Fréttablaðið - 07.10.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
7. október 2008 — 274. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
JÓN SIGURÐSSON
Byrjar daginn alltaf
á hollum hafragraut
• heilsa • nám
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
VINNUVÉLANÁMSKEIÐ eru reglulega haldin hjá Ökuskóla
Akureyrar. Námskeiðin eru 80 tímar og helstu námsgreinar eru jarð-
ýtur og gröfur, kranar og stálvírar, vökva- og vélafræði og
öryggi á vinnustað. Næsta námskeið hefst 30. október og
er skráning hafin á okuskoli@simnet.is
„Ég reyni eftir bestu getu að hugsa
vel um heilsuna og hef undanfariðár byrjað dagin á
í Reykjavík og hefu þb
Vill vakna í átök og stuð
Herþjálfun, fullt nám og hundrað prósent vinna er lífsstíll sem skilar Jóni Sigurðssyni árangri í starfi og
leik, en hann hefur frá fyrstu tíð gengið hnitmiðað um fjölbreytta stigu heilnæmis og heilbrigðs lífe i
Jón Sigurðsson hefur aldrei slegið slöku við að hugsa sem best um heilsuna og telur ekki eftir sér að vakna í hörku herþjálfun
meðan aðrir sofa.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BORÐAÐU ÞIG HOLLARI!
Auðveldar
þér að léttast
Losaðu þig við 5 kíló á 5 vikum
Nýtt og yfirfarið matarprógram,sem hjálpar þér við að losa þig við aukakilóin.
Lærðu um það hvernig þú borðar fjölbreyttar máltíðir með hollum og góðum mat.
GARÐABÆ
REYKJAVÍK
REYKJANESBÆR
AKUREYRI
NÝTT MATAR-
PRÓGRAM
Lífið 10 ára
Lífið, samtök um
líknandi meðferð,
heldur á laugardag
málþing í tengslum
við afmælið.
TÍMAMÓT 16
BLEIKA SLAUFAN
Árveknisátak Krabba-
meinsfélags Íslands
Sérblað um bleiku slaufuna
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
bleika slaufanÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008
Stríð á
Facebook
Lindsay Lohan og
París Hilton deila á
netinu.
FÓLK 20
HILDUR BJÖRK YEOMAN
Vekur athygli
í Portúgal
Fjallað um sýningu hennar í Vogue
FÓLK 26
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi
Baldursnesi 6 • Akureyri
Mikið úrval af
upphengdum salernum
Opið virka daga frá 8 -18
laugardaga frá10 -15
tengi.is
HVASST Í FYRSTU Í fyrstu
verða suðaustan og austan 10-18
m/s, hvassast á Vestfjörðum. Lægir
smám saman eftir hádegi. Rigning
eða skúrir en dregur úr úrkomu
síðdegis. Hiti 7-12 stig.
VEÐUR 4
10
7 9
9
10
Sögulegt hjá Heimi
Heimir Guðjónsson varð fyrsti
þjálfarinn í 39
ár til að verða
meistari á
fyrsta ári í
þjálfun.
ÍÞRÓTTIR 23
% 20 40 60 80 100
40.000 slaufurSöfnunarmarkmið
INN OG ÚT Þegar bönkunum var lokað í gær var óvíst hvort þeir yrðu opnaðir á ný. Neyðarlög voru sett á Alþingi klukkan 23.19 til bjargar íslensku fjármálakerfi og sagði
fjármálaráðherra að innistæður íslenskra sparifjáreigenda yrðu að fullu tryggðar. Myndin var tekin við höfuðstöðvar Landsbankans við lokun í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EFNAHAGSMÁL „Bankinn opnar og
ég bendi á að hann er einn örfárra í
Evrópu sem enn er starfandi án
þess að hafa notið sérstakrar
aðstoðar seðlabanka,“ segir Ásgeir
Friðgeirsson, talsmaður Lands-
bankans.
Alþingi ræddi fram á nótt frum-
varp forsætisráðherra um neyðar-
ráðstafanir í fjármálakreppunni.
Samkvæmt lögunum getur Fjár-
málaeftirlitið tekið að sér stjórn
banka. Í aðgerðum stjórnvalda
felst einnig stórt evrulán Seðla-
bankans til Kaupþings.
„Ég tel að þetta sé skynsamleg
ráðstöfun. Þessi eign sem þarna er
um að ræða, FIH, er perlan í kór-
ónu Kaupþings, en þetta er mat
Seðlabankans, ekki ríkisstjórnar-
innar,“ segir Össur Skarphéðins-
son, iðnaðarráðherra og staðgeng-
ill formanns Samfylkingarinnar.
Fyrirgreiðslan til Kaupþings
nemur um eitt hundrað milljörðum
íslenskra króna. Lánið er tryggt
með veði í danska FIH bankanum.
Össur segist ekki kannast við að
Landsbankinn hafi leitað eftir fyr-
irgreiðslu.
Sumir úr stjórnarliðinu segja að
í þessu felist stuðningsyfirlýsing
stjórnvalda við Kaupþing, en aðrir
benda á að með þessu sé Kaupþingi
aðeins veitt ákveðið svigrúm í
hefðbundnum endurhverfum við-
skiptum milli banka og Seðla-
banka.
Fram kom í máli Geirs H. Haarde
forsætisráðherra að efnahagsmál-
in hefðu tekið óvænta stefnu í gær-
morgun og lánalínur bankanna
hefðu lokast. Því stæðu Íslending-
ar frammi fyrir þessari stöðu. Hins
vegar yrði róið að því öllum árum
að tryggja hagsmuni almennings,
þjóðarbúsins og innistæðueigenda,
hugsanlega á kostnað annarra.
Aðgerðir stjórnvalda tryggðu að
bankarnir yrðu opnir í dag.
Össur segir að allt verði skoðað.
Teknar verði ákvarðanir sem sumir
telji kaldrifjaðar.
„Telji stjórnvaldið að fjármála-
stofnun sé komin í þá stöðu að hún
geti ekki staðið við skuldbindingar
sínar, þá er hægt í reynd að taka
völd í fyrirtækinu og ráðstafa eign-
um þess, með hagsmuni þjóðarinn-
ar í huga. En ef svo færi að banki
legðist á hliðina myndi hann eigi að
síður, eftir að þessi tæki eru komin
í hendur stjórnvalda, opna daginn
eftir.“
Sigurður Einarsson, stjórnarfor-
maður Kaupþings, segir unnið
hörðum höndum að því að treysta
lausafjárstöðu bankans í því erfiða
umhverfi sem nú ríkir á alþjóðleg-
um fjármálamörkuðum. Stefnan
hafi verið sett á að minnka bank-
ann og efnahagsreikning hans og
eignir hafi verið seldar síðustu tíu
daga fyrir um 170 milljarða króna,
einkum verðbréf.
Að viðbættu láni Seðlabankans í
gær hafi bankinn þannig losað um
270 milljarða undanfarna daga.
- bih, ikh
Allir bankarnir opna í dag
Neyðarlög sett á Alþingi í gær um víðtækar heimildir Fjármálaeftirlitsins til inngripa í íslenskt fjármála-
kerfi. Innistæður tryggðar. Íbúðalánasjóður kemur að endurfjármögnun húsnæðislána. Kaupþing fékk
stórt lán frá Seðlabanka og hyggst selja eignir. Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er komin til landsins.
Stjórnvöld útiloka ekki að óskað verði eftir efnahagsaðstoð Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru staddir
hér á landi sérfræðingar sjóðsins. Þeir hafa veitt stjórnvöldum tækni-
lega ráðgjöf við yfirstandandi efnahagsaðgerðir. Sendinefnd Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins kom hingað að frumkvæði stjórnvalda. Eftir því
sem næst verður komist, útiloka stjórnvöld enga möguleika við ríkj-
andi aðstæður, þar á meðal er sá möguleiki að leita efnahagsaðstoðar
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Ísland var í hópi stofnríkja sjóðsins. Aðstoðar hans var síðast leitað
hér á landi árið 1982. Ísland hefur verið skuldlaust við sjóðinn frá
árinu 1987. - ikh
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn til aðstoðar