Fréttablaðið - 07.10.2008, Page 16
Krakkar sem vilja læra breik
geta farið á námskeið hjá dans-
kennaranum Natöshu, en hún
kennir breik á fjórum stöðum í
Reykjavík, í Kópavogi, Garðabæ,
Hafnarfirði og á Selfossi.
Danskennarinn Natasha fæddist í
Bandaríkjunum árið 1973. Hún
ólst upp í Brooklyn í New York og
New Haven í Connecticut þar sem
hún byrjaði að dansa breikdans
aðeins 10 ára gömul. Natasha hóf
síðan að kenna dans á Íslandi árið
1998, fyrst í Dansskóla Heiðars
Ástvaldssonar og svo í Kramhús-
inu þar sem hún kennir enn í dag
auk þess að kenna á fleiri stöðum.
Þeir sem hafa áhuga á að læra
breik hjá Natöshu geta valið um
námskeið í Kramhúsinu, Árbæjar-
þreki í Árbæ, Heilsuakademíunni
í Egilshöll og Dansskóla Jóns Pét-
urs og Köru, auk þess sem hún
kennir í Kópavogi, Garðabæ,
Hafnarfirði og á Selfossi. Frekari
upplýsingar má fá á natasha.is - eö
Breikið lifir
Natasha kennir krökkum í Kramhúsinu
að dansa breik. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Nemendaþjónustan í
Álfabakka 12 veitir fólki
á öllum skólastigum
námsaðstoð í tungu-
málum og raungrein-
um. Útvegar einnig
slíka aðstoð erlendis.
www.namsadstod.is
Lifandi
talmálskennsla
Sálrænn
stuðningur
Kópavogsdeild Rauða krossins heldur námskeiðið
Sálrænn stuðningur mánudaginn 15. október kl. 17-21
í Hamraborg 11, 2 hæð.
Námskeiðsgjald: 5.000 kr. á mann.
Leiðbeinandi er Margrét Blöndal.
Innifalið er þátttökuskírteini.
Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 www.redcross.is/kopavogur opið virka daga kl. 10-16
Frekari upplýsingar fást í síma 554 6626 eða senda tölvupóst
á kopavogur@redcross.is.
Skráning er til 13. okt.
Á námskeiðinu fræðast þátttakendur um gildi sálræns stuðnings
í aðstæðum sem geta valdið áföllum. Þátttakendur læra að gera
sér betur grein fyrir eðlilegum viðbrögðum fólks sem lendir í
sársaukafullum aðstæðum og hvernig þeir geti veitt stuðning
og umhyggju.
Viðfangsefni eru meðal annars: Mismunandi tegundir áfalla;
Áhrif alvarlegra atvika á einstaklinginn; Sálræn skyndihjálp;
Stuðningur við úrvinnslu alvarlegs atviks; Sorg og sorgarferli
Frekari upplýsingar má fá með því að hringja í síma 554 6626
eða senda tölvupóst á kopavogur@redcross.is.
t i r
i fangsefni eru meðal annars: mismuna di tegundir áfalla,
á rif alvarlegra atvika á einstaklingin , sálræn skyndihjálp,
s i r við úrvinnslu alvarlegs atviks, sorg og sorgarferli.
s írt i i og námskeiðsgögn.
Frekari upplýsingar fást í sí a 554 6626 eða
með tölvupósti á kopavogur@redcross.is.
Skráning er til 13. október.
M
Auglýsingasími
– Mest lesið
Völuspá lesin yfir frumsömdu
tónverki er nýkomin út á diski.
Flytjendur eru Svanfríður Arn-
ardóttir tónmenntakennari og
Bob Paoinelli tónskáld sem búa
í Chigaco.
„Kvæði völvunnar eru 67 talsins
og tónlistin er samin við hvert og
eitt þeirra. Tilgangur útgáfunnar
er að koma Völuspá til breiðari
aldurshóps en áður og færa þenn-
an menningararf okkar Íslend-
inga nær fólki á nýstárlegan
hátt,“ segir Svanfríður Arnar-
dóttir um nýja diskinn. „Við
vonum að diskurinn verði verk-
færi í tónmenntakennslu og jafn-
vel Íslandssögukennslu barna og
að nemendur í framhaldsskólum
geti lesið Völuspá með honum og
notið tónlistarinnar um leið. Einn-
ig ætti hann að nýtast vel les-
blindum og blindum.“
Svanfríður er hornfirsk að upp-
runa en flutti til Chigaco í árs-
byrjun 2005. „Þegar ég kom hing-
að notaði ég hvert tækifæri til
að spjalla við
nágrannana. Bob og konan hans
búa í næsta húsi og ég var heppin
þegar ég kynntist þeim yfir girð-
inguna. Bob spurði margs og
áhugi hans beindist að íslensku
sögunum, fimmundarsöngnum og
fleiru í okkar menningu. Hann
hefur verið í tónlist allt sitt líf og
ákvað að semja tónverk við Völu-
spá, það heillaði hann hversu forn
hún er.“
Sjálf kveðst Svanfríður hafa
áhuga á öllu sem íslenskt er.
„Íslendingar gleyma ekki arf-
leifðinni, tungumálinu, sögunni
og tónlistinni þó þeir flytji milli
landa. Ég var svo heppin að hafa
góða íslenskukennara sem gæddu
menningararfinn lífi og þó
íslenskan í Völuspá sé frábrugðin
þeirri sem notuð er í dag þá er
hún kjarnyrt og falleg. Zophonías
Torfason kenndi mér Völuspá í
FAS og gerði það með þeim hætti
að hún gleymist ekki. Vonandi fæ
ég með þessum diski snert við
einhverjum líka.“ segir hún.
Svanfríður segir diskinn unn-
inn að öllu leyti í stúdíóinu hans
Bobs og því hafi
það lent á honum
að kosta hann og
vinna frá A-Ö. En
hvernig er hægt
að nálgast disk?
„Hann fæst núna
í Sögusetrinu á
Hvolsvelli og
hægt er að senda
pantanir á net-
fangið mitt,
swanyiceland@
comcast.net og
ég sendi disk
um hæl.
gun@frettabladid.is
Fornt kvæði
fært í nýjan búning
Kvæði völvunnar
eru 67 talsins og
er tónlistin
samin við hvert
og eitt þeirra.
TÖLVUGRUNNUR er 5 vikna námskeið sem hefst í Kvöldskóla
Kópavogs í kvöld. Tekin eru fyrir undirstöðuatriði í Windows og Word,
internetið og tölvupóstur. Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum frá
klukkan 18.30 til 20.40.