Fréttablaðið - 07.10.2008, Page 26

Fréttablaðið - 07.10.2008, Page 26
 7. OKTÓBER 2008 ÞRIÐJUDAGUR8 Guðrún Agnarsdóttir er forstjóri Krabbameinsfélags Íslands. Hún segir að félagið hafi ætíð starfað í samræmi við markmið sín og starfið hafi skilað miklum árangri. „Tilgangur félagsins hefur frá byrjun verið að styðja og efla bar- áttuna gegn krabbameini og það hefur félagið gert með fræðslu, rannsóknum, krabbameinsleit og stuðningi við framfarir í meðferð og umönnum krabbameinssjúk- linga,“ segir Guðrún. Hún segir starfið hafa borið góðan árang- ur og nefnir meðal annars að leg- hálskrabbameinsleitin hafi dregið verulega úr nýgengi og dánartíðni vegna sjúkdómsins og leitarstarf- ið hér hafi verið tekið sem fyr- ir mynd fyrir aðrar þjóðir af Al- þjóða heilbrigðismálastofnuninni. Ennfremur hafi leit á vegum fé- lagsins að brjóstakrabbameini með röntgenmyndatöku stuðlað að því að lifun kvenna á Íslandi eftir greiningu með brjóstakrabbamein sé með því besta sem gerist. Hún er 90 prósent eftir fimm ár og það jafnvel þó að tíðnin fari vaxandi eins og annars staðar á Vestur- löndum. Jafnframt hafi Krabba- meinsfélag Íslands lagt sitt á vog- arskálarnar með rannsóknum. Þegar fólk áttaði sig á því að Ís- land var kjörlendi fyrir krabba- meinsrannsóknir stofnaði Krabba- meinsfélagið rannsóknastofu sem unnið hefur markvert starf á al- þjóðavettvangi, meðal annars við uppgötvun BRCA2-brjóstakrabba- meinsgensins. Hún hefur nú flust yfir til Háskólans. Krabbameins- skráin er einstakt og mikilvægt gagnasafn heilbrigðisupplýsinga og rannsókna og er áfram innan vébanda félagsins. Aðhlynning krabbameinssjúkra í heimahúsum var tilraunaverk- efni Krabbameinsfélagsins sem byrjaði í smáum stíl en varð fljótt ljóst að heimahlynning var afar verðmæt þjónusta sem nú er rekin í tengslum við þjónustu Landspít- alans fyrir krabbameinssjúklinga. Áhersla hefur verið lögð á það á undanförnum árum að veita þeim sem greinast með krabbamein og aðstandendum þeirra markvissan og öflugan stuðning í sjúkdóms- ferlinu í samvinnu við starfs- fólk og stofnanir heilbrigðisþjón- ustunnar og aðra stuðningsaðila. Þessu starfi er nú sinnt af ráð- gjafaþjónustu Krabbameinsfé- lagsins. „Meðal liðsmanna Krabba- meinsfélagsins hafa löngum verið eldhugar sem með framsýnum hætti hafa fitjað upp á nýjungum sem gagnast mættu í baráttunni við þessa sjúkdóma,“ segir Guð- rún. Eftir því sem þekkingu, skiln- ingi og tækni hefur fleytt fram hefur félagið tekið að sér að þróa ýmis verkefni. Leit að krabba- meini var reynd með ýmsum hætti á fyrstu árunum og hún hefur nú verið í skipulegum farvegi með mjög góðum árangri undanfarna áratugi. Þar hefur verið leitast við að veita þá bestu þjónustu sem völ er á í takt við kröfur tímans. Því erum við einmitt að endur- nýja allan tækjakost Leitarstöðv- arinnar þannig að hann verði eins og best verður á kosið,“ segir Guð- rún. „Það er mín skoðun að félag eins og okkar sé tilvalinn vettvangur til að reyna ýmsar nýjungar og kanna hvort grundvöllur er fyrir framtíð þeirra. Þegar við höfum sýnt fram á að verkefnin eru verðmæt við- bót við þá þjónustu eða starfsemi sem fyrir er, má telja eðlilegt að ríki eða sveitarfélög taki við þeim. Það hefur oft tekið allt of lang- an tíma að ferja slík verkefni af herðum Krabbameinsfélagsins þannig að félagið geti tekist á við ný verkefni, samfélaginu til hags- bóta,“ segir Guðrún og bætir við að starf Krabbameinsfélagsins á þessum 57 árum, jafnt sjálfboða- liða sem starfsfólks, sé mikilvægt og hafi borið góðan og mælanleg- an árangur. Starfsemin er í þágu fólksins í landinu og tilvist félags- ins er undir stuðningi og velvild landsmanna komin, jafnt einstakl- inga, fyrirtækja og stjórnvalda. Það er hvetjandi og ánægjulegt í dagsins önn að finna þann velvilja og áhuga sem beinist að baráttu- málum og starfi Krabbameinsfé- lagsins. Fyrir það erum við þakk- lát. Veglegur stuðningur lands- manna við málstað okkar veitir okkur meðbyr og hvetur okkur til dáða,“ segir Guðrún. - keþ Eldhugar fitja upp á nýjungum Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, segir það hvetjandi og ánægjulegt í dagsins önn að finna þann velvilja og áhuga sem beinist að baráttumálum og starfi Krabbameinsfélagsins. fréttablaðið/Arnþór Í stað þess að fá sjálfboðaliða til að ganga hús úr húsi ákvað Krabba- meinsfélagið að fara aðra leið við sölu á bleiku slaufunni að þessu sinni. Meðal annars var leitað eftir samstarfi við fyrirtækjasvið Pennans sem tók að sér að annast sölu slaufunnar endurgjaldslaust til fyrirtækja og stofnana með frá- bærum árangri. „Við höfum haft samband við átta hundruð fyrirtæki og fjöl- mörg önnur hafa svo komið til okkar að fyrra bragði. Viðbrögðin hafa verið hreint ótrúlega góð og komu okkur skemmtilega á óvart,“ segir Bylgja Bára Bragadóttir, sölustjóri fyrirtækjasviðs Penn- ans. Hún þakkar þessar góðu við- tökur miklum stuðningi almenn- ings við málefnið og kröftugum og áhugasömum söluhópi innan Penn- ans. En það eru ekki bara starfs- menn fyrirtækjasviðs Pennans sem hafa lagst á árar með Krabba- meinsfélagi Íslands í þessu átaki því tengd fyrirtæki eins og Te og kaffi og Eymundsson hafa einnig tekið þátt í að selja bleiku slauf- una. „Pennanum er annt um heilsu þjóðarinnar og hlutfall kvenna í starfsliði fyrirtækisins er hátt. Okkur er málefnið því skylt og við vildum sýna stuðning okkar í verki,“ segir Bylgja Bára. Meðal fyrirtækja sem keyptu bleiku slaufuna fyrir tilstilli fyr- irtækjaþjónustu Pennans er Alcoa Fjarðaál. „Það þekkja allir þá mik- ilvægu þjónustu sem Krabba- meinsfélag Íslands innir af hendi í samfélaginu en félagið hefur lyft grettistaki í þjónustu við krabba- meinssjúklinga og í skipulagðri leit að krabbameini. Rannsókn- ir eru snar þáttur í baráttunni við krabbameinið og það er okkur mikil ánægja að styrkja Krabba- meinsfélagið með því að kaupa 225 slaufur,“ segir Erna Indriða- dóttir, framkvæmdastjóri samfé- lags- og upplýsingamála hjá Alcoa Fjarðaáli. Erna segir að keyptar hafi verið 225 slaufur vegna þess að það sé stefna Alcoa Fjarðaáls að þegar fram líða stundir verði konur helmingur þeirra 450 starfs- manna sem vinna hjá fyrirtækinu. Í dag eru konur tæpur þriðjungur starfsmanna en það er met innan Alcoa-samsteypunnar. Höfðu samband við 800 fyrirtæki Erna Indriðadóttir, kynningarfulltrúi Alcoa Fjarðaáls, tekur við slaufunum 225 úr hendi Guðjóns Þórs Mathiesen, framkvæmdastjóra fyrirtækjaþjónustu Pennans. Guðrún Sigurjónsdóttir, formaður Samhjálpar kvenna og Bylgja Bára Bragadóttir, sölustjóri fyrirtækjasviðs Pennans, eru til vinstri og Sigríður Snæbjörnsdóttir, for- maður Krabbameinsfélagsins til hægri. MYND/VALLI Fjölmargir stuðningshópar starfa í tengslum við Krabba- meinsfélag Íslands. Stuðningshópurinn Samhjálp kvenna er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins og ætl- aður til stuðnings konum sem greinast með brjóstakrabba- mein. Skrifstofa Samhjálparinn- ar er í Skógarhlíð 8, en hún er opin á þriðjudögum frá 14:30- 16:30. Símar eru 540 1915 og 898 1712. Vefsíða hópsins er: www. samhjalpkvenna.org Styrkur eru samtök krabba- meinssjúklinga og aðstandenda þeirra og eitt af aðildarfélög- um Krabbameinsfélags Íslands. Félagið var stofnað af krabba- meinssjúklingum sem vildu leita stuðnings frá öðrum sem reynt höfðu hið sama og miðla af eigin reynslu, svo og aðstandendum krabbameinssjúklinga og vel- unnurum sem vildu styðja mál- efnið. Kraftur er eitt af aðildafé- lögum Krabbameinsfélags Ís- lands, en meginmarkmið þess er að stuðla að velferð ungs fólks sem greinist með krabbamein og aðstandenda þess og að koma nauðsynlegum upplýsingum til þeirra. Kraftur hefur endurút- gefið bókina Lífskraftur með hagnýtum upplýsingum fyrir þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur. Virkir stuðningshópar Mynd frá grillhátíð Krafts sem er sem er stuðningshópur fyrir ungt fólk með krabbamein. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR ● VISSIR ÞÚ AÐ:  Skipulögð hópleit að brjósta- krabbameini með röntgen- myndatöku á brjóstum hófst meðal íslenskra kvenna í lok árs 1987.  Með nýju stafrænu röntgen- tækjunum gengur skoðunin hraðar og þægilegar fyrir sig en nokkru sinni fyrr.  Hjá Krabbameinsfélaginu starfar fjöldi stuðningshópa sem margir hverjir eru sniðnir að sérþörfum ákveðinna hópa, til dæmis Kraftur sem er stuðnings- hópur fyrir ungt fólk.  Í Japan, þar sem áhrifa vestrænnar menningar gætir í sívaxandi mæli, er tíðni brjósta- krabbameins að aukast.  Ráðgjafaþjónusta Krabba- meinsfélagsins veitir þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra upp- lýsingar, ráðgjöf og félagslegan stuðnin og vísar leið til sjálfs- hjálpar.  Krabbameinsfélagið á átta íbúðir í Reykjavík sem ætlaðar eru fyrir sjúklinga og aðstand- endur þeirra af landsbyggðinni sem koma til Reykjavíkur til krabbameinsmeðferðar.  Krabbameinsfélag Íslands er stofnað 27. júní 1951.  Kerfisbundin leit að krabba- meini í leghálsi og brjóstum er um- fangsmesta verkefni Krabba- meinsfé- lags Íslands. ● bleika slaufan

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.