Fréttablaðið - 20.10.2008, Síða 10

Fréttablaðið - 20.10.2008, Síða 10
10 20. október 2008 MÁNUDAGUR FRAMKVÆMDIR Litháíska verktaka- fyrirtækið Adakris hefur lent í vandræðum með framkvæmdir við Sæmundarskóla í Reykjavík vegna efnahagsástandsins hér á landi. Adakris fær ekki banka- ábyrgðir vegna bankakreppunnar og verður að staðgreiða allar vörur. Þá hefur gengisþróunin verið óhagstæð. „Við vitum að þeim hefur geng- ið illa að fá fyrirgreiðslu hér á landi í ljósi efnahagsástandsins. Þeir fá ekki bankaábyrgðir þannig að þeir þurfa að staðgreiða allar vörur,“ segir Hrólfur Jónsson, framkvæmdastjóri hjá Reykjavík- urborg. „Við vitum af erfiðleikum verk- takans að standa við samninginn sökum þess efnahagsástands sem upp er komið, bæði vegna gengis- skráningar og eins vegna þess að þeir fá ekki fyrirgreiðslu í bönk- um og þurfa því að staðgreiða vöru,“ segir hann. Hrólfur kannast við að óánægja sé meðal íslenskra verktaka með samninginn við Adakris. Aðeins munaði um 30 milljónum króna á tilboðum verktakafyrirtækisins Ris og Adakris í Sæmundarskóla en munurinn á lægsta og næst- lægsta tilboði nam 200 milljónum króna í Norðlingaskóla. Hann segir að litháíska fyrirtækið seg- ist geta staðið við samningana. Þorbjörn Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Samiðnar, segir að með þessum samningum hafi borgarstjórn ákveðið að flytja 120 ársverk í byggingariðnaði úr landi. Samiðn hafi krafist þess að verklegar framkvæmdir verði unnar af íslenskum verktökum. Félagið hafi áhyggjur af því að fyrirtækið verði fyrst og fremst með starfsmenn frá Litháen og ekki verði farið að reglum á íslenskum vinnumarkaði. Ágúst Snæbjörnsson, fulltrúi Adakris, segir að Adakris sé í við- skiptum við Den norske Bank, DnB, og bankaábyrgðir hafi ekki fengist, hvorki frá Noregi né hér á landi. Gengisþróunin hafi verið óhagstæð en fyrirtækið viti af áhættunni og vilji samt standa við gerða samninga. Greiðslur að utan séu fastar í kerfinu. Fyrirtækið hafi þurft að staðgreiða fyrir vörur og brugðist við því með því að flytja inn byggingaefni. Nokkr- ir gámar séu þegar á leiðinni. Ágúst segir að íslenskir starfs- menn verði í meirihluta, erlendir starfsmenn verði kannski 40-45 prósent. Tilboð félagsins hafi verið lægst þar sem efnið verði flutt inn. ghs@frettabladid.is Verktaka við Sæmundar- skóla gert að staðgreiða allt Litháíska verktakafyrirtækið Adakris fær ekki bankaábyrgðir hér á landi eða erlendis vegna kreppunnar og verður því að staðgreiða vörur. Samiðn telur að með þessu séu 120 ársverk flutt úr landi. ÁGÚST SNÆBJÖRNSSON HRÓLFUR JÓNSSON ÞORBJÖRN GUÐMUNDSSON UPPSTEYPAN AÐ HEFJAST Borgaryfirvöld hafa samið við litháíska verktakafyrirtækið Adakris og er steypu- vinna við Sæmundarskóla hafin. Adakris hefur mætt andstreymi hér á landi, ekki bara óánægju íslenskra verktaka heldur líka óhagstæðri gengisþróun og bankakreppu. Fyrirtækið hefur orðið að staðgreiða allar vörur þar sem bankaábyrgðir hafa ekki fengist. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR HEILBRIGÐISMÁL Lýðheilsustöð stendur 13. og 14. nóvember næstkomandi fyrir námskeiði í tóbaksvörnum fyrir heilbrigðis- starfsfólk. Í tilkynningu segir að námskeiðinu sé ætlað að veita heilbrigðisstarfsfólki hagnýta þekkingu og kunnáttu í að aðstoða fólk við að hætta að nota tóbak. Þá verða kynntar nýjung- ar í tóbaksvörnum og faralds- fræði tóbaksnotkunar auk þess sem farið verður yfir helstu þætti tóbaksvarna. Námskeið Lýðheilsustöðvar er í samstarfi við Landspítalann, Félag íslenskra lungnalækna, Félag heimilislækna, Félag hjúkrunar- fræðinga, fagdeild heilsugæslu- hjúkrunarfræðinga og Tann- læknafélag Íslands. - ovd Lýðheilsustöð: Námskeið í tóbaksvörnum KÚRDAKRÖFUR Stúlka úr hópi stuðn- ingsmanna hins fangelsaða leiðtoga herskárra Kúrda, Abdullah Öcalan, sýnir sigurmerki á mótmælafundi í Istanbúl í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.