Fréttablaðið - 20.10.2008, Blaðsíða 28
16 20. október 2008 MÁNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðlaug Pétursdóttir
Kjerúlf
áður til heimilis aðLaugarnesvegi 80,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn 11. október.
Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudag-
inn 22. október kl. 13.00.
Þórunn Kjerulf Ivey David P. Ivey
Vilborg J. Kjerulf Jens Nielsen
Ásta Haraldsdóttir Hjálmar Sveinsson
Hafdís Ágústsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
STEFÁN JÓHANN STEFÁNSSON RÁÐ-
HERRA LÉST ÞENNAN DAG
ÁRIÐ 1980.
„Gagnrýnislaus bjartsýni er
oft hættuleg. Einsýn bölsýni er
síst betri.“
Stefán Jóhann var lögfræðingur
að mennt. Hann sat í ótal stjórn-
um og nefndum, var félagsmála-
ráðherra um tíma, síðan utanrík-
isráðherra og enn síðar forsætis-
og félagsmálaráðherra.
Íslenska kvikmyndin
Mýrin var frumsýnd
í öllum betri kvik-
myndahúsum lands-
ins þennan dag árið
2006. Hún var gerð
eftir samnefndri sögu
Arnalds Indriðason-
ar sem notið hafði
mikilla vinsælda frá
því hún kom út alda-
mótaárið 2000. Balt-
asar Kormákur var
leikstjóri myndarinn-
ar og hófust tökur á
henni í mars árið 2006. Þær fóru aðallega fram
á Reykjavíkursvæðinu, í Sandgerði og Grinda-
vík.
Mýrin hefst á því að rannsóknarlögreglumað-
urinn Erlendur er
kallaður til í Norð-
urmýrina. Þar hefur
roskinn maður
fundist myrtur og í
skúffu er mynd af
fjögurra ára gamalli
stúlku sem tengist
miklum fjölskyldu-
harmleik.
Ingvar E. Sigurðs-
son skilaði Erlendi
á hvíta tjaldið og
fleiri stjörnuleikarar
komu við sögu. Tón-
listin var eftir Mugison. Myndin fékk strax lof-
samlega dóma og þótti framúrskarandi. Fram-
leiðendur hennar voru Agnes Johansen, Lilja
Pálmadóttir og Baltasar Kormákur.
ÞETTA GERÐIST: 20. OKTÓBER 2006
Stórmyndin Mýrin frumsýnd
MERKISATBURÐIR
1728 Gífurlegur bruni byrj-
aði í Kaupmannahöfn og
geisaði í þrjá daga. Þar
brann mikill hluti bóka-
safns Íslendingsins Árna
Magnússonar.
1905 Stofnaður er svonefndur
Landsdómur til að dæma
ef ráðherra fer offari og
brýtur af sér í stjórnarat-
höfnum.
1905 Konungur undirritar lög
um stofnun Kleppsspítala
í Reykjavík.
1951 Þór, stærsta varðskip ís-
lensku þjóðarinnar,
kemur til landsins.
1989 Borgarleikhúsið í Reykja-
vík er vígt með viðhöfn.
Það hafði verið þrettán ár
í byggingu.
1999 Skjár einn hefur sjón-
varpsútsendingar.
„Afmælishaldið verður í anda efna-
hagsástandsins. Það verður lágur
prófíll á því. Ég verð bara með nán-
ustu fjölskyldu og læt eitthvað stærra
bíða þar til komin er betri tíð með
blóm í haga,“ segir Steinþór Skúlason
sem fagnar fimmtugsafmæli í dag.
Hann hefur stýrt Sláturfélagi Suður-
lands síðan 1988 og var framleiðslu-
stjóri þar áður. Því liggur beint við að
spyrja í byrjun hvort hann sé uppalinn
við landbúnað.
„Ja, ég var í sveit í mörg sumur á
Vindheimum í Skagafirði og síðar eitt
sumar á Snæfellsnesi, þannig að ég
hef miklar taugar til landsins og þess
sem íslenskt er.“
Þótt Steinþór reki glaður ættir sínar
út fyrir malbikið bæði í Borgarfjörð og
Skagafjörð er hann fæddur og uppal-
inn á höfuðborgarsvæðinu. „Ég var svo
lánsamur að alast upp í Eskihlíðinni til
ellefu ára aldurs,“ segir hann, inntur
eftir æskuslóðunum. „Á þeim tíma var
Öskjuhlíðin algerlega óbyggð og mikið
ævintýrasvæði fyrir unga drengi. Í
blokkinni minni bjuggu þá Jónas Jón-
asson útvarpsmaður, Jakob Frímann
Stuðmaður og margt fleira gott fólk. Í
næstu blokk var svo Eyþór Gunnars-
son Mezzoforte-maður. En ég flutti ell-
efu ára í Garðabæinn, eða Garðahrepp
eins og sveitarfélagið hét þá, og fjöl-
skyldan settist að á Flötunum. Þar var
líka skemmtilegt umhverfi, Heiðmörk-
in og heilmikið óbyggt svæði.“
Fyrst Steinþór nefnir fjölskylduna
er forvitnast nánar um hana. „Foreldr-
ar mínir eru Ólöf Sigurðardóttir og
Skúli Brynjólfur Steinþórsson og ég á
tvær systur, þær Ólöfu Rún og Brynju
Sif. Svo á ég yndislegar þrjár dætur,
Snædísi, Hildi og Steinunni,“ upplýs-
ir hann.
Næst er hugað að skólagöngunni.
„Ég fór í MR, þann gamla góða skóla
og átti þar yndislegan tíma. Það er svo
gaman að þeim hefðum sem þar ríkja.
Ég var á eðlisfræðibraut og eftir það
fór ég í vélaverkfræði í Háskólanum
og síðan iðnaðarverkfræði í Banda-
ríkjunum. Það nám allt kemur sér vel
í svona tæknivæddu umhverfi eins
og ég er í og hentaði mjög vel í þann
starfsferil sem síðan varð.“
Áhugamálin eru æði mörg að sögn
Steinþórs og hann nefnir boltaíþrótt-
ir, svifflug og skotfimi. Einnig lestur
góðra bóka og ekki síst dulspeki. „Dul-
spekin er ein af mínum mörgu áhuga-
málum,“ segir hann. „Hún spannar í
raun tilveruna í allri sinni dýrð og ef
þú spyrð mig hvort ég trúi á líf eftir
dauðann svara ég því til að þetta sé
lífið eftir síðasta dauða og fyrir þann
næsta.“
Að Steinþór hafi komist á rétta hillu
í lífinu telur hann líka að einhverju
leyti forlög. „Ég held að hin stóru atvik
í lífinu séu að einhverju leyti skrifuð í
forlagabók manns,“ trúir hann blaða-
manni fyrir. „Ég hef verið lánsam-
ur að fá spennandi verkefni að glíma
við og að vera með fólki sem hefur
haft trú á mér. Ég hef líka fengið tæki-
færi til að læra af mínum mistökum og
það er mikið lán,“ segir hann og bætir
við. „Ég er maður gamaldags riddara-
legra hefða. Kem hreint fram, stend
fyrir mínu og fell með mínu liði ef svo
ber undir. Ég trúi því að lífið sé skóli
og manni sé ætlað að læra af því sem
maður gengur í gegnum.“
gun@frettabladid.is
STEINÞÓR SKÚLASON, FORSTJÓRI SS: FIMMTUGUR Í DAG
Miklar taugar til landsins
og alls þess sem íslenskt er
AFMÆLI
KRISTÍN HALL-
DÓRSDÓTTIR,
fyrrverandi
alþingismaður,
er 69 ára.
ÁSTRÍÐUR
THORAREN-
SEN
hjúkrunar-
fræðingur er
57 ára.
SÚSANNA
SVAVARS-
DÓTTIR
rithöfundur er
55 ára.
MARÍA SIG-
URÐARDÓTTIR
leikhússtjóri er
54 ára.
Framkvæmdir við nýbygg-
ingu Háskólans í Reykjavík
við Nauthólsvík eru í fullum
gangi en gert er ráð fyrir að
fyrsti hluti byggingarinnar,
um 22.00 fermetrar verði
tekinn í notkun í ágúst á
næsta ári. Seinni hlutinn,
sem telur 14.000 fermetra,
verður svo tekinn í notkun
í ágúst 2010.
Alls eru 3.030 nemend-
ur skráðir til náms á yf-
irstandandi haustönn en
búist er við að nemendur
telji 3.200 manns þegar öll
starfsemi skólans verður
komin í Vatnsmýrina árið
2010.
Til að mæta aukinni um-
ferð nemenda, kennara
og starfsfólks er unnið að
lagningu nýs vegar frá há-
skólabyggingunni að Hótel
Loftleiðum. Að auki verð-
ur nýr vegur, svokallaður
Hlíðarfótur, lagður frá Hót-
elinu niður að Hringbraut.
Þá verða lagfæringar gerð-
ar á Flugvallarvegi, frá Bú-
staðavegi að Hótelinu. Sam-
kvæmt upplýsingum frá
Háskólanum í Reykjavík
er gert ráð fyrir að þess-
ar götur anni umferð á há-
skólasvæðinu.
Mæta aukinni umferð
FRÁ NAUTHÓLSVÍK Nýbygging
Háskólans í Reykjavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Merkingar á hjólastígum
standa nú yfir vestan Suð-
urgötu, í Skerjafirði. Slík-
ar merkingar verða einnig
settar á næstunni á Lang-
holtsveg og Laugarásveg.
Umhverfis- og samgöngu-
svið Reykjavíkurborgar
hefur undanfarið unnið að
því að bæta aðstæður fyrir
þá sem vilja nota reiðhjólið
sem samgöngutæki.
Tvöföldun Ægisíðustígs
er langt komin en þar verða
sérreinar fyrir hjólandi og
gangandi til að greiða þeirra
samgöngur.
Hjólareinar
merktar
HJÓLREIÐAFÓLK Breytingarnar munu eflaust hvetja fleiri til reiðhjóla-
notkunar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
FORSTJÓRINN „Ég er maður
gamaldags riddaralegra hefða.
Kem hreint fram, stend fyrir mínu
og fell með mínu liði ef svo ber
undir,“ segir Steinþór Skúlason.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA