Fréttablaðið - 08.10.2008, Qupperneq 32
16 8. október 2008 MIÐVIKUDAGUR
COLDPLAY Coldplay heldur á verðlaununum sem sveitin
fékk frá breska tónlistartímaritinu Q.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
14
14
16
16
L
L
L
L
REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 6 - 8 - 10
PINEAPPLE EXPRESS kl. 8 - 10
MAMMA MIA kl. 5.50
14
16
L
REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 5.50 - 8 - 10.10
REYKJAVÍK-ROTTERDAM LÚXUS kl. 5.50 - 8 - 10.10
BURN AFTER READING kl. 5.45 - 8 - 10.15
PINAPPLE EXPRESS D kl. 5.30 - 8 - 10.30
MAMMA MIA kl. 5.30
GRÍSIRNIR 3 kl. 3.45
LUKKU LÁKI OG DALTON BRÆÐUR kl. 4
DAGVAKTINÞÆTTIR 1-3 kl. 8 - 10
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
14
16
L
L
REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 6 - 8.20 - 10.30
BURN AFTER READING kl. 5.45 - 8 - 10.15
SVEITABRÚÐKAUP kl. 5.45 - 8 - 10.15
MAMMA MIA kl. 5.30 - 8 - 10.30
5%
5%
SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000
16
16
12
16
L
BURN AFTER READING kl. 5.45 - 8 - 10.15
PINAPPLE EXPRESS kl. 5.30 - 8
STEP BROTHERS kl. 5.45 - 8 - 10.15
MIRRORS kl. 5.40 - 8 - 10.20
RAFMÖGNUÐ REYKJAVÍK kl. 10.15
YFIR 100.000
MANNS
20% afsláttur af miðaverði sé greitt með
greiðslukorti Vildarklúbbs Glitnis.
“AFRAKSTURINN ER
MÖGNUÐ MYND Í
ALLT ÖÐRUM
GÆÐAFLOKKI EN
NOKKUR ÍSLENSK
SPENNUMYND.”
B. S. - FBL
“REYKJAVÍK
ROTTERDAM ER
ÁVÍSUN UPP Á
ÚRVALSSKEMMTUN”
DÓRI DNA - DV
“MÖGNUÐ MYND SEM
HELDUR ÁHORFENDUM
ALLAN TÍMANN”
S. M. E. – MANNLÍF
JÁKVÆÐASTA MYND ÁRSINS
ÁLFABAKKA SELFOSS
AKUREYRI
KEFLAVÍK
KRINGLUNNI
DIGITAL-3D
DIGITAL-3D
BABYLON A.D. kl. 8 - 10 16
WILD CHILD kl. 8 L
CHARLIE BARTLETT kl. 10 12
REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 8 - 10:10 14
WILD CHILD kl. 10:10 L
PATHOLOGY kl. 5:50 - 8 - 10:10 16
PATHOLOGY kl. 8 - 10:10 VIP
WILD CHILD kl. 5:50 - 8 - 10:10 L
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 L
CHARLIE BARTLETT kl. 8 - 10:10 12
JOURNEY 3D kl. 5:50 L
DEATH RACE kl. 10:10 16
TROPIC THUNDER kl. 8 - 10:20 16
SVEITABRÚÐKAUP kl. 5:50 - 8 L
SVEITABRÚÐKAUP kl. 5:50 VIP
PATHOLOGY kl. 8 - 10:20 16
HAPPY GO LUCKY kl. 8 - 10:20 12
JOURNEY 3D kl. 10 L
WILD CHILD kl. 6 L
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 L
SMART PEOPLE kl. 6 12
REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 8 - 10:10 14
PINEAPPLE EXPRESS kl. 8 16
MIRRORS kl. 10:20 16
- bara lúxus
Sími: 553 2075
REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 6, 8 og 10 12
BABYLON A.D. kl. 8 og 10 16
LUKKU LÁKI - Ísl. Tal kl. 6 (650 kr.) L
JOURNEY 3D - DIGITAL 3D kl. 6 L
MAMMA MIA kl. 8 og 10 L
M Y N D O G H L J Ó Ð
S.V – MBL.
TEKJUHÆSTA MYND ALLRA
TÍIMA Á ÍSLANDI
ATH! 650 kr.
Það er sláturtíð. Víða er verið að
taka slátur á íslenskum heimil-
um. Á Smíðaverkstæði Þjóðleik-
hússins er einnig heilmikil slátur-
tíð. Þar hnoða samkvæmisklæddir
leikarar texta Shakespeares í
þýðingu Matthíasar Jochumsson-
ar um Macbeth og valdarán hans.
Sverðin víkja fyrir blóðdunk-
um sláturhúsanna og tengslin við
söguna víkja fyrir effektum.
Splash splash, blóðið slettist og
slettist og áhorfendur fylgjast
með því hvernig blóðbrúsar tæm-
ast og hver prúðbúinn gestur
situr með hvíta plastsvuntu til
þess að koma í veg fyrir að
valdaránsgusurnar sprautist yfir
frumsýningarklæðin.
Um hvað fjallaði þessi sýning?
Hvað var þessi sýning? Ætli það
sé ekki óhætt að segja að hún hafi
verið hópverkefni ungra leikara
sem fengu tækifæri til þess að
leika sér með eitt frægasta leikrit
veraldarsögunnar og það er í
sjálfu sér af hinu góða. Þegar
verið er að gera tilraunir og
blanda og mixa gleymist stundum
að heildarútkoman á að koma
fyrir sjónir almennings. Þetta er
ekki bara leikslettugeim þeirra
sem taka þátt í tilrauninni.
Textinn er fallegur, margræð-
ur, flókinn og lýrískur og grund-
vallaratriðið er að skilja hann og
njóta hans til þess að hann komist
til skila.
Macbeth hefur víða lent í til-
raunabúðum eins og til dæmis
1924 þegar leikarar í Úkraínu
undir leikstjórn mjög umdeilds
leikstjóra, Les Kurbas, hentu
öllum gildum á grænu sviði gert
úr dúkum svipuðum þeim og
breiddir eru yfir spýtnarusl og
einmitt þar var dyraverði breytt í
hirðfífl sem hér var örlítil vísun í.
Ungir þeldökkir leikarar í New
York 1936 fengu sömuleiðis tæki-
færi til að spreyta sig á tilrauna-
verkefni byggt á hinum klassíska
Macbeth þegar hinn kornungi
Orson Wells réðist að verkinu
með atvinnulausum listamönnum
og var umhverfið Haítí. Hvert er
umhverfið hér? Svart/hvítt vídeó
með rauðum slettum, eða kannski
skýrasti frásagnarmáti nútímans,
hrár einfaldur krimmi án undir-
texta.
Eins og gefur að skilja hafa
uppsetningar á Macbeth verið
nær eins margbreytilegar og þær
eru margar og hljóta nú að skipta
þúsundum því leikritið er fyrst
sett upp árið 1606 og það var nú
aldeilis ekki í gær þótt listamenn
nútímans hafi stundum ekki
minni til úrvinnslu nema síðan í
gær.
Nú lifum við í allsnægtum sem
góðærið gaf okkur en á hverjum
klukkutíma berast okkur nýjar og
nýjar fréttir af fyrrum vígtönn-
um sem búið er að draga úr
lygaskoltum og liggja blóðugar
fyrir framan glansandi banka-
hallir víðs vegar um álfuna.
Öll okkar ógæfa nú byggist á
nákvæmlega því sama og örlög
Macbeths, það er „mikill vill
meira“. Sú leið sem leikararnir
ungu fóru til þess að vinna með
meistaraverkið fer líklega í taug-
arnar á mörgum því tækifærið
var svo stórt og gott til þess að
nýta þennan stórkostlega efnivið.
Hér er flisjað og hér er skrælt.
Lafðin sjálf hvorki hékk né lafði
því hlutverk hennar var svo
útþynnt og óskýrt og það er
kannski svolítið flókið að skilja
þessa demókratísku leikstjórnar-
aðferð þegar niðurstaðan verður
að aðeins ein persóna er skýr, það
er Macbeth sjálfur. Hópurinn
velur að strika út þann hluta
verksins sem er í uppáhaldi hjá
mörgum, það er þegar Lady Mac-
beth gengur í svefni og afhjúpar
þar með gjörðir sínar og eigin-
mannsins. Sömuleiðis velja leik-
arar hér að fórna nornunum og er
það skiljanlegt miðað við upp-
færsluna, reyndar fékk dyravörð-
urinn nokkrar setningar frá þeim
sem kom eins og eðlileg opnun
eða lykill að þessum lestrarmáta
verksins. Enginn nennir að hoppa
um á sokkabuxum með fjaðrir í
flauelshöttum. Hvernig á þá eig-
inlega að láta þetta fólk vera
klætt til þess að valdabaráttan
geti átt sér stað í nútímanum eða
engum tíma? Jú, svörtu leiðinlegu
jakkafötin, hvort heldur þau heita
smóking eða kjólföt eða stakur
jakki og dressmannbuxur auk
dragtanna eru valin, kannski til
þess að passa á árshátíð þar sem
hægt er að niðurlægja einkaritar-
ann í óþægilegri stuttri dragt.
Fléttugreiðsla Lady Macbeth
leiðir hugann til þriðja ríkisins og
þeirra kvenna sem þar pinnstífar
aðallega í amerískum bíómynd-
um lifðu tilfinningalausar liggj-
andi undir yfirmönnum. Í þessari
blóðugu mynd skiluðu leikarar
sinni vinnu vel og þeir sem eru
aðdáendur trúverðugra slags-
mála fá vafalítið kikk út úr sýn-
ingunni. Fyrir svo utan að spurn-
ingunni sem leikstjórarnir varpa
fram í prógramminu hvort tungu-
málið sé úrelt er hægt að svara
neitandi því blæbrigði þess og
þrungið innihald stendur eins og
heyra mátti þegar Macduff skýr-
ir frá því hverja Macbeth vó. Þar
naut sín slípuð framsögn Rúnars
Freys Gíslasonar.
Hér er 25-30 manna áhöfn skrif-
uð niður í ellefu hlutverk og það
væri alveg út í hött að segja að til-
raunin hafi mistekist vegna þess
að tilraun er tilraun og svarið
liggur ekki skrifað á einhverju
borði almættisins. En hitt er
annað mál að ótta setur að manni
að þetta meistaraverk verði aftur
að bíða í nokkra áratugi þar sem
Ríkisleikhúsið er nú búið að sinna
skyldum sínum í bili. Það er að
kynna klassískt meistaraverk.
Elísabet Brekkan
Menn helltu oft út blóði fyrr
LEIKLIST
Macbeth
Leikstjórn og leikmynd: Stefán Hallur
Stefánsson og Vignir Rafn Valþórsson
Dramatúrgía: Karl Ágúst Þorbergsson
og Tobias Munthe
Búningar: Judith Amalía Jóhannsdóttir
Tónlist og hljóðmynd: Albert Finn-
bogason
Lýsing: Hanna Klyhkö og Stefán Hall-
ur Stefánsson
Leikarar: Stefán Hallur Stefánsson,
Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Elma Lísa
Gunnarsdóttir, Valur Freyr Einars-
son, Jörundur Ragnarsson, Sigurður
Hrannar Hjaltason, Rúnar Freyr Gísla-
son, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Baldur
Trausti Hreinsson, Pattra Sriyanonge,
Ólafur Egill Egilsson, Vignir Rafn
Valþórsson
★★
Svart/hvítt vídeó með rauðum
slettum
LEIKLIST Herra og frú Makbeð á trúnó. Stefán Hallur og Vigdís Hrefna.
Coldplay sigursæl
Aðdáendum The Rolling Stones,
Bítlanna, Beach Boys og Pink
Floyd gefst í nóvember sjaldgæft
tækifæri til að
spila með
hetjunum sínum
á rokknámskeiði
á Englandi.
Námskeiðið
stendur yfir í
viku og hefst í
Abbey Road-
hljóðverinu í
London, þar sem
Bítlarnir tóku
upp sínar plötur.
Á meðal
leiðbeinenda þar
verða Bill
Wyman, fyrrverandi bassaleikari
Rolling Stones, og Nick Mason úr
Pink Floyd. Einnig munu Jeffrey
Froskett og Kip Winger úr Beach
Boys koma með fróðleiksmola.
Eftir tímann í Abbey Road er
förinni heitið á Cavern-klúbbinn í
Liverpool þar sem aðdáendunum
gefst tækifæri til að spila með Pete
Best, fyrsta trommara Bítlanna.
Spila með
hetjunum
BILL WYMAN Fyrr-
verandi bassaleikari
Rolling Stones
verður leiðbeinandi
á rokknámskeiði í
London.
Hljómsveitin Coldplay vann tvenn verðlaun á Q-hátíðinni í London,
þar á meðal fyrir plötu ársins, Viva La Vida or Death And All His
Friends. Einnig var Coldplay valin besta hljómsveitin í heiminum í
dag og bar þar
sigurorð af
Metallica, Muse,
Kings of Leon og
Oasis.
Á hátíðinni lýsti
Chris Martin,
söngvari Coldplay,
því yfir að sveitin
væri vissulega sú
besta í heiminum,
en bætti svo við.
„Nei, ekki alveg.
U2 er í fríi og
Radiohead líka.“
Söngkonan
Duffy frá Wales
var kjörin
skærasta nýja
stjarnan og írska
sveitin Keane
fékk verðlaun fyrir besta lagið, Spiralling. David Gilmour úr Pink
Floyd fékk heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til tónlistarheimsins.
Tileiknaði hann látnum félaga sínum, Richard Wright, verðlaunin
og bað fólk um að rísa úr sætum og skála fyrir honum. Hljóm-
sveitin The Last Shadow Puppets, með Alex Turner úr Arctic
Monkeys innanborðs, var síðan valin besti nýliðinn.