Fréttablaðið - 01.10.2008, Side 10
10 1. október 2008 MIÐVIKUDAGUR
KRÖFUGANGA Í BERLÍN Þýskt heil-
brigðisstarfsfólk í kröfugöngu fyrir meiri
fjárveitingum til sjúkrahúsa landsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
af ákveðnum vörumLA
GE
R-ÚTSALA
50-80%afsl.
SÍÐUST
U DAG
AR
LAGER
ÚTSÖL
UNNA
R.
TIL OG
MEÐ
4. OKT
OBER.
EKKI MISSA
AF ÞESSU!
Íslensku
TAKMARKAÐ
MAGN!
SKIPULAGSMÁL „Við erum búin að
vinna þetta mjög náið með skipu-
lagsyfirvöldum og gerum ekki ráð
fyrir neinum stórvægilegum
breytingum,“ segir Hanna G.
Benediktsdóttir, fjármálastjóri
Festar ehf., um tillögu að deili-
skipulagsbreytingu fyrir svokall-
aðan Hljómalindarreit sem lögð
var fram á fundi skipulagsráðs á
miðvikudaginn.
Breytingin gerir ráð fyrir auk-
inni uppbyggingu, breyttum götu-
myndum og opnu upphituðu torgi
á miðju reitsins. Í greinargerð
með tillögunni segir að lóðarhafi
vilji leggja áherslu á aðgengi
almennings að reitnum með því að
halda honum opnum í miðju og
aðkoma vegfarenda sé möguleg
frá öllum hliðum reitsins.
Þá segir að byggingarnar taki
mið af nálægum húsum og kenni-
leitum í götumyndinni. „Á bak við
Hljómalind kemur nýbygging við
Klapparstíg,“ segir Hanna og
vísar til húss sem til stendur að
rífa og áður hýsti skemmtistaðinn
Sirkus. Þá er ætlunin að gera upp
húsin við Laugaveg 17 og 21, svo-
kallað Hljómalindarhús.
Tillagan gerir ráð fyrir nýbygg-
ingum við Laugaveg 19, Klappar-
stíg, Smiðjustíg og Hverfisgötu
þar sem rísa mun sjö hæða hótel.
„Húsið við Klapparstíg 25 er sex
hæðir en við förum aðeins hærra
með léttri þakbyggingu á hluta af
sjöundu hæð við Hverfisgötu,“
segir Hanna. Aðalinngangur hót-
elsins verður á horni Hverfisgötu
og Smiðjustígs en þar er einnig
gert ráð fyrir morgunverðar- og
veitingasal hótelsins.
Tillagan gerir ráð fyrir verslun-
um og þjónustu á jarðhæðum allra
húsanna. Í byggingunum verði
einnig skrifstofur og veitingastað-
ir auk áðurnefnds hótels og þriggja
hæða bílakjallara með tvö hundr-
uð bílastæðum. „Það sem við
myndum vilja sjá er að færri bíla-
stæði verði ofanjarðar svo það
verði meira rými fyrir gangandi
og hjólandi umferð,“ segir Hanna.
Hún segir þau hjá Festar gera
ráð fyrir að framkvæmdir taki um
þrjú ár. „Við erum ekki búin að fá
erindið afgreitt en setjum stefn-
una á að komast af stað með upp-
bygginguna á næsta ári og að þetta
fari allt upp í einu lagi, verði ekki
áfangaskipt,“ segir Hanna.
Hún segir þau hlakka til verk-
efnsins. „Þetta er mjög spennandi
konsept sem er spennandi að sjá
verða að veruleika.“
olav@frettabladid.is
Hótel upp á
sjö hæðir og
upphitað torg
Tillaga að deiliskipulagsbreytingu gerir ráð fyrir
nýju hóteli á Hljómalindarreitnum, opnu upphituðu
torgi með veitingastöðum og verslunum.
TORG Samkvæmt tillögunni verður torg
á miðjum reitnum þar sem gert er ráð
fyrir kaffihúsum og verslunum.
MYND/ARKITEKTUR.IS
FRÁ LAUGAVEGI Tillagan gerir ráð fyrir torgi milli nýbyggingar við Laugaveg 19 og
Laugavegs 21, Hljómalindarhússins, sem reiturinn er nefndur eftir. MYND/ARKITEKTUR.IS
HLJÓMALINDARREITUR Gert er ráð fyrir
nýbyggingum í bland við uppgerð eldri
hús. MYND/ARKITEKTUR.IS
HVÍTRÚSSLAND, AP Alexander
Lúkasjenko, forseti Hvíta-
Rússlands, lýsti í gær þingkosn-
ingunum sem fram fóru á
sunnudag sem „stóru skrefi í
lýðræðisátt,“ þrátt fyrir að ekki
einn einasti fulltrúi stjórnarand-
stöðunnar hefði unnið sæti á þingi
samkvæmt opinberum úrslitum.
Eftirlitsmenn á vegum Örygg-
is- og samvinnustofnunar Evrópu
hafa úrskurðað að framkvæmd
kosninganna hafi ekki uppfyllt
lýðræðisleg viðmið. Lúkasjenko
lét eftirlitsmenn aftur á móti
heyra það í gær að kosningarnar
hefðu farið fram í samræmi við
hvítrússnesk lög. Hann ætlist
núna til þess að Evrópusamband-
ið aflétti efnahagsþvingunum og
takmörkunum á ferðafrelsi
ráðamanna ríkisins til ESB-landa.
- aa
Kosningar í Hvíta-Rússlandi:
Lúkasjenko
krefst umbunar
EFNAHAGSMÁL Kaup ríkisins á 75
prósenta hlut í Glitni hafa engin
áhrif á lífeyrisgreiðslur sjóðanna
til lífeyrisþega, að sögn Hrafns
Magnússonar, framkvæmdastjóra
Landssamtaka lífeyrissjóða.
Hrafn segir að lífeyrissjóðirnir
hafi átt um 5,5 prósent í Glitni og
sala til ríkisins hafi ákveðin fjár-
hagsleg áhrif en þau áhrif séu ekki
bein á lífeyrisþegana. Lífeyrir
fólks muni ekki lækka. „Lífeyris-
sjóðirnir eiga 5,5 prósent í Glitni
og auðvitað hefur þetta ákveðin
fjárhagsleg áhrif en lífeyrisloforð
sjóðanna standa fyllilega þrátt
fyrir þetta. Hins vegar kemur til
skoðunar í byrjun næsta árs hvern-
ig ávöxtun sjóðanna hefur verið á
árinu almennt og hver þróunin
hefur verið á verðbréfamörkuð-
um,“ segir hann.
Hrafn játar því að það hefði haft
tap í för með sér fyrir lífeyrissjóð-
ina hefði Glitnir orðið gjaldþrota,
en hann segist ekki átta sig á
hversu mikið tapið hefði hugsan-
lega orðið.
„Verðbréfamarkaðirnir hafa
verið erfiðir á þessu ári en ávöxt-
unin var sérlega góð síðustu fjögur
árin. Sjóðirnir hafa verið með rau-
návöxtun yfir níu prósent síðustu
fimm ár þannig að í ár verður
ávöxtun lífeyrissjóðanna neikvæð.
Á móti kemur að þrátt fyrir lækk-
un á erlendum eignum hefur krón-
an veikst þannig að eign lífeyris-
sjóðanna hefur vaxið í íslenskum
krónum,“ segir hann. - ghs
Kaup ríkisins í Glitni hafa lítil áhrif á lífeyrissjóðina:
Segir lífeyrisgreiðsl-
urnar ekki lækka
LÖGGÆSLUMÁL Lögreglumenn stóðu heiðursvörð
þegar Jóhann R. Benediktsson var kvaddur af
starfsfélögum sínum fyrir utan lögreglustöðina í
Suðurnesjum í gær.
„Þetta var tilfinningaþrungið, það er varla hægt
að lýsa því með orðum,“ segir Jóhann Eyvindsson
rannsóknarlögreglumaður sem var við athöfnina.
„Það er búið að verðlauna þennan mann í bak og
fyrir fyrir vel unnin störf og svo er hann allt í einu
farinn.“
Degi áður fékk Jóhann afhent gullmerki Toll-
varðafélags Íslands á Kaffi Duus húsi í gær í
Reykjanesbæ. „Ég neita því ekki að mér þykir
óendanlega vænt um að mínir samherjar og félagar
skuli sýna mér þennan heiður við brotthvarf mitt,“
sagði Jóhann í samtali við Fréttablaðið eftir að hafa
tekið við gullmerkinu. Í ræðu sem Guðbjörn
Guðbjörnsson, formaður félagsins, hélt við það tæki-
færi sagði hann: „Við skiljum og virðum þá ákvörð-
un Jóhanns að hafa beðist lausnar frá embætti þótt
við séum engan veginn sátt við þau málalok.“
Jóhann var lögreglustjóri á Suðurnesjum frá árinu
1999. Hann sagðist ekki vita hvað tæki við hjá sér.
- jse
Jóhann R. Benediktsson kvaddur af kollegum og Tollvarðafélagi Íslands:
Tilfinningaþrungin kveðjustund
LÖGREGLUMENN STANDA HEIÐURSVÖRÐ Það var tilfinninga-
þrungin stund þegar Jóhann var kvaddur af samstarfsmönnum
sínum í gær. MYND/JÓHANN EYVINDSSON
NOREGUR Erfðaefnið í blóði
Norðmanna verður rannsakað
næstu mánuðina til að kanna hvort
forfeður norskra sjálfboðaliða frá
Stafangri, Björgvin, Þrándheimi,
Lillehammer, Hamri og Kinsarvik
hafi verið víkingarnir sem settust
að á Norður-Englandi í kringum
níundu öld.
Vísindamenn frá Noregi,
Englandi, Íslandi og Ungverja-
landi hittust í Stafangri um síðustu
helgi til að fullvissa sig um að rétt
verði að rannsókninni staðið. Áður
hefur komið í ljós að helmingurinn
af rannsóknarhópi frá Wirral-
skaga fyrir utan Liverpool hafi
norskt víkingablóð í æðum. - ghs
Ættbogi Norðmanna:
Víkingablóðið
rannsakað