Fréttablaðið - 07.10.2008, Side 8

Fréttablaðið - 07.10.2008, Side 8
8 7. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR BREYTTUR VERULEIKI Í EFNAHAGSMÁLUM ÞJÓÐARINNAR Bókin Hafskip í skotlínu er komin út. Höfundur er Björn Jón Bragason sagnfræðingur. Bókin er byggð á tveggja ára rannsóknarvinnu þar sem meðal annars var leitað nýrra gagna í um tuttugu skjalasöfnum og rætt við nálega fimmtíu heimildar- menn. Efni bókarinnar er lagt til grundvallar kröfu Hafskipsmanna um opinbera rannsókn á aðdraganda og eftirmálum gjaldþrots Hafskips. „Ljóst er að síðasta orðið hefur ekki verið sagt *Ragnar Kjartansson, stjórnarformaður Hafskips, þegar dómur Hæstaréttar í Hafskipsmálinu var felldur árið 1991. Útgáfufélagið Sögn “*ZEBR A ■ Ríkið má yfirtaka banka. ■ Fjármálaeftirlitinu (FME) eru veittar víðtækar heimildir til inngripa í fjármálafyrirtæki. ■ FME getur tekið yfir völd hlut- hafafunda. ■ Ef FME telur nauðsynlegt að sameina fjármálafyrirtæki þarf ekki að afla samþykkis Sam- keppniseftirlits. ■ FME getur takmarkað eða bann- að ráðstöfun fjármálafyrirtækis á fjármunum sínum og eignum. ■ FME getur krafist þess að fjármálafyrirtæki sæki um greiðslustöðvun. ■ Ákvæðum stjórnsýslulaga um andmælarétt og fleira verður vikið til hliðar við sérstakar ráð- stafanir FME sem kalla á skjót viðbrögð. ■ FME fær heimild til að grípa til sérstakra ráðstafana vegna erfiðleika annarra eftirlittskylda aðila en fjármálafyrirtækja ■ Íbúðalánasjóði er heimilt að kaupa íbúðalán fjármálafyrir- tækja. ■ Lög um yfirtökuskyldu ná ekki til ríkisins. ■ Lög um virka eignarhluta gilda ekki um ríkið. ■ Sérákvæði í kjarasamningum falla úr gildi við yfirtöku ríkisins á fjármálafyrirtækjum. ■ Ríkissjóður getur lagt sparisjóð- unum til stofnfé. ■ Lög um hámark hvers eign- arhlutar eiga ekki við í tilviki ríksins. ■ Lögin taka þegar gildi, ekki við útgáfu Stjórnartíðinda. VÍÐTÆKAR HEIMILDIR EFNAHAGSMÁL Tilgangur víðtækra lagaheimilda ríkissjóðs til aðgerða á fjármálamarkaði er að „gæta hagsmuna íslensku þjóðar- innar í hvívetna, koma í veg fyrir að þjóðin verði á skuldaklafa næstu áratugina og bjarga því sem bjargað verður miðað við núverandi aðstæður“. Þetta sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra eftir að hafa mælt fyrir frum- varpi til laga um heimild til fjár- veitingar úr ríkissjóði vegna sér- stakra aðstæðna á fjármálamarkaði. Björgvin G. Sigurðsson við- skiptaráðherra segir lögin þau róttækustu sem Alþingi hefur fjallað um. Hann kvaðst sann- færður um að ekki þyrfti að nota tiltækar heimildir í öllum tilvik- um og að hann hefði góða tilfinn- ingu fyrir að sumir bankanna myndu rífa sig í gegnum storm- inn. Lögin veita ríkissjóði og Fjár- málaeftirlitinu nánast ótakmark- aðar heimildir til inngripa í rekst- ur og starfsemi fjár málafyrirtækja og víkja til hliðar fjölda annarra laga og reglna. Aðspurðir vildu ráðherr- ar ekkert láta uppi um hvort og hvernig til stæði að nýta heimild- arnar. Engu að síður er ljóst að margvíslegar aðgerðir eru fyrir- hugaðar til að endurskipuleggja rekstur fjármálafyrirtækja. Sér- stök heimild Íbúðalánasjóðs til kaupa á fasteignalánum bank- anna er ein aðgerðin í þeim efnum. Í lögunum eru ekki reist tak- mörk við fjárútlátum ríkissjóðs vegna aðgerðanna en Geir H. Haarde sagðist vona að tjónið yrði ekki slíkt að ríkissjóður réði ekki við það. Geir sagði að á sunnudagskvöld hefðu verið uppi vísbendingar um að ástandið liti betur út held- ur en áður hefði verið talið. Í gærmorgun kom hins vegar á daginn að það var ekki að öllu leyti rétt. „Þess vegna varð að bregðast við, gera það hratt og með afgerandi hætti svo almenn- ingur skynji að það er gripið í taumana þegar svona ástand skapast,“ sagði Geir. Óhjákvæmilegt er að endur- skoða lög um starfsemi banka. Íslensku lögin eru í takt við þau sem gilda í ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins en að sögn Geirs þarf, í ljósi reynslunnar, að „setja nýjar reglur um alls kyns hluti“. Í þá vinnu verður að lík- indum ráðist fljótlega. bjorn@frettabladid.is Bjarga því sem bjargað verður Neyðarlög gera ríkinu kleift að taka fjármálafyrirtækin yfir. Fjárhæðir skuldbindinga ríkissjóðs eru ekki tilgreindar. Íbúðalánasjóður tekur yfir íbúðalán bankanna. Róttækustu lög sem Alþingi hefur fjallað um. GEIR H. HAARDE Forsætisráðherra ávarpaði þjóðina í gær og kynnti neyðarlög sem gera ríkinu kleift að taka fjármálafyritækin yfir. Hann svaraði síðan spurningum fréttamanna í fundarherbergi forsætisnefndar. Verkið fyrir aftan Geir er eftir Gud- mund Hentze og var gjöf Færeyinga á Alþingishátíðinni árið 1930. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Guðni Ágústsson, formaður Fram- sóknarflokksins, sagði mikilvægt að skapa ró og vissu og greiða úr vandamálum fólks. Greiður aðgangur að öllum upplýsing- um væri nauðsynlegur. Hann sagði ljóst að í þeim björgun- arleiðangri sem lagt væri í þyrftu öll tæki og tól að vera tiltæk. Þá rifjaði Guðni upp að framsókn- armenn hefðu oft varað við vandan- um sem nú væri uppi og gagnrýnt aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar. - bþs MIKILVÆGT AÐ SKAPA RÓ GUÐNI ÁGÚSTSSON „Þetta þurfti aldrei að fara svona,“ sagði Steingrím- ur J. Sigfússon, formaður VG. Nú væri ekki annað að gera en að lág- marka skaðann. Steingrímur sagði ljóst að margir þyrftu að axla og sæta viðskiptalegri, siðferðis- legri, lagalegri og pólitískri ábyrgð. Þá þyrfti að leita leiða til að endurheimta fjármuni sem hugsanlega hefðu verið hirtir út úr íslensku hagkerfi og fluttir til fjarlægra landa. - bþs MARGIR VERÐA AÐ AXLA ÁBYRGÐ STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON „Öll viljum við auðvitað lágmarka skaðann,“ sagði Guðjón A. Kristj- ánsson, formað- ur Frjálslynda flokksins og átaldi um leið að ríkisstjórnin hefði ekki kallað stjórn- arandstöðuna til samráðs um fyrirhugaðar aðgerðir. Hann sagði að brugðist væri við efnahagslegum hamförum og vonaðist til að hlutirnir leystust með þeim hætti að fjölskyldurnar stæðu sem best á eftir. Jafnfamt benti Guðjón á að hlut- hafar í fjármálafyrirtækjum gætu borið verulega skarðan hlut frá borði. - bþs SKAÐINN VERÐI Í LÁGMARKI GUÐJÓN ARNAR KRISTINNSSON MEÐ ÁHYGGJUR AF ÞJÓÐMÁLUM Þó nokkrir söfnuðust saman á þingpallana í gær og virtust einhverjir vera áhyggju- fullir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þess vegna varð að bregð- ast við, gera það hratt og með afgerandi hætti svo almenn- ingur skynji að það er gripið í taumana þegar svona ástand skapast. GEIR H. HAARDE FORSÆTISRÁÐHERRA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.