Fréttablaðið - 07.10.2008, Side 20

Fréttablaðið - 07.10.2008, Side 20
„Okkur þykir mikill heiður að Krabbameinsfélag Íslands skyldi velja Kópavogskirkju fyrir bleika litinn í ár og er stolt sóknarbarna og íbúa Kópavogs mikið að sjá kirkjuna sína upplýsta þessum fallega bleika lit. Hann minnir okkur á að leggjast öll á árarnar í baráttunni gegn brjóstakrabba- meini, og mikilvægi þess að kirkj- an taki þátt í því verkefni með stuðningi sínum og styrk,“ segir Ægir Fr. Sigurgeirsson, sóknar- prestur í Kópavogskirkju, sem þjónar innan Kársnesprestakalls. „Kirkjan stendur á fallegum stað og sést víða að en lýsingin þykir mér óskaplega falleg og vel viðeigandi að geta stutt gott mál- efni með þessum hætti. Upplýst kirkjan sýnir hvatningu og sam- kennd samferðafólks til þeirra sem eru sjúkir eða eiga um sárt að binda vegna vegna veikinda ástvina. Við fylgjumst með starf- inu daglega innan kirkjunnar og reynum að styrkja það eins og við getum,“ segir séra Ægir sem í starfi sínu tekur á móti mörgum beygðum sálum sem greinst hafa með krabbamein. „Sjúkir sækja mikið í kirkj- una. Á þriðjudögum eru reglu- legar bænastundir og þá mikið óskað eftir fyrirbænum fyrir þá sem eiga í veikindum og erfið- leikum.“ Séra Ægir segir Kópavogs- kirkju halda vel utan um þá sem hana sækja til hljóðra stunda með sjálfum sér og þeir eru margir á degi hverjum. „Sjúklingar koma einnig til að tala við prestinn einslega en mér finnst þurfa að auka aðgengi þeirra betur. Ákjósanlegt væri nánara samstarf kirkna og stoð- aðila með Krabbameinsfélag- inu um stuðning og samveru, því sjúkdómum fylgir gjarnan ein- semd þegar ástvinir fyllast van- mætti og eiga erfitt með að koma inn í breytta tilveru og ástand. Þess vegna er svo mikilvægt að sjúkir finni hlýju, samveru og stuðning í sinni baráttu.“ - þlg 7. OKTÓBER 2008 ÞRIÐJUDAGUR2 ● bleika slaufan Sláandi falleg er Kópavogskirkja lýst upp með bleikum ljósum í október og minnir á stuðning samfélagsins við krabbameinssjúka. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Samkennd og styrkur ● VISSIR ÞÚ AÐ:  Ein af hverjum tíu konum hér á landi greinist með brjóstakrabbamein einhvern tíma á ævinni.  Erfðaþættir eru taldir hafa þýðingu í um eða yfir tíu prósent brjóstakrabbameina.  Rannsóknasvið Krabbameinsfélagsins og Háskóli Íslands vinna saman að rannsóknum og kennslu í heilbrigðisvísindum.  Krabbameinsskrá rannsóknarsviðs Krabbameinsfélagsins geymir allar tiltækar upplýsingar um krabbamein á öllu landinu síðan 1955 og er þetta ein fárra slíkra skráa í heiminum sem tekur til heillrar þjóðar.  Meðalaldur kvenna sem greinast með brjóstakrabbamein er 61 ár.  Um 65 prósent kvenna á aldrinum 40-69 ára mæta reglulega í krabbameinsskoðun en takmarkið er að allar konur á þessum aldri fylgist vel með heilsu sinni og mæti í skoðun.  Brjóstakrabbamein er mun algengara í vestrænum ríkjum en í Afríku og Asíu. Sigríður Snæbjörnsdóttir, nýr formaður Krabbameinsfélags- ins, boðar áherslubreytingar í starfi félagsins sem munu styrkja og efla meðferð og varnir gegn krabbameini. Hún telur uppfærðan tækjakost leitarstöðvarinnar afar mikil- vægan. Bleikar slaufur eru seldar í þess- um mánuði til að fjármagna kaup á nýjum leitartækjum fyrir leit- arstöð Krabbameinsfélagins. „Það skiptir gríðarlega miklu máli að fá þessi tæki og koma þeim í gagnið en þau eru sérstaklega mikilvæg til að greina brjóstakrabbamein á frumstigi hjá ungum konum. Við vitum að því fyrr sem greining fæst þeim mun meiri eru batahorf- urnar. Ein af hverjum tíu konum getur fengið brjóstakrabbamein,“ segir Sigríður Snæbjörnsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Ís- lands . Tækin sem keypt hafa verið eru fimm og munu þrjú þeirra sinna hlutverki sínu í Skógarhlíð. Eitt er á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri og það fimmta er svokall- að farandtæki sem hægt verður að ferðast með um landið. Hún segir það mikið keppikefli að fá konur til að nýta sér þá frábæru aðstöðu sem leitarstöð Krabbameinsfélag- ins hefur upp á að bjóða. Þótt ís- lenskar konur hafi verið duglegar að mæta til skoðunar mættu þær vera enn duglegri. „Maður veltir því fyrir sér á þessum ólgutímum sem við búum við í augnablikinu hvort fólk leiði ekki hugann að því sem skiptir mestu máli, það er góð heilsa og hvað má gera til að við- halda henni,“ segir Sigríður. Sigríður tók við formennsku fé- lagsins síðastliðið vor og segir hún að það sé ýmislegt sem hún vilji beita sér fyrir og vill hún að Krabbameinsfélagið leggist í stefnumótunarvinnu til framtíð- ar og skýri betur fyrir hvað félag- ið á að standa. „Ég tel fulla ástæðu til þess að við horfum á þjónustu krabbameinssjúklinga á landsvísu og leggjum kapp á að straumlínu- laga alla þjónustu sem er í boði; hvort sem það eru skimanir, ráð- gjöf, rannsóknir, ummönnum eða forvarnir. Vinna með sjúkling- um fer fram víða og það er mikil- vægt að við stillum saman strengi til að koma í veg fyrir tvíverknað eða að þurfa að senda sjúklinga á marga staði eða á milli stofnana að óþörfu. Til þess að það gangi upp þarf mjög gott samstarf milla allra þeirra sem þjóna þessum sjúkling- um,“ segir Sigríður. Augljóst er að starf leitarstöðv- ar Krabbameinsfélagins, þar sem skimað er eftir leghálskrabbameini og brjóstakrabbameini, hefur reynst afar mikilvægt og vaxandi umræða er um hvort skima eigi og leita að ristilkrabbameini með svipuðum hætti. „Ég er afar fylgj- andi því og myndi vilja sjá það ger- ast á næstu mánuðum frekar en árum,“ segir Sigríður. Hún legg- ur jafnframt mikla áherslu á for- varnastarfið sem hún telur þurfa að efla til muna og þá sérstaklega í tengslum við reykingar. „Krabbamein og aðrir sjúk- dómar af völdum reykinga er það sem drepur hvað flesta í hinum vestræna heimi og því má ekkert gefa eftir í baráttunni við reyk- ingar. Það á að gera fólki erfið- ara fyrir að reykja, auk þess sem mætti selja tóbak aðeins í sérstök- um verslunum til að gera það síður aðgengilegt,“ segir Sigríður. Hún segir gríðarlegan kostnað fylgja meðferð sjúklinga sem veikjast af völdum reykinga og því telur hún að við ættum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að draga úr reykingum, því það er eitthvað sem við ættum að geta ráðið við. „Skynsamlegra er að nýta það tak- markaða fjármagn sem býðst til að takast á við hluti sem við ráðum við,“ segir Sigríður. Að lokum minnist hún á aðstand- endur krabbameinssjúklinga og leggur áherslu á að þeir megi ekki gleymast. „Krabbamein er sjúk- dómur sem hefur áhrif á alla fjöl- skylduna, ekki bara sjúklinginn.“ - keþ Þarf að stilla saman strengi „Það skiptir gríðarlega miklu máli að fá þessi tæki og koma þeim í gagnið, en þau eru sérstaklega mikilvæg til að greina brjósta- krabbamein á frumstigi hjá ungum konum,” segir Sigríður Snæbjörnsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þegar vel gengur hættir mönnum til að gleyma því að velgengnin kemur ekki af sjálfu sér. Það var engan veginn sjálfgefið á sínum tíma að ís- lenskar konur sem greindust með brjóstakrabbamein árið 2008 gætu átt von á einni bestu meðferð og mestu lífslíkum sem vænta má í öllum heiminum. Þessi árangur kom ekki af sjálfu sér. Hann má þakka elju- semi frumkvöðlanna, óbilandi dugnaði og baráttuþreki sem fljótlega leiddi til stofnunar Krabbameinsfélagsins sem tók baráttuna gegn krabbameini alvarlega. Þessi barátta var leidd áfram af djúpri þekkingu og miklum eldmóði sem smitaði frá sér um allt land. Að sjálfsögðu má að hluta til rekja þessi áhrif til þess að alvarleiki sjúk- dómsins og grimm örlög margra kvenna og fjölskyldna þeirra voru öllum ljós og því voru margir reiðu- búnir til að styðja við starfsemina. Góður árangur af starfi leitarstöðv- arinnar hefur vakið athygli víða um heim. Með sama hætti hefur starf- semi krabbameinsskrárinnar vakið heimsathygli vegna vandaðrar vinnu sem hefur skapað grundvöll að frekari þróun. Dugnaður og kraftur krabbameinsfélaganna sjálfra er ekki síður athyglisverður en mörg og stór skref í þessari þróun hafa byggst á elju og frumkvæði krabbameinsfélaganna. Nú er verið að stíga enn eitt skrefið sem mun gagnast öllum konum á Íslandi. Enn á ný er leitað til þjóðarinnar um stuðning með sölu á bleiku slaufunni. Ágóðinn verður nýttur til að taka í notkun stafræna myndgreiningu við leit að brjóstakrabbameini en það er tækni sem nú er verið að taka í notkun víða um heim. Þetta mun gjörbreyta og bæta möguleika til leitar og þar með auka möguleika íslenskra kvenna til að njóta áfram einhverrar bestu umönnunar sem þekkist í heiminum ef upp kemur grunur eða staðfesting á brjóstakrabba. Um leið og ég fagna þessu átaki og þakka frumkvæði Krabbameins- félagsins hvet ég alla til að styðja við þetta átak með því að kaupa bleiku slaufuna. Að sjálfsögðu mun ég kaupa slaufu. Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra. ÁVARP HEILBRIGÐISRÁÐHERRA: Að sjálfsögðu kaupi ég slaufu Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðis- ráðherra kaupir slaufu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Útgefandi: Krabbameinsfélag Íslands l Heimilisfang: Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík Vefsíða: www.krabb.is Netfang: krabb@krabb.is l Ritstjóri: Gústaf Gústafsson l Ábyrgðarmaður: Guðrún Agnarsdótt- ir Forsíða: Stefán Karlsson l Auglýsingar: Fréttablaðið/Hlynur Þór Steingrímsson Sími: 512 5439.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.