Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.10.2008, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 07.10.2008, Qupperneq 28
 7. OKTÓBER 2008 ÞRIÐJUDAGUR10 ● bleika slaufan ÓTUKTIN Anna Pálína Árnadóttir ruddi ótroðna slóð í umfjöllun um langtímaveikindi og gaf krabbameinssjúkum hlutdeild í einstakri lífssýn sinni sem hefur verið fjölmörgum hvatning á erðum stundum. Þetta er saga um lífsgleði og sigra, um djúpa örvæntingu jafnt og hamingjustundir og bjartsýni. SKYNDIBITAR FYRIR SÁLINA Bókaokkur sem hefur slegið í gegn. Aðgengilegar bækur með uppbyggjandi skilaboðum og lausnum – sannarlega hollir skyndibitar fyrir sálina!SALKA – Lífsglatt forlagwww.salkaforlag.is Bækur sem eiga erindi Kaupþing, sem er aðalstyrkt- araðili Krabbameinsfélags Ís- lands, hefur tekið drjúgan þátt í fjármögnun nýrra tækja í leitar- stöð Krabbameinsfélagsins. En af hverju ákvað Kaupþing að styðja Krabbameinsfélag Íslands? „Kaupþing tekur þátt í samfé- laginu með ýmsum hætti og styð- ur við hin ýmsu málefni. Krabba- meinsfélagið hefur að sönnu notið mests stuðnings enda er starf Krabbameinsfélagsins afar mik- ilvægt og við teljum að baráttan gegn þessum vágesti sé þjóðfé- laginu til heilla í margvíslegum skilningi,“ segir Benedikt Sig- urðsson, upplýsingafulltrúi hjá Kaupþingi Stuðningur Kaupþings við Krabbameinsfélagið er eðli máls- ins samkvæmt einkum í peninga- styrkjum. „En við höfum einn- ig tekið þátt í auglýsingum fyrir Krabbameinsfélagið og stutt safn- anir á þeirra vegum. Á dögunum gengu til dæmis nokkur hundruð starfsmenn bankans á Esjuna til styrktar átakinu Á allra vörum. Bankinn hét ákveðinni fjárhæð á hvern starfsmann og fjölskyld- ur þeirra sem mættu til göngu. Peningarnir voru síðan afhent- ir forsvarsmönnum söfnunarinn- ar,“ útskýrir Benedikt ánægður og bætir við: „Við lítum á það sem eina af skyldum okkar að styðja gott málefni og ég hugsa nú að flest fyrirtæki séu þannig þen- kjandi. Stuðningur fyrirtækja og einstaklinga er oft á tíðum stór hluti af rekstrarfé ýmissa sam- taka. Ég sé það ekki breytast þótt mismunandi sé frá einu ári til annars hversu miklu er varið til styrkja. En samfélagsþátttaka bankans verður ætíð til staðar.“ Barátta sem er þjóðfélaginu til heilla Benedikt Sigurðsson, upplýsingafull- trúi Kaupþings, segir Kaupþing styðja dyggilega við baráttu Krabbameinsfé- lagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN NTC styrkir Krabbameinsfé- lagið með sölu á sérhönnuðum stutt ermabolum tileinkuð- um átaki Bleiku slauf- unnar. „Krabbameins- félagið kom til fundar við okkur í byrjun árs og ákváðum við að styrkja átakið með ein- hverjum hætti,“ segir Svava Johansen, forstjóri NTC. „Við fengum hönnuð- inn Sylvíu Dögg Halldórs- dóttur í lið með okkur og datt henni í hug að gera bol með mynd af Vigdísi Finnbogadótt- ur, verndara Krabbameinsfé- lagsins, en hún hefur sigrast á brjóstakrabbameini. Myndin á bolnum er frá því Vig- dís tók við embætti en hún var fyrsti kvenforseti heims og er því sterkur kvenleiðtogi sem við vild- um einnig leggja áherslu á.“ Bolirnir fást í svörtu og hvítu og bæði í kvenna- og karlastærð- um. Þeir kosta 3.500 krónur og verða til sölu í öllum versl- unum NTC. Allur ágóði af sölu þeirra renn- ur óskiptur til Krabba- meinsfélagsins. „Við byrjuðum að selja bolina 1. októb- er og ruku þeir hrein- lega út, segir Svava, glöð í bragði. - ve Bleika slaufan á bol Svava ásamt starfsfólki NTC fyrir utan Sautján á Laugavegi. Hönnuður bolanna, Sylvía Dögg Halldórsdóttir, hefur málað bleika slaufu á búðargluggann og verður hún ekki fjarlægð fyrr en allir bolirnir eru seldir. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR ● VISSIR ÞÚ AÐ:  Leit að krabbameini í leghálsi og brjósti nær til allra kvenna á aldrinum tuttugu ára til sjötugs.  Krabbameinsleit Krabbameinsfélagsins fer einnig fram á rúmlega fjörutíu heilsugæslustöðvum og sjúkra- húsum utan höfuðborgarsvæðisins.  Í árslok 2006 voru yfir tvöþúsund konur á lífi sem greinst höfðu með brjóstakrabbamein einhvern tíma á ævinni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.