Fréttablaðið - 08.10.2008, Síða 40
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Ef ætlunin er að fá brjóstsviða, vöðvabólgu eða viðvarandi
hárlos er upplagt um þessar
mundir að æfa hamstur. Öll skil-
yrði eru enn hagstæð til að verða
lunkinn í þeirri vanræktu íþrótta-
grein svo nú er um að gera að
munda innkaupakörfuna rösk-
lega. Ýmislegt getur komið sér
vel í kreppunni. Til dæmis verður
hægt að hrósa sigri yfir að luma
enn á krukku af fetaosti daginn
sem Mjólkursamsalan leggur upp
laupana og allir aðrir verða búnir
að gleyma þeirri munaðarvöru.
Eða súpa hlakkandi á síðasta
espressóinum á meðan hinir ófor-
sjálu horfa hnípnir og kaffilausir
í gaupnir sér.
Í ANDA kreppu og fyrirhyggju
gerði ég á sunnudag reyndar
dálitla tilraun til forsjálni og lagði
af stað til að kaupa bara ponsulít-
ið í frystinn. Það var einmitt dag-
inn áður en forsætisráðherra
hræddi líftóruna úr okkur öllum
með því að biðja guð í beinni
útsendingu um að blessa íslensku
þjóðina, svo enn var tiltölulega
létt yfir mannskapnum. Engi-
sprettufaraldurinn hafði þó auð-
sjáanlega verið skrefinu á undan
mér því vörulager verslunarinn-
ar var ekki svipur hjá sjón. Allt
þetta praktíska búið og hvorki til
slátur né hveiti. Því var ekki um
annað að ræða til að friða hamst-
ursþörfina en að kaupa fullkom-
inn óþarfa á uppsprengdu verði.
Búrhillur einhverra heimila
svigna nú vonandi undan hagsýn-
um og næringarríkum vetrar-
forða á meðan vér hin óforsjálu
nögum síðasta parmesanostinn.
EKKI tókst betur til með að
hamstra eldsneyti. Rétt fyrir
hroðalega hækkun og skort á því
hafði ég ekki fyrr laumast á bens-
ínstöðina til að fylla tankinn en
olíufélögin híuðu á mig með því
að lækka verðið um heilan hell-
ing.
EFTIR sjö feit ár breyttist þjóðin
á einni nóttu í risavaxinn jafnað-
armannaflokk sem fyrirlítur ekk-
ert meir en stórgróða. Á meðan
sumar veraldlegar eignir rýrna
hefur almennur orðaforði þó
blómstrað sem aldrei fyrr. Hvaða
barn sem er getur nú rætt af
nokkurri þekkingu um lánshæfis-
mat, gjaldeyrisviðskipti og kross-
eignarhald. Skáldlegar myndlík-
ingar um ástandið eru á hvers
manns vörum, einkum tengdar
sjósókn og brunavörnum. Orð eru
dýrari en brauð. Við sem ekki
kunnum að hamstra efnisleg gæði
getum að minnsta kosti birgt
okkur upp af orðaforða til
vetrarins.
Hamstur
Í dag er miðvikudagurinn
8. október, 281. dagur ársins.
7.58 13.15 18.31
7.46 13.00 18.12
Frábært tilboð á bílaleigubílum
Nú bjóðum við vel með farna bílaleigubíla á kjörum
sem bjóðast ekki annars staðar:
Allir bílar eru í 5 ára ábyrgð frá nýskráningardegi.
80% fjármögnun.
Bílalán til 84 mánaða.
Komdu í heimsókn og kynntu þér frábært verð
á næstum nýjum bílum. Við erum í samningaskapi.
Bílaábyrgð Varðar fylgir
notuðum bílaleigubílum
frá HEKLU.
VW Polo Comfortline 1,4 Skoda Octavia Ambiente, Dísel MM Pajero Intense, Dísel
Nýskráður júní 2007
Beinskiptur, ekinn 33.000 km
Nýskráður maí 2007
Sjálfskiptur, ekinn 36.000 km
Nýskráður júní 2007
Sjálfskiptur, ekinn 45.000 km
Ásett verð
1.560.000.-
Ásett verð
2.490.000,-
Ásett verð
5.550.000,-
Opið 10–18 virka daga | Opið 12–16 laugardaga
Kletthálsi sími 590 5040 www.heklanotadirbilar.is notadirbilar@hekla.is
HEKLA NOTAÐIR BÍLAR KLETTHÁLSI
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Svefnpokapláss
kr. 1.500 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is