Fréttablaðið - 14.09.2008, Síða 62
26 14. september 2008 SUNNUDAGUR
„Ég sá hann upphaflega inni á
skrifstofu í gæludýraverslun þar
sem hann var í litlu búri og leið
illa. Mig hafði alltaf langað í svona
stóran fugl og fór að falast eftir
honum, en þá var hann á leiðinni til
annars eiganda. Sá gafst þó upp
eftir stuttan tíma og þá tók ég fugl-
inn,“ segir Halldór Hilmir Helga-
son um páfagaukinn sinn Pjakk
sem hann fékk fyrir einu og hálfu
ári síðan og er af Golden Macaw-
tegund.
„Þetta er eins og að temja ljón,
þessir fuglar eru með svo mikinn
bitkraft og það er ekki fyrir hvern
sem er að meðhöndla. Pjakkur var
svolítið baldinn við mig fyrst, en
fuglar sem þessir eru það gjarnan
og þá frekar við karlmenn en
konur, sem hafa mýkri rödd. Ég
gaf honum samt ekkert eftir, fékk
mér bara rafsuðuvettlinga og núna
er hann orðið gæludýr sem kyssir
mann, kveður, heilsar og gerir
allar hundakúnstir,“ útskýrir Hall-
dór sem veit til fjögurra annarra
fugla sömu tegundar hér á landi.
Halldór og eiginkona hans, Elma
Helgadóttir, eiga og reka fyrirtæk-
ið Demantinn ehf. sem sérhæfir
sig meðal annars í að þétta sam-
skeyti í einingahúsum. Því fylgir
vinna víðs vegar um land og spurð-
ur um aðbúnað Pjakks segir Hall-
dór hann yfirleitt geta tekið hann
með sér, annars fái hann mann-
eskju til að koma heim daglega
bæði til að tala við og gefa Pjakki.
„Þegar ég fer með hann út verður
hann að fá einn flugtúr á bersvæði
fyrst til að fá útrás.“ útskýrir Hall-
dór, en viðurkennir að óhöpp hafi
líka átt sér stað. „1. maí slapp hann
undan neti sem ég var með í garð-
inum og endaði upp í svo hárri ösp
að níu metra stigi sem ég á dugði
ekki til að komast upp á topp.
Þegar ég kallaði „komdu“ gargaði
hann bara „komdu“ á móti, svo ég
varð að ræsa út Vinnulyftur í
Garðabænum til að ná honum
niður. Pjakkur er bara eins og
ungur ofvirkur strákur, mikill gös-
lari og það eru enn fjögur ár í að
hann verði kynþroska,“ segir Hall-
dór, en páfagaukar af Golden
Macaw-tegund geta orðið 50 til 70
ára gamlir.
„Þetta eru dýr sem maður tekur
að sér til frambúðar og því fylgir
mikil ábyrgð, enda er þeim er líkt
við fjögurra ára meðalgreind börn
og þeir aðlaga sig ekki svo auð-
veldlega að nýjum og nýjum eig-
anda,“ bætir hann við, en fyrir
stuttu síðan tóku Halldór og Elma
einnig að sér tíu ára Orange winged
Amazonfugl. „Við tókum við fugl-
inum af manni sem hafði verið
með hann í gluggalausu þvottahúsi
og gátum ekki hugsað okkur að
fara án þess að taka hann með
okkur heim,“ segir Halldór um
nýjasta fjölskyldumeðliminn sem
hann kallar Magga músarrindil
vegna þess hve lítill hann er í sam-
anburði við Pjakk.
„Ég var svo að enda við að gefa
konunni rósableikan fugl af kaka-
dúa-ætt í afmælisgjöf. Hún varð
alveg veik fyrir honum svo ég dró
saman síðustu krónurnar til að
kaupa hann,“ segir Halldór að
lokum og hlær. alma@frettabladid.is
„Þetta hafa verið einhver
skemmtilegustu ár ævi minnar
og reynslan hefur verið ómetan-
leg. Sem leikara og listamanni
fannst mér hins vegar nóg komið
af sælgætisáti og prakkarastrik-
um og tel rétt að hleypa öðrum
að,“ segir Stefán Karl Stefánsson
leikari sem hefur formlega sagt
upp störfum í Latabæ. Stefán
Karl hefur sem kunnugt er farið
með hlutverk Glanna glæps í
sjónvarpsþáttunum vinsælu.
Hann segir að þetta hafi verið
erfið ákvörðun að taka. „Já, ég
kveð Latabæjarfjölskylduna með
miklum söknuði.“
Eins og Fréttablaðið greindi frá
fyrir skemmstu hafa Stefán Karl
og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
eiginkona hans nú fengið græna
kortið sem veitir þeim rétt á fullri
atvinnu í Bandaríkjunum. Þar
hafa þau verið búsett síðustu fjög-
ur árin og nú hafa þau komið sér
vel fyrir í San Diego. Næsta verk-
efni sem Stefán Karl hyggst ein-
beita sér að er söngleikurinn
Þegar Trölli stal jólunum (How
the Grinch Stole Christmas).
Söngleikurinn er hugarsmíð Tony-
verðlaunahafans Jacks O’Brien
og hefur verið sýndur á Broad-
way undanfarin tvö ár. „Framleið-
endurnir ákváðu að endurnýja
leikarahópinn og báðu mig að taka
að mér hlutverk Trölla sjálfs. Ég
tók því með mikilli gleði,“ segir
Stefán Karl. Hann segir að söng-
leikurinn sé alfarið byggður á
sögunni þekktu sem Dr. Seuss
skrifaði og myndskreytti.
Stefán Karl stígur fyrst á svið
sem Trölli í nóvember. Þá verður
söngleikurinn sýndur í The Hippo-
drome Theater í Baltimore. Í
desember verður svo sýnt í The
Wang Theater í Boston. Stefán
Karl fær svo að reyna sig á sviði á
Broadway í New York næsta
haust. Stefán Karl getur ekki
leynt því að hann er spenntur
fyrir þessu nýja hlutverki: „Þetta
er mikil upphefð fyrir mig sem
leikara enda ekki á hverjum degi
sem útlendingur er ráðinn til að
leika í klassísku amerísku verki
sem sett er upp á Broadway.“
- hdm
HVAÐ SEGIR MAMMA?
Hvað er að frétta? Fólkið í blokkinni á daginn. Fló á skinni á kvöldin.
Augnlitur: Hef ekki hugmynd en sumir segja brúnn og sumir segja
grænn. Þannig að ég segi bara grænbrúnn.
Fæðingardagur: 19.06. 1977.
Starf: Leikari.
Fjölskylduhagir: Í sambúð með eitt barn.
Hvaðan ertu? Af Akranesi.
Ertu hjátrúarfullur? Nei, það er allt of mikið „spelt“ eitthvað.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Það eru nú margir, en í sérstöku
uppáhaldi eru alls kyns dýralífsþættir.
Uppáhaldsmatur: Saltkjöt og baunir.
Fallegasti staðurinn: Þingvallavatn og bringan á manneskju sem er
mér kærust.
iPod eða geislaspilari? iPod.
Hvað er skemmtilegast? Að skemmta sér.
Hvað er leiðinlegast? Að láta sér leiðast, skúra, kaupa ost, þvottaefni
og bensín.
Helsti veikleiki? Er allt of meðvirkur.
Helsti kostur? Allavega ekki Grænn kostur, það er of mikið
„spelt“ eitthvað. Ég þyki með afbrigðum skemmtilegur maður.
Helsta afrek? Að verða Tommamótsmeistari í knattspyrnu 1987
bæði innan- og utanhúss.
Mestu vonbrigðin? Var í öðru sæti í karíókí-keppni
félagsmiðstöðva, minnir að Emilíana Torrini hafi
unnið. Djöfull var ég svekktur.
Hver er draumurinn? Mig hefur því miður ekki
enn dreymt hann.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Harpa dóttir mín
sem kemur mér til að hlæja á hverjum degi.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Þessa dag-
ana býr hjá mér unglingur sem sefur yfir sig
í gríð og erg, og missir af strætó. Sem verður
til þess að ég þarf að keyra hann.
Hvað er mikilvægast? Að vera hamingju-
samur, glaður og frjáls. Og svo er auðvitað
mjög mikilvægt að vera mikilvægur maður.
HIN HLIÐIN HALLGRÍMUR ÓLAFSSON LEIKARI
Mikilvægt að vera mikilvægur maður
HALLDÓR HILMIR HELGASON: EKKI AUÐVELT AÐ VERA MEÐ ÞRJÁ FUGLA Á HEIMILINU
Páfagaukur sem gerir hundakúnstir
HEFUR SLOPPIÐ Eitt sinn flaug Pjakkur
svo hátt upp í tré að Halldór þurfti að
nota vinnulyftu til að ná honum niður.
LITRÍK FJÖLSKYLDA Á heimilinu er
rósableikur fugl af kakadúa-ætt, Golden
Macaw-páfagaukurinn Pjakkur og
Amazonfuglinn Maggi músarrindill.
RÆR Á NÝ MIÐ Stefán Karl Stefánsson er
hættur í Latabæ. Hann leikur næst Trölla
í Þegar Trölli stal jólunum.
LJÓSMYND/MATTHÍAS ÁRNI
Stefán Karl hættur í Latabæ
19.06.77
„Ég er bara mjög stolt af dóttur
minni. Strax frá því hún var
pínulítil var hún svona skap-
andi. Hún á fimm systkini en
ekkert þeirra hefur verið eins
frjótt og hún í sköpun. Sara
hefur alltaf þorað að vera öðru-
vísi og hefur aldrei spáð í hvað
öðrum finnst.“
Júlía Lind Ómarsdóttir, móðir Söru Maríu
Eyþórsdóttur, eins af eigendum Nakta
apans, sem selur stuttermaboli fyrir
tónlistarhátíðina London Airwaves.
FÆR EIRÍKUR FJALAR AÐ VERA MEÐ?
Fyrsta plata Ladda í 18 ár er væntanleg.
Skemmtikrafturinn Laddi hefur
átt ótrúlegum vinsældum að
fagna upp á síðkastið með
sýningu sinni í Borgarleikhúsinu.
Tónlistarmaðurinn Laddi hefur
hins vegar lengi verið í hálfgerðu
dái, síðasta sólóplata hans, Of feit
fyrir mig, kom út árið 1990. Nú
fyrir jólin, átján árum síðar, er
von á sjöttu sólóplötunni hans.
„Æi, mér fannst ég bara vera
orðinn of gamall til þess að gera
plötu,“ segir Laddi. Hann varð
sem kunnugt er sextugur í fyrra.
„En svo eru útgefendurnir búnir
að suða í mér lengi og einhvern
veginn tókst þeim að plata mig út
í þetta núna.“
Laddi gerir plötuna með
Björgvini Halldórssyni, en þeir
hafa oft unnið saman áður. „Ég er
að bera í hann efni núna, bæði lög
eftir mig og erlend lög sem væri
gaman að taka. Hann er að hlusta
á þetta og svo ákveðum við
endanlega í vikunni hvaða lög
fara á plötuna. Svo klárum við
þetta um næstu mánaðamót og
náum plötunni út fyrir jól.“
Laddi segist ekki brjóta blað í
tónlistarsköpun sinni á plötunni.
„Þetta verður ekta Ladda-plata,
grín og glens fyrir alla fjölskyld-
una. Kannski geri ég þungu
listrænu plötuna seinna. Hún
verður mjög alvarleg!“
Og svo er það sýningin, Laddi
6-tugur. Laddi fær bara ekki að
hætta með hana. „Við ætluðum að
hætta síðasta vor og auglýstum
síðustu sýningar. Þá varð algjör
sprenging og færri komust að en
vildu. Þá lofuðum við nokkrum
sýningum í viðbót og stöndum við
það núna í nóvember. Þá verða
sex til tíu sýningar í viðbót.“
Laddi er þegar búinn að halda
110 sýningar sem hátt í 60.000
gestir hafa séð. Þeim sem komast
ekki á viðbótarsýningarnar er
bent á að DVD-diskur með
sýningunni kemur út fyrir jólin.
- drg
Plataður til
að gera plötu
VELJUM LÍFIÐ
ALGJÖR PJAKKUR
Halldór segir
páfagaukinn
Pjakk vera
mikinn göslara,
en hann kyssir,
heilsar, kveður
og gerir allar
hundakúnstir.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI