Fréttablaðið - 07.10.2008, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 7. október 2008 13
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
38
90
1
0.
20
08
www.toyota.is
BETRI NOTAÐIR BÍLAR
ÚRVALSBÍLL GÆÐABÍLL
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Land Cruiser 120 GX
3000 Dísel 6 gíra
Á götuna: 06.06 Ekinn: 62.000 km
Verð: 4.870.000 kr. Skr.nr. OS-861
Toyota Yaris
1000 Bensín 5 gíra
Á götuna: 05.07 Ekinn: 19.000 km
Verð: 1.550.000 kr. Skr.nr. MU-743
Toyota Prius Hybrid
1500 Bensín/rafmagn sjálfsk.
Á götuna: 07.05 Ekinn: 55.000 km
Verð: 2.550.000 kr. Skr.nr. OU-719
BNB-sölugreining
Bílarnir ganga í gegnum strangt gæðamat sem tekur mið af aldri, akstri
og viðhaldssögu bílsins. Þeir sem standast kröfurnar lenda annað hvort
í flokknum Úrvalsbílar eða Gæðabílar. Ef bíllinn stenst ekki kröfur okkar
bjóðum við þér hann ekki.
Núna bjóðum við 6 betri notaða bíla
með 12 mánaða viðbótarábyrgð.
Toyota RAV4 VX
2000 Bensín sjálfsk.
Á götuna: 03.06 Ekinn: 33.000 km
Verð: 3.770.000 kr. Skr.nr. TY-283
Toyota Hilux
2500 Dísel 5 gíra
Á götuna: 10.06 Ekinn: 9.500 km
Verð: 3.100.000 kr. Skr.nr. JF-907
ÞÚ FÆRÐ MEIRA FYRIR
KRÓNUNA Í SUMUM BÍLUM
Toyota Corolla Sol
1600 Bensín 5 gíra MM
Á götuna: 05.07 Ekinn: 43.000 km
Verð: 2.580.000 kr. Skr.nr. UA-853
Glitnir gæti selt starfsemi
sína í Noregi á 40 til 50
milljarða króna. Bandaríski
fjárfestingarsjóðurinn
Paine & Partners hefur sýnt
áhuga á kaupunum. Kaup-
verð hlutar ríkisins í Glitni
nam um 84 milljörðum
króna. Samkvæmt heim-
ildum Markaðarins hefur
Bjarni Ármannsson haft
milligöngu í þreifingum um
kaupin.
Til athugunar hafa verið möguleg
kaup bandaríska fjárfestingar-
sjóðsins Paine & Partners á starf-
semi Glitnis í Noregi. Samkvæmt
heimildum Markaðarins gæti
mögulegt söluvirði starfseminnar
verið á bilinu 40 til 50 milljarðar
króna.
Í apríl síðastliðnum gengu til
liðs við Paine & Partners Bjarni
Ármannsson og Frank Ove Reite,
sem báðir voru áður á mála hjá
Glitni sem forstjóri og fram-
kvæmdastjóri.
Hjá Paine & Partners kjósa
menn að tjá sig ekki um viðræð-
urnar.
Samkvæmt heimildum Markað-
arins standa viðræður enn en
verði af sölunni til Paine & Partn-
ers er þó frekar búist við að salan
gangi hratt fyrir sig. Viðræðurnar
hófust núna um helgina þegar ljóst
var orðið að af hálfu stjórnvalda
væri lögð mikil áhersla á að
íslensku bankarnir léttu á erlend-
um eignum sínum. Með sölu á Nor-
egshluta starfsemi Glitnis myndi
íslenska ríkið létta verulega á
skuldbindingum sínum gagnvart
bankanum, en á mánudaginn fyrir
viku var tilkynnt um kaup ríkisins
á 75 prósenta hlut í bankanum
fyrir sem nemur 84 milljörðum
króna.
Samkvæmt heimildum blaðsins
hefur Bjarni Ármannsson haft
milligöngu um viðræðurnar, en
óvíst er um frekari aðkomu hans
að kaupnum. Þó mun ekki útlokað
að Paine & Partners geri kröfu
um að hann taki einhvern þátt í
þeim. Bjarni og Frank O. Reite
stýra fjárfestingum sjóðsins í
Norður-Evrópu. Þegar þeir gengu
til liðs við sjóðinn í apríl upplýsti
Bjarni að Paine & Partners væri
bakland og farvegur fyrir stærri
fjárfestingar en fjárfest væri úr
sjóði sem næmi tæpum 90 millj-
örðum króna.
olikr@markadurinn.is
FORSTJÓRAR GLITNIS Lárus Welding viðtakandi og Bjarni Ármannsson, fráfarandi
forstjóri Glitnis, í kveðjuhófi sem haldið var fyrir Bjarna í bankanum í júlí í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Bandaríkjamenn vilja
kaupa Glitni í Noregi
Starfsemi Nýherja hefur verið
endurskipulögð að miklu leyti.
Verður félagið framvegis móðurfé-
lag sex dótturfélaga; TM Software,
Skyggnis ehf., Sense ehf., Applicon
ehf. og ParX ehf. Þá verður nýtt
félag stofnað sem sjá mun um alla
sameiginlega þjónustu fyrir sam-
stæðuna. Stærstur hluti starfsem-
innar verður til húsa að Urðar-
hvarfi 6 í Kópavogi. Hvert
dótturfélaganna verður sérhæft á
afmörkuðu sviði þjónustu, hugbún-
aðar eða ráðgjafar. Hingað til hefur
verið sams konar starfsemi á fleiri
en einum stað í samstæðunni.
Þórður Sverrisson, forstjóri
Nýherja, segir að um verulegar
breytingar sé að ræða. Þær verði
til þess að skerpa fókus Nýherja og
þar með þjóna viðskiptavinum
félagsins og dótturfélaga þess
betur.
Ekki verða breytingar á skipu-
lagi Nýherja utan Íslands en félag-
ið á dótturfélög í Danmörku, Sví-
þjóð og Bretlandi. Hjá Nýherja á
Íslandi starfa um 550 manns og 180
manns hjá dótturfé-
lögum erlendis.
- hhs
Nýherji flytur í Kópavog
ÞÓRÐUR SVERRISSON
Breytingar hjá
Ný herja verða til
þess að bæta
þjónustuna segir
Þórður Sverrisson
Lánshæfismatsfyrirtækið Fitch
hefur lækkað lánshæfi íslenska
ríkisins um tvö stig í A-, úr A+.
Ísland er þar með komið í flokk
með Malasíu og Póllandi, einum
flokki neðar en Chile og Litháen. Í
skýrslu fyrirtækisins er ákvörð-
unin skýrð með þjóðnýtingu Glitn-
is. „Við teljum að óvissa og áhætta
tengd þjóðhagslegum stöðugleika
og lánshæfi ríkisins hafi stórlega
aukist sökum óstöðugleika fjár-
málakerfisins,“ segir í skýrslunni.
Í skýrslunni segir að frekari
lækkun lánshæfismats sé mögu-
leg, og er þar sérstaklega bent á
frekari óróa í fjármálalífi lands-
ins. Ríkið hafi sýnt að það sé tilbú-
ið til að koma fjármálalífinu til
bjargar, en stærð bankakerfisins
og erlendar skuldbindingar þess
geri að verkum að „brýn nauðsyn
sé á trúverðugum og tímanlegum
aðgerðum til að stemma stigu við
því að tiltrú á fjármálakerfi
Íslands rýrni enn frekar“. - msh
Fitch lækkar lánshæfið
Fjármálavefurinn Motley Fool
hefur oft ráðlagt lesendum að
leggja fé á Kaupthing Edge
hávaxtareikninga Kaupþings í
Bretlandi. Hækkanir á skulda-
tryggingarálagi Kaupþings og
þjóðnýting Glitnis hafa hins vegar
vakið áhyggjur sumra lesenda.
Dálkahöfundur vefjarins segir
hins litla ástæðu til að hafa áhyggj-
ur, því Kaupþing hafi brugðist rétt
við fjármálaþrengingunum.
Þá bendir hann á að reikningar
Kaupþings í Englandi séu tryggðir
af tryggingarsjóði enskra inni-
stæðueigenda, sem ábyrgist 50.000
pund á hverjum reikningi og
ræður lesendum því að treysta
Kaupþingi fyrir sparifé sínu
áfram. - msh
Edge sagt vera öruggt