Fréttablaðið - 07.10.2008, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 07.10.2008, Blaðsíða 30
 7. OKTÓBER 2008 ÞRIÐJUDAGUR12 ● bleika slaufan Hinn 1. október kom á mark- að bleikur Toppur til styrktar söfnunarátaki Krabbameins- félagsins, bleiku slaufunni. „Hugmyndin um samstarf Toppsins og bleiku slaufunn- ar kom eigin- lega til af beggja hálfu,“ segir Rannveig Hrönn Brink, vöru- merkjastjóri hjá Vífilfelli. „Við höfð- um verið að skoða mögu- leika okkar á því að styrkja bleiku slauf- una með því að setja á mark- að nýjan Topp og á svipuð- um tíma komumst við að því að Krabba- meinsfélag- ið hafði áhuga á að fá okkur í samstarf með sér. Þetta small þannig allt saman og úr varð þessi hindberjatoppur sem nú er kominn á markað og renn- ur hlutfall af sölu drykkjarins til tækjakaupa fyrir leitarstöð Krabbameinsfélagsins.“ Vífilfell hefur verið leið- andi í nýjungum á vatnsmark- aði á undanförnum árum og hafa íslenskir neytendur tekið þeim vel. „Við ákváðum því að framleiða nýja bragð- tegund, hindberjabragð, sem ekki hefur fengist á íslenska vatnsmarkaðnum áður. Við vonum að Íslendingar taki drykknum vel og styðji um leið við hina brýnu starfsemi Krabbameinsfélagsins,“ segir Rannveig að lokum. Bleikur Toppur Bleika slaufan kostar 1.000 krónur og dagana 1.-15. októb- er verður hægt að kaupa hana hjá eftirtöldum fyrirtækjum sem selja slaufuna án álagn- ingar: Kaffitár Te & kaffi Eymundsson Frumherji Samkaup Lyfja Lyf og heilsa Lyfjaval Hreyfill/Bæjarleiðir Þetta er í fyrsta sinn sem bleika slaufan er hönnuð af skartgripahönnuði og á Hendrikka Waage heiðurinn að henni. Sölustaðir slaufunnar Meðal þeirra sem taka þátt í að selja bleiku slaufuna í ár er Tanni auglýsingavörur. Tanni gefur á hverju ári út bæklinginn „Jólagjaf- ir fyrirtækja“ sem er dreift í öll fyrirtæki í landinu. Að þessu sinni verður skartútgáfa bleiku slaufunnar, sem Hendrikka Waage hann- aði fyrir Krabbameinsfélag Íslands, meðal jólagjafa sem hægt verð- ur að panta í gegnum Tanna. Þar verður þó einungis um takmarkað upplag að ræða því þessi útgáfa slaufunnar seldist upp strax á fyrstu dögum söluátaksins í október. Takmarkað upplag slaufu Hér afhendir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, sölustjóri hjá Tanna auglýsingavörum, Guðrúnu Agnarsdóttur, forstjóra Krabbameinsfélagsins, eintak af jólagjafabæk- lingnum í ár. MYND/TANNI AUGLÝSINGAVÖRUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.