Fréttablaðið - 08.10.2008, Síða 34
18 8. október 2008 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI Stjórn körfuknattleiks-
deildar Snæfells greip til þess
ráðs á mánudagskvöldið að segja
upp samningum við erlenda leik-
menn liðsins sem og þjálfarann
sem einnig er erlendur. Sæþór
Borgþórsson, formaður körfu-
knattleiksdeildarinnar, segir
félagið ekki hafa átt annarra kosta
völ í stöðunni.
„Þetta var gert af nauðsyn. Við
fáum ekki þá peninga inn núna
sem við höfum verið að fá og það
mun ekki gerast. Menn munu ekki
taka upp veskið. Við erum því að
róa lífróður og fyrirtæki geta ekki
styrkt okkur í þessu árferði. Það
er því betra að takast á við raun-
veruleikann strax í stað þess að
fara með reksturinn í óefni. Það er
óábyrgt að taka ekki í taumana,“
sagði Sæþór en körfuknattleiks-
deildin hefur stólað á styrki frá
fyrirtækjum og einstaklingum til
að halda rekstrinum gangandi en
þá peninga vantar í starfið núna.
„Hvorki við né önnur félög eiga
neina sjóði til að leita í. Við getum
keyrt á ákveðnum lágmarkspen-
ingum en meira er ekki í boði.
Þetta er mjög erfið staða. Útlend-
ingarnir voru að fá greitt í erlendri
mynt og það er bara ekki hægt að
gera slíka samninga lengur,“ sagði
Sæþór en hann segir gengisþróun-
ina einnig hafa gert það að verk-
um að menn væru komnir yfir
launaþakið. „Það var löngu sprung-
ið hjá öllum. Það er ekkert eðlilegt
við þetta ástand.“
Sæþór hefur fengið leikmenn
félagsins, þá Hlyn Bæringsson og
Sigurð Þorvaldsson, til þess að
stýra liðinu. Það munu þeir gera á
meðan ekki finnst annar maður á
viðráðanlegum launum í starfið.
Sá maður er ekki í sjónmáli sem
stendur. Hólmarar munu einnig
herja á fyrrum leikmenn liðsins til
þess að taka slaginn. Til að mynda
verður reynt að fá Magna Haf-
steinsson til þess að spila sem
fyrst en hann ætlaði ekki að vera
með fyrr en eftir áramót þar sem
hann er í lögregluskólanum. Einn-
ig mun Snæfell leita til manna á
borð við Helga Reyni Guðmunds-
son og fleiri sem hafa leikið áður
með liðinu.
„Eins og planið er í dag höfum við
hreinlega ekki efni á nýjum þjálf-
ara. Við eyðum ekki peningum sem
við eigum ekki. Það verður þó að
skýrast betur síðar. Kaupþing er
okkar aðalstyrktaraðili og við vitum
ekki betur en sá samningur standi.
Þeir peningar eru í raun þeir einu
sem við höfum,“ sagði Sæþór.
Formenn körfuknattleiksdeild-
anna funduðu með KKÍ á mánu-
daginn og eftir þann fund er
Sæþór sannfærður um að fleiri
lið í deildinni eigi eftir að feta
sömu braut og Snæfell og ÍR sem
ætla að leika án erlendra leik-
manna í vetur.
„Það er enginn að fá inn þá pen-
inga sem menn áttu von á. Ég er
klár á því að fleiri munu fylgja í
kjölfarið. Það er betra að vera
skynsamur í vetur og geta staðið í
fæturna næsta sumar en að keyra
sig í kaf og deyja síðan út,“ sagði
Sæþór en sú hugmynd var viðruð
á fundinum að koma upp heiðurs-
mannasamkomulagi um að öll lið
léku án útlendinga en ekki náðist
sátt um það. henry@frettabladid.is
Fleiri munu fylgja í kjölfarið
Stjórn körfuknattleiksdeildar Snæfells hefur sagt upp samningi við erlendan þjálfara liðsins og alla er-
lendu leikmenn liðsins. Formaður deildarinnar spáir því að fleiri lið fari sömu leið fljótlega. Hlynur Bær-
ingsson og Sigurður Þorvaldsson hafa tekið við þjálfun liðsins. Þeir fá ekki greitt aukalega fyrir þjálfunina.
SPILANDI ÞJÁLFARI Hlynur Bæringsson er óvænt orðinn spilandi þjálfari Snæfells
ásamt Sigurði Þorvaldssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI „Mér skilst að ég sé
orðinn þjálfari,“ sagði Hlynur
Bæringsson, nýráðinn þjálfari
Snæfells, léttur.
„Þetta er vonandi tímabundið
og við ætlum að reyna að finna
mann í þetta. Það eru samt ekki
margir sem gera þetta fyrir
engan pening. Við ætlum samt
að reyna að skrapa saman og
athuga hvort við finnum ekki
mann á endanum. Ef ekki þá
klárum við Siggi [Sigurður Þor-
valdsson] þetta bara,“ sagði
Hlynur en þeir félagar fá ekkert
greitt aukalega fyrir að taka að
sér þjálfarastarfið.
„Það er mikið áfall að missa
þessa menn og það standa níu
strákar eftir og það verður að
duga. Nú reynum við að virkja
fyrrverandi leikmenn og fá
Magna í gang fyrir sunnan. Hver
veit nema við fáum Bárð [Eyþórs-
son] líka til okkar í að taka sín
30-40 skot. Hann má alveg þjálfa
Fjölni líka,“ sagði Hlynur
glettinn að lokum. - hbg
Hlynur Bæringsson, þjálfari og leikmaður Snæfells:
Þjálfar Snæfell án greiðslu
HANDBOLTI Handknattleiksdeild
Fram hélt fund með leikmönnum
sínum á mánudagskvöldið til þess
að fara yfir stöðuna sem er ekki
góð.
„Þetta var nú enginn neyðar-
fundur en því er ekki að leyna að
staðan hjá okkur er ekki góð og
reyndar slæm. Við höfðum ekki
áhuga á því að fara í einhvern
feluleik með þessa hluti og
ákváðum því að vera heiðarlegir
við leikmenn okkar og láta þá vita
um stöðuna,“ sagði Hlynur
Þrastarson, varaformaður
handknattleiksdeildar Fram, en
hann segir stöðu mála ekki hafa
áhrif á þátttöku liðsins í Evrópu-
keppni, enn sem komið er hið
minnsta, en Framarar fara til
Hollands á föstudag og spila þar í
Evrópukeppninni á laugardag.
„Það hafa margar forsendur í
rekstrinum breyst. Sumir
styrktaraðilar farnir og peningar
frá öðrum ekki að skila sér. Þetta
er frekar erfitt og við munum
fara yfir stöðuna á næstu dögum
og athuga hvað við getum gert,“
sagði Hlynur.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins ætla forráðamenn
handknattleiksdeildar Fram að
funda með hverjum og einum
leikmanni félagsins sérstaklega
eftir helgi. - hbg
Kreppa í handboltanum:
Framarar játa
slæma stöðu
Landsliðsfyrirliðinn Hermann Hreiðarsson hefur lítið fengið
að spreyta sig með Portsmouth á þessari leiktíð en hann var
einn af lykilmönnum félagsins í fyrra þegar Portsmouth endaði
í áttunda sæti í ensku úrvalsdeildinni og vann FA-bikarinn.
Hermann er óvanur að vera í þessari stöðu, að vera ekki
í byrjunarliðinu, því fyrir yfirstandandi keppnistímabil
var Eyjapeyinn búinn að leika 425 leiki af 438 leikjum
sínum í öllum keppnum með Crystal Palace, Brent-
ford, Wimbledon, Ipswich, Charlton og Portsmouth í
byrjunarliðinu. Af þeim leikjum sem Hermann lék á
árunum 1997-2008 var hann sem sagt í 97% tilfella
í byrjunarliðinu.
„Ég hef alltaf verið byrjunarliðsmaður hjá
þeim félögum sem ég hef verið hjá og ég er
því óvanur þessari stöðu sem upp er komin
og ég kann henni satt best að segja ekki vel.
Ef heldur sem horfir mun ég klárlega skoða
mín mál þegar félagsskiptaglugginn opnar í
janúar og sjá til hvað verður í boði. Ég verð að
gera það því ég vil spila fótbolta og hef ekki áhuga á því að vera
bara einhver klappstýra,“ segir Hermann á léttum nótum.
Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth, fékk til félags-
ins vinstri bakverðina Armand Traoré og Nadir Belhadj að láni
fyrir tímabilið og þeir hafa verið framar en Hermann í goggunar-
röðinni til þessa.
„Redknapp eyddi peningum til þess að fá nýja leik-
menn til félagsins og hann verður náttúrlega að réttlæta
það með því að spila þeim og þannig er það nú bara.
Þetta eru annars mjög góðir leikmenn, sókndjarfir, litlir
og snaggaralegir og talsvert ólíkir mér og það er ekkert
út á það að setja. Það hefur því ekkert komið uppá á
milli mín og Redknapp og svona er boltinn bara,“ segir
Hermann.
Hermann er samningsbundinn Portsmouth til loka
yfirstandandi keppnistímabils en búast má við því að
mörg félög í efstu tveimur deildunum á Englandi muni
verða á varðbergi ef hann hugsar sér til hreyfings í
janúar.
VARNARJAXLINN HERMANN HREIÐARSSON: ER ÓSÁTTUR VIÐ SKORT Á TÆKIFÆRUM HJÁ PORTSMOUTH
Hef ekki áhuga á því að vera einhver klappstýra
KÖRFUBOLTI Svo virðist vera sem
flestar, ef ekki allar, körfuknatt-
leiksdeildir liða í Iceland Express-
deildinni séu að skoða reksturinn
hjá sér þessa dagana. Nú þegar
hafa Snæfell, ÍR og Breiðablik
ákveðið að tefla ekki fram neinum
erlendum leikmanni í vetur og
fleiri lið íhuga að fara sömu leið.
Fréttablaðið ræddi við menn
frá þeim þrem liðum sem talin
eru líklegust til afreka í vetur –
KR, Grindavík og Keflavík – og
þar virðist vera komin upp ákveð-
in pattstaða.
Forráðamenn félaganna virð-
ast allir vera að bíða eftir næstu
skrefum andstæðinganna og ætla
ekki að taka ákvarðanir í millitíð-
inni. Björn Óli Björgvinsson, for-
maður körfuknattleiksdeildar
Grindavíkur, sagðist þó vera
hlynntur alíslenskri deild í vetur
en sagði kollega sína í Vesturbæn-
um og Keflavík ekki deila skoðun
sinni jafn sterkt. Þó er ekki loku
fyrir það skotið að félögin hittist
aftur næstkomandi mánudag og
reyni að ná einhvers konar heið-
ursmannasamkomulagi er varðar
erlenda leikmenn.
Miðað við samtöl Fréttablaðs-
ins eru flest félögin að berjast við
sömu draugana. Fé frá styrktar-
aðilum, sem áður var hægt að
stóla á, er einfaldlega ekki að skila
sér í kassann og menn eiga ekki
von á að það breytist á næstu
misserum. Flest félögin hafa und-
anfarin ár gert ráð fyrir þessum
peningum í fjárhagsáætlunum
sínum en núna sé einfaldlega ekki
hægt að reikna með þessum
peningum. - hbg
Körfuknattleiksdeildir landsins fara alvarlega yfir stöðu mála í rekstrinum hjá sér þessa dagana:
Pattstaða hjá KR, Grindavík og Keflavík
UGGANDI Forsvarsmenn félaga í Iceland Express-deildinni mættu á fund með KKÍ
mánudaginn síðasta. Þeir eru uggandi yfir stöðu mála og flestir eru jákvæðir fyrir því
að vera með „alíslenska“ deild í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Stjórn knattspyrnudeild-
ar Breiðabliks hefur ekki tekið
neina ákvörðun enn um hvort
liðið segi upp samningum við
erlenda leikmenn liðsins.
Þeir eru allir samningsbundnir
fyrir utan Casper Jacobsen.
Blikar hafa frest til 15. október að
segja samningunum upp kjósi
þeir að gera svo.
„Við erum að fara yfir hlutina,
smíða fjárhagsáætlun fyrir næsta
ár og annað,“ sagði Einar Kristján
Jónsson, formaður knattspyrnu-
deildar.
„Það er ljóst að það stefnir í
talsvert þyngra ár en síðustu ár
og ekki síst af þeim sökum að
tekjuöflun er ákaflega erfið. Við
munum fara vel og vandlega yfir
þetta næstu daga,“ sagði Einar
Kristján. - hbg
Erlendir leikmenn Blika:
Þeirra framtíð
er í óvissu
Á ÚTLEIÐ? Casper Jacobsen er samnings-
laus en Blikar hafa forgang á því að
semja við hann. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
> Sameiningarhugur í Fjölni og Fram
Í fréttatilkynningu á heimasíðu Fram er greint frá því að
formenn Ungmennafélags Fjölnis og knattspyrnufélags
Fram hafi lagt fram tillögu um að vinnuhópur verði skip-
aður til þess að skoða möguleika á samruna félaganna
í eitt öflugt ungmenna- og íþróttafélag. Tillaga formann-
anna var samþykkt samhljóma í aðalstjórnum beggja
félaga. Vinnuhópurinn mun setja saman viljayfirlýsingu
um samruna, sem verður lögð fyrir
aðalstjórnir félaganna til samþykktar
að viku liðinni. Breytt landslag í
efnahagslífinu er ástæða þess
að formennirnir vildu skoða
þennan möguleika.