Fréttablaðið - 07.10.2008, Síða 46
26 7. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. pest, 6. samanburðart., 8. sauða-
garnir, 9. skarð, 11. þurrka út, 12.
framrás, 14. ránfugl, 16. kveðja, 17.
aðstoð, 18. púka, 20. fyrir hönd, 21.
sleit.
LÓÐRÉTT
1. land í S-ameríku, 3. tveir eins, 4.
gufuskip, 5. gapa, 7. nýta, 10. af, 13.
fiskur, 15. innyfla, 16. ull, 19. tvíhljóði.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. kvef, 6. en, 8. vil, 9. rof,
11. má, 12. útrás, 14. fálki, 16. hæ, 17.
lið, 18. ára, 20. pr, 21. rauf.
LÓÐRÉTT: 1. perú, 3. vv, 4. eimskip,
5. flá, 7. notfæra, 10. frá, 13. áll, 15.
iðra, 16. hár, 19. au.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 10.
1. Kristján Ragnarsson.
2. Ölfuss.
3. Benedikt Erlingsson.
„Búkolla, sem er pitsa með
bernaise-sósu, nautakjöti,
frönskum og osti, er snilldin
ein. Sérstaklega er Búkollan á
Greifanum massíf.“
Baldvin Esra Einarsson, útgefandi hjá
Kimi Records á Akureyri.
Vegleg umfjöllun verður um fata-
hönnuðinn og tískuteiknarann
Hildi Björk Yeoman í nýjasta hefti
tímaritsins Vogue í Portúgal. Blaða-
maður tímaritsins sá einkasýningu
Hildar Bjarkar í versluninni Kron-
kron á Laugavegi og leist rosalega
vel á það sem fyrir augu bar. „Hann
ætlar að hafa ítarlega umfjöllun
um þetta í blaðinu og fullt af mynd-
um. Þetta er ótrúlega gaman,“
segir Hildur, sem viðurkennir að
um mikinn heiður sé að ræða.
Eftir útskrift frá Listaháskóla
Íslands hefur Hildur gert fjölda
tískuteikninga fyrir hin og þessi
fyrirtæki, þar á meðal Thelmu-
design, breska undirfatamerkið
Lascivious, undirfataverslunina
Systur og tískuvöruverslunina Tril-
ogiu. Hún hannar einnig heklaðar
töskur úr nótagarni og silkiflauels-
klúta sem hún selur í Kronkron.
Ein töskutegundin er eins og púðlu-
hundur í laginu og hefur hún vakið
mikla athygli. „Það er dálítið fynd-
ið að vera „decadent“-tösku úr síld-
arnótagarni,“ segir hún og hlær.
„Ég hitti í sumar nokkra gamla sjó-
ara og þeir voru ekkert smá hissa
að ég notaði nótagarn.“
Sýningu Hildar lýkur á fimmtu-
dag en hún hefur staðið yfir frá
menningarnótt. Um fyrstu einka-
sýningu hennar er að ræða, auk
þess sem þetta er í fyrsta sinn sem
Íslendingur sýnir tískuteikningar
hérlendis. „Þetta er ekkert óvana-
legt úti en tískusenan á Íslandi er
svo ung. Hún er kannski ekki
komin á þetta stig enn þá en það er
að gerast,“ segir hún. - fb
Hildur fatahönnuður í nýjasta hefti Vogue
HILDA BJÖRK YEOMAN Fjallað verður
um Hildi Björk í næsta hefti tímaritsins
Vogue í Portúgal.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
LEDA OG SVANURINN Ein af myndum
Hildar á sýningunni er af Ledu og svan-
inum og sækir innblástur sinn í grísku
goðafræðina.
„Hvernig gerir maður mynd án
þess að fá styrki frá hinu opin-
bera? Nú bara með eljusemi og
ævintýramennsku,“ segir Páll Sig-
þór Pálsson, leikstjóri og leikari,
en tökum á kvikmynd hans, Cour-
ier, er að ljúka hér á landi. „Þau
atriði eiga reyndar ekkert að ger-
ast á Íslandi heldur í Albaníu. Við
áttum nokkrar senur eftir og
höfum svona bara verið að hlaupa
í þær þegar tími gefst til,“ útskýr-
ir Páll en meðal leikara sem hafa
komið við sögu má nefna frænd-
urna Ingvar E. Sigurðsson og Jör-
und Ragnarsson. Reyndar eru fjöl-
skylduböndin víða því bróðir Páls,
Haukur Valdimar Pálsson, er töku-
maður myndarinnar.
Courier segir frá kosovo-
albönskum mótorhjólasendli í
London sem fer í leiðangur til Afr-
íku að leita serbneskra stríðs-
glæpamanna og komast að örlög-
um bróður síns. Leikstjórinn,
tökulið og aðalleikkonan þurftu
því að leggja land undir fót og er
kvikmyndin tekin upp í einum
þrettán löndum. „Við keyrðum í
gegnum alla Suður-Evrópu, alla
leið til Afríku og enduðum í inn-
viðum frumskóganna í Gabon,“
útskýrir Páll en hann keyrði leið-
ina á mótorhjóli ásamt Caroline
Dalton. „Tökuliðið naut þess hins
vegar að sitja í Discovery-bifreið,
árgerð ´96, sem dugði bara ansi
vel og hélt sínu striki alla ferð-
ina.“
Páll segir að þau hafi gert kvik-
myndina nánast alla án tilskildra
leyfa sem oft kosta morðfjár. Slíkt
hafi þó ekki komið þeim í vand-
ræði en leikstjórinn viðurkennir
að taugarnar hafi helst verið þand-
ar í London þar sem yfirvöld fylgj-
ast grannt með slíku. Aðspurður
hvort laganna verðir í Afríku hafi
ekki verið sólgnir í mútur eins og
er algengt þar segir Páll að lítið
hafi borið á slíku. Nema í Kamer-
ún. „Þar þurfti ég að láta fullan
landamæravörð hafa sólgleraug-
un mín í skiptum fyrir vegabréfið
mitt sem hann ætlaði ekki að láta
af hendi nema hann fengi eitthvað
í staðinn.“
Páll, sem er lærður leikari frá
London, hefur ekki mikið unnið
hérlendis en kom þó við sögu hjá
Leikfélagi Akureyrar í fyrra. Sjón-
varpsáhorfendur ættu einnig að
kannast við andlitið á honum þótt
fúlskeggjað sé því Páll er „pabb-
inn“ í Síma-auglýsingunni þar sem
allir tala ákaflega hratt. - fgg
PÁLL SIGÞÓR PÁLSSON: Á MÓTORHJÓLI TIL AFRÍKU
Fullum embættismönnum
mútað með sólgleraugum
ÞRETTÁN LANDA FERÐALAG Páll Sigþór og aðalleikonan Caroline Dalton keyrðu um þrettán lönd á þessum forláta mótorhjólum
en för þeirra endaði í Gabon í Afríku. MYND/PÁLL
„Nú er full ástæða til að benda á
jákvæða og uppbyggilega hluti. Nú
er sá tími að við öll tökum höndum
saman og minnum hvert annað á að
það sem raunverulega skiptir máli
kostar ekki peninga,“ segir Sigríður
Margrét Oddsdóttir, framkvæmda-
stjóri Skjás eins. Í gærkvöldi fóru
innslög í loftið sem sjónvarpsstöðin
vill kalla „almannaheillaskilaboð“.
Sigríður segir hugmyndina hafa
fæðst á föstudaginn, í lok þeirrar
viku sem er ein sú erfiðasta sem
hún og margir aðrir hafa upplifað.
„Ef við getum í smástund minnt
fólk á að slaka á og munað eftir að
gefa þeim sem næst okkur standa
athygli og umhyggju þá held ég að
takmarki okkar sé náð,“ segir hún.
Daddi diskó sá um að hópa fólki
saman til að fara með jákvæð skila-
boð. „Ef það er einhver sem á að á
létta undir með landsmönnum á
svona tímum þá er það afþreying-
arfyrirtæki eins og okkar,“ segir
hann. Hann segir marga ekki hafa
viljað leggja málstaðnum lið, af
ýmsum ástæðum, en fjölmargir
svöruðu þó kallinu, bæði fyrrver-
andi og núverandi þáttagerðar-
menn á Skjánum – fólk eins og
Arnar Gauti, Heiðar snyrtir, Jónsi
og Pétur í Buff – og fólk „úti í bæ“,
eins og Svava í 17, Sigfús Sigurðs-
son og Pétur í Óháða söfnuðinum.
„Við leituðum til íþróttafólks,
fjölmiðlafólks og skemmtikrafta,
en engra stjórnmálamanna,“ segir
Sigríður. „Við vildum ekki hafa
þetta pólitískt.“ - drg
Arnar Gauti og Heiðar snyrtir róa landsmenn
Auglýsingastofan Fíton hélt
stórglæsilegt hóf í tilefni af útgáfu
árlegs blaðs síns. Þar
tróð upp hljómsveitin
Dr. Spock og fór alger-
lega á kostum. Var til
þess tekið hversu
hinn dagfarsprúði
menningarmaður
Óttarr Proppé,
sem blandaði geði
við viðstadda áður en
hljómsveitin steig á svið,
umturnaðist í popp-
stjörnu nánast við það eitt að setja
upp gulan uppþvottahanska. Þegar
Dr. Spock hafði lokið leik sínum
tók Anna Rakel plötusnúður við
og tókst vel upp í vali á tónlist fyrir
auglýsingamógúla og gesti þeirra.
Árshátíð SÁÁ var haldin um síðustu
helgi í Súlnasalnum, tókst vel og
þótti veislustjórinn Freyr Eyj-
ólfsson fara á kostum.
Einkum þótti alkóhól-
istum og vinum
þeirra útgáfa hans
á Megasi kostu-
leg. Geir Ólafsson lék
„dinnertónlist” en Freyr
æsti Geir upp í að
sækja nýjan disk sinn
út í bíl, skella honum í
græjurnar og syngja fyrir
viðstadda eins og honum einum
er lagið.
Það er óhætt að drekka sig í
óminnisástand inni á Ölstofu Kor-
máks og Skjaldar. Að því komst
norskur skipstjóri sem hafði verið á
sjávarútvegssýningunni. Eftir hana
fór hann á galeiðuna og tók stíft á.
Í þynnkunni uppgötvaði hann að
hann hafði týnt veskinu sínu með
öllu saman, korti og seðlabúnti,
heilum 15.500 krónum, íslenskum.
Þegar hann var í þann mund að
hringja í lögguna mætti starfsmað-
ur Ölstofunnar með veskið, hafði
fundið út á hvaða hóteli Norðmað-
urinn bjó og skilaði veskinu með
innihaldinu ósnertu.
Gott mál. Okkur veitir
víst ekki af jákvæðum
fréttum af ímynd
þjóðarinnar!
- jbg, drg
FRÉTTIR AF FÓLKI
VILJA BENDA Á ÞAÐ JÁKVÆÐA Sigríður Margrét Oddsdóttir hrinti af stað almanna-
heillaátaki Skjás eins. Arnar Gauti og Heiðar snyrtir eru meðal þeirra sem lögðu
því lið.