Fréttablaðið - 07.10.2008, Qupperneq 10
10 7. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR
SVÍÞJÓÐ, AP Þrír evrópskir vísindamenn deila með sér
Nóbelsverðlaununum í læknisfræði í ár. Nóbelsstofn-
unin í Stokkhólmi tilkynnti í gær að Þjóðverjinn
Harald zur Hausen yrði heiðraður fyrir að sýna fram
á að mannavörtuveiran (Human Papilloma Virus,
HPV) eykur líkurnar á leghálskrabbameini og
Frakkarnir Françoise Barre-Sinoussi og Luc
Montagnier fyrir uppgötvun alnæmisveirunnar í
mönnum, HIV.
Bandaríski vísindamaðurinn Robert Gallo átti í
vísindalegri deilu við Montagnier á níunda áratug
síðustu aldar um þátt hvors þeirra um sig í frum-
kvöðlarannsóknum á alnæmisveirunni og hvernig
hún veldur eyðni. Hann lét hafa eftir sér í gær að
hann væri vonsvikinn yfir því að hafa ekki verið
tekinn með í hóp verðlaunahafanna.
Zur Hausen, sem er læknir og vísindamaður í
Heidelberg, fær helming verðlaunafjárins, sem er
10 milljónir sænskra króna alls, en Frakkarnir tveir
deila hinum helmingnum.
Zur Hausen fann tvær gerðir HPV-veiru sem
valda sérstaklega mikilli hættu á myndun legháls-
krabbameins og lét vísindasamfélaginu þær í té svo
að hægt væri að þróa bóluefni sem ver konur gegn
hættunni á að sýkjast.
Bandaríska lyfjaeftirlitið vottaði árið 2006
bóluefnið Gardasil til bólusetningar stúlkna og
kvenna á aldrinum níu til 26 ára gegn leghálskrabba-
meini.
„Ég átti ekki von á þessu,“ sagði hinn 72 ára gamli
zur Hausen er AP hringdi í hann til Heidelberg í
gær. „Við erum að sötra freyðivín eins og er,“ sagði
hann.
Barre-Sinoussi er forstöðumaður veirurannsókn-
arstofnunar innan Pasteur-stofnunarinnar í París.
Hann er 61 árs. Montagnier, sem er 76 ára, stýrir
Heimsstofnun um rannsóknir á alnæmi og varnir
gegn því, sem einnig er til húsa í frönsku höfuðborg-
inni.
Á undanförnum árum hafa flestir Nóbelsverð-
launahafar í læknisfræði verið Bandaríkjamenn.
Í dag verður tilkynnt hver hlýtur Nóbelsverðlaun-
in í eðlisfræði.
audunn@frettabladid.is
Evrópumenn verðlaunaðir
Einn þýskur og tveir franskir vísindamenn, allir veirufræðingar, hljóta Nóbelsverðlaunin í læknisfræði í ár.
Þjóðverjinn fær fyrir rannsóknir á HPV-vírus en Frakkarnir fyrir uppgötvun alnæmisveirunnar, HIV.
Nóbelsverðlaun í læknisfræði
2008: Harald zur
Hausen, Þýskalandi, fyrir
að uppgötva að manna-
vörtuveiran (Human
Papilloma Virus - HPV)
eykur líkurnar á leghálskrabba-
meini. Francoise Barré-Sinoussi
og Luc Montagnier, Frakklandi, fyrir að hafa
uppgötvað alnæmisveiruna (HIV).
2007: Mario Capecchi, Oliver Smithies,
Bandaríkjunum, Martin Evans, Bretlandi,
fyrir að takast að breyta erfðaefni músa með
hjálp stofnfrumna.
2006: Ndrew Fire, Craig Mallo, Banda-
ríkjunum, fyrir að finna leið til að stýra flæði
genaupplýsinga.
2005: Barry J. Marshall, J. Robin
Warren, Ástralíu, fyrir að skilgreina hlutverk
baktería í magabólgu- og magasárssýkingum.
2004: Richard Axel, Linda Buck, Banda-
ríkjunum, fyrir rannsóknir á lyktarnemum.
HEIMILD: NOBELPRIZE.ORG
SAMFÉLAGSMÁL „Það væri nú eitt-
hvað skrýtið ef við yrðum ekki
varir við samdráttinn eins og aðrir
í samfélaginu,“ segir Stefán Örn
Einarsson, annar umsjónarmanna
endurvinnslustöðva Sorpu.
Það sem af er þessu ári hafa
26.287 tonn komið til endurvinnslu
í Sorpu sem er sex prósentum
minna en á sama tímabili í fyrra.
Eins verða þau á endurvinnslu-
stöðvunum vör við að einhverjir
sem koma fyrir eða eftir
afgreiðslutíma endurvinnslu-
stöðva losi sorpið þar fyrir utan.
„Við fáum nú milljón heimsóknir á
ári á endurvinnslustöðvarnar á
höfuðborgarsvæðinu og það eru
einhverjir örfáir sem gera þetta
en það er sama, það er of mikið,“
segir Ásmundur Reykdal rekstr-
arstjóri. Stefán Örn segir að einn-
ig komi fyrir að menn skilji fullar
kerrur sínar eftir fyrir utan en
komi síðan degi eða dögum síðar
þegar opið er og láti þá endur-
vinna sorpið.
Vernharður Jósefsson, forstöðu-
maður sorpbrennslunnar Funa á
Ísafirði, kannast einnig við það.
„Ein kerran var hérna fyrir utan
hjá okkur í tvær eða þrjár vikur,“
segir hann. Nú í vikunni þegar full
kerra var skilin eftir fyrir utan
hjá Funa birtist frétt á bb.is þar
sem Funamenn fögnuðu láni yfir
því að góðhjartaður maður hefði
skilið eftir gjöf handa þeim á plan-
inu. Sérstaklega lýstu þeir sig
ánægða með kerruna sjálfa. Dag-
inn eftir kom eigandinn og fór
með sorpið í endurvinnslu og tók
kerruna.
- jse
Minna sorp endurunnið samkvæmt tölum Sorpu:
Samdrátturinn er
einnig í sorpinu
ENDURVINNSLAN Í TONNUM
jan-sept 2008 jan-sep 2007
26.287 27.971
Mismunur: 1.684
Ágúst 2008 Ágúst 2007
3.280 4.026
Mismunur: 746
SORPIÐ SKILIÐ EFTIR Starfsmenn
sorpbrennslunnar á Ísafirði brugðu á
leik þegar þessi kerra var skilin eftir á
planinu hjá þeim.
MYND/VERNHARÐUR JÓSEFSSON
NEYTENDUR „Gamli trúðurinn og
tyggjóið hafa þjónað vel í áratugi,
en nú er komið að breytingum,“
segir Karl Thorarensen, innkaupa-
stjóri hjá Emmessís. Breytinga er
að vænta í ísvenjum Íslendinga,
en tyggjókúlan sem einkennt
hefur Tyggjótrúðinn vinsæla verð-
ur ekki lengur sett í hann heldur
annars konar sælgæti. Umbúðun-
um mun einnig verða breytt.
Að sögn Karls hefur enn ekki
verið ákveðið hvers kyns sælgæti
muni koma í stað tyggjókúlunnar.
„Hér innanhúss er fundað stíft um
málið,“ segir hann og skellir upp
úr. „Til tals hefur komið að setja
hlaupkarl af einhverju tagi í botn-
inn eða súkkulaðikúlu; það eru
margar hugmyndir á lofti. Ég hvet
viðskiptavini sérstaklega til að
láta í sér heyra varðandi þessi mál
enda hyggilegast að hafa þá með í
ráðum þegar um er að ræða vöru
sem hefur notið fádæma vinsælda
íslenskra barna í áratugi.“
Helstu ástæðuna fyrir breyting-
unum segir Karl vera ábendingar
foreldra um að tyggjókúlan geti
hrokkið ofan í háls ungra barna og
valdið skaða. Sjálfsagt sé að taka
tillit til þess konar athugasemda.
Spurður hvort um sparnaðarað-
gerðir sé að ræða segir hann svo
ekki vera. „Við spörum ekki á
þessum breytingum. Við gerum
okkur grein fyrir að um viðkvæmt
mál er að ræða, en vonum að fólk
taki nýja trúðnum vel og hann létti
lund fólks í þessu árferði.“ - kg
Emmessís ræðst í breytingar á vöru sem íslensk börn hafa notið í áratugi:
Tyggjótrúður breytir um ham
EKKERT TYGGJÓ Tyggjótrúðurinn stendur
ekki undir nafni um þessar mundir, því
tyggjókúlan hefur verið fjarlægð.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
EVRÓPUMÁL Í ályktun sem Evrópu-
samtökin sendu frá sér í gær er
skorað á „almannasamtök,
stjórnvöld og löggjafarvald að
sameinast um þá stefnu að
undirbúin verði á markvissan hátt
umsókn íslenska lýðveldisins um
inngöngu í Evrópusambandið“.
Um leið verði fyrstu skrefin stigin
í því að samræma íslenska
hagstjórn að reglum evrópska
myntbandalagsins.
Í rökstuðningi segir að við þær
aðstæður sem nú ríkja í fjármál-
um alþjóðasamfélagsins „hljótum
við að svipast um eftir banda-
mönnum við lausn þess vanda sem
þjóðarbúið nú glímir við“. - aa
Ályktun Evrópusamtakanna:
Aðildarumsókn
skuli undirbúin
1 Hver var á dögunum heiðrað-
ur fyrir framlag sitt til íslensks
sjávarútvegs?
2 Bæjarstjórn hvaða sveitarfé-
lags hafnaði leyfi fyrir alifugla-
bú?
3 Hvaða leikari frumsýnir stutt-
mynd í bíósal Kaupþings í dag?
VEISTU SVARIÐ?
GLEÐI Í RANNSÓKNARSTOFUNNI Harald zur Hausen brosir
breitt eftir að honum barst gleðifréttin frá Stokkhólmi í rann-
sóknarstofu sinni í Heidelberg. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NÁTTÚRUHAMFARIR Öflugir
jarðskjálftar urðu bæði í Mið-
Asíuríkinu Kirgistan og í Tíbet í
Himalajafjöllum, sem stjórnað er
af Kína. Minnst 72 manns fórust í
Kirgistan og 30 í Tíbet.
Báðir skjálftarnir mældust 6,6
að styrkleika samkvæmt upplýs-
ingum bandarísku jarðvísinda-
stofnunarinnar.
Upptök skjálftans í Tíbet var
um 80 km vestur af höfuðstaðn-
um Lhasa. - aa
Jarðskjálftar í Asíu:
Kirgistan og
Tíbet nötra
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á
Akureyri tók fíkniefni og tól til
fíkniefnaneyslu um nýliðna helgi.
Gerð var húsleit í tveimur
íbúðum á Akureyri. Í annarri
íbúðinni fundust tæki og tól til
fíkniefnaneyslu. Í hinni íbúðinni
var lagt hald á sex grömm af
kannabisefnum og þrjú grömm af
amfetamíni. Nokkrir voru
yfirheyrðir vegna þessara mála
en látnir lausir eftir yfirheyrslu.
Þá voru tveir karlmenn
handteknir og fannst smáræði af
kannabisefnum á báðum þeirra.
- jss
Lögreglan á Akureyri:
Tók fíkniefni
og neyslutól