Fréttablaðið - 07.10.2008, Qupperneq 2
2 7. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Benedikt, er verið að geirnegla
bankann?
„Nei, það er verið að krossfesta
stjórnmálamann.“
Benedikt Erlingsson frumsýnir nýja
stuttmynd, Naglann, í bíósal Kaupþings
í dag. Myndin fjallar um ráðamann sem
fær nagla í höfuðið.
Bankaútibú
Afgreiðslur bankaútibúa verða opnar
líkt og venjulegt er í dag, samkvæmt
upplýsingum frá forsætisráðuneytinu.
Debetkort
Greiðslukerfi bankanna, þar á meðal
debetkortakerfið, verður starfrækt með
eðlilegum hætti.
Kreditkort
Ekki verður röskun á notkun kredit-
korta að því er fram kemur í tilkynn-
ingum frá umboðsaðilum kreditkorta-
fyrirtækja hérlendis.
Greiðslukort í útlöndum
Áfram verður hægt að nota greiðslukort í
hraðbönkum og verslunum erlend-
is samkvæmt upplýsingum frá
kortafyrirtækjum og bönkum.
Sparireikningar
Íslenska ríkið ábyrgist að allt fé á
sparireikningum í íslenskum bönkum
sé tryggt jafnvel þótt bankar fari í þrot.
Engin takmörk eru á upphæðunum.
Séreignarsparnaður
Allur séreignarlífeyrir í íslensk-
um bönkum er tryggður af
íslenska ríkinu.
Aðrir sjóðir
Ríkið ábyrgist ekki eignir í verðbréfasjóðum.
Þeir sjóðir eru hins vegar sjálfstæðir og verða
ekki teknir til gjaldþrotaskipta fari bankar í
þrot þótt eignir í þeim kunni að rýrna.
Íbúðalán
Íbúðalánasjóður fær heimild til að
taka yfir húsnæðislán banka eftir því
sem þurfa þykir til að létta undir með
heimilum.
Bílalán
Tíðindi gærdagsins snerta
bílalán ekki sérstaklega.
Önnur lán
Öll lánastarfsemi banka verður með
óbreyttu móti í dag, að því er fram kom í
máli forsætisráðherra í gær. Áfram verður
því hægt að fá lán í bönkum.
Yfirdráttur
Áfram verður hægt að fá yfirdráttar-
heimildir og framlengingar á yfirdrátt-
arlánum.
Hraðbankar
Forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi í
gær að tryggt yrði að hraðbankaþjónusta yrði
með eðlilegu móti.
Netbankar
Ekki er útlit fyrir annað en að virkni
heimabanka muni verða með hefð-
bundnum hætti.
Gjaldeyrir
Hægt verður að taka út gjaldeyri í banka-
útibúum í dag. Í útibúum Kaupþings verður
úttektarupphæðin takmörkuð við 250 þúsund
krónur. Búast má við takmörkunum alls staðar.
Lítil röskun verður á
starfsemi bankanna
Gert er ráð fyrir því að öll bankastarfsemi verði með hefðbundnu móti í dag
þrátt fyrir vendingar gærdagsins. Útibú verði opin, greiðslukortakerfin í gangi,
hrað- og netbankar í lagi og að hægt verði að fá lán eins og ekkert hafi í skorist.
VIÐSKIPTI Gengi hlutabréfa í líf-
tæknifyrirtækinu DeCode, móð-
urfélagi Íslenskrar erfðagrein-
ingar, féll um 36,3 prósent í gær
og endaði í 21 senti á hlut. Það
hefur aldrei verið lægra í lok
dags.
Samkvæmt þessu nam mark-
aðsverðmæti bréfa í DeCode
12,99 milljónum Bandaríkjadala,
jafnvirði tæpra 1,5 milljarða
íslenskra króna, samkvæmt opin-
beru miðgengi Seðlabankans.
Það stóð í 3,68 dölum á hlut um
síðustu áramót og nemur fallið
95 prósentum.
Hlutabréfin voru samkvæmt
bandarískum kauphallarreglum
færð á athugunarlista vestan-
hafs í gær en samkvæmt þeim
má gengi hlutabréfa sem er
skráð á Nasdaq-markaðinn ekki
vera undir einum dal á hlut og
teljast til aurabréfa (e. penny-
stocks) lengur en í 30 daga auk
þess sem markaðsverð fyrirtæk-
isins verður að vera meira en 50
milljónir dala. Gerist það hafa
fyrirtæki sem falla í aurabréfa-
flokkinn 180 daga til að koma
bréfunum upp fyrir dal á hlut.
Takist það ekki eiga fyrirtækin á
hættu að verða afskráð.
DeCode getur borið ákvörðun-
ina undir sérstaka nefnd. Verði
niðurstaðan sú sama getur félag-
ið sótt um aðgengi að svokölluð-
um Nasdaq Capital-markaði. - jab
KÁRI STEFÁNSSON Forráðamenn
DeCode hafa tæpan mánuð til að upp-
fylla kröfur Nasdaq-markaðarins ellegar
verða tekið af markaði.
Forráðamenn DeCode hafa fram til mánaðamóta að hindra afskráningu:
Gengi DeCode aldrei lægra
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir
tveimur mönnum en þeir eru
grunaðir um rán og líkamsárás
aðfaranótt sunnudags. Þá var
maður á sjötugsaldri barinn og
rændur. Síðar sömu nótt var
tösku rænt af konu á þrítugsaldri
á Hverfisgötu.
Talið er að þeir séu á aldrinum
25 til 30 ára og af erlendu
þjóðerni. Þeir sem hafa einhverj-
ar upplýsingar um málið eru
beðnir um að hafa samband við
lögreglu í síma 444 1100. - jse
Tveir menn eftirlýstir:
Grunaðir um
rán og árás
EFTIRLÝSTIR Talið er að mennirnir séu
á aldrinum 25 til 30 ára og af erlendu
bergi brotnir.
EFNAHAGSMÁL „Þetta er einfald-
lega bullandi katastrófa,“ segir
Garðar Stefánsson, formaður
Sambands
íslenskra
námsmanna
erlendis, um
áhrif gengis-
þróunar
íslensku
krónunnar á
námsmenn í
útlöndum.
Námsmenn
erlendis fá lán
sem miðast við framfærslukostn-
að í námslandinu. Þau eru ekki
greidd út fyrr en að loknum
hverjum áfanga og þá á gengi
þess tíma sem greiðslan fer fram.
Miklar sveiflur geta því verið á
upphæð lánanna í íslenskum
krónum. Garðar, sem situr í
stjórn Lánasjóðs íslenskra
námsmanna, býst við að staða
sjóðsins verði rædd á stjórnar-
fundi á fimmtudag þar sem
útlánin stefni út fyrir fjárhags-
rammann. - gar
Námsmenn erlendis:
Fall krónunnar
sögð katastrófa
EFNAHAGSMÁL Dönsk stjórnvöld og
þarlent bankakerfi gerðu með sér
samkomulag í gær um að koma
upp sérstökum neyðarsjóði að
jafnvirði um það bil 700 milljarða
íslenskra króna.
Fréttavefur Jótlandspóstsins
greindi frá því í gær að sjóðurinn
verður fjármagnaður þannig að
bankakerfið mun á næstu þrem-
ur árum greiða í sjóðinn og verður
hann notaður til að verja fólk fyrir
áföllum í efnahagsmálum svo inni-
stæður þess verði tryggðar. - kdk
Sjóður til varnar áföllum:
Danir passa
upp á sitt fólk
STJÓRNMÁL „Við hlustuðum á hann í
þingflokksherberginu og að máli
hans loknu var honum klappað
verðskuldað lof í
lófa,“ skrifaði
Björn Bjarnason
dómsmálaráð-
herra á vef sinn
í gærkvöld um
sjónvarps ávarp
Geirs Haarde
forsætisráð-
herra.
Björn segir að
þingflokkur sjálfstæðismanna hafi
komið saman klukkan fimmtán, um
klukkustund fyrir ávarp Geirs, og
þá hafi Árni M. Mathiesen
fjármálaráðherra kynnt banka-
frumvarpið sem lagt var fyrir
Alþingi í gær. Ríkisstjórnin hafi
áður rætt frumvarpið klukkan
hálfníu um morguninn og það strax
á eftir verið kynnt formönnum
stjórnarandstöðuflokkanna. Björn
segir það hafa reynst tálvon að
fjármálakerfið stæðist heims-
bankakreppuna án beinnar
íhlutunar ríkisins. - gar
Þingflokkur sjálfstæðismanna:
Klappaði fyrir
Geir eftir ávarp
GEIR H. HAARDE
EFNAHAGSMÁL „Stjórnvöld sátu á
stífum fundum alla helgina því
það var náttúrlega nauðsynlegt að
grípa til aðgerða,“ segir Guðjón
Rúnarsson, framkvæmdastjóri
Samtaka
fjármálafyrir-
tækja. „Nú
liggja þær fyrir
og við verðum
aðeins að vona
að þær séu þess
eðlis að þær nái
að lágmarka
eins mikið og
mögulegt er
þann skaðann.“
Hann segir
starfsumhverfi fjármálafyrir-
tækja muni taka miklum breyt-
ingum eftir þessar aðgerðir. „Þær
valdheimildir sem verið er að
veita með þessu frumvarpi eiga
til dæmis eftir að breyta miklu og
þetta eru breytingar sem gert er
ráð fyrir til skamms tíma.“ - jse
Samtök fjármálafyrirtækja:
Breytir starfs-
umhverfinu
GUÐJÓN
RÚNARSSON
EFNAHAGSMÁL Sigurður Einarsson,
stjórnarformaður Kaupþings,
segir unnið hörðum höndum að
því að treysta lausafjárstöðu bank-
ans í því erfiða umhverfi sem nú
ríkir á alþjóðlegum fjármálamörk-
uðum. Stefnan hafi verið sett á að
minnka bankann og efnahags-
reikning hans og eignir hafi verið
seldar síðustu tíu daga fyrir um
170 milljarða króna, einkum verð-
bréf.
Kaupþing fékk í gær fyrir-
greiðslu hjá Seðlabanka Íslands
upp á 100 milljarða króna í endur-
hverfum viðskiptum gegn veðum í
dönsku dótturfélagi sínu, FIH
bankanum.
„Ekkert liggur fyrir um sölu á
dótturfélögum okkar en margir
hafa áhuga á þeim, enda hefur
reksturinn gengið vel,“ segir Sig-
urður ennfremur, en auk FIH í
Danmörku á Kaupþing dótturfé-
lagið Singer & Friedlander í Bret-
landi. Hann segir ekkert ákveðið
um framhaldið, en nú séu engar
heilagar kýr, öll góð tilboð verði
skoðuð og allir skynsamlegir
möguleikar í stöðunni.
„Eins og staðan er nú á alþjóða-
mörkuðum er baráttan erfið og
hörð, en ég er sannfærður um að
okkur takist að halda okkar hlut
og laga okkur að breyttum aðstæð-
um,“ bætir Sigurður við.
Um þrjátíu þúsund manns eru
hluthafar í Kaupþingi. Lífeyris-
sjóðirnir eru meðal stærstu hlut-
hafa bankans, með um 15 prósenta
eignarhlut. - bih
Stjórnarformaður Kaupþings segir eignir seldar og dregið úr umsvifum:
Seðlabankalán og eignasala
hafa losað 270 milljarða króna
EFNAHAGSMÁL „Eins og öllum
öðrum er okkur brugðið vegna
þess hve atburðir hafa gerst hratt
og hve alvarleg staðan er,“ segir
Anna Karen Hauksdóttir,
varaformaður Samtaka starfs-
manna fjármálafyrirtækja.
„Bankarnir búa yfir gríðarlega
miklum mannauði og eðlilega
höfum við þungar áhyggjur af
framtíð starfa okkar félagsmanna
ef grípa þarf til mikillar hagræð-
ingar. Eðlilega eru aðgerðir
ríkisins nauðsynlegar en vonum
þó að þær verði með þeim hætti
að þær höggvi ekki skarð í hóp
okkar fólks.“ - jse
Varaformaður SSF:
Áhyggjur af
starfsmönnum
ÍÞRÓTTIR Leikmaður úrvalsdeildar-
liðs Grindavíkur í knattspyrnu
tilkynnti um það til KSÍ tveimur
dögum fyrir leik liðsins við HK
18. september síðastliðinn að
leikmaður HK hafi leitað til
leikmanns Grindavíkur með það
að augnamiði að hagræða
úrslitum leiksins. Þetta kemur
fram í tilkynningu sem Knatt-
spyrnusamband Íslands sendi frá
sér í gær.
Báðir leikmennirnir eru af
erlendu bergi brotnir. Fulltrúar
KSÍ fylgdust náið með leiknum,
sem fór eðlilega fram, en fólu
efnahagsbrotadeild Ríkislögreglu-
stjóra þó að rannsaka málið. - sh
Lögregla skoðar fótboltaleik:
Ætlaði að hag-
ræða úrslitum
GARÐAR
STEFÁNSSON
SIGURÐUR
EINARSSON
Stjórnarformaður
Kaupþings segir að
eignir verði seldar
og að dregið verði
úr umsvifum.
stigur@frettabladid.is
SPURNING DAGSINS