Fréttablaðið - 14.09.2008, Page 52
16 14. september 2008 SUNNUDAGUR
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
■ Pondus Eftir Frode Øverli
Gaman að þið
gátuð komið!
Maturinn er að
verða til!
Alveg að koma!
Þarf bara að
zkræla kartöfur!
Günther eldar
alltaf nakinn! Fyrir
betri hreyfingar og
nálægð við hráefnið!
En gaman að þið
komuð! Við fáum
matargesti ekki oft!
Eða gesti yfirhöfuð,
eiginlega!
Daginn,
Palli. Mfp.
Verður þetta
erfiður dagur í
skólanum? Mfp.
Hann er
ekki sér-
staklega
skrafhreif-
inn.
Hann er maður
fárra stuna.
Jakk! Maurarnir
eru úti um allt!
Næstum
því!
Þeir snertu
sem betur fer ekki
uppáhaldsmorg-
unkornið mitt!
Ég veit ekki
hvort er verra...
Að við eigum
mat sem iðar
allur af maur-
um, eða mat
sem maurar
neita að snerta
Ég týndi malinu
mínu, Stína.
Ég veit alveg
hvar það er.
Er það?!?
Já! Það er þessi
friðartilfinning
innan í þér.
Ég hélt að það
væri eggjapúns.
Ég ætla að
leggja á borð,
láttu mig vita ef
þú ferð að
festast við
botninn!
Skál!
Það er ábyggilega ekkert auðvelt að vera stjórnmálamaður, hvar í heiminum sem það er. Og það er svo sem virðingarvert
að fólk skuli nenna að standa í því að vera í
stjórnmálum. Það er, jú, á stundum mjög
krefjandi og erfitt, auk þess sem pólitíkus-
um er kennt um ýmislegt, hvort sem þeir
bera ábyrgð á því eða ekki. Þeir þurfa því að
geta þolað skítkast og álag.
Samt virðast íslenskir stjórnmálamenn
vera í ansi fínum málum, sé miðað við aðra
staði í heiminum. Á Íslandi geta stjórnmála-
menn nánast gert það sem þeim sýnist og
þeir geta átt það sem
þeir vilja, án
þess að þess
sé krafist að
þeir segi af
sér eða axli
ábyrgð á
annan hátt.
Hér er heldur enginn að reyna að grafa upp
allt það versta um þá og fjölskyldur þeirra.
Að því leyti er ábyggilega miklu erfiðara að
vera stjórnmálamaður í Bandaríkjunum eða
Bretlandi en hér. Svo við tölum nú ekki um
önnur lönd lengra frá okkur. Það er ekkert
svo óalgengt að fólk geti ekki greint frá
stjórnmálaskoðunum sínum án þess að lenda
hreinlega í lífshættu. Ég veit ekki til þess að
margir íslenskir stjórnmálamenn hafi þurft
að óttast um líf sitt vegna pólitískra
skoðana. Ísland er líka frekar vel stætt og
gott land, þrátt fyrir allt krepputal.
Það ætti því ekkert að vera neitt sérstak-
lega erfitt fyrir íslenska stjórnmálamenn að
sinna störfum sínum. Að minnsta kosti eru
engar stórvægilegar hindranir í vegi fyrir
þeim, að minnsta kosti ekki þeim sem
stjórna hlutunum. En hvers vegna fær
maður það samt oft á tilfinninguna að þeir
séu að gera alveg ofboðslega lítið?
Stjórnmálavandamál
NOKKUR ORÐ
Þórunn
Elísabet
Bogadóttir
fm957.is
Zúúber snýr aftur!
Þrjár góðar ástæður til að
vakna kl. 7 á morgnanna!
66.3% landsmanna
undir fertugu
hlustar á FM957
Meðaldekkun á viku frá áramótum – skv. Capacent