Fréttablaðið - 07.10.2008, Qupperneq 6
6 7. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR
BREYTTUR VERULEIKI Í EFNAHAGSMÁLUM ÞJÓÐARINNAR
Lagadeild
www.lagadeild.hi.is
Conflicts within
jurisprudence
– On disharmonies between values in law
Fundarstjóri er Ragnheiður Bragadóttir
prófessor við lagadeild HÍ
Málstofa um refsirétt
í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins
fi mmtudaginn 9. október kl. 12.15
Vagn Greve Ph.D., prófessor við Copenhagen
Business School, er einn þekktasti fræði-
maður Norðurlanda á sviði refsiréttar.
Ritaskrá hans telur hátt í 500 titla.
Hann hefur tekið virkan þátt í þjóðfélags-
umræðunni í Danmörku í áratugi.
Allir velkomnir!
Af vettvangi fræðanna:
Hefur þú tekið út fjármuni úr
banka að undanförnu vegna
efnahagskreppunnar?
Já 12%
Nei 88%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Óttast þú um starfsöryggi þitt?
Segðu skoðun þína á vísir.is
EFNAHAGSMÁL Samkvæmt frumvarpi um neyð-
arráðstafanir sem lagt var fram á Alþingi í
gær fær Fjármálaeftirlitið víðtækar heimildir
til að grípa inn í starfsemi fjármálafyrirtækja
til að takmarka tjón eða hættu á tjóni á fjár-
málamarkaði.
Fjármálaeftirlitið er íslensk ríkisstofnun
sem starfar sem eftirlitsstofnun eftir lögum
um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og
lögum um fjármálafyrirtæki. Eftirlitsskyldir
aðilar á fjármálamarkaði eru viðskiptabankar,
sparisjóðir, vátryggingafélög, vátrygginga-
miðlanir, lánafyrirtæki (fjárfestingarbankar
og greiðslukortafyrirtæki), verðbréfafyrir-
tæki, verðbréfamiðlanir, rekstrarfélög verð-
bréfasjóða og lífeyrissjóðir auk annarra aðila
sem heimild hafa til að taka á móti innlánum.
Fastir starfsmenn hjá FME í júlí 2008 voru
53; tuttugu viðskipta- og hagfræðingar, sextán
lögfræðingar, einn tryggingastærðfræðingur,
fjórir kerfis- og tölvunarfræðingar og þrír
verkfræðingar.
Stjórnarformaður FME er Jón Sigurðsson,
hagfræðingur og fyrrverandi alþingismaður
og ráðherra. Hann var bankastjóri Seðlabanka
Íslands og formaður bankastjórnar 1993-1994
og aðalbankastjóri Norræna fjárfestingar-
bankans 1994-2005. Forstjóri FME er Jónas Fr.
Jónsson lögfræðingur.
- shá
Heimildir Fjármálaeftirlitsins til að grípa inn í starfsemi fjármálafyrirtækja auknar:
Til verður valdamesta stofnun landsins
JÓNAS FR. JÓNSSON JÓN SIGURÐSSON
EFNAHAGSMÁL Félagsmálaráðu-
neytið ætlar að opna sérstakar
þjónustumiðstöðvar þar sem fólk
getur aflað upplýsinga um allt
sem snýr að breyttum veruleika í
efnahags- og fjármálum.
Í þeim getur fólk jafnframt sótt
ráðgjöf um persónuleg mál.
Bæði Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra og Björgvin
G. Sigurðsson viðskiptaráðherra
upplýstu þetta í gærkvöldi.
Margar spurningar vakna hjá
fólki í því ástandi sem nú er uppi
og kunna margir að þurfa leiðsögn
í nýjum aðstæðum.
Hafist var handa í félagsmála-
ráðuneytinu í gær við að undirbúa
starfsemi þjónustumiðstöðvanna
og ekki frágengið með hvaða hætti
starfsemi þeirra verður.
- bþs
Félagsmálaráðuneytið veitir fólki upplýsingar og ráðgjöf vegna efnahagsaðgerða:
Þjónustumiðstöðvar opnaðar
Á LANDSPÍTALANUM Víðast hvar fylgdist fólk með ávarpi Geirs H. Haarde forsætis-
ráðherra um miðjan dag í gær þegar hann boðaði rýmri valdheimildir hins opinbera
til að koma að rekstri fjármálafyrirtækja í kröggum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
EFNAHAGSMÁL Staða bankanna er í
óvissu eftir að Alþingi samþykkti
lög sem veita því ríkar heimildir
til að taka stjórn þeirra í sínar
hendur. Kaupþing hefur tryggt
sér 500 milljóna evra fyrir-
greiðslu frá Seðlabankanum, með
veði í danska bankanum FIH.
Þetta nemur um eitt hundrað
milljónum íslenskra króna.
Eftir því sem næst verður kom-
ist róa menn að því öllum árum í
Landsbankanum að tryggja sér
fjármögnun. Hins vegar munu
Landsbankamenn hafa orðið fyrir
nokkru áfalli þegar ekki var stað-
ið við loforð um lánalínur. Sigur-
jón Árnason, bankastjóri Lands-
bankans, vildi ekki tjá sig um
málið í gærkvöld, en Ásgeir Frið-
geirsson, talsmaður Björgólfs-
feðga, segir að bankinn muni
opna í dag og hann sé einn örfárra
sem enn starfi án þess að hafa
notið aðstoðar Seðlabanka.
Glitnismenn sátu á fundum
langt fram eftir í gær. Þorsteinn
Már Baldvinsson stjórnarformað-
ur neitaði að tjá sig nokkuð um
stöðu mála þegar Fréttablaðið
náði tali af honum seint í gær-
kvöld.
Þar á bæ var enn unnið út frá
því að ríkið væri orðinn eigandi
75 prósenta hlutafjár og lagasetn-
ingin hefði því ekki bein áhrif á
bankann.
Heimildir Fréttablaðsins innan
Straums herma að þar verði
venjulegur viðskiptadagur á
morgun.
,,Með lögunum á að tryggja að
séreignasparnaður og innistæður
fólks í innistæðuformi séu örugg-
ar og að bankaþjónusta verði
starfandi í landinu um ókomna
framtíð. En höggið verður tals-
vert en við megum heldur ekki
gleyma því að innviðirnir eru
traustir og langtímahorfur
jákvæðar. Við munum komast út
úr þessu,“ sagði Ágúst Ólafur
Ágústsson, formaður viðskipta-
nefndar Alþingis, þegar mælt var
fyrir áliti nefndarinnar á þing-
fundi í gærkvöldi.
Í máli Geirs H. Haarde forsæt-
isráðherra kom fram í gær að
efnahagsmálin hefðu tekið óvænta
stefnu í gærmorgun, og lánalínur
bankanna hefðu lokast. Því stæðu
Íslendingar frammi fyrir þessari
stöðu. Hins vegar yrði róið að því
öllum árum að tryggja hagsmuni
almennings, þjóðarbúsins og inni-
stæðueigenda, hugsanlega á
kostnað annarra. Aðgerðir stjórn-
valda tryggðu að bankarnir yrðu
opnir í dag.
Þá sagðist Geir við lok annarrar
umræðu á frumvarpinu fagna
samstöðu og málefnalegri
umræðu sem fram hefði farið í
fyrstu og annarri umræðu. Hann
sagðist telja að þótt allir þing-
menn myndu ekki greiða frum-
varpinu atkvæði yrði tekin ábyrg
afstaða til þess að greiða fyrir
málinu. Hann þakkaði Framsókn-
arflokknum og formanni hans
sérstaklega þann stuðning. - ikh
Óvissa ríkir enn þá
um stöðu bankanna
Kaupþing fær 500 milljónir evra að láni frá Seðlabankanum. Landsbankinn
hefur ekki óskað fyrirgreiðslu. Óvissa er um Glitni, Landsbanka og Straum.
Talsmenn bæði Landsbanka og Straums segja þar opið að venju í dag.
Í ÞINGINU Björgvin G. Sigurðsson, ráðherra bankamála, og Geir H. Haarde forsæt-
isráðherra ráða ráðum sínum á þingfundi í gær þar sem lögð voru fram ný lög um
aðgerðir í þrengingum fjármálafyrirtækja. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KJÖRKASSINN