósent í fyrrahaust.
Á þessu ári hefur hlutfallið
verið lægst rúm 13 prósent og
farið nokkrum sinnum vel yfir 20
prósent. Í sumar náði það hæstu
hæðum, eða 25 prósentum, og í
ágúst var það 23 prósent.
Árni Þór Sigmundsson aðstoð-
aryfirlögregluþjónn segist ekki
vita hvers vegna útlendingum
hefur fjölgað hlutfallslega í fanga-
geymslum lögreglunnar. Hann
kann litlar skýringar á því hverjir
gisti fangageymslur. Útlending-
um hafi fjölgað í landinu síðustu
ár og sú þróun geti endurspeglast
í fangaklefum. Ekki megi gleyma
því að sami maður geti komið oft
við sögu og það geti skekkt sam-
anburðinn. Þá hafi útlendingum
fjölgað á Íslandi og þá liggi í hlut-
arins eðli að þeir verði hærra
hlutfall af þeim sem gista í fanga-
klefum.
Rannveig Þórisdóttir, félags-
fræðingur hjá lögreglunni, segir
að ofurölvun sé oft ástæða fyrir
veru fólks í fangageymslu. Ef við-
komandi sé áfengisdauður eða geti
af öðrum ástæðum ekki tjáð sig og
hafi ekki skilríki þá verði hann að
gista fangageymslu frekar en að
vera sendur heim. Rannveig segir
að þjófnuðum hafi fjölgað í sumar
og þjófnaðarmál hafi verið ein
helsta ástæðan fyrir veru útlend-
inga í fangaklefa það sem af er
þessu ári. Útlendingar séu líka í
fangaklefum vegna ölvunar við
akstur og ölvunar á almannafæri í
þessari röð en Íslendingar séu í
fangaklefum vegna ölvunar við
akstur, á almannafæri og þjófnað-
ar. Íslendingar óski líka miklu
frekar eftir því að fá að gista í
fangaklefa en útlendingar.
„Maður verður alltaf að passa
sig á því með erlendu ríkisborgar-
ana að þetta eru lágar tölur. Það
þarf ekki nema einn hóp til að
skekkja myndina,“ segir hún.
ghs@frettabladid.is
Útlendingum fjölgar
í fangageymslum
Útlendingar eru einn af hverjum fjórum mönnum sem gista fangaklefa lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu. Flestir eru þeir inni vegna þjófnaðar og margir
vegna ölvunar við akstur. Íslendingar eru oftast vistaðir vegna ölvunar.
ÚTLENDINGUM FJÖLGAR VERULEGA Útlendingum sem gista fangageymslur lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað verulega frá því í ársbyrjun 2007.
KJÖRKASSINN