Fréttablaðið - 07.10.2008, Page 39
ÞRIÐJUDAGUR 7. október 2008 19
Sagan af Janis Joplin hentar í raun
illa til dramatískrar frásagnar.
Hún var söguleg persóna í þröngu
samfélagi tónlistarmanna sem
lifðu tilbreytingarlitlu og heldur
nöturlegu lífi áður en verulegt
fjármagn var komið inn í tónlist-
arbransann. Þótt hún væri litríkur
persónuleiki um margt, kjaftfor,
sauðdrukkin flesta daga og karls-
öm í betra lagi, var hún ekki áber-
andi á nokkru átakasviði. Hún til-
heyrði í raun dreggjunum af
bítkynslóðinni, áhugasöm um
þjóðlagamúsík og blús rétt eins og
margir af þeim sem voru henni
samtíða í San Francisco, Pig Pen í
Grateful Dead og Jorma Koukon-
en, sem síðar fór að vinna í Jeffer-
son Airplane. Þessi deigla var und-
arleg blanda og aðsetur þessara í
Height Ashbury var tilkomið
vegna lágrar leigu. Þegar George
Harrison kom í fræga heimsókn á
þær slóðir 1967 lýsti hann hverf-
inu sem Skid Row – bísanum eins
og það var kallað, eymdarhverfi
drykkjusjúklinga, dópista og utan-
garðsmanna.
Áhugi á sögu Joplin fyrir svið
mun tilkominn í hópi miðaldra
leikara sem kynntust þessum
þremur plötum Joplin eftir að hún
var látin. Ólafur Haukur og Stefán
Baldursson fara um hana fögrum
orðum í leikskrá og tala um hana
sem orkugjafa á árunum um 1970.
Margir voru á ferli á svipuðum
tíma sem voru ekki síðri lista-
menn: tökum sem dæmi Grace
Slick sem enn er á lífi og var
áhrifamikil söngkona í Jefferson
Airplane og síðar Starship. Ætli
ferill Joplin hefði ekki orðið keim-
líkur hennar, útvatnast í meðferð-
um og líkamlegri og andlegri
hrörnun hefði henni auðnast líf –
hún var nú búin að vera sprautu-
fíkill í langan tíma þegar hún dó.
Það er því innbyggð inn í þessa
leiksýningu í Óperunni einhvers
konar dýrkun sem er barnaleg og
háskalega blind á staðreyndir.
Raunar er sviðsetning Sigurðar
Sigurjónssonar snotur að flestu:
Ilmur og Bryndís eru einar á svið-
inu, önnur syngur hin talar, Brynd-
ís skýst síðan í smárullur eftir því
sem þarf. Hún er afbragðssöng-
kona og bandið þétt að baki henni.
Ilmur er sannfærandi í hlutverk-
inu svo langt sem það nær, þetta
hlutverk er einföld og fægð mynd
af ungri konu sem var miklu verr
stödd en hér er lýst. Lausnir Finns
og Páls eru skynsamlegar í þröngu
rýminu: búningar Þórunnar eru
stíllega bundnir við síðustu þrjú
misserin í lífi Janis sem miðar
reyndar að því að styrkja hippa-
myndina, sem er að sumu leyti
rangt.
Eitt atriði varðandi tónlistar-
flutninginn sem Jón Ólafsson ber
ábyrgð á og ætti að standa honum
nærri: hvar er Hammondinn sem
er grundvallarhljóðfæri í þessari
tónlist? Eru menn að skjóta sér
undan kostnaði við flutning á
þungu hljóðfæri milli sýningar-
daga? Það er snautlegt að heyra
þessar útsetningar sem eru nánast
eftirhermur að ekki skuli vera
notaður hinn sterki hljómblær
Hammondsins.
Þessi sýning er næst því að vera
svipuð skemmtiprógrömmum sem
Ólafur Laufdal efndi til lengi á
Broadway, skemmtiprógrömm
fyrir fólk sem vill lyfta sér upp
með mat í maga og hressingu í
tánni. Sem leiksviðsverk er hún í
daufara lagi, tónlistarlega er hún
vel frambærileg og þeir sem unna
þessum fjörutíu, fimmtíu hljóðrit-
unum sem til eru frá ferli Joplin
verða ekki sviknir af þeirri lituðu
og björtu mynd sem dregin er upp
af lífi hennar og ferli í Gamla bíói.
Páll Baldvin Baldvinsson
Fallega myndin af Janis
LEIKLIST
Janis eftir Ólaf Hauk
Símonarson.
Tónlist eftir ýmsa.
Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson.
Búningar: Þórunn Elísabet Sveins-
dóttir.
Lýsing: Páll Ragnarsson.
Leikstjóri: Sigurður Sigurjónsson.
★★
Rýrt verk með dúndurmúsik
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 07. október
➜ Fyrirlestrar
12.00 „Tískuþrælar og frjálsir
menn“ og „Áhrif fatnaðar á jafn-
réttisbaráttu kynjanna“ Fyrirlestrar
í húsnæði Hönnunar- og arkitektúra-
deild, Skipholti 1. Þessi viðburður er
hluti af Kynjadögum í Listaháskóla
Íslands.
➜ Ljósmyndasýningar
Gegnumbrot Sólný Pálsdóttir sýnir
ljósmyndir í Listasal Saltfisksetursins,
Hafnargötu 12a, Grindavík. Sýningin
stendur til 20. okt. og er opin alla
daga frá 11.00-18.00.
➜ Myndlist
Picasso á Íslandi Styttan
„Jacqueline
með gulan
borða“ eftir
Picasso er til
sýnis á Listasafni
Árnesinga ásamt
verkum 26
íslenskra lista-
manna þar sem
gætir áhrifa frá
listamanninum.
Listasafn Árnesinga, Austurmörk 21,
210 Hveragerði. opið fim.-sun. 12.00-
18.00 og aðgangur ókeypis.
Hvaðan koma þær - hvert eru þær
að fara? Guðmunda Kristinsdóttir
sýnir í Reykjavík Art Gallery, Skúlagötu
30. Sýningin stendur til 18. okt. og er
opin alla daga nema mánudaga kl.
14.00-17.00
Hallur Karl Hinriksson er með
sýningu í Gallerí Fold, Rauðarárstíg
14. Sýningin stendur til 19. okt. og
er opin alla virka daga frá kl. 10.00-
18.00, lau. kl. 11.00-16.00 og sun. kl.
14.00-16.00.
Boom boom og byssó Georg Óskar
Manúelsson sýnir á Café Valný,
Miðvangi 2-4, Egilsstöðum. Sýningin
er opin alla daga til kl. 18.00.
➜ Viðburður
Suður-amerísk menningarhátíð í
Kópavogi
12.00 Leiðsögn um sýning-
una Ekvador að fornu og nýju í
Gerðarsafni, Hamraborg 4.
17.15 Ekvadorska kvikmynd-
in Que tan lejos (Svo miklu
fjær) eftir Tania Hermida er sýnd í
Kórnum, sal Safnahúss Kópavogs,
Hamraborg 6a.
20.00 Kvikmyndirnar Que tan
lejos (Svo miklu fjær) eftir Tania
Hermida og 1809-1810 Mientras
Ilega el día (Mínútum fyrir dagrenn-
ingu eftir Camilo Luzuriaga verða
sýndar í Molanum, menningar- og
tómstundamiðstöð ungs fólks í
Kópavogi, Hábraut 2.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is