Fréttablaðið - 14.09.2008, Blaðsíða 14
14 14. september 2008 SUNNUDAGUR
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Jökull Jakobsson, rithöfundur og leikritaskáld, hefði orðið
75 ára í dag hefði hann lifað. Ríkisútvarpið minnist hans
með dagskrá í september. Flutningur á útvarpssögunni Dyr
standa opnar, sem Jökull les sjálfur, hófst 8. september og
stendur til 23. september. Í dag klukkan 14 verður svo flutt
leikritið Gullbrúðkaup.
„Það er fyrsta leikritið sem hann samdi fyrir útvarp og
fylgdi með því eftir sigri sínum með leikritinu Hart í bak
sem naut mikilla vinsælda,“ útskýrir Viðar Eggertsson,
verkefnisstjóri leiklistar hjá Rúv. „Jökull gerði mikið af því
að fara með hljóðnemann út um borg og bý og taka fólk tali,
sem var ekki algengt þá en þetta er aðeins brot af því sem
liggur eftir Jökul í safni Ríkisútvarpsins. Hann var manna
flinkastur að gera mannlífsþætti á þessum tíma og fékkst
við manneskjuna á þann tragikómíska hátt sem honum
einum var lagið.“
Þeir þrír útvarpsþættir sem Viðar valdi til flutnings eru
þátturinn Ellefu sem Jökull vann í samvinnu við Pál Heið-
ar Jónsson, og fjallar um kaffihús á Laugavegi 11 sem var
vinsælt af bandarískum hermönnum á sínum tíma og síðar
af íslenskum bóhemum. Þarna má meðal annars heyra radd-
ir lífskúnstnera eins og Alfreðs Flóka, Árna Björnsson-
ar þjóðháttafræðings og Elíasar Mar rithöfundar og segir
Viðar þáttinn ómetanlega heimild um listalíf á þessum tíma.
Þátturinn verður á dagskrá fimmtudaginn 18. september
klukkan 22.15.
Einnig verður fluttur viðtalsþáttur þar sem Jökull átti
stefnumót við Stefán Jónsson frá Möðrudal á Kaffi Mokka en
þar hafði sá síðarnefndi sett upp sýningu. Í þættinum ganga
þeir um sýninguna og ræða verkin en Stefán frá Möðrudal
hefði orðið 100 ára í sumar. „Þetta viðtal var frægt á sínum
tíma því það var svo óvenjulegt og skemmtilegt og mörg
gullkornin sem fuku í því.“ Þátturinn Stefán Stórval verður
á dagskrá sunnudaginn 21. september klukkan 14.
Dagskránni lýkur svo á fimmtudagskvöldið 25. september
klukkan 22.15 með viðtali Jökuls við Sverri Kristjánsson þar
sem þeir ganga um Reykjavík og staldra við styttur bæjar-
ins. Viðar tekur undir það að Jökull hafi verið óvenjuleg-
ur útvarpsmaður og brautryðjandi í vinnslu efnis fyrir út-
varp. „Fyrir utan að vera skáldsagnahöfundur þá var hann
kannski fyrst og fremst leikskáld og gerði tímamótaþætti í
útvarp. Þeir Páll Heiðar unnu saman einstök verk.“
heida@frettabladid.is
JÖKULL JAKOBSSON: HEFÐI ORÐIÐ 75 ÁRA Í DAG
Minnst á Rúv
BRAUTRYÐJANDI Í ÚTVARPI Jökull Jakobsson fór með hljóðnemann út
fyrir hljóðverið og á mörg tímamótaverk í safni Ríkisútvarpsins. Viðar
Eggertsson setti saman dagskrá í minnngu Jökuls. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
GRACE KELLY, PRINSESSA AF MÓN-
AKÓ, LÉST ÞENNAN DAG 1982.
„Ég vil ekki giftast einhverj-
um sem finnst hann óæðri mér
vegna frama míns eða vegna
þess að ég þéna meiri peninga
en hann.“
Hollywood-leikkonan Grace Kelly
giftist Rainier, fursta af Mónakó,
árið 1955 eftir að hafa hitt hann
einungis nokkrum sinnum. Brúð-
kaupið var kallað brúðkaup ald-
arinnar. Það batt enda á leikfer-
il hennar.
timamot@frettabladid.is
Okkar ástkæri,
Lárus Lárusson (Lalli)
Snælandi 6, Reykjavík,
lést á heimili sínu þann 10. september.
Útförin fer fram þriðjudaginn 16. september kl. 13.00
frá Bústaðakirkju.
f.h. ættingja
Unnsteinn S. Jóhannsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Helgi Jónsson
flugstjóri og flugrekandi,
Bauganesi 44, Reykjavík,
varð bráðkvaddur laugardaginn 6. sept. Útför hans
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 16. september
kl. 13.00.
Jytte Marcher
Ester Helgadóttir
Astrid Helgadóttir Adolfo Castrillo
Jón Helgason Hulda G. Valsdóttir
og barnabörn.
Steinsmiðja
• Viðarhöfða 1
• 110 Reykjavík
• 566 7878
• Netfang: rein@rein.is
• Vönduð vinna
REIN
Legsteinar
í miklu úrvali
Hjartansþakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför okkar
ástkæru
Margrétar Guðmundsdóttur
Lækjartúni 2, Akureyri.
Útför hennar fór fram frá Glerárkirkju fimmtudaginn
11. september. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Heimahlynningar á Akureyri og starfsfólki lyfjadeildar
FSA fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Guð blessi
ykkur öll.
Sveinn Árnason
Guðný Georgsdóttir
Björg Kristjánsdóttir
Björn Guðmundsson
Aðalheiður Guðmundsdóttir
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Fanney Sigurbaldursdóttir
frá Ísafirði, Asparfelli 2, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju þriðjudag-
inn 16. september kl. 13.00.
Ásta Dóra Egilsdóttir Jón Jóhann Jónsson
Petrína Margrét Bergvinsdóttir
Hulda Bergvinsdóttir Gunnar Hallsson
Jón Bergvinsson Ingibjörg Viggósdóttir
Faðir okkar,
Þórður Kristján
Guðmundsson,
lést á hjúkrunarheimilinu Víðinesi þann 3. september.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði 18. sept-
ember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Guðrún Elfa Þórðardóttir
Oddný Snjólaug Þórðardóttir
Guðmundur Egill Þórðarson
Þórunn Selma Þórðardóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Magnús Ingiberg
Jóhannsson
leigubílsstjóri og kafari,
Hringbraut 104, Keflavík,
lést á heimili sínu þann 7. september síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 16.
september kl.14.00.
Hrafnhildur Guðbrandsdóttir
Ægir Magnússon, Hafsteinn Þór Magnússon, Sigfríð
Magnúsdóttir, Þuríður Magnúsdóttir, Rebekka
Magnúsdóttir og Haraldur Magnússon
tengdabörn og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Kristín Margrét
Sigurðardóttir
Langholti 11, Akureyri,
lést aðfaranótt 5. september síðastliðinn, á Dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Hlíð. Útförin fór fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir sendum við Dvalar-
og hjúkrunarheimilinu Hlíð, lyflækningadeild FSA,
Heimahlynningu Akureyrar auk allra þeirra er studdu
hana í veikindunum.
Sigurður Arnar Styrmisson Arnfríður Ólafsdóttir
Birgir Rafn Styrmisson Bára Ingjaldsdóttir
Margrét Sigríður Styrmisdóttir Jón Ólafsson
Sigurlína Hólmfríður Styrmisdóttir Björgvin Árnason
Sigvaldi Már Guðmundsson Agnes Jósavinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Kær frændi okkar,
Hannes Guðmundsson
fyrrum bóndi, Auðkúlu, Austur-
Húnavatnssýslu,
lést á Heilbrigðisstofnun Blönduóss 10. september.
Jarðarförin fer fram frá Svínavatnskirkju föstudaginn
19. september kl. 16.
Ásdís S. Arnljótsdóttir
Hulda A. Arnljótsdóttir
Guðmundur Arnljótsson
Arnar Þ. Arnljótsson
Katrín K. Þorleifsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Magnús Aðalsteinsson
Sólvallagötu 18, Reykjavík,
verður sungin sálumessa í Kristskirkju Landakoti
miðvikudaginn 17. september kl. 13.00.
Beatrice Aðalsteinsson
Einar Magnússon Þorbjörg Grímsdóttir
Guðrún Ása Magnúsdóttir
Kristinn Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.