Fréttablaðið - 20.10.2008, Side 16
„Ég er mikið jólabarn og elska jóla-
tímann en þó finnst mér undirbún-
ingurinn stundum vera orðinn of
langur. Í raun er ekkert sem gera
þarf svona tímanlega nema þá að
baka jólakökurnar sem væta þarf
með víni fram að jólum,“ segir
Guðrún Þóra Hjaltadóttir, næring-
arráðgjafi og kennari, en hún er
líka formaður Félags hússtjórnar-
og heimilisfræðikennara.
Guðrún lumar þó á góðum ráðum
fyrir þá sem vilja taka til hendinni
fyrir jólin. „Það er upplagt að taka
frystinn og kæliskápinn tímanlega
og það má jafnvel gera nú þegar.
Einnig er skynsamlegt að fara í
gegnum skápa og skúffur því oft
safnast þar hlutir sem við notum
ekki lengur,“ segir Guðrún en
bætir við: „Það er þó algjör óþarfi
að þrífa veggi og loft fyrir jóla-
mánuðinn sem er svo dimmur að
við sjáum vart óhreinindin, ef ein-
hver eru. Þá þykir mér skynsam-
legra að þrífa þegar jóladótið er
tekið niður.“
Jólasmákökurnar er gott að
byrja að baka um miðjan nóvem-
ber. „Þeir sem baka sörur geta
byrjað á þeim fyrr því þær geym-
ast best í frysti,“ útskýrir Guðrún
sannfærandi. „Í mínum huga á
undirbúningur jólanna að vera
samvera með fjölskyldunni þar
sem við bökum saman, föndrum og
búum jafnvel til jólagjafir.“
Guðrún telur gott að hafa jóla-
gjafirnar í huga allt árið. „Það getur
verið að við sjáum eitthvað sem
myndi gleðja hana Siggu litlu og þá
er sniðugt að kaupa það þó svo það
sé bara aprílmánuður.“ Með því
móti má líka spara skildinginn þar
sem oft má finna nytsamlega hluti
á útsölum og þá er heldur ekki
hlaupið upp til handa og fóta í
stressi og bara eitthvað keypt,
sama hvað það kostar. „Í þeim þjóð-
arþrengingum sem nú eru er ráð að
hætta að gefa allar þessar stóru
jólagjafir þar sem fólk setur sig í
miklar skuldir,“ segir Guðrún og
nefnir einnig að jólin eigi að vera
gleðistund og sú gleði felist meðal
annars í að gleðja aðra með ein-
hverju sem valið er af kostgæfni.
„Síðan eiga dagarnir í desember
að fara í kertaljós, jólaföndur og
jafnvel konfektgerð fyrir þá sem
njóta þess. Aðalatriðið er að njóta
samvista við fjölskyldu og vini og
mér finnst að jólasmákökurnar
eigi að borðast í desembermánuði
því þá er tíminn til að njóta þeirra.
Um jólin er svo mikið af mat og
fáir hafa þá pláss fyrir vanillu-
hring,“ segir Guðrún kankvís.
hrefna@frettabladid.is
Best að byrja tímanlega
Þrátt fyrir að enn séu rúmir tveir mánuðir til jóla eru ýmsir hlutir sem huga má að til að létta sér verkin
þegar styttist í jólin. Guðrún Þóra Hjaltadóttir lumar þar á ýmsum góðum ráðum.
Guðrún segist fylla heimili sitt af jólum
strax í desember. „Ég hef alltaf búið til
eitthvað fallegt fyrir hver jól og hef þá
ýmist saumað, prjónað eða límt.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
HILLA sem er opin til beggja hliða getur verið sniðug
til þess að skipta barnaherbergjum sem systkini þurfa
að deila. Bæði börnin geta þá notað hilluna.
ELDAVÉLAR - INNBYGGINGAROFNAR - HELLUBORÐ - VIFTUR - HÁFAR - UPPÞVOTTAVÉLAR - KÆLISKÁPAR - FRYSTISKÁPAR
B
ETR
I STO
FA
N
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500
Mán. - föst.kl. 10-18
Laugardaga kl. 11-16
OPIÐ
www.friform.is
Westinghouse
INNRÉTTINGATILBOÐ
SEM ÞÚ MÁTT EKKI MISSA AF
25% AFSLÁTTUR AF RAFTÆKJUM, ÞEGAR ÞAU ERU KEYPT MEÐ INNRÉTTINGU !
KAUPAUKI
Pottasett fyrir spanhellur
( verðmæti kr. 20.000 )
Þegar þú verslar við okkur
fyrir a.m.k. kr. 500.000 færð
þú vandað STÁLPOTTA-
SETT í kaupbæti.
NÚ ER LAG AÐ
GERA GÓÐ KAUP.
NOTAÐU
TÆKIFÆRIÐ OG
NÝJA INNRÉTTINGIN
VERÐUR TILBÚIN
TÍMANLEGA FYRIR
JÓL.
ELDHÚS BAÐ FATASKÁPAR ÞVOTTAHÚS
25%
AF ÖLLUM NETTOLINE
INNRÉTTINGUM
TIL 15. NÓVEMBER
NÝ VEFSÍÐA - VELKOMIN 24/7
UPPLÝSINGAR O
s
ng Mjódd
Næsta
námskeið
hefst
24. okt. n.k.