Fréttablaðið - 07.10.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 07.10.2008, Blaðsíða 4
4 7. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR EFNAHAGSMÁL „Ef hefði verið gerð tilraun til að bjarga gamla fjár- málakerfinu með erlendri lán- töku og því að taka fé út úr lífeyr- issjóðunum þá hefði það getað haft mun alvarlegri afleiðingar en sú leið sem ákveðið var að fara,“ segir Gylfi Magnússon, dósent í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. „Það hefði verið fullkomið glapræði og hefði þýtt að vandi hlutafélaga og eigenda þeirra hefði verið gerður að vanda ríkisins og þar með þjóðar- innar. Það hefði getað dregið niður lífskjör í landinu um ára- tuga skeið.“ Gylfi segir að það blasi við að fjármálakerfið, eins og almenn- ingur á Íslandi þekkir það, sé komið í þrot og nú standi fyrir dyrum vinna við að byggja upp nýtt fjármálakerfi frá grunni. Það verði erfitt ferli og sársaukafullt fyrir fjölda aðila og ljóst að mikið af eignum fer forgörðum. „Hins vegar skal það haft hugfast að svona fjármálakreppur eru þekkt fyrirbrigði og vel þekkt hvernig á að vinna úr þeim. Það er engin ástæða til að efast um að okkur takist það ekki, eins og öðrum.“ Gylfi segir að hinar raunveru- legu eignir samfélagsins standi eftir og hægt að halda áfram framleiðslu og þjónustu og halda uppi lífskjörum þjóðarinnar. „Lífskjör skerðast eitthvað, til dæmis verða erlendar vörur dýr- ari en það er langt frá því að þjóð- in sé að stíga skref langt aftur í tímann. Lífskjörin verða kannski nær því sem við þekktum á tíunda áratugnum.“ „Við höfum orðið fyrir bylm- ingshöggi en umfram allt þarf að verja heimilin og fyrirtækin í landinu,“ segir Ólafur Ísleifsson, prófessor við Háskólann í Reykja- vík. „Það hefur orðið gífurlegt efnahagslegt tjón og miklar eign- ir hafa fuðrað upp. Og það kemur við allan almenning.“ Ólafur segir að ekkert sé mikil- vægara nú en að heimilin í land- inu verði varin. „Lánaskuldbind- ingar eru komnar út í fáránlegar víðáttufjárhæðir, vegna falls krónunnar og verðbólgunnar, og það verður að gera fólki kleift að vinna úr þessu á mjög löngum tíma. Það sama á við um fyrir- tækin; að þau verði ekki keyrð í þrot, heldur verði þeim veitt starfsfé, eins og gert hefur verið í löndunum í kringum okkur.“ Ólafur segir að peningamála- stefnan sé komin í algjör þrot og ekki sé um annað að gera en lækka stýrivexti þegar í stað. „Vextirnir hingað til hafa verið til að halda aftur af efnahagslíf- inu. Það er ekki verkefnið lengur heldur að halda því gangandi.“ svavar@frettabladid.is Lánaskuldbindingar eru komnar út í fáránlegar víðáttufjárhæðir, vegna falls krónunnar og verðbólgunnar, og það verður að gera fólki kleift að vinna úr þessu á mjög löngum tíma. Það sama á við um fyrir- tækin, að þau verði ekki keyrði í þrot. ÓLAFUR ÍSLEIFSSON HAGFRÆÐIPRÓFESSOR VIÐ HR BREYTTUR VERULEIKI Í EFNAHAGSMÁLUM ÞJÓÐARINNAR VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Basel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 14° 14° 9° 11° 14° 18° 18° 18° 22° 16° 26° 25° 23° 19° 26° 17° 29° 22° Á MORGUN Hæg breytileg átt 3-8 m/s. FIMMTUDAGUR 10-18 m/s. 10 10 10 10 9 8 9 9 6 10 7 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 88 7 7 8 LÆGÐIR Á LÆGÐIR OFAN Núna framan af degi er töluvert vatnsveður með vindi í kortunum. Strax eftir hádegi þokast þetta til betri vegar. Á morgun verður svo skaplegasta veður en á fi mmtudag kemur ný lægð með allhvassan vind og vætu. 1010 7 7 7 Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur EFNAHAGSMÁL Geir H. Haarde for- sætisráðherra ávarpaði lands- menn laust eftir klukkan fjögur í gærdag vegna þeirra miklu erfið- leika sem nú steðja að þjóðinni. Hann rakti í stuttu máli orsakir fjármálakreppunnar og jafnaði áhrifum hennar við efnahagslegar hamfarir. Duldist engum alvara málsins enda boðaði hann að síðar um daginn yrðu sett neyðarlög. Hann sagði að í því ástandi sem skapast hefði væri of mikil áhætta fyrir ríkið að tryggja bönkunum fé. „Sú hætta er raunveruleg, góðir landsmenn, að íslenska þjóðarbúið myndi, ef allt færi á versta veg, sogast með bönkunum inn í brim- rótið og afleiðingin yrði þjóðar- gjaldþrot. Engin ábyrg ríkisstjórn teflir framtíð þjóðar sinnar í slíka tvísýnu, jafnvel þótt sjálft banka- kerfi þjóðarinnar sé í uppnámi. Til slíks höfum við, ráðamenn þjóðar- innar, ekki leyfi. Íslenska þjóðin og framtíð hennar gengur framar öllum öðrum hagsmunum.“ Geir sagði það afar brýnt að stjórnvöld jafnt sem fyrirtæki, félagasamtök, foreldrar og aðrir leiti nú leiða til að daglegt líf fari ekki úr skorðum og að verkefni stjórnvalda á næstu dögum væri að koma í veg fyrir að upplausnar- ástand skapaðist ef íslenska banka- kerfið yrði óstarfhæft. „Miklu skiptir að við sýnum bæði stillingu og yfirvegun þá erf- iðu daga sem nú fara í hönd, látum ekki hugfallast og styðjum hvert annað með ráðum og dáð. Á þann hátt, með íslenska bjartsýni, æðru- leysi og samstöðu að vopni, munum við standa storminn af okkur,“ sagði Geir. - shá Geir H. Haarde forsætisráðherra ávarpaði þjóðina vegna stöðu fjármálafyrirtækja og efnahags landsins: Þjóðin og framtíð hennar er öllu framar ÁVARPAÐI ÞJÓÐINA Geir H. Haarde for- sætisráðherra ávarpaði þjóðina í gær. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, varafor- seti ASÍ, segir að um „neyðarástand“ sé að ræða og kveðst bera kvíðboga fyrir líðan fólks vegna ástandsins. Verka- lýðshreyfingin hafi haft áhyggjur af þróuninni í efnahagslífinu og lýst sig tilbúna til að koma að lausn málsins. „Við þykjumst nokkuð viss um að nú verði miklar breytingar í samfélaginu,“ segir hún. „Við fögnum áherslum ríkisstjórnar- innar á hagsmuni almennings og fyr- irtækja því að atvinna og afkoma fólks eru aðalatriðið. Við reiknum með að í kjölfarið þurfi að hefja upplýsingastarf og sókn. Ég held að frumvarpið beri með sér að það dragi til alvarlegra tíðinda og muni kosta umtalsverðar búsifjar sem þurfi að aðstoða fólk með.“ - ghs SAMFÉLAG OKKAR MUN BREYTAST INGIBJÖRG R. GUÐMUNDSDÓTTIR „Þetta er hörmungarástand,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins. „Feikileg verðmæti tapast,“ segir hann og telur að vandinn snerti hvern einasta Íslend- ing. „Við þurfum að horfa fram á veginn og komast upp úr þessu. Það sem skiptir mestu máli er að hjól atvinnulífsins stöðvist ekki og að fólk hafi áfram atvinnu.“ Þróunin í gær kom Vilhjálmi á óvart og telur hann erfitt að segja til um hvort lagasetning ríkisstjórnarinnar dugi. Atvinnulífinu þurfi að halda gangandi og passa að fyrirtækin fái fjármagn þannig að þau stöðvist ekki. Miklu skipti að fyrirtækin verði ekki gjaldþrota og sama gildi um heimilin,“ segir Vilhjálmur. - ghs FEIKILEG VERÐ- MÆTI TAPAST VILHJÁLMUR EGILSSON Mikilvægast að verja heimilin Sérfræðingar frá stærstu háskólum landsins eru sammála um að stjórnvöld hafi valið rétta leið til að svara efnahagsvanda þjóðarinnar. Lántaka til bjargar gamla fjármálakerfinu hefði verið „fullkomið glapræði“. GYLFI MAGNÚSSON ÓLAFUR ÍSLEIFSSON HJÁLPARHÖND Lífskjör munu rýrna en sérfræðingar eru sammála um að ekkert sé mikilvægara en að halda vörð um heimilin í landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GENGIÐ 6.10.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 207,1209 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 113,99 114,53 200,38 201,36 154,91 155,77 20,765 20,887 18,494 18,602 15,832 15,924 1,1039 1,1103 173,89 174,93 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.