Fréttablaðið - 20.10.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 20.10.2008, Blaðsíða 4
4 20. október 2008 MÁNUDAGUR OLÍS ÁLFHEIMUM, OLÍS GULLINBRÚ, HOLTAGÖRÐUM, OLÍS MJÓDD, OLÍS NORÐLINGAHOLTI, NÝBÝLAVEGI, SUÐURLANDSBRAUT, OLÍS AKRANESI, OLÍS AKUREYRI, OLÍS BORGARNESI, OLÍS KEFLAVÍK, OLÍS REYÐARFIRÐI 12 STAÐIR VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 24° 17° 21° 16° 14° 17° 16° 20° 13° 14° 25° 18° 17° 27° 13° 18° 23° 12° 1 43Á MORGUN 15-20 m/s austast á landinu annars mun hægari MIÐVIKUDAGUR Hæg suðlæg eða breytileg átt 1 1 1 3 2 4 2 4 2 1 -5 14 8 14 10 15 10 15 10 10 15 10 0 0 00 -1 0 3 VETUR Í KORTUNUM Þetta er ekkert annað en vetur. Stífur af norðri og hiti um eða yfi r frostmarki. Á morgun verða leifar af stífri norðanátt norð- austan og austan til með hita mjög nálægt frostmarki. Lítið eitt hlýnar sunnan til á landinu á miðvikudag í hægri suðlægri átt með vætu syðra en fyrir norðan og austan verður þurrt og bjart með köfl um. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur BANDARÍKIN, AP Colin Powell, rep- úblikani sem var utanríkisráð- herra í ríkisstjórn George W. Bush forseta á fyrra kjörtímabili hans, lýsti í gær yfir stuðningi við Barack Obama, forsetaframbjóð- anda demókrata, og gagnrýndi tóninn í kosningabaráttu rep- úblikanans Johns McCain. „Ég tel að við þurfum á manni að halda sem stendur fyrir algera umbreytingu. Ég tel okkur þurfa á forseta að halda sem stendur fyrir nýja kynslóð og þess vegna styð ég Barack Obama, ekki vegna nokkurs skorts á virðingu fyrir eða velvilja í garð Johns McCain,“ sagði Powell í viðtali á NBC-sjónvarpsstöðinni í gær. Powell, sem var fyrsti blökku- maðurinn sem gegndi stöðu for- seta bandaríska herráðsins, var sjálfur á tímabili líklegur til að eiga möguleika á útnefningu í forsetaframboð. Hann hafnaði því sjálfur að gefa kost á sér. Af kosningabaráttunni vestra bar það annars hæst í fréttum um helgina að Obama hefði slegið ný met í að safna fé í kosningasjóði. Einvörðungu í septembermánuði söfnuðust í sjóði framboðs hans 150 milljónir dala, andvirði um 16 milljarða króna samkvæmt síðasta skráða gengi. Nú eru þrjár vikur uns Bandaríkjamenn ganga bæði til forseta- og þing- kosninga. - aa Frambjóðandanum Barack Obama berast stuðningsyfirlýsingar úr ýmsum áttum: Colin Powell tekur af skarið STYÐUR OBAMA Powell í viðtalinu á NBC- sjónvarpsstöðinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP EFNAHAGSMÁL Vonir standa til að hægt verði að kynna í dag skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og sam- komulag við íslensk stjórnvöld. „Þetta er komið það langt að við erum að fara yfir skilyrði, kosti og galla og hvernig þetta myndi líta út,“ segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra um viðræðurn- ar við fulltrúa Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins, IMF. „Við erum á því að það verði að skoða til hins ýtrasta hvort þetta sé ekki leiðin út úr vandræðun- um að hluta til, í sátt við alþjóða- samfélagið, og ég er á þeirri skoðun að við þurfum að klára það hratt og vel,“ sagði hann. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar funduðu með fulltrúum Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins og svo funduðu sex ráðherrar ríkisstjórnarinnar með ráðgjöfum sínum í gær. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sagði að von væri á niðurstöðum fljótlega og að þær yrðu kynntar von bráðar. Hann hafnaði því að auðlindir þjóðarinnar yrðu veð- settar. „Við erum að ráða ráðum okkar og fara yfir stöðuna,“ sagði Björg- vin og taldi öruggt að engar stórar ákvarðanir yrðu teknar í gær- kvöld. Geir H. Haarde forsætisráð- herra sagði eftir fundinn að reynt væri að nota tímann vel. Formað- ur Samfylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, væri komin til starfa og farin að setja sig inn í þróunina en hann og Ingibjörg Sól- rún áttu fund með Árna Mathiesen fjármálaráðherra, Þorgerði Katr- ínu Gunnarsdóttur menntamála- ráðherra, Össuri Skarphéðinssyni iðnaðarráðherra og Björgvin G. Sigurðssyni viðskiptaráðherra. „Við erum að fara yfir heildar- myndina og svo eru aðrir að vinna að sínu, hver á sínum stað og svo eru skilanefndir og ýmsir hópar sem hafa verið að vinna. Ásmund- ur Stefánsson ríkissáttasemjari er kominn með okkur í þetta og er fulltrúi minn,“ sagði Geir eftir fundinn. „Við erum að fara yfir það allt í heild sinni,“ sagði hann um það hvort skilyrði Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins hefðu verið kynnt fyrir ráðherrunum í gær. „Þeir eru að vinna sína vinnu og okkar fólk er að vinna sína vinnu. Engin ákvörð- un hefur verið tekin og verður ekki tekin í dag,“ sagði Geir. Hann sagði enga bresti í ríkis- stjórnarsamstarfinu. ghs@frettabladid.is Von á niðurstöðum um að- stoð frá gjaldeyrissjóðnum Vonast er til að í dag verði kynnt hvort af aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verði. Í gær var verið að fara yfir skilyrði og útlit samkomulags. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra segir málið langt komið. RÁÐHERRA Í ÚTVARPSVIÐTALI Ráðherrar Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins funduðu með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra í gær og var meðal annars fjallað um skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. „Við erum að fara yfir heildarmyndina,“ sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra eftir fundinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON GEORGÍA, AP Lögregla í georgíska aðskilnaðarhéraðinu Suður- Ossetíu hefur fengið fyrirmæli um að skjóta á móti ef á hana er skotið. Tilskipunin þykir til þess fallin að auka líkur á að vopnuð átök brjótist þar út á ný. Yfirmaður lögregluliðs Suður- Ossetíu gaf út þessa tilskipun um helgina í kjölfar þess að eftirlits- stöð lögreglu nærri þorpinu Nikozi, þar sem íbúar eru enn georgískir, varð fyrir skotárás. Starfandi innanríkisráðherra aðskilnaðarstjórnar Suður- Ossetíu, Mikhaíl Mindzajev, sagði engan hafa sakað, en árásin hafi verið vísvitandi ögrun af hálfu georgískra hermanna. - aa Átökin í Kákasus: Hætta sögð á að vopnin tali á ný NOREGUR Drukkinn Íslendingur reyndi að komast um borð í skip í höfninni í Bodø í Noregi um helgina og var lögregla kölluð til. Þegar hún mætti á staðinn hafði Íslendingurinn slegið manninn, sem hafði hringt á lögregluna, og meðan lögreglan ræddi við hann sló hann manninn aftur. Íslendingurinn var svo drukkinn að skömmu síðar féll hann í höfnina – án hjálpar frá öðrum, að sögn norska blaðsins Avisa Nordland. Honum var að sjálfsögðu hjálpað upp úr sjónum og farið með hann á neyðarmót- tökuna á Nordlands-sjúkrahúsinu í Noregi. - ghs Bodø í Noregi: Íslendingur féll í höfnina PAKISTAN, AP Kínastjórn hefur aflað sér nýs bandamanns með því að heita Pakistanstjórn aðstoð við að koma upp tveimur nýjum kjarnorkuverum í landinu. Aðeins fáeinar vikur eru síðan Indverjar, höfuðkeppinaut- ar Pakistana, undirrituðu samning um kjarnorkusam- vinnu við Bandaríkjamenn. Samkomulagið við Kínverja kemur til er alvarlegir brestir eru komnir í hryðjuverkavarnabanda- lag Pakistana við Bandaríkjamenn. Samkomulagið er liður í marghátt- uðum samningum um efnahags- samstarf sem undirritaðir voru í ferð pakistanska forsætisráðherr- ans Asif Ali Zardari til Peking í síðustu viku, að því er utanríkis- ráðherrann Shah Mahmood Qureshi greindi frá. - aa Samningar Kína og Pakistans: Sátt um kjarn- orkuaðstoð ASIF ALI ZARDARI GENGIÐ 17.10.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 201,1017 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 112,42 112,96 194,45 195,39 150,58 151,42 20,202 20,32 16,878 16,978 14,939 15,027 1,1134 1,12 170,77 171,79 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.