Fréttablaðið - 07.10.2008, Qupperneq 43
ÞRIÐJUDAGUR 7. október 2008 23
FÓTBOLTI Afrek Heimis Guðjóns-
sonar, að gera FH-liðið að Íslands-
meisturum á sínu fyrsta ári sem
meistaraflokksþjálfari, er allt
annað en daglegt brauð í nútíma-
fótbolta. Það þarf reyndar að fara
aftur til september 1969 til þess að
finna þann sem afrekaði slíkt síð-
ast en þá var Heimir sjálfur aðeins
nokkurra mánaða gamall.
Hólmbert Friðjónsson varð
óvænt þjálfari Keflavíkurliðsins
1969. Liðið hafði árið á undan
endað í neðsta sæti deildarinnar.
Hólmbert hafði þjálfað yngri
flokka í Keflavík frá því hann
sjálfur varð að leggja skóna á hill-
una vegna meiðsla og var þáver-
andi vallarstjóri knattspyrnuvall-
arins í Keflavík. Keflavík náði
aðeins einu stigi út úr fyrstu
tveimur leikjunum en þá gjör-
breytti Hólmbert liðinu og liðið
blómstraði.
„Kjarni liðsins sem hafði spilað
með mér var þannig að ég þekkti
mjög vel til flestra leikmanna því
ég hafði þjálfað þessa yngri. Menn
voru farnir að eldast og ég færði
menn til í stöðum út frá þáverandi
ástandi þeirra. Ég breytti mikið
miðjunni því ég setti tvo svaka-
lega jaxla þangað sem höfðu verið
í öðrum stöðum áður. Þetta voru
þeir Karl Hermannsson, lögreglu-
stjóri í Keflavík, og Grétar Magn-
ússon. Þeir voru síðan lands-
liðs tengiliðirnir þegar Ísland vann
Austur-Þýskaland 1975. Karl var
kantmaður áður en Grétar var
meira bakvörður,“ segir Hólmbert
sem færði fleiri menn til.
„Það var dálítið átak því menn
voru ekki alveg sáttir við að fara
úr sínum gömlu stöðum,“ rifjar
Hólmbert upp. Hann segist vera
mjög stoltur af þessu sumri. „Ég
er mjög stoltur af því að hafa náð
því að gera liðið að meisturum en
ekki síður af því að í leiðinni var
lagður grunnur að liðinu sem síðar
varð Íslandsmeistari 1971 og
1973,“ segir Hólmbert sem þjálf-
aði þó ekki Keflavíkurliðið þau
sumur.
Hólmbert segist hafa átt von á
því að FH myndi vinna titilinn.
„Það var eitthvað í mér sem sagði
mér það. Í síðustu leikjunum hjá
FH þá voru þeir á uppleið eftir að
hafa verið slegnir aðeins niður. Þó
að Keflavíkurliðið hafi spilað vel
þá voru þeir að spila á móti Fram
sem voru með undirliggjandi tón
um að þeir yrðu erfiðir,“ segir
Hólmbert.
Hólmbert segir Evrópukeppn-
ina og leikina við Aston Villa hafa
átt mikinn þátt í því að koma FH-
ingum aftur á skrið. „Um tíma
virtist vera sem þeim ætlaði að
hlekkjast á en síðan fóru þeir í
Evrópukeppnina og þá var það
tvennt sem mér fannst koma til
greina. Annaðhvort yrðu þeir of
þreyttir og myndu ekki klára þetta
á þeim forsendum eða þeir myndu
komast í annan gír. Það virtist í
restina vera eins og það hafi bara
hjálpað þeim að spila á móti góðu
liði eins og Aston Villa,“ segir
Hólmbert.
Það er magt líkt með þeim
Heimi og Hólmberti og þeirra
fyrsta ári. Þeir þekktu báðir leik-
menn sína vel eftir að hafa bæði
spilað með þeim og umgengist þá í
nokkur ár á undan. Hólmbert var í
Íslandsmeistaraliði Keflavíkur
1964 en varð að hætta vegna
meiðsla og Heimir varð Íslands-
meistari með stórum hluta FH-
liðsins 2004 og 2005 auk þess að
vera síðan aðstoðarþjálfari liðsins
tvö næstu ár á undan.
Það vekur líka nokkra athygli að
bæði Hólmbert og Heimir skiptu
um markvörð á miðju tímabili
með góðum árangri. Hólmbert tók
hinn 18 ára gamla Þorstein Ólafs-
son inn í Keflavíkurliðið í þriðja
leik mótsins og Heimir setti Gunn-
ar Sigurðsson í mark FH þegar
Daði Lárusson meiddist og hélt
síðan tryggð við hann út tímabil-
ið.
„Heimir er búinn að vera þarna
í FH í langan tíma, þekkir menn-
ina út og inn og veit hvað þeir
geta,“ segir Hólmbert um Heimi
sem hann kynntist aðeins þegar
hann var að þjálfa KR á sínum
tíma og Heimir var stórefnilegur
knattspyrnumaður í 3. flokki. „Ég
þjálfaði hann ekki beint. Ég þjálf-
aði KR í þrjú ár og hann var þá í 3.
flokki ásamt fleiri ungum og efni-
legum leikmönnum eins og Rúnari
[Kristinssyni] og fleirum. Hann
var svo bráðþroska og stór og fékk
stöku sinnum að spila með b-liðinu
í Reykjavíkurmótinu og svoleiðis.
Hann var ekki mikið á æfingum
hjá mér,“ segir Hólmbert.
Aðrir þekktir þjálfarar sem
hafa byrjað meistaraflokksþjálf-
araferil sinn á meistaralegan hátt
eru meðal annars Ríkharður Jóns-
son sem gerði Skagamenn að
meisturum í fyrsta sinn 1951 sem
spilandi þjálfari og Guðmundur
Jónsson sem gerði Fram að meist-
urum 1962 en félagði hafði þá ekki
unnið titilinn í fimmtán ár.
ooj@frettabladid.is
Heimir fetaði í fótspor Hólmberts
Heimir Guðjónsson varð fyrsti þjálfarinn í 39 ár sem gerir lið að Íslandsmeisturum á sínu fyrsta ári. Það
hafði ekki gert síðan Hólmbert Friðjónsson gerði Keflavíkinga að meisturum 1969 þá aðeins 28 ára gamall.
FRÁBÆR BYRJUN Heimir Guðjónsson stóð sig frábærlega á sínu fyrsta ári. Hér er
honum fagnað af stuðningsmönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EINSTAKIR KAPPAR Hólmbert Friðjónsson og Heimir
Guðjónsson saman í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HEIMIR GUÐJÓNSSON
39 ára
Íslandsmeistari sem leikmaður
2004 og 2005 með FH
Íslandsmeistari sem þjálfari
2008 með FH (39 ára)
HÓLMBERT FRIÐJÓNSSON
67 ára
Íslandsmeistari sem leikmaður
1964 með Keflavík
Íslandsmeistari sem þjálfari
1969 með Keflavík (28 ára)
MEISTARAR Á FYRSTA ÁRI
MEÐ LIÐ FRÁ 1995
Heimir bætist í hóp þjálfara sem hafa
á síðustu árum orðið meistarar á sínu
fyrsta ári með lið þótt að það hafi ekki
verið þeirra fyrsta tímabil í efstu deild.
Heimir Guðjónsson FH 2008
Willum Þór Þórsson KR 2002
Pétur Pétursson KR 2000
Bjarni Jóhannsson ÍBV 1997
Logi Ólafsson ÍA 1995
FÓTBOLTI Guðrún Sóley Gunnars-
dóttir, lykilmaður í vörn íslenska
kvennalandsliðsins, meiddist í
æfingaleik Vals og landsliðsins á
föstudaginn.
„Það eru ein meiðsli í hópnum
því Guðrún Sóley er með tognuð
liðbönd í ökkla,“ sagði Sigurður
Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálf-
ari spurður um stöðuna á leik-
mönnum landsliðsins.
„Guðrún missteig sig í leiknum
á móti Val og sneri upp á ökklann.
Hún er í sjúkraþjálfun og ég á von
á því að hún verði búin að ná sér
eftir viku til tíu daga,“ sagði lands-
liðsþjálfarinn en Guðrún er eini
leikmaðurinn sem hefur byrjað
alla landsleiki undir hans stjórn.
- óój
Kvennalandsliðið í fótbolta:
Guðrún Sóley
meidd á ökkla
MIKILVÆG Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
hefur byrjað síðustu tuttugu A-landsleiki
kvenna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Það gustar um Juande
Ramos, knattspyrnustjóra
Tottenham, þessa dagana. Spurs
situr á botni ensku úrvalsdeildar-
innar og hefur ekki byrjað eins
illa í deildinni í 96 ár. Síðasta
niðurlægingin var 1-0 tap gegn
spútnikliði Hull.
Ramos er þó ekki á því að
gefast upp.
„Þetta er mín vinna og mitt
verk að koma liðinu í gang.
Viðhorf leikmanna er jákvætt
þrátt fyrir erfiðleikana,“ sagði
Ramos sem tekur ekki í mál að
segja upp.
„Þegar ég tala við mína menn
heyri ég ekki annað en allir séu
staðráðnir í að snúa þessu gengi
við. En þegar við skorum engin
mörk er erfitt að vinna leiki.“
Spurs hefur aðeins tvö stig
eftir sjö leiki og hefur skorað
fjögur mörk í þessum sjö leikjum.
- hbg
Juande Ramos:
Íhugar ekki
afsögn
JUANDE RAMOS Ætlar að berjast áfram.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Eimskipsbikar karla:
Valur-HK 27-26 (16-12)
Mörk Vals: Baldvin Þorsteinsson 8, Elvar Friðriks-
son 8/2, Ingvar Árnason 6, Arnór Gunnarsson 2,
Sigurður Eggertsson 2, Hjalti Pálmason 1.
Varin skot: Pálmar Pétursson 18/1, Ólafur
Haukur Gíslason 4.
Mörk HK: Valdimar Fannar Þórsson 6/5, Ólafur
Bjarki Ragnarsson 5, Ásbjörn Stefánsson 4, Einar
Ingi Hrafnsson 4, Gunnar Steinn Jónsson 3, Jón
Björgvin Pétursson 3, Bjarki Már Gunnarsson 1.
Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 17/2.
ÚRSLIT
HANDBOLTI Bikarmeistarar Vals
komust í 16 liða úrslitin í gær með
naumum en sanngjörnum sigri á
HK, 27-26. Valsmenn höfðu tögl og
hagldir í leiknum en HK skoraði
síðustu fjögur mörk leiksins og
fékk tækifæri til að jafna en leik-
menn liðsins voru klaufar og köst-
uðu boltanum út af.
Það var engu líkara en HK ætl-
aði að rúlla yfir Val í upphafi leiks
en þeir mætti gríðargrimmir til
leiks. Í stöðunni 6-10 sögðu Vals-
menn hingað og ekki lengra. Pálm-
ar hrökk í gang í markinu og vörn
Vals small í gírinn. Valur skoraði
sjö mörk í röð, komst yfir 13-10 og
leit í raun aldrei til baka.
Valur hafði þægilega forystu
nánast allan síðari hálfleikinn en
gaf eftir undir lokin og Valsmenn
að vissu leyti heppnir að HK skyldi
ekki jafna því liðið fékk tækifæri
til þess.
„Við byrjuðum frábærlega en
svo fór allt í baklás. Við sýndum
karakter, komum til baka og það
var sorglegt að kasta boltanum út
af þegar við hefðum getað jafn-
að,“ sagði HK-ingurinn Sverre
Jakobsson hundsvekktur í leiks-
lok. „Við vorum klaufar og mér
fannst við gefa Val þennan leik.“
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálf-
ari Vals, var að vonum kátur en
strákarnir hans halda áfram að
blómstra þrátt fyrir áföll og
meiðsli lykilmanna.
„Þetta var sveiflukennt og ég
hélt að þeir ætluðu að valta yfir
okkur í byrjun. Þegar Pálmar ver
síðan kemur vendipunktur hjá
okkur. Við komumst síðan í gang
með hraðaupphlaup og hraða
miðju. Við erum ríkjandi bikar-
meistarar og viljum að sjálfsögðu
komast í Höllina,“ sagði Óskar
Bjarni. - hbg
Stórleikur 32 liða úrslita Eimskipsbikars karla fór fram í gær er bikarmeistarar Vals lögðu HK, 27-26:
HK réð ekki við Pálmar og sterka vörn Vals
SILFURDRENGIR Sigfús Sigurðsson og Sverre Jakobsson tókust á þegar Valur lagði HK
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON