Fréttablaðið - 07.10.2008, Qupperneq 22
7. OKTÓBER 2008 ÞRIÐJUDAGUR4 ● bleika slaufan
Litlu munaði að bleika slauf-
an kæmist ekki til landsins fyrir
fyrsta október, en þann dag hófst
hin árlega sala hennar. Með sam-
stilltu átaki fyrirtækisins Margt
smátt, framleiðanda slaufunn-
ar í Kína og DHL komust þó allar
40.000 slaufurnar til landsins í
tæka tíð.
„Í vor var búið að samþykkja
sýnishorn af slaufunni sem var
tilbúið til framleiðslu en um mitt
sumar var ákveðið að Hendrikka
Waage kæmi inn sem hönnuður
og þá þurfti að hefja ferlið upp á
nýtt, segir Árni Esra Einarsson,
markaðsstjóri hjá Margt smátt.
„Seinni slaufan var ekki tilbúin til
framleiðslu fyrr en í lok ágúst svo
framleiðendurnir höfðu einungis
nokkrar vikur til stefnu. DHL kom
síðan slaufunum til landsins með
hraði og með samstilltu átaki var
unnið lítið kraftaverk.“
Slaufurnar komu í þremur send-
ingum og tók tvo daga að flytja
hverja um sig frá Kína um Am-
sterdam og Brussel og heim.
„Þetta er eðlilegur hraðsending-
artími hjá okkur en við erum auð-
vitað glöð yfir að hafa getað orðið
að gagni. Þá ákváðum við að styrkja
Krabbameinsfélagið og kaupa
slaufur handa öllum starfsmönnum
okkar,“ segir Atli Freyr Einarsson,
sölu- og markaðsstjóri DHL. - ve
Í röntgenmyndatökunni verður nú notuð minni pressa en áður var með tilkomu stafrænnar tækni. Viktor Sighvatsson, læknir hjá
Krabbameinsfélaginu, og Baldur F. Sigfússon yfirlæknir eru ánægðir með breytingarnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Leitarstöð Krabbameinsfélags
Íslands hefur verið breytt
umtalsvert á undanförnum
mánuðum.
„Það var verið að taka upp staf-
ræna tækni á leitarstöðinni,“ segir
Viktor Sighvatsson, læknir hjá
Krabbameinsfélagi Íslands. „Til
að setja þessar breytingar í sam-
hengi við eitthvað sem við þekkj-
um úr daglegu lífi er hægt að
taka heimilisljósmyndavélina sem
dæmi, áður fyrr voru þær með
filmum en eru núna allar stafræn-
ar.“
Að sögn Viktors felst mikil bylt-
ing í hinni nýju stafrænu tækni
leitarstöðvarinnar. „Allt ferl-
ið á leitarstöðinni er tölvuvætt.
Tölvukerfi halda utan um bókan-
irnar, svörin eru rituð í tölvukerf-
um og röntgen- og ómtæki eru
stafræn. Fyrir breytingarnar var
röntgendeildin okkar bara venju-
leg pappírs- og filmudeild eins og
verið hafði í hundrað ár en núna er
hún orðin stafræn með öllum upp-
lýsingum inni í tölvukerfi,“ segir
Viktor og bætir við að í framhald-
inu verði hægt að skipuleggja
flæðið á vinnudeginum betur.
Aðspurður segir Viktor að við-
skiptavinir leitarstöðvarinnar
muni lítið finna fyrir breyting-
unni. „Konan mun fá sömu þjón-
ustu og áður. Konurnar verða
helst varar við breytinguna í rönt-
genmyndatökunni því í henni
verður nú notuð minni pressa en
áður var vegna þess að tölvutækn-
in sem er í sjálfum röntgentækj-
unum stjórnar pressunni. Konur
upplifa þetta sem jákvæða breyt-
ingu og þá sérstaklega þær sem
eru með viðkvæm brjóst.“
Viktor segir að ráðist hafi verið í
breytingarnar vegna þess að eldra
kerfið var orðið úrelt. „Við vorum
búin að bíða lengi eftir því að stíga
þetta skref en tæknin er þó tiltölu-
lega nýleg. Við fylgjum alveg þró-
uninni úti í heimi en margar hóp-
leitarstöðvar eru að setja svona
kerfi upp núna.“
Inntur eftir áframhaldandi
þróun í tæknimálum leitarstöðv-
arinnar segir Viktor að stefnt
verði að því að konur geti í fram-
tíðinni pantað tíma á netinu. „Það
tekur samt tíma að koma þannig
kerfi upp en það kemur einhvern
tímann. Ég á þó ekki von á því að
það verði fyrr en á seinni hluta
næsta árs.“ - mmf
Leitarstöð Krabbameins-
félags Íslands endurnýjuð
Fyrir tæplega einu ári, 15. nóv-
ember 2007, var sett á laggirn-
ar ráðgjafarþjónusta fyrir þá
sem greinast með krabbamein
og aðstandendur þeirra. Þetta
er þriggja ára tilraunaverkefni
þar sem tveir starfsmenn, fé-
lagsfræðingur og hjúkrunar-
fræðingur, veita viðtöl og ráð-
gjöf ásamt fleiru.
„Ráðgjafarþjónustan er úr-
ræði sem er í boði fyrir þessa
einstaklinga en við veitum
fræðslu, upplýsingar og stuðn-
ing og erum með námskeið og
fyrirlestra,“ útskýrir Ragnheið-
ur Alfreðsdóttir, forstöðukona
ráðgjafarþjónustu Krabba-
meinsfélags Íslands.
„Öll þjónustan er skjólstæð-
ingum að kostnaðarlausu og
hér er opið alla virka daga frá
klukkan 9 til 16 og svo eru nám-
skeið og fyrirlestrar á kvöld-
in og um helgar. Hér er boðið
upp á viðtöl við sálfræðing og
tíma í djúpslökun svo eitthvað
sé nefnt.“
Ráðgjafarþjónustan er til
húsa í Skógarhlíð 8 á fyrstu hæð
leitarstöðvar Krabbameins-
félagsins. Þjónustan gefur út
dagskrá einu sinni í viku og er
í samstarfi við félög eins og
Samhjálp kvenna sem greinst
hafa með krabbamein og að-
standendur þeirra, Kraft, félag
ungs fólks sem greinst hefur
með krabbamein, Nýja rödd og
fleiri félög.
„Við sinnum líka landsbyggð-
inni, förum út á land og erum í
síma- og netsambandi við fólk
og gaman er að segja frá því
að við sinnum líka Íslending-
um sem búa erlendis. Nú erum
við að vinna í að markaðssetja
þjónustuna. Við gefum út bæk-
ling og stefnum að því að end-
urgera heimasíðuna en eins og
er erum við inni á heimasíðu
Krabbameinsfélagsins. Við
önnum þessu enn þá, en þetta
er reynsluverkefni og svo verð-
ur metið hvort þörf er á þessari
þjónustu.“ - rat
Frí ráðgjafarþjónusta
Öll þjónustan er skjólstæðingum að kostnaðarlausu, segir Ragnheiður
Alfreðsdóttir, forstöðukona ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Árni Esra Einarsson, markaðsstjóri fyrirtækisins Margt smátt, tekur við síðustu send-
ingunni úr hendi Atla Freys Einarssonar, sölu- og markaðsstjóra DHL, en einungis tók
tvo daga að flytja hana frá Kína til Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Slaufan í höfn með hjálp DHL
● VISSIR ÞÚ AÐ:
■ Árlega koma tugþúsundir kvenna í skoðun á
Leitarstöð Krabbameinsfélagsins.
■ Þvi fyrr sem brjóstakrabbamein greinist þeim
mun betri eru horfur sjúklingsins.
■ Um 90 prósent þeirra sem greinast með brjósta-
krabbamein eru á lífi fimm árum síðar. Þetta er einn besti
árangur sem um getur í baráttunni við brjóstakrabbamein.
■ Um eitt prósent brjóstakrabbameina sem greinast hér
á landi á ári hverju er í körlum.
■ Brjóstakrabbamein er algengasta krabbameinið sem
greinist hjá konum.
Mizú
S N Y R T I - N U D D O G F Ó T A A Ð G E R Ð A S T O F A
B o r g a r t ú n i 6 • 1 0 5 R e y k j a v í k • s í m i 5 5 1 1 0 5 0 • w w w . m i z u . i s
Nailogic, neglur
Gervinaglanámskeið